Morgunblaðið - 30.12.1962, Side 3
Sunnudagur 30. des. 1962
MORGVNBLAÐIÐ
3
Guðmundur Ingi
nýfæddur, ásamt móður
sinni. Mynd þessi birtist í
Mbl. 3. janúar s.U
þið kocmið aftur uan næstu
jól, sagði frúin hilæjandi uan
leið og við hurfuon út um'
bæjardyrnar, fer þetta að
verða prýðileg framhaldssaga
í blaðinu. — Hg.
Sko, hvað ég hef stækkað!
— Af hverju eruð þið að halda mér? skældi sá stutti, þegar
systur hans, Vigdís (t.v.) og Sigríður, reyndu að fá hann til
að sitja fyrir hjá ljósmyndaranum.
FYRSTA bamið, sem fædd
ist á árinu 1962, var sonur
hjónanna Sveins Guð-
mvmdssonar, garðyrkju-
bónda á Reykjum, og konu
hans, Þuríðar Sigurjóns-
dóttur. Harm var aðeins
nokkurra klukkustunda
gamall, þegar ljósmyndari
Morgunblaðsins tók mynd
af honum, og birtist hún í
blaðinu 3. janúar.
Eitt af síðustu verkefnum
okkar á árinu var að heilsa
upp á litla kútinn á Reykj-
um. Hann var steinsofandi,
þegar okkur bar að garði,
enda lítið gert annað í lífinu
til þesisa en að sofa, borða og
hjala.
— bað er svei mér gott að
einhver tekur mynd af hon-
um áður en árinu lýkur, sagði
móðir hanis, Þrúður. Ég hef
al’ltaf ætlað að láta mynda
litla prinsinn minn, en aldrei
komið því í verk. Þegar hann
var skírður kom einn mektar-
bóndinn úr sveitinni með for
láta apparat og tók myndir af
skírnarbarninu frá öllum hlið
um, en þegar filman kom úr
framköllun var hún kolsvört.
.— Og hvað heitir hann?
— Guðmundur Ingi, í höfuð
ið á tengdaforeldrum mínum.
Séra Bjarni Sigurðsson á Mos
felli skirði hann.
— Hefur hann ekki verið
hraustur?
— Jú, jú, mikil óisköp, al-
drei orðið misdægurt nema
þegar hann fékk mislingana
fyrir einum og hálfum mán-
uði. Hann smitaðist fyrstur
barna minna, guð má vita
hvar, en veikin lagðist ekki
þungt á hann og var hann
fljótur að jafna sig. Hann er
afskaplega heilbrigt barn og
þarf lítið fyrir honum að
hafa, sofnar snemma á kvöld
in og sefur í einum dúr til
morguns, og matarlystin í
betra laigi.
★
Guðmudur Ingi var niú
vaknaður. Syetur hans, Sigríð
ur og Vigdís, báru hann inn
í stofu; og hlössuðu honum í
kjöltu blaðamannsins; þar sat
hann rjóður og bústinn og
gapti á ókunmugu andlitin í
kringum sig. Hann er með
ljóst hár og talandi dökkblá
augu, svo ekfci var neinum
vandkvæðum bundið að eiga
stutt samtal við hann.
— Erut búinn að fá nokkr-
ar tennur?
Það skein í nokkrar hvítar
perlur.
— Hann er búinn að fá sjö
vinnukonur, sagði móðir hans.
— Nokkuð farinn að ganga?
Svipur drengsins varð dap-
ur.
— En hann stendur alveg
þráðbeinn, svöruðu systur
hans einum rómi. Og gengur,
þegar við leiðum hann, en
leggst alltaf á fjóra fætur,
þegar við sleppum..
— Var ekki gaman á jód-
unum?
— Ég lofaði honum að vera
í grindinni sinni inni í stofu
og við skemmtum okkur kon-
unglega yfir svipbrigðum
'hans. Hann féfck sjálfur að
taka upp jólapakkana, og
hafði fullt eins gaman af um
búðunum og innihaldinu.
★
Húsfreyja bauð upp á kaffi
og yfir kaffibollunum var
tekið upp létt rabb. Spunn-
ust langar umræður um það,
hverjum barnið líktist. Móð-
irin taildi barnið hafa svip
frá þeim báðum, en faðixinn
staðhæfði að strákurinn væri
lifandi eftirmynd sín, og því
til sönnunar lét hann sækja
gamla mynd af sér. Og það
var ekki um það að villast:
andlitið kom okkur kunnug-
lega fyrir sjónir. Hljóðnuðu
þar með allar umræöur um
málið.
Þá sagði Þuríður okkur, að
drenigurinn væri þagar orðinn
fjáreiganói; hann hefði fengið
fyrsta lambið sem fæddist í
fjárbúsinu í vor, ljómandi
fallega gimbur. — Maðurinn
minn rekur nefnilegia fjárbú
með garðyrkjustörfumum. . . .
byrjaði hún.
— Eigum við ekki að sleppa
rollunum í þetta sinn, greip
Jón garðyrkjubóndi fram L
Hann sneri sér að okkur og
sagði til útskýringar kíminn
á svip: — Dálæti mitt á roll-
um er orðið svo víðfrægt, að
það var kind á hverju ein-
asta jólakorti sem ég fékik.
★
Það var komið myrkur,
þegar við kvöddum þessi glað
lyndiu hjón, dæturnar tvær
(synirnir tveir voru ekki
heima) og soninn unga, sem á
þessu eina ári hafði lengst um
oa. 40 sentimetra og bætt við
sig mörgum pundum (var
rúmar 16 merkur og 53 cm.
þegar hann fæddist). — Ef
Fjórir sttliðir
við skírnina
í f EGILSSTÖÐUM, 27. des. —
1 Á annan í jólum var skírður
drengur á Helgafelli í Fella-
Ihreppi, Og er hann fjórði ættlið-
ur í beinan karllegg frá Gísla
Helgasyni bónda í Skógargerði.
Voru allir ættliðirnir viðstaddir.
Drengurinn var skírður Helgi og
er Gíslason. Gísli Helgason í
Skógargerði er 81 árs, Og Helgi
Gíslason, sonur hans, bóndi á
•Helgafelli og vegaverkstjóri, er
62 ára. Gísli HelgasOn, Helga-
felli, er 22 ára, og Helgi Gisla-
son yngri er fæddur 28. okt.
1962. Móðir drengsins, kona
Gísla Helgasonar, er Kristbjörg
Rafnsdóttir frá Neskaupstað. —
Kona Gísla Helgasonar eldri,
langafa drengsins, var einnig
þarna viðstödd. Hún er Dagný
Pálsdóttir. — Séra Marinó
Kristinsson, prestur í Vallanesi,
skírði drenginn. — A.B.
SIGLUFIRÐI, 27. des.
GOTT veður var hér uim jóla-
helginia og snjólaust. Ríkir lítill
fögnuður yfir því meðal skíða-
manna, sem eru vanir að nota
jólafríið vel til þess að æfa sig.
— Skarðið er lokað og engar sam
göngur héðan nema tvisvar í
vifcu með flóabátnum. — Stefán.
Gjöf til Patreks-
fjarðarkirkju
PATREKSFIRÐI, 27. des. Um
jóiin var Patreksfjarðarkirkju
færður að gjöf hvítur hökull Og
altarisklæði til minningar um
ástvini hjóna, sem ekki vilja
láta nafns síns getið. Á þá
kirkjan fjóra messuskrúða, þar
af þrjá nýja, og mun hún vera
ein af fáum kirkjum á landinu,
sem á allar tegudir messuskrúða
þjóðkirkjunnar. — Trausti.
16 hafa
flúið
Berlín, 27. desember — AP.
6 A-BERLÍNARBÚUM tókst í
dag að komast yfir til V-Berlín
ar. Er þá tala þeirra, sem flúið
hafa austurhluta borgarinnar
yfir jólin, komin í 16.
Einn flóttamannanna lýsti
því yfir, eftir komuna til
V-Berlínar, að ástandið austan
við múrinn væri nú að verða
óþolandi. Þar væri nú vart
hokkurt kjöt að fá,
Jólatónleikar
á x4kranesi
Akranesi, 27. desember.
TÓNLEIKAR vOru haldnir kl. 5
e.h. hér í kiirkjunni á 2. í jól-
um. Blandaður kór söng, kvenna
kór, karlakór, fjórir einsöngvar-
ar, Jón Gunnlaugsson, Baldur
Ólafssön, Inga Þóra Geirlaugs-
dóttir og Guðný Magnúsdóttir.
Fjórir drengir léku á lúðra.
Organleikararnir Haukur Guð-
laugsson og Magnús Jónsson
stjórnuðu jólatónleikunum. Séra
Jón M. Guðjónsson, sóknarprest-
ur, las úr ritningunni milli þátta.
Landsmálafélagið Vörður
JÓLATRÉSSKEMIVITAIMIR
Landsmálafélagsins Varðar verða að Hótel Borg, fimmtudaginn 3. janúar og föstudaginn 4. janúar kl.
15:00 til kl. 19:00. Verð aðgöngumiða kr. 60:00. Aðgöngumiðar afhentir á skrifstofu Sjálfstæðis-
flokksins í Sjálfstæðishúsinu á venjulegum skrifstofutíma.
Landsmálafélagið Vörður.