Morgunblaðið - 06.03.1963, Síða 8

Morgunblaðið - 06.03.1963, Síða 8
8 M ORCV ÍS BL ABIB Miðvikudagur 6. marz 1963 Lyfsölulög, ríkisábyrgðir o.fl. rætt á Alþingi í gær Á FUNDI neðri deildar Alþingis í gær var frumvarp ríkisstjórn- arinnar um hámarksþóknun fyrir verkfræðinga samþykkt við 2. umræðu með breytingartillögum meirihluta allsherjarnefndar. Þá var frumvvörpum um ríkisábyrgð ir og aðstoð til vatnsveitna vísað til 2. umræðu, frumvarp um verk fræðinga samþykkt við 2. um- ræðu og loks urðu töluverðar um ræður um frumvarp til lyfsölu- laga og tókst ekki að ljúka þeim, áður en fundartimi deildarinnar rann út. Heildariöggjöf um lyfsölu hefur aldrei verið sett Gísli Jónsson (S) gerði fyrir hönd heilbrigðis- og félagsmála- nefndar grein fyrir nokkrum breytingartillögum, er nefndin hafði orðið sammála um að bera fram, auk þess sem hún lagði til, að frumvarpið yrði sam- þykkt. Nefndin sendi frumvarpið til umsagnar ýmissa aðila, og ræddi alþingismaður- inn mjög ýtar- lega þær athuga- semdir og ábend- ingar, sem fram hefðu komið í umsögnunum. Heildarlöggjöf um lyfsölu hefur aldrei verið set,t hér á landi, °g byggjast allar framkvæmdir þeirra mála á tilskipun frá 1672 og ýmsum reglugerðum, sem síð- an hafa verið út gefnar. Er langt síðan mönnum varð það ljóst, að við svo búið mátti ekki standa. Hefur því verið unnið að því á síðustu tveim áratugum að undir búa heildarlöggjöf um lyfsölu og árangur þess mikla starfs er það frumvarp, sem um ræðir. í>ó leggur nefndin til, að ýmsar breytingar verði gerðar á frum- varpinu, en allar miða þær breyt ingartillögur svo sem frekast verður unnt að því, að verða við þeim óskum, sem nefndinni hafa borizt, án þess þó að veikja það öryggi, sem frumvarpið veitir öll um almenningi, ef að lögum verð ur. Hannibal Valdimarsson (K) og Jón Skaftason (F) mæltu fyrir breytingartillögum sínum, sem þeir báru fram hvor í sínu lagi, og miðuðu m. a. að því, að lyf- söluleyfi megi veita einstakling- um, sveitarfélögum, sjúkrasam- lögum, samvinnufélögum eða fé- lögum svo og Háskóla íslands. Hins vegar töldu þeir báðir, að frumvarpið bæri að samþykkja. Sammála í aðalatriðum Bjarni Benediktsson heilbrigð- ismálaráðherra þakkaði hinar góðu undirtektir, sem frumvarpið hefði fengið. Mjög mikil vinna lægi í samningu þess, sem segja mætti að innt hefði verið af hendi í heilan mannsaldur, þar sem árið 1920 hefðu hafizt at- huganir í þessu skyni og frá 1940 a. m. k. hefðu öðru hvoru verið lögð frumvörp til lyfsölulagg fyrir Alþingi. Lengst af hefði verið ágreining- ur ýmis höfuð- atriði, en nú stæði deildan að eins um atriði, er minna skiptu, og eins og fram hefði komið væru allir sammála um, að leggja til, að frumvarpið yrði samþykkt. I>á ræddi hann nokkuð þær FRAMTÍÐARSTARF Röskur þiltur um tvítugt óskast til afgreiðslustarfa strax Upplýsingar kl. G—7 í kvöld. H ERRADEILD Vélbátur til sölu 8—12 lesta vélbátar, nýjir og nýlegir með og án veiðarfæra. Mjög hagkvæmir greiðsluskilmálar. 17 lesta vélbátur, mikið endurnýjaður, vél frá 1960. 18—30 lesta vélbátar með nýlegum vélum og góðum spilum. 38 lesta vélbátur með nýrri vél. 46 lesta vélbátur í ágætu ástandi. 65 lesta vélbátur með öllum útbúnaði til síldveiða. 85 lesa vélbátur, gjörendurnýjaður og öllum tækjum til síldveiða. 100—110 lesta eikarbátur með öllum tækjum til síld- veiða og góðum vélbúnaði. 250-—300 lesta vélskip með 900 ha Deutz-diesel (nýsmíði) til afhendingar í sept.—okt. Austurstræti 10. 5. hæð Símar 24850 og 13428. TRVGCINDAR F&STEICNIS breytingartillögur HV og JS, sem fyrr er getið, og miða að því, að lyfsöluleyfi verði ekki eingöngu bundið við lyfjafræðinga, eins og gert er í frumvarpinu, þó þau félagasamtök haldi leyfinu, sem þegar hafa fengið það. Benti hann m. a. á, að með því að heimila félagasamtökum að reka lyfjabúð yrði miklu flóknara, hvern ætti að kalla til ábyrgðar, stjórn fyrirtækisins eða lyfja- fræðing þess. Auk þess kæmi þar fleira til, sem hann gerði nánari grein fyrir. Loks tók hann svo fram, að ef það sýndi sig, að einstakir lyfjafræðingar treystu sér ekki til að stofnsetja þar lyfjabúð, sem rétt stjórnar- völd teldu þörf á henni, skyldi hann vera fyrstur til að taka það mál upp að nýju. Skúli Guðmundsson (F) kvað álíka fráleitt að gefa eingöngu lyfjafræðingum lyfsöluleyfi og að heimila eingöngu skipstjórum að reka útgerð. Ríkisábyrgðir Jón Skaftason (F) gerði grein fyrir frumvarpi um breytingu á lögum um ríkisábyrgðir. Með þeim lögum hefði það nýmæli verið tekið í lög, að þeir, sem fengu ríkisábyrgðir á lánum, urðu að gjalda fyrir það 1% af lánsfjárhæðinni, ef um einfálda ábyrgð var að ræða, en 1 Vá%, ef um sjálfskuldaábrygð var að ræða. Gjald þetta nefnist áhættu- gjald og rennur í ríkisábyrgðar- sjóð. Um langt árabil hefðu fé- lagsmenn í byggingarsamvinnu- félögum getað fengið ríkisábyrgð á lánum úr lífeyrissjóðum og hefði reynslan sýnt, að ríkissjóð ur hefði ekki orðið fyrir fjár- hagstjóni af þeim ábyrgðum, þvl legði hann til, að þær ríkisábyrgð ir yrðu undanþegnar áhættu- gj aldinu. Aðstoð til vatnsveitna Björn Fr. JJjörnsson (F) gerðl grein fyrir frumvarpi á lögurn um aðstoð til vatnsveitna. Komið hefði í ljós, að sá hængur væri á þeim lögum, að styrkurinn úr ríkissjóði gæti orðið æði takmark aður í því tilfelli, þegar svoköll- uð stofnæð er aðeins lítill hluti alls vatnsveitukerfisins. I>á koma hins vegar aðaldreifiæðar snemma til og verða höfuðhluti dreifilinukerisins. Miðast styrk-. urinn nú einungis við stofnæðina sjálfa, en með frumvarpinu er lagt til, að hann nái einnig til aðaldreifilínukerfisins, enda nauð synlegt, þegar svo stendur á, sem fyrr er getið. NámskeiH tyrir skipstjóra meS minni iiskimannaprói? Námskeið fyrir skipstjóra 3 Á FUNDI efri deildar Alþingis í gær gerði Emil Jónsson sjávar- útvegsmálaráðherra grein fyrir frumvarpi ríkisstjórnarinnar um, a'ff námskeiff fyrir hið minna fiskimannapróf, er veit skip- stjórnarréttindi á skipum allt aff 120 brúttólestum, verffi haldin til ársloka 1967, en frumvarpiff hafði áffur veriff samþykkt i neffri deild. Breytt viffhorf. Jón Árnason (S) benti á, að á undanförnum árum hefur sú breyting átt sér stað um stærð hinna nýrri fiskibáta að í stað 80—120 lesta báta, sem mest var um á tímabilinu á eftir stríðsár unum, hafa nú einvörðungu ver ið byggðir vél- bátar, sem eru stærri en 120 rúmlestir. Með þessu nýja við- horfi hefur að sjálfsögðu skap- azt aukin þörf og meiri eftir- spurn eftir skipstjórum, sem hafa réttindi á skipum yfir 120 rúmlestum. Með hliðsjóm af þessu taldi alþingismaðurinn, að rétt væri að athuga, hvort ekki væri nauðsynlegt, að nú yrði gripið til þess ráðs, sém gert var undir svipuðum kringumstæð- um á árunum 1947—1951, er skip stjórum með hinu minna fiski- mannaprófi, er gengt höfðu skipstjórn um nokkur ár, var gef inn kOstur á því með sérstöku námskeiði við Stýrimannaskóla íslands að afla sér aukinnar menntunar og öðlast með því réttindi til þess að stjórna fiski- skipum af hvaða stærð sem er. Án slíkra ráðstafana taldi al- þmgismaðurinn. a^vart yrði hjá því komizt að veita meira og minna undanþágur til skipstjórn ar á hinum nýju, stóru vélskip- um þeim mönnum, sem nú hefðu aðeins hið minna fiskimannapróf. Eins vetrar nám. Emil Jónsson sjávarútvegs- málaráffherra kvað þá menn, er mest hafa fjallað um þessi mál, Verkamenn óskast strax Byggmgaféiagið Brú hf. Borgartúni 25. — Símar 16298 og 16784. IðnaSarhúsnœði til sölu Síðla sumars verður til sölu ca. 200—400 ferm. iðnaðarhúsnæði, á einum allra bezta stað inni í bænum. Húsna:ðið er í smíðum. Lysthafendur sendi nöfn, heimilisföng og símanúmer til afgr. Mbl. — meikt: „Iðnaðarhúsnæði — 6328“. CASTELLA Nœlon þvottaefnið nú aftur fáanlegt. Bankastræti 6. ekki telja gerlegt að fá hin nýju og stóru skip í hendur mönn- um með hið minna fiskimanna- próf, enda væri þeim iðulega siglt milli landa, en námsskeið- in gæfu alls ekki réttindi til slíkra siglinga. Hins vegar kvaðst hann vita, að mál þetta væri örðugt viðfangs, en hið æski- lega hlyti að vera það, að skip- stjórnarmenn sæktu Stýrimanna skólann og þyrftu þeir, er lok- ið hefðu hinu minna fiskimanna prófi ekki að stunda þar nema eins vetrar nám til að öðlast full réttindi. • Byggður úr þykkara body- stáli en almennt gerist. • Ryffvarinn — Kvoðaffur. • Kraftmikil vél — Fríhjóla- drif — Stór farangurs- geymsla. • Bifreiffin er byggff meff tilliti til aksturs á malar- vegum, framhjóladrifin. • Verff kr. 150.000,00. Meff miðstöff, rúffuspraut- um, klukku í mælaborði o. fl. • Fullkomin viðgerffa- þjónusta. • Nægar varahlutabirgffir. Söluumboff á Akureyri: Jóhannes Kristjánsson hf. Sveinn B jornsson & Co. Hafnarstræti 22 — Reykjavík Sími 24204.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.