Morgunblaðið - 06.03.1963, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 06.03.1963, Blaðsíða 1
24 síður 0 m MEÍMa 50. árgí^ngur 54, tbl. — Miðvikudagur 6. marz 1963 Prentsmiðja Morgunblaðsins Peron vísað frá Spáni? Orðrómur á loffi um það Madrid, 5. marz — (AP) — SÁ orðrómur hefur komizt á kreik á Spáni, að stjórn Argen- tínu hafi farið þess á leit við epönsku stjórnina, að hún visaði íyrrv. forseta Argentínu Juan Peron úr landi. Peron hefur dvalizt á Spáni sem pólitískur flóttamaður frá því í janúar 1960. Ástæðan til tilmæla Argentínu Btjómar er talin sú, að á Spáni fékik Peron óáreittur að stjórna hinum öfluga fkxklki stuðnings- manna sinna í Argentínu. Talið er að spánska stjórnin hafi orðið við tilmælum Argentínustjórn- ar. T>j ónustufólk í húsi Peróns í Madrid skýTði fréttamönnum frá |>ví í dag, að Peron og kona hans, Isabel Martines, hefðu farið frá Madrid 27. febr. s.l. Hefðu þau eetlað til Parísar og annarra borga í Evrópu í skemmtiferð. t>jónustufólkið taldi ólíklegt að hjónin miyndu verða lengi að heiman vegna þess að þau höfðu ekilið eftir fjóra húnda, sem þau eiga í Madrid. Leiðtogi verkfallsmanna í Forbach flytur ræðu VERKFALLSIViEIMN Í FRAKKLAIMDI iáta hótanir stjórwiarinnar sem vindl um eyrun þjóta París, 5. marz — (AP-NTB) ÖLL vinna lá niðri í kola- námum Frakklands í dag vegna verkfalls námumanna og þúsundir verkamanna og verksmiðjufólks gerðu í dag samúðarverkfall frá stundar- fjórðungi til tveggja klst. — Eins og kunnugt er, hefur Kúba sakar USA u.m árasarimcUrbúnin.g Yfirlýsing innanrikisráðherra Havana, 5. marz (NTB-AP) KÚBUST JÓJtN sakaði Bandaríkin í dag um að und- irbúa árás á Kúbu og stofna " með því heimsfriðnum í hættu. Þessi ásökun kom fram í 4000 orða skýrslu, sem utanríkisráðherra Kúbu, Raul Roa, sendi U Thant, fram- kvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna. Roa fór þess á leit við U Thant, að hann afhenti sendinefndum ailra aðildar- þjóða SÞ eintak af skýrsl- unni. í skýrslunni segir auk þess, «em að ofan getur, að ástandið Gromyko lofar gest- risni IMorð- manna OsJó, 5. marz (NTB) EINS og skýrt hefur verið frá «r Andrei Gromyko utanríkis- Framhald á bls. 23. á Karíbahafi sé enn mjög al- varlegt og Bandaríkin skirrist ekki við að fótumtroða alþjóða- lög í aðgerðum sínum gegn Kúbu stjórn. Bandaríkjamenn geri út njósnara til þess að njósna um Kúbumenn og herstöð þeirra við Frarhh. á bls. 23 stjórn Frakklands skipað hln- um 240 þús. kolanámumönn- um, sem krefjast hærri launa og styttri vinnutíma að snúa aftur til vinnu sinnar, en námumennirnir hafa ekki orð ið við þeirri skipun. Samkvæmt lögum frá 1938 hefur franska stjórnin heim- ild til þess að kalla verkfalls- menn til vinnu, ef „iífi þjóð- arinnar er hætta búin af völd- um vinnustöðvunarinnar“. — Sinni verkfallsmenn ekki skip unum stjórnarinnar kveða lög in svo á, að þeim megi refsa með sektum og fangelsisvist. Stjórnin telur, að verkfall kolanámumanna nú sé hættu- legt lífi þjóðarinnar, vegna hins mikla tjóns, sem efna- hagslíf hennar bíði, ef verk- fallið standi lengur en tvo sól- arhringa. Verkfallið hefur nú staðið fimm daga. Fréttaritari AP í París sagði í dag, að ekkert benti til skjótrar lausnar verkfallsins. Stjórnin neitaði að hefja við- ræður við námumenn nema þeir hæfu vinnu á ný, en námumenn neituðu að hefja vinnu fyrr en stjórnin hefði gengið að kröfum þeirra. Stjórnin sendi í gær herlið til allra kolanámusvæðanna, en hvergi kom til óeirða í dag Var bæði af hálfu námu manna og stjórnarinnar skor- Framhald á bls. 23 10 ár frá jdauða Stalíns Ekki á það minnzt í IJSSR Moskvu, 5. mdrz — (NTB) — í D A G voru liðin 10 ár frá dauða Stalíns, en þess var ekki minnzt með einu orði, hvorki í blöðum né útvarpi f Sovétríkjunum. Einn lítill mímósuvöndur, sem óþekkt- ur gefandi lagði á gröf hans var eina tákn þess að hann væri ekki alveg gleymdur í Sovétríkjunum. í Albaníu var Stalíns aftur á móti minnzt með mörgum lofsamlegum greinum í blöð- um landsins og sttytur af hon- um voru blómum skrýddar. Eitt albönsku blaðanna sagði, að baktjaldamakk og svik Krús- jeffs og annarra endurskoðunar- sinna megnaði ekki að spilla vin- áttu Albana og Rússa. Málgagn albanska kommúnista flokksins „Zeri i Popullit" birtir Framhald á bls. 23 Viðræbur um eftir■ mann Adenauers hefjast bráft i V-Þýzkalandi Bonn, 5. marz (NTB—AP). STJÓRN Kristilega demókrata- flokksins í Vestur-Þýzkalandi fól í dag formanni þingflokks Kristi- legra demókrata, Heinrich von Brentano, að hefja þegar viðræð ur við ýmsa meðlimi þingflokks BIDAIILT EKKI SAGÐ- UR VERA í BRETLANDI % Yfirlýsing innanríkis ráðherrans London, 5. marz (NTB—AP). I DAG var viðtalið við Georges Bidault, fyrrv. forsætisráðherra Frakka, sem brezka útvarpsstöð- in (BBC) útvarpaði í gær, til um ræðu í neðri deild þingsins. Inn- anríkisráðherra Breta Henry Brooke svaraði fyrirspumum stjórnarandstöðunnar og sagði m. a„ að hann væri þess fullviss að Bidault væri ekki lengur í Bretlandi og hefði hann verið þar, hefði hann komið til lands- ins á laun. Brooke sagði að BBC hefði ekki ráðfært sig við stjórn Bretlands áður en viðtalinu við Bidault var sjónvarpað. BBC væri sjálfstætt fyrirtæki og réði dagskrárefni sínu þó að stjórnin legði frám fé ■ til starfsemi þess. Talsmaður BBC skýrði frá því í dag, að viðtalið við Bidault hefði farið fram fyrir skömmu í London. Frá Frakklandi bárust þær fréttir, að franska stjórnin íiefði sent brezku stjórninni mótmæla- orðsendingu vegna viðtalsins við Bidault. Talsmaður franska utan ríkisráðuneytisins hefur neitað þessu, en skýrt frá því, að frönsku stjórninni hafi enn ekki borizt svar við orðsendingu, sem hún sendi brezku stjórninni fyrir tveimur mánuðum. í þeirri orð- sendingu var því haldið fram, að Bidault og fleiri fjandmenn de Gaulles Frakklandsforseta væru látnir óáreittir í Bretlandi. Haft var eftir áreiðanlegúm heimildum í London í dag, að Bidault hefði komið þangað á laun um miðjan janúar og dvalist í borginni í viku undir fölsku nafni. Segja heimildirnar að á þessum tíma hafi BBC átt viðtal við hann. ins nm hver skuli verða eflir- maður Adenauers kanzlara. Brentano var ekki veittur neinn ákveðinn frestur til þess að kom ast að niðurstöðu um það hvern flokksmenn kysu eftirmann Aden auers, en eins og kunnugt er mnn I Vdenauer segja af sér næsta haust. Stjórn Kristilegra demókrata kom saman í dag til þess að ræða ágreining þann, sem ríkt hefur milli Adenauers kanzlara og Er- hards, efnahagsmálaráðherra, en þeim tókst, að sögn að jafna á fundi í gær. Bæði Adenauer og Erhard, sem talinn er líklegur eftirmaður kanzlarans, sam- þykktu að von Brentano væri falið að stjórna viðræðum um hver verði eftirmaður Aden- auers. Sex voru dæmdir til dauða París 5. marz (NTB-AP). HERRÉTTURINN í Vincennes kvað í gær upp dóm í máli mann anna 15, sm sakaðir eru um þátt Framhald á bls. 23.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.