Morgunblaðið - 18.12.1962, Page 13

Morgunblaðið - 18.12.1962, Page 13
Þriðjudagur 18. des. 1962 MORGV TS BL AÐIÐ 13 EFTIR nokfcrum krókaleiðum komst ég að því að Sigríður Þorsteinsdóttir ætti 100 ára al- mæli hinn 18. desember. Þessi sérstæði afmælisdagur var ekki í hámælum hafður, því Sigríður sjálf, og dætux henn- ar, Helga, Ingiríður og Þorgerð ur eru hógværar og Ihlédræg- ar, en þeim mim traustari í hvívetna. Mér er boðið til stofu að Suðurgötu 47. Þar situr fallega gráhærð og glaðleg kona í stól, svo ungleg og kvik að vart verður trúað að sú kona eigi heila öld að baki, en þetta er staðreynd eigi að síður. Og á hennar 36 þúsund og 500 daga hefur sitthvað drifið, sem okk- ur innan við hálfu öldina er forvitnilegt og gott til fróð- leiks. Sigriður er fædd að Stóra- Ási í Hálsasveit, og hefur - ætt hennar búið þar í meira en 200 ár. Ég bið Sigríði að segja mér eitthvað frá hennar æsku- og bernskudögum. -— Það er ekkert gagn í því — það er svo lítið sögulegt og lífið viðburðalítið hjá sveita- stelpu á fremsta bæ. — Nú- tímafólkið skilur það varla hvemig lifað var, því það er Sigríður Þorsteinsdóttir. en þá gat blessuð húsfreyjan ekki sofið því hún vaknaði í hvert skipti sem klukkan sló. — Búskaparhættirnir voru allt aðrir þá en nú, þó ekki sé lengra síðan en ævin mín. — Ég var víst um 11 ára, þegar ég sá olíulampa fyrst, það voru notaður bolur og unnið við þær fínir og fallegir dúkar og allt annað, sem gera þurfti — og ljósmetið vár lýsi og hrossa flot. Hlóðir voiu til eldunar, með hrísi, taði og mó. Fyrsta eldavélin, sem kom í sveitina var í Reykholti hjá Guðmundi Helgasyni föður Ásmundar biskups, og svo kom eldavél að Sturlureykjum og á ein- hverja fleiri bæi. Það voru alltaf notaðir heimagerðir ljá- ir við heyskapinn — ég var komin yfir tvítugt, þegar fyrsti útlendi ljárinn kom að Vil- mundarstöðum, og þá var farið þangað til að skoða ljáinn — það var mikil framför að út- lenda ljánum. — Ég held að 1882 hafi ver- ið eitt erfiðasta árið, sem ég man eftir. Þá var ekki fært frá nema 30 ám í staðinn fyrir 90 áður og þá smökkuðum við aldrei viðbit, en fóstri smíðaði eitthvað fyrir einn búralegan nábúa og fékk fyrir það eina smjörtöflu — það var um hvíta sunnu - anars var bara vatns Heðar aldar saga er samferða lífi Sigríðar Þorsteinsdóttur, sem er 100 ára í dag — Rabbad v/ð elzta borgara Keflavlkur s«ro langt síðan, en ég hefi séð hve blessuðu fólkinu líður vel núna. — Það voru engir skólar. Mér var kennt að þekkja staf- ina og lesa svolítið. Það var fyrst árið eftir að ég var fermd, sem skipað var að öll- um skyldi kennt að skrifa og reikna — en ég komst ekki í það — þó lærði ég að draga til stafs með fjöðurpenna. — Jú, það var stundum hart í ári — frost og stórbyljir sól- arhringum saman og stundum voru 18 þrep gegnum skaflana niður að vatnsbólinu, það var stundum erfitt að sækja vatn- ið, en við vorum ekkert of góð til þess. Fyrsfa Ijóðabók skáldkonu ungrar Morgunregnið" eftir Þórunni Magneu E K KI alls fyrir löngu birtist í Lesbók Morgunblaðsins samtal við 16 ára stúlku, Þórunni Éf vm** * % Þónmn Magnea Magneu, og var frá því skýrt að hún hefði ort ljóð, sem í ráði væri að Helgafeli gæfi úfc Nú er ljóðabók Þórunnar komin á markað og nefnist „Morgunregn- ið“. Ennfremur hefur Helgafell gefið út eftir hana dálítið kver, sem heitir „Sögur og ævintýr“ og er það prýtt með teikningum eft- ir Margréti Reykdal, sem mun vera 14 ára gömul. Ævintýrabók Þórunnar er 46 bls. að stærð og eru í henni tíu sögur og ævintýr. Ljóðabókin „Morgunregnið" er 43 bls. að stærð með 34 Ijóðum. Bók þessi er einnig myndum prýdd. Hún er eins og aðrar Helgafellsbækur prentuð í Vík- ingsprenti hf. Eins og frá var sagt í Lesbók- inni á sínum tíma, er Þórunn Magnea Reykvíkingur. Hugur hennar hefur ávallt stefnt til ljóðlistar, en þó hefur hún einnig mikinn áhuga á leiklist og hefur m.a. stundað nám í leikskóla Ævars Kvarans. Undanfarið hef- ur hún æft undir dálítið hlut- verk í Pétri Gauti, sem frum- sýndur verður nú um hátíðarn- ar. Þar kemur þessi unga skáld- kona fyrst fram á sviði. — Það var stundum lítið um mjólk og langbezt að vera þar sem harðæti var — það voru oft 3 menn á vertíð, þeir hirtu þorskhausa, sundmaga, svil og kútmaga, þetta var allt þurrkað og hert, síðan sett í súr og var okkar góði matur frameftir vetri. — Kornmatur var ekki annað en rúgur og bankabygg, sem malað var heima og notað í útákast. — Á jólum og stórhátíðum voru bak aðar lummur úr bankabyggi, og svo var spilað púkk og al- kort — þetta var regluleg hátíð og ég hefi sjaldan séð fólk eins ánægt og það var þá — það var mikil skemmtun að fá að fara fótgangandi til næsta bæjar, þó langt væri á milli bæja. — Þegar ég var krakki þurftu allir að vinna. Ég var látin vaka yfir vellinum og til þess að halda mér vakandi átti ég að bera taðhrúgur af tún- inu. Allt var miðað við eyktir, þó það væri til klukka á Stóra-Ási. Ég var orðin meira en tvítug, þegar klukka kom á Kolslæk, sem var næsti bær, grautur og einhver kaka — en kaffi var til frá því ég man fyrst eftir mér. Það var gömul kona á Stóra-Ási, sem sagði mér frá miklu rneiri harðind- um en ég man eftir — þá voru jafnvel borðaðar skóbætur og skóvörpin. Það gleður mig mikið hve fólkið hefur það gott núna — ég óska en0um að lifa upp mín æskuár. — Það var oft gestkvæmt að Stóra-Ási. Þegar Norðlend ingar voru að fara suður þá gistu þeir þár og voru margir snúningar við það — ég varð að hlaupa niður að Hvítá að ferjustaðnum, en það var háLf tíma gengur — en aldrei var tekinn ferjutollur eða gjald fyrir næturgreiða. Norðan- menn voru oft illa til reika, á götóttum og varpslitnum skóm og það var að gera að því fyrir aumingja mennina svo þeir gætu haldið áfram. — Förumönnum var alltaf vel tekið. Ég man eftir Heiga fróða, Símoni Dalaskáldi — og Jóni Þorsteinssyni. Jón var leiðinlegur og hrekkjóttur. Hann kom eitt sinn að Auga- stöðum og þar var telpa, sem vakti yfir túninu og hann hræddi hana svo að krakkinn hljóp á fjöll. — Hinir voru meinlausir og skemmtilegir, sem ég man eftir. Auk þessara sérkennilegu förumanna var alltaf talað um flækinga og flakkara, sem hvergi gátu unað sér. — Gaman að lifa heila öld? — Ójá, já — Það eru marg- ir sólskinsblettir og mikil ánægja — en það er engin leið að leggja að líku lifimát- ann, sem áður var og nú er. — Það er enginn munur gerð- ur á fólki núna, það eru allir eins — en þó er nú ekkert gaman að lifa svona — bara til þyngsla. — Mamma er ekki til neinna þyngsla, svarar Helga dóttir hennar, hún er svo glað- lynd og frísk eftir öllum von- um, þó að sjónin sé farin að bila ög heyrnin að sljóvgast. Það eru nú 40 ár síðan ég kom hingað til Keflavíkur, segir Sigríður, og það var dótt ur minni að þakka, eins og svo margt annað gott — og hvergi hefur mér liðið betur á ævinni en hér og Guð blessi þennan stað og fólkið — bæði fólkið mitt og alla aðra og gefi því hamingjurík ár og langa lífdaga, því það er gaman að lifa núna við öll þessi gæði og allsnægtir. Heillrar aldar saga er sam- ferða lífi Sigríðar Þorsteins- dóttur. Sem 12 ára telpa fagn- ar hún 1000 ára afmæli fs- landsbyggðar og allir hinir við burðir aldarinnar, sem nú eru orðnir sögulegir, lifa í huga hennar, viðburðir, sem marka sporin að fullu frelsi og vel- megunar lands og þjóðar, enda þótt Sigríði séu frekar minni- stæðir fyrstu forboðar fram- faranna — eins og þegar elda- vélin og ljárinn kom í sveit- ina. Sigríður var gift Einar Jóns syni, sem einnig var frá Stóra- Ási, og standa ættir þeirra beggja í Borgarfjarðardölum. Þau hjónin bjuggu lengst af á Skáney og nokkur síðari árin að Refsstöðum. Fimm börn þeirra eru á lífi, Sigríður búsett á Akranesi og Þorsteinn sem býr í Flókadal í Borgarfirði, svo og systurnar þrjár í Keflavík, þær Ingiríð- ur, Þorgerður og Helga. ’Sigríður lítur nú yfir lang- an farinn veg. Glaðlyndi, bjart sýni og velvild til allra er enn- þá óbugað — og ennþá fylgja prjónarnir henni, sem þeir hafa gert í 95 ár og hefur mörg lykkjan verið með þeim brugð in — smásokkar á barna- barna-börnin renna ennþá lykkjufallalausir af prjónum hennar. — Helgi S. Fjórir ættliðir. í miðju eru Sigríður og Ingigerð ur, dóttir hennar. Til hægri er Svava Runólfs- dóttir og til vinstri Inga Skaftadóttir.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.