Morgunblaðið - 15.02.1963, Síða 6
6
r
MORcnvnr. a ðið
Föstudagur 15. febrúar 1963
Fjórir dómar í
fjársvikamálum
MORGUNBLAÐINU hefur bor
izt skýrsla frá sakadómi:
Nýlega hafa verið kveðnir upp
í sakadómi Reykjavíkur af Þórði
Björnssyni sakadómara dómar í
eftirtöldum málum:
1. Máli ákaeruvaldsins gegn
Sigurði Arnbjörnssyni, Týsgötu 5,
hér í borg. Sannað var með játn
ingu ákærða að í desember mán
uði sl. framdi hann fjársvik í 9
skipti bæði hér í borg og á Akra-
nesi. Sveik hann út peninga og
önnur verðmæti, sem námu um
kr. 8.800,00. Aðferð ákærða var
einkum sú að knýja á dyr heima
hjá fólki, sem hann þekkti ekki,
og látast vera ýmist flugstjóri,
flugmaður, skipstjóri eða stýri-
maður, og fá það til að lána hon-
um fé gegn loforði haixs um end-
urgreiðslu sama eða næsta dag,
en peningunum eyddi hann síð
an í áfengiskaup og bifreiðaakst
ur. Einnig falsaði hann í eitt
skipti framsal manns á tékka.
Ákærði, sem hefir áður hlotið
14 refsidóma fyrir auðgunarbrot,
var dæmdur í 20 mánaða fang-
elsi fyrir atferli sitt en gæzlu-
varðhaldsvist hans síðan 17. des.
sl. skal koma til frádráttar refs-
ingunni. Jafnframt var honum
gert að greiða fébætur til þess
fólks, sem hann hafði beitt fjár-
svikum svo og greiða kostnað
sakarinnar.
2. Máli ákæruvaldsins gegn
Jóni Breiðfjörð Bjarnasyni, bif-
vélavirkja, hér í borg. Sannað
var með tátningu ákærða að á
tímabilinu frá janúar til marz sl.
ár, falsaði hann nöfn og fjár-
hæðir á 6 tékkum og seldi þá
siðan og fékk með því móti sam-
tals kr. 6.200,00, sem hann eyddi
í eigin þágu. Ákærði, sem hefir
áður sætt refsidómum fyrir auðg-
unarbrot hlaut fangelsi í 6 mán-
uði.
3. Máli, sem af ákæruvaldsins
hálfu var höfðað á hendur manni
Neita
auka-
kennslu
MBL. HEFUR frétt, að Kenn-
arafélag Barna- og Gagnfræða-
skólans í Vestmannaeyjum hafi
ákveðið á fundi sl. þriðjudag að
leggja niður alla aukakennslu
frá og með 1. marz.
í byrjun skólaárs fengust ekki
nógu margir kennarar til skól-
anna, og bættist því aukakennsla
við kennarana. Hver tími í auka-
kennslu mun greiddur með 73 kr.
Síðan fóru kennarar fram á
staðaruppbót ofan á laun sín, en
fengu synjun hjá bæjarstjórn. Á-
kváðu þeir þá að neita að kenna
aukakennslu, eins og fyrr segir.
Talið er, að málið leysist með
því, að ráðnir verði kennarar að
skólunum, og aukakennslan legg
ist þá sjálfkrafa niður.
einum hér í borg, fyrir fjársvik.
Sannað var að á tímabilinu frá
desember 1981 til apríl 1962 gaf
hann út 20 innstæðulausa tékka,
samtals að fjárhæð kr. 32.330,00
og seldi þá flesta í vínveitinga-
stöðum borgarinnar. Maður þessi
sem hefir ekki áður sætt refsi-
dómi fyrir hegningarlagabrot,
var dæmdur í fangelsi í 6 mán-
uði skilorðsbundið í 3 ár.
4. Máli ákæruvaldsins gegn
öðrum manni, hér í borg, sem á
tímabilinu frá desember 1961 til
janúar 1982 gaf út 13 innstæðu-
lausa tékka og greiddi með flest
um þeirra verð veitinga í vín-
veitingahúsum borgarinnar. Var
maður þessi, sem hefir ekki áður
sætt refsidómi, dæmdur í fang-
elsi í 4 mánuði skilorðsbundið í
3 ár.
Ennfremur var ákærður í þrem
ur seinasttöldu málunum gert að
greiða kaupendum hinna fölsuðu
og innstæðulausu tékka fjárha.ð-
ir þeirra svo og gert að greiða
allan sakakostnað.
' ■ i
Aurskriður
hggju grísk
þorp í eyði
Aþena, 9. febr. — NTB —
í nðtt féll aurskriða á þorpið Nyr
iophyllon undir austurhlíðum
Pindonsfjalls í Grakklandi. Skrið
an gróf öll hús þorpsins, en íbú-
ar þess, 800 menn, voru fluttir
til nærliggjandi þorps í byrjun
vikunnar, en þá sáust merki þess
að skriða myndi falla á þorpið.
Nyriophyllon er þriðja þorpið
í Grikklandi, sem hefur lagzt í
eyði á þennan hátt frá miðjum
janúar. Ekkert manntjón hefur
orðið í skriðunum, því að íbúar
þorpanna höfðu verið fluttir á
brott.
Hull-togarinn „Stella Procyon H 184“ strandaður í sandinum i Bolungarvík. Óshyrna og Ósbær
í baksýn. (Ljósm.: Guðm. Bjarni Jónsson)
Borgarstjórn ræðir póstmál
Á fundi borgarstjórnar sl.
fimmtudag, komu póstmál borg-
arinnar nokkuð til umræðu og
þá einkum nauðsyn þess, að
póstkassar væru í hverju fjöl-
býlishúsi til að auðvelda útburð
pósts og tryggja betur en nú er,
að hann kæmist til réttra við-
takenda..
Tilefni þessara umræðna var
tillaga, er Ásgeir Höskuldsson
(K) flutti um þetta efni.
Gísli Halldórsson (S) taldi
þetta vera mikið nauðsynjamál,
en hins vegar vafamál, hvort
borgarstjórn hefði heimild til að
gera það skilyrði fyrir veitingu
byggingaleyfa, að póstkassi væri
í hverju húsi, en tillaga Ásgeirs
hafði gert ráð fyrir þvi.
Flutti Gísli eftirfarandi tillögu:
„Borgarstjórn telur heimild
bresta til að gera það að skilyrði
fyrir veitingu byggingaleyfa, að
séð sé fyrir póstkassa eða bréfa-
rifu á fjölbýlishúsum, enda vald
til að ákveða slíkt í höndum póst
meistara skv. reglugerð nr. 81
1956.
Hins vegar felur hún borgar-
ráði að athuga, hvort rétt sé að
bæta ákvæðum um slíkt í frum-
varp að byggingarsamþykkt, er
fyrir liggur og þá sérstaklega,
hvort ekki sé rétt, að slík skylda
ef til kemur, verði látin ná til
allra nýbygginga og vísar því til-
lögu Ásgeirs Höskuldssonar til
borgarráðs.“
Þórir Kr. Þórðarson (S) gerði
póstmál borgarinnar almennt að
umtalsefni. Taldi hann póstþjón-
ustuna yfirleitt góða, þrátt fyrir
erfið vinnuskilyrði. Ræðumaður
benti m.a. á nauðsyn þess að
fleiri og stærri póstkössum yrði
fyrir komið víðs vegar um borg-
ina, svo að sendendur pósts
þyrftu . ekki að boðsenda póst
sinn niður á pósthús.
Tillaga Gxsla Halldórssonar
var síðan samþykkt samhljóða
af öllum borgarfulltrúum.
Veski stolið
• Ekki ánæ^ður með
„Spurt og spjallað“
Velvakandi hefir fengið bréf
út af útvarpsþættinum „Spurt
og spjallað“ og er þar fundið
að því að spyrjandinn Sigurður
Magnússon grípi of mikið fram
í fyrir þeim sem hann ræðir
við. Því miður missti Velvak-
andi af síðasta þætti, þeim sem
vitnað er til í bréfinu, og getur
því ekki um málið dæmt. Hins
vegar leitaði hann sér upplýs-
inga um þetta efni hjá þeim,
sem hlustuðu, og eru þeir ekki
sammála bréfritara. Við viljum
láta þessa gagnrýni bréfritara
koma fram. Hins vegar er bréfið
ekki það prúðmannlega orðað
að það teljist hæft til birtingar.
• Vill fá fuglafóður
Sólskr ík j us j óðs
Kona ein hringdi til Velvak-
anda á dögunum og bað að því
yrði komið á framfæri, að ekki
væri lengur fáanlegt í búðum
fuglafóður það sem til skamms
tíma hefir fengizt fyrir spör-
fugla. Konan kvað þetta malaða
fóður hafa verið handhægt í
notkun og margir myndu þeir,
sem gefa vildu blessuðum fugl-
unum. Hún taldi fóður þetta til
komið fyrir aðgerðir Sólskríkju
sjóðs. Við vonum að þetta berist
réttum aðilum.
• „Long and lanky“
Velvakanda barst nýlega
haustheftið af ritinu „The Ice-
landic Canadian“. Þar er
skemmtilegt viðtal við fegurð-
ardrottninguna Maríu Guð-
mundsdóttur, sem nú vekur at-
hygli svo víða um heim. Við-
talið er eftir Rhunu Emery. Þar
segir að María hafi verið hæst
kepþenda ásamt ungfrú Noregi.
Síðan er María látin segja í við-
talinu:
„Ég var vön að gráta mig í
svefn af þvi ég var svo löng og
rengluleg“, játaði hinn fagri full
trúi frá landi „íss og elds“.
Við tökum þetta hér upp til
gamans og eins ef það gseti
orðið einhverri ungri stúlku,
SÍÐDEGIS á þriðjudag var stx>l
ið veski með rúmlega 5000 kr.
í Kjörgarði. Lá veskið á eldthús
borðinu í kaffistofunni á þriðju
hæð. Konan, sem veskið átti var
að vinna þar við kaffiveitingar
og brá sér frá í síma á tí.manum
milli kl. 4 og 6 og telur að pen-
ingarnir hafi horfið á meðan. Var
þetta svart seðlaveski með rúm
lega 5000 kr. í seðlum af ýmsum
stærðum .Þeir sem kynnu að hafa
orðið varir við börn eða fullorðna
sem grunur gæti legið á að hefðu
tekið þetta, eru þeir beðnir um
að tilkynna >að rannsóknarlög-
regilunni.
sem er „löng og renglu-
leg“, til nokkurrar huggunar.
• Hjálpaðu okkur!
Meðal bréfa sem mér baio. 1
hendur fyrir nokkrum dögum,
er bréf frá krökkum, sem bera
Morgunblaðið til kaupenda 1
einu úthverfanna. Þau biðja Vel
vakanda, að koma til liðs við
sig, og við vitum um fleiri
krakka, segja þau, sem sömu
eða svipaða sögu hafa að segja,
en hún er í stuttu máli þessi:
Þegar við framvísum reikn-
ingum, segir fólkið okkur að
koma á morgun. Þegar við svo
komum á morgun, þá# er okkur
sagt, að koma aftur á morgun.
Svona gengur þetta, koll af
kolli, og stundum er krökkun-
um sagt að fara niður í bæ og
rukka blaðið hjá heimilisföðurn
um, sem vinnur þar. Allt veld-
ur þetta okkur sárum vonbrigð-
um og við, sem héldum að full-
orðna fólkið segði ekki annað,
en það sem satt væri og rétt,
segja krakkarnir. — Ja, við
yrðum látin sitja eftir í skólan-
um eða þaðan af verra, ef við
segðum kennaranum, að við
myndum vilja koma upp að
töflu á morgun. Allt þetta rukk-
unarumstang, sem til allrar ham
ingju er aðeins í kringum fáa,
tefur okkur frá námi, sem svo
hlýtur að verða til þess, að við
getum ekki unnið okkur ina
dálitla vasaaura með náminu.
Velvakandi! Við biðjum þig
að hvetja fólk til þess að hjálpa
okkur í okkar starfi, eins og þú
hvetur svo oft til þess að öðrum
sé hjálpað, og við Vitum að það
mu.i hafa góð áhrif.
Tveir blaðakrakkar
Morgunblaðsins.