Morgunblaðið - 18.12.1962, Síða 14
14
MORCVHBLAÐIÐ
Þriðjudagur 18. d«s. 1962
HL,N
auglýsir
Fallegar og ódýrar prjónavörur
á alla fjölskylduna.
Prjónastofan Hlín
Skólavörðustíg 18.
Vegna jarðarfarar
verður verzlun okkar lokuð í dag frá kl. 1.
Verzlun B. H. Bjamason h.f.
Vegna jarðarfarar
verður skrifstofa okkar lokuð eftir hádegi í dag.
r/<
Heildverzlun Ama Jónssonar h.f.
Konan mín
JÓHANNA GÍSLADÓTTIR
Háaleitisvegi 26,
andaðist í Bæjarspítalanum 16. þessa mánaðar.
Guðmundur Nikulásson.
Maðurinn minn og sonur
MARKÚS ÞÓRARINN JÚLÍUSSON
lézt í Landsspítalanum 12. þ. m.
Svanhildur Þórarinsdóttir, Júlíus Guðjónsson.
Maðurinn minn
JÓN BERGÞÓRSSON
andaðist á St. Jósefsspítala, Hafnarfirði 16. þ. m.
Jóna Asgeirsdóttir,
börn og tengdaböm.
Útför
SVERRE SMITH
loftskeytamanns,
fer fram frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 19. des-
ember næstkomandi klukkan 13,30. Blóm eru vinsam-
legast afþökkuð, en þeim sem vilja minnast hins látna
er bent á líknarstofnanir.
Hjördís Smith,
Ragnhildur Smith, Birgir Breiðdal,
Sjöfn Smith, Ingimundur Magnússon.
Útför konu minnar
ÁGÚSTU VILHELMÍNU EYJÓFSDÓTTUR
Hörpugötu 13 B,
fer fram frá Neskirkju miðvikudaginn 19. þ.m. kl. 2 s.d.
Jarðsett verður í Fossvogskirkjugarði.
Þeim, sem vildu minnast hinnar látnu, er bent á
Krabbameinsfélagið.
Fyrir mína hönd, bama, tengdabarna og bamabama.
Ágúst Jóhannesson.
Þökkum af alhug öllum þeim sem auðsýndu okkur
samúð og hluttekningu við fráfall og jarðarför
KRISTJÓNS ÞORSTEINSSONAR
Meiri-Tungu.
Þórdís Þorsteinsdóttir, Ragnar Marteinsson,
Þórður Þorsteinsson, Guðmar Ragnarsson,
Þórunn Ragnarsdóttir.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug
við andlát og jarðarför
JÓNS SIGMUNDSSONAR
Sigríður Guðmundsdóttir og börn.
Magnús Stefánsson
stórkaupm. - Minning
Fæddur 6. nóvember 1897.
Dáinn 11. nóvember 1962.
MAGNÚS Stefánsson var fæddur
í Reykjavík, 6. nóvember 1897 —
Foreldrar hans voru Ingibjörg
Zakaríasdóttir og Stefán Bjarna
son skipstjóri, sem bjuggu að
Bergi við Grundarstíg. Magnús
tók próf úr Verzlunarskóla ís-
lands 1918, og fór síðan til fram-
haldsnáms til Englands. Eftir að
Ihann kom heim aftur vann hann
við ýms verzlunarstörf, þar til
hann stofnsetti eigið innflutnings
firma og heildverzlun 1934.
Magnús rak heildverzlun sína
þar til 1943, en það ár varð hann
fyrir þeirri ógæfu að missa
heilsuna, sem að lokum leiddi
hann til dauða. Magnús var tví-
giftur, og átti einn son með fyrri
konu sinni. Magnús kvæntist aft-
ur eftirlifandi konu sinni, Jónu
Árnadóttur, og áttu þau fjögur
böm, eina stúlku sem dó korn-
ung, og þrjá syni. Átti hann því
fjóra syni á lífi sem heita Ingvi,
Birgir, Freyr og Stefán.
Magnús var svo lánsamur að
eiga góða konu. Ég hef sjaldan
kynnzt annarri eins umhyggju
og ástríki sem kona hans sýndi
honum, þegar hann þarfnaðist
þess mest og heilsan þraut. Hún
var allt í öllu fyrir Magnús,
heimilið og börnin. Aldrei gat ég
merkt að hún kvartaði undan
þeim erfiðleikum sem veikindi
Magnúsar lögðu á hana. Mér
fannst oft fórnarlund hennar
engin takmörk sett, og er mér
óhætt að fullyrða að Jóna er
fyrirmynd þeirra kvenna sem
standa fremst í baráttu við erfið-
leika heimilisins þegar alvarleg
veikindi sækja að, og missti hún
aldrei þá sálarró sem henni hef-
ur verið gefin í svo ríkum mæli.
Veikindi Magnúsar stóðu að
mestu óslitið um 15 ár, og allan
þann tíma gaf kona hans honum
alla þá vernd og hjúkrun sem
honum var svo nauðsynleg og
mátti hann helzt ekki af henni
sjá, þar sem hún ein gat staðið
við hlið hans og létt honum þær
þrautir sem sjúkdómur hans
lagði á hann. Sú fórn, sem kona
Magnúsar færði, er eitt af því
göfugasta sem kona getur gefið
manni sínum, sárþjáðum af lang-
varandi veikindum.
Ég átti því láni að fagna að
þekkja Magnús mjög vel, enda
vorum við alltaf miklir vinir,
auk þess sem hann var mágur
minn. Magnús var heilsteyptur
maður með mjög mikla hæfileika
á ýmsum sviðum. Hann var sér-
staklega duglegur kaupsýslu-
maður, og vel að sér í öllu sem
laut að venjulegum viðskiptum.
Hann var óvenju duglegur með
allt sem hann gerði, og engan
mann hefi ég þekkt sem afkast-
aði öðru eins verki á skrifstofu
sinni, á meðan heilsan var í lagi.
Hann vann alltaf þar til ekkert
var eftir, án þess að hugsa um
hvað tímanum leið, hann varð
alltaf að ljúka við verkefnið
hversu lengi sem það tók hann.
Magnús var heill í öllu sem
hann tók sér fyrir hendur, vand-
virkur og hreinskilinn við sam-
ferðamenn sína, enda með af-
brigðum kröfuharður við sjálfan
sig, svo mér þótti oft hann mis-
bjóða orku sinni og getu. Við
Magnús áttum oft saman ánægju
legar stundir, og er mér margt
minnisstætt frá þeim tima þegar
hann hafði fulla heilsu, og gat
tekið þátt í gleði vina sinna, sem
honum þótti vænt um. Það var
þ*. ' sárt fyrir vini Magnúsar, að
sjá svo fljótt af honum úr glað-
værum hóp, en hann gat ekki
um langan tíma tekið þátt í
heimsóknum til vina sinna vegna
þess hve veikur hann var.
Vinir Magnúsar hugsa nú til
hans með hugljúfum endurminn-
ingum og þakklæti fyrir starf
tbans hér, og munum við alltaf
minnast hans með virðingu þess
manns sem stóð alltaf heilsteypt-
ur með sjálfstæðar skoðanir á
öllu sem hann gerði og fórnaði
sér fyrir starfið hvort hann held-
ur vann fyrir sjálfan sig eða
aðra. Slíkir menn verða alltaf
minnisstæðir, og skilja eftir spor
•sem aðrir vilja feta í.
Magnús verður borinn til graf-
ar í dag, og munu margar hlýjar
kveðjur fylgja honum síðasta
spölinn.
Blessuð sé minning hans.
Árni Jónsson.
Kjarnorkuhellarnir
er ný bók um uppfinningamanninn unga Tom Swift og vin hans Bud
Barclay, sem kunnir eru orðnir af áður útkomnum bókum um „Ævin-
týri Tom Swift“. Ein þeirra, Sækoptinn, varð metsölubók síðastliðið ár.
Kjamorkuhellarnir er ein þeirra drengjabóka, sem ekki verður lögð
frá sér fyrr en hún er fulllesin. Ný ævintýri kjarnorkualdarinnar heilla
alla drengi, sem gaman hafa af viðburðahröðum og spennandi sögum.
Veirð kr. 67,00 + 2 kr.
Rannsóknarstofan fljúgandi
kemur nú út í annarri útgáfu og er ekki að efa að bókinni verður vel
tekið. Þetta er fyrsta bókin í bókaflokknum „Ævintýri Tom Swift“.
Óhætt er að fullyrða að fáar söguhetjur hafa náð jafn mikilli og
skjótri hylli islenzkra pilta og hinn ungi vísindamaður, Tom Swift og
vinur hans, Bud Barclay. — Verð kr. 67,00 -f 2 kr.
Sjónvarps-Siggi í frumskóginum
eftir ferðalanginn og rithöfundinn Arne Falk Rönnem er fyrsta bókin um
„Ævintýri Sjónvarps-Sigga“. Bókin segir frá viðureign Sjónvarps-Sigga
og félaga hans við óþekkta Indíánaflokka í frumskógum Bólivíu, en
höfundur hennar er kunnugur á þeim landssvæðum sem hann lýsir
í sögunni.
Þetta er spennandi ferðasaga fyrir unglinga, bók fyrir drengi á aldrin-
um 14 til 18 ára. Verð kr. 70,00 + 2,10 kr.