Morgunblaðið - 18.12.1962, Page 24

Morgunblaðið - 18.12.1962, Page 24
284. tbl. — Þriðjudagur 18. desember 1962 HERRADEILDIN 1 MARTEÍNÍ LAUGAVEG 31. Vb. Halldór Jónsson aflahæstur Síldaraflinn um 370 þús. tunnur — Reykjavík hæsta verstöðin Sveik fé út úr fólki á Akranesi SÍLDARAFLINN í haust mun nú kominn upp í 370 þús. tunnur. Skv. skýrsiu Fiskifélagsins var heildarmagnið sl. laugardag orðið 345.393 uppmældar tunnur, en síðan hafa bætzt við a. m. k. 24 Sjómanns saknað SLÆTT var eftir líki við Ægis- garð í gær, en manns af vb. Sel- ey, sem legið hefur við garðinn, hefur verið saknað síðan aðfara- nótt sunnudags. Maðurinn var ásamt fleiri félögum sínum um borð í Seley um nóttina, en á fjórða tímanum á sunnudags- morgun kvaddi hann þá og ætl- áði að halda í land. Seinna um nóttina vgr tekið eftir því, að stigi, sem lá frá vb. Guðrúnu Þorkelsdóttur upp á garðinn, og maðurinn hefði orðið að fara um, hafði dottið í sjóinn. Óttast menn, að maðurinn hafi hrapað með stiganum í sjóinn og drukknað, því að hans hefur ekki orðið vart síðan um nóttina. Flestir veg- ir færir ÞEGAR Mbl. átti tal vi» Vegamálaskrifstofuna í gær, var Hellisheiði lokuð, og stóð ekki til að opna veginn í bili. Skafbylur var þá alla leið frá Hólmsá og austur fyrir fjall. Fara bílar nú allir um Þrengslaveginn. Færð er sér- staklega erfið við Lækjar- botna og á Sandskeiði. Hvalfjarðarvegur var fær, en þar var flughált, eins og reyndar á flestum vegum, svo sem Suðurnesjavegi. Kerling- arskarð var fært og flestir vegir á Snæfellsnesi, nema Eyrarsveitarvegur milli Grundarfjarðar og Stykkis- hóilms. Brattabrekka var fær og einnig Holtavörðuheiði, en hún var þó erfið smærri bíl- um. Annars var norðurleiðin fær allt til Akureyrar. þús. tunnur. Hæstu veiðistöðvar eru þessar: Grindavík .............. 17.402 Sandgerði .............. 15.523 Keflavík .. . .......... 68.559 Hafnarfjörður .......... 30.795 Reykjavík .............. 124.885’ Akranes .............. 67.106 Ólafsvík ............. 10.578 118 skip hafa fengið afla og þar af 29 yfir 3000 tunnur. Aflahæst eru: Halldór Jónsson frá Ólafs- vík (10.100), Víðir II úr Garðin um (9.893), Haraldur frá Akra- nesi (8.242) og Höfrungur II. frá Akranesi (7.313). Allgóð síldveiði ALLGÓÐ veiði var á síldarmið- unum aðfaranótt sunnudags. Tregt var fram eftir nóttu en batnaði undir morgun. Fengu 36 skip 23.150 tunnur. Á sunnu- dagskvöld köstuðu nokkrir bát- ar, en fengu ekki nema 50—150 tunnur hver. Veður versnaði síð- an svo mjög, að bátarnir héldu flestir til hafna, en sumir lágu í vari .undir Jökli. Veiðin er enn í Kolluál, þar sem síldin er góð, og í Jökultungum, þar sem hún er misjafnari að gæðum. Einn bátur veiddi í Skerjadjúpi ná- lægt Eldey aðfaranótt sunnu- dags. Viðtækjaþjófur handtekinn Rannsóknarlögreglan hefur upplýst þjófnað, sem framinn var fyrir nokkrum dögum í viðtækja verzluninni að Laufásvegi 41, en þaðan var stolið 9 viðtækj- um og seglubandstæki. Er bílstjóri einn las blaðafregn ir um innbrot þetta áttaði hann sig á því að hann mundi hafa ekið þj ófnum ásamt þýfinu um- rædda nótt. Fannst þjófurinn eft ir tilvísan bílstjórans aðfararnótt sl. laugardags. Nokkur viðtækj- anna eru komin í leitirnar, en rannsókn málsins stendur enn yf- ir. Situr þjófurinn í gæzluvarð- haldi. LÖGREGLAN í Borgamesi hand tók mann á sunnudagskvöld skv. beiðni lögreglunnar á Akranesi, en þaðan var maðurinn að koma. Maður þessi, Sigurður Arn- björnsson að nafni, er þekktur fyrir að svíkja fé út úr fólki, en ekki mun hann hafa lagt leið sína upp á Akranes fyrr en á sunnudag. Þangað kom hann með leigubíl úr Reykjavík. Hitti hann að máli starfsmann fyrirtækis eins á Akranesi, sagðist vera ráð inn til þess í vinnu, og ætti fyrir tækið að greiða bílkostnaðinn skv. samningi við forstjóra þess. Síðan hóf hann „sláttuherferð“, kynnti sig fyrir ýmsu fólki og bað það um skyndilán. Kvaðst Landsútsvarið 11,7 milljónir LOKIÐ er álagningu á þá gjaldr endur, sem greiða eiga landsút- svar 1962, en þeir eru þessir: Olíufélagið hf., kr. 5.680.418.—, Olíufélagið Skeljungur hf., kr. 2.779.353.— og Olíuverzlun ís- lands hf., kr. 3.327.706.—. Sam- tals kr. 11.737.477.—. hann stundum vera bróðir þekkts borgara á Akranesi og vera í þann veginn að kaupa íbúð, en sig skorti fé til bráðabirgða. Tókst honum að fá eitthvað á þriðja þúsund krónur að láni, sem vitað er um. Lögreglan frétti um ferðir hans undir kvöld Og ætlaði að ná honum í hótelinu. Sigurður mun hafa haft einhvern pata af því og slapp þaðan á seinustu stundu, en skildi far- angurinn eftir. Var þá lögreglan í Borgarnesi og Hvalfirði beðin að hefta ferðir hans og tókst 'hinni fyrrnefndu það. Var hann fluttur til Akraness og settur þar inn. Eldur í „Hrefnu** KL. um hálfeitt á aðfaranótt mánudags var tilkynnt til slökkviliðsins, að kviknað væri í vb Hrefnu RE 186, litlum báti, sem lægi við Grandagarð fram- undan húsi Slysavarnarfélagsins. Mikið rauk úr káetu bátsins, er slökkviliðið kom á vettvang, og var þar talsverður eldur. Vatni var dælt á eldinn úr tveimur háþrýstislöngum og einni slöngu úr vatnsveitukerfinu að auki. Tókst fljótlega að slökkva, en miklar skemmdir urðu í káet- unnj og milliþili aftan við hana. Eldsupptök voru þau, að eigandi bátsins hafði verið að vinna í honum um daginn og kveikt upp í kabyssunni. Síðan fór hann frá, en kom aftur fjórum tímum síð- ar. Var þá allt í lagi. Síðan kom hann aftur eftir miðnætti, og var þá eldur uppi í bátinum. Hefur hann kviknað út frá kabyssunni. — Slökkviliðið telur afar óvar- legt að skilja eftir eld um borð í bátum og vill brýna fyrir mönnum að varast það. Barn fyrir bíl á Hverfisgötu SfÐDEGIS í gær varð fjögurra ára gamall drengur fyrir bíl á Hverfisgötu, rétt austan við Rauðarárstíg. Hljóp drengurinn í veg fyrir aðvífandi Volkswag- enbíl, og skall í götuna. — Var hann fluttur í Slysavarðstofuna, en meiðsli hans reyndust ekki mikil. Sjómaður hufuðkupu brotnar KEFLAVÍK, 17. desember. UM kl. 7 á laugardagsmorg un kom vb Þórkatla frá Grindavík til Keflavíkur með mjög slasaðan mann. Hafði kraftblakkarbóman losnað úr festingu, og féll hún á höf- uð mannsins, sem hlaut mjög slæmt höfuðkúpubrot og aðra áverka. Farið var með mann- inn í sjúkrahúsið í Keflavik, þar sem mikil aðgerð var gerð t á honum. Tókst hún eftir von- J um, og líður manninum eftir \ atvikum í dag. — Maðurinn heitir Jón Árnason, 32ja ára, til heimilis á Otrateigi 20 í Reykjavík! I Svipað slys varð á einum Keflavikurbátanna í mai í vor að bóma losnaði úr festingu og féll á mann. Á þeim báti hefur nú verið komið fyrir öryggisfestingu, svo að slíkt getur ekki komið fyrir aftur. Þyrfti þannig öryggisfesting að vera á öllum bátum. — hjs. Dauðadrukkinn undir stýri UM kl. 17.30 á mánudag var lög- regluþjónn að stjórna umferð í Tryggvagötu í krapahríð, slæmu skyggni og mikilli umferð. Sá hann þá ljóslausan bíl koma á móti sér og gekk til móts við hann, til þess að hafa tal af bíl- stjóranum og vita, hverju þetta sætti. Munaði þá engu, að bíl- stjórinn æki á lögregluþjóninn, sem varð að skjóta sér snarlega til hliðar. Bílstjórinn nam þá staðar, og kom í Ijós, að hann var þreifandi fullur, svo að draf- aði í honum tungan. Var farið með hann þegar niður á lög- reglustöð. Mjög góðar sölur togara erlendis ÞRÍR íslenzkir togarar seldu er- lendis á mánudag fyrir mjög gott verð. B.v. Þorsteinn Ingólfsson seldi í Bremerhaven síldarfarm, 230 tonn fyrir 151.800 mörk. B.v. Hvalfell seldi fiskfarm ! Bremerhaven, 136 tonn fyrir 135 þúsund mörk. og b.v. Ingólfur Arnarson seldi 209% tonn í Hull fyrir 14.123 sterlingspund. Á sunnudagsmorgun kl. 10 var hámessa í Kristsk irkju á Landakotshæð. Söng þar messu í fyrsta skipti hér á Iandi, séra Sæmundur Vigfússon. A myndinni sést, þegar sakramentinu var útdeilt. Frá vinstri: séra Habets, séra Sæmundur, séra Hacking. Ljósm. Mbl.: Ól. K. M.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.