Morgunblaðið - 06.03.1963, Side 14
14
MORCVNBLAÐIÐ
Miðvikudagur 6. marz 1963
Eg þakka hjartanlega mér sýnda vinsemd á 70 ára
afmæli mínu, 27. f. m.
Jón Ólafsson.
Öllum, sem glöddu okkur með heimsóknum, ræðum,
ljóðaflutningi, skeytum og margskonar gjöfum, þann
senduð og færðu mér gjafir, skeyti og kveðjar, á
Guð launi þeim.
Soffía Jensdóttir, Gunnlaugur Pétur Sigurbjörnsson,
Torfustöðum.
Hjartanlega þakka ég öllum, sem glöddu mig á 80 ára
afmæli mínu með blómum, skeytum og gjöfum. —
Guð blessi ykkur vir.áttu ykkar og hlýjan hug.
Kagnheiður Snorradóttir.
Innilegar þakkir til ykkar allra, sem heimsóttuð mig,
senduð og færður mér gjafir, skeyti, og kveðjur, á
fimmtugsafmæli mínu.
Kær kveðja með þökk fyrir síðast.
— Kristinn Ólafsson, Hænuvík.
Faðir minn og tengdafaðir,
GUÐMLNDUR GUÐMUNDSSON
frá Hóli í Hafnarfirði,
lézt þriðjudaginn 5. marz.
Esther Guðmundsdóttir,
Símon Sigurjónsson.
Móðurbróðir minn
SIGTRYGGUR SIGTRYGGSSON,
bakari,
Burmeistergade 10, Kaupmannahöfn,
andaðist laugardaginn 2. marz sL
Sigtryggur Klemenzson.
HELGA GUNNLAUGSDÓTTIR,
frá Hjalteyri
andaðist að sjúkrahúsinu á Akureyri, þriðjudaginn
5. marz.
Jarðarförin auglýst síðar. ,
Umf. Vaka sýnir
Ævintýri á gönguför
Seljatungu, 1. marz.
UNGMENNAFÉLAGIÐ Vaka í
Villingaholtshreppi er ungt að
árum, stofnað árið 1936. Það
hefur að mörgu leyti verið
starfsamt félag, ekki sízt í
íþróttamálum og hafa úr því fé-
lagi m. a. komið tveir mestu
glimukappar landsins á sinni tíð.
Frjálsíþróttamenn hefur félagið
og átt ágæta og hafa þeir víða
farið og sótt íþróttafegurð og
frama. Að sjálfsögðu er þetta
ekki eina viðfangsefnið er fé-
lag þetta hefur sinnt á liðnum
árum, heldur fjölmörgum verk-
efnum, sem hér verða ekki upp
talin. Er það og svo um velflest
ungmennafélög að þótt þau beini
starfi félaga sinna að marghátt-
uðum verkefnum, ber jafnan eitt
hvert viðfangsefnanna hæzt á
hverju tímabili fyrir sig.
Leiklistarmál hefur félagið
ekki mikið fengizt við. Stafar
það þó sízt af því að í því félagi
hafi verið skortur hæfra karla
og kvenna til þess að takast fang-
brögðum við þá list, heldur
miklu fremur skortur á félags-
heimili þar sem samastaður væri
fenginn og aðstaða til þess að
reyna getu sína í þeim efnum.
Nú hefur högum félags þessa
verið svo gjörbreytt, að það á
hlutdeild og aðgang að einu vist-
legasta félagsheimili hér austan
fjalls og er það vel. Ungmenna-
félagið Vaka hefur og kunnað
að meta þessa breytingu á starfs-
aðstöðu sinni og tekið til að
sinna þeim þættinum í félags-
starfinu, er ég sagði hér að
framan að helzt hefði orðið út-
undan á liðnum starfstíma þess.
Og sannarlega er ekki ómyndar-
lega af stað farið með verkefna-
val, þar sem félagið hefur í vet-
ur æft Ævintýri á gönguför eftir
J. C. Hostrup. Frumsýning leiks-
ins fór fram í Þjórsárveri hinn
24. febr. sl. og tvær aðrar sýning-
ar hafa verið í þessari viku.
Sjónleikur þessi er nánast
gamall kunningi fólks og er því
eigi ástæða að fara um það verk
fleiri orðum. Frú Margrét Björns
dóttir á Neistastöðum er leik-
stjóri og er það vitanlega ómet-
anlegur fengur fyrir félagið að
hafa átt þess kost að njóta að-
stoðar og stjórnar hennar við
þetta erfiða viðfangsefni, því frú
Margrét hefur ekki einasta
nokkra kunnáttu á þessu sviði,
heldur er það ekki lítils virði að
hún þekkir betur aðstæður allar
hjá fólki því, er hún hefur valið
í hlutverkin, heldur en stjórn-
andi, sem sóttur hefur verið.
Auðvitað má að öllu eitthvað
finna og mér dettur ekki í -hug
að segja að leikstjórn Margrétar
sé gallalaus og hlutverkaskipun
gæti verið betri, en það breytir
ekki því, að í aðalatriðum er svið
setning og stjórn leiksins góð.
Að öðru leyti ætla ég ekki að
setja mig í þessum línum í leik-
dómara sess, enda þeim ágalla
háður að vera ekki dómbær á
söngraddir fólks, en söngur er
svo sem allir vita mikill í sjón-
leik þessum.
Hinsvegar er engin ástæða til
þess að,leyna því áliti mínu, að
leikendur hafi velflestir sýnt
ágætan leik, margir sterka inn-
lifun í hlutverk sín og prýðilega
raddbeytingu. Með hlutverk í
leiknum fara: Sigurður Björg-
vinsson leikur Svale ássesor,
Börn og barnabörn.
Systir mín
ÓLÖF JÓNSDÓTTIR
frá Yallnatúni
andaðist 4. marz að Skógum, Austur-Eyjafjöllum.
Kristinn Jónsson, klæðskeri.
Konan mín ,
kristIn stefánsdóttir
lézt í gær í Heilsuvemdarstöð Reykjavíkur.
Ágúst Sveinsson, Ásum.
Móðir okkar, tengdamóðir og amma,
INGIBJÖRG NIELSEN,
andaðist að Elliheimilinu Grund. Jarðarförin ákveðin
þann 8. þ. m. kl. 10,30 f.h. frá Fossvogskirkju.
Böm, tengdadóttir og sonarbörn.
Faðir minn
ÓLAFUR GUNNLAUGSSON,
fyrrverandi kaupmaður, Ránargötu 15
andaðist í Landakotsspítaia 5. þ.m. —r Jarðarförin auglýst
síðar.
Halldóra Ólafsdóttir.
Litli drengurinn okkar,
B A L D U R
andaðist fimmtudaginn 28. febr. að hjúkrunarheimilinu
Sólvangi, Hafnarfirði. Jarðarförin hefur farið íram.
Þökkum auðsýnda samúð.
Gunnur og Friðbjöm Hólm.
Þökkum samúð og hluttekningu við andlát og útför
frænda okkar
BJÖRNS GUÐMUNDSSON
fyrrverandi skólastjóra að Núpi.
Bróðurbörnin.
Þökkum ölluin, sem sýndu okkur samúð og vinsemd
við jarðarför móður okkar
SIGRÍÐAR ÁRNADÓTTUR
Börn, barnabörn og tengdaböm.
Starfsstúlka óskast
S|úkrahúsið Sólheimar
3-5 herbergía íbúð
vantar mig nú þegar. — Uppl. í síma 19861.
Egill Benediktsson, veitingamaður.
verðnr sérfræðingnr, ungfrú Leroy, frá
O R L A N E snyrtivöru-verksmiðjunum í
París til viðtals í verzlun okkar. —
Jafnframt því að sýna nýjar vörur, þá
mun hún einnig gefa Ó K E Y P I S ráð
notkun snyrtivara.
Bankastræti 3.
og leiðbeiningar um
Guðbjörg Gestsdóttir leikur Lártl
dóttur hans, Sesselja Ólafsdóttir
leikur Jóhönnu bróðurdóttur
assorsins, Eiríkur Magnússon
leikur Krans kammerráð, Mar-
grét Björnsdóttir leikur Helenu
konu hans. Bjartmar Guðmunds-
son leikur Vermund skógfræðing,
Gísli G. Magnússon leikur Her-
löv stúdent, Ingjaldur Ásmunds-
son leikur Ejbek stúdent, Eirík-
ur Eiríksson leikur Skrifta-Hans
og Ásgeir Gunnlaugsson leikur
Pétur bónda. Söngstjóri og píanó-
leikari er Ólafur Sigurjónsson.
Leiktjöld og búningar eru fengin
frá Leikfélagi Vestmannaeyja,
svo og hefur Leikfélag Selfoss
verið Vöku hjálplegt með xrndir-
búning að sýningum.
Og svo að síðusu, góðir félagar
í Vöku: Ég óska ykkur til ham-
ingju með þann sigur er þið
hafið öll í sameiningu unnið með
því að koma þessu kunna leik-
riti á svið og að þið hafið sýnt
miklu meiri getu en við að ó-
reyndu þorðum að búast við.
Vilji ykkar og áræði verður
ekki vanmetinn enda þótt nú
gjörist fólk kröfuhart um leik-
sýningar. Verið getur að fram-
tak ykkar verði til þess að sanna
nútímanum að í strjálbýlinu get-
ur líka lifað list. Allt á sinn
vaxtarmöguleika, þegar vel er
hlúð að í fyrstu.
Gunnar Sigurðsson.
— Rv'ikurflugvöílur
Framih. af bls. 11.
völlur er einn með öruggari og
betri fluigvölluan Evrópu hvað
lendingar- og flugtaiksskilyrði
smertiir. Þar eru staðsett öll öxr-
yggistæki fullkomnustu fflug-
valla, svo sem bli ndlend i ngar-
tæiki og vel þjálfað bruna- og
björgunarHð, svo aðeins eittihvað
sé nefnt.
Sé ihins vegar hægt að telja
mönnum trú uan, að vegna fj ar-
lægðar frá Reytkjavilk sé ekkl
um að ræða að nota völHnn, sem
'þó er beint út í bláinn miðað
við fjarlægðiir flugvalla frá stór-
borgum nærliggjandi landa, og
þó reynt sé að gera lagningu
steypts vegar til Keflavíkiur tor-
tryggilega, er þó enn ein leið
eftir, sem ekki hefur mér vitan-
lega verið rædd, en það er að
leggja Monorail (rafmagnsloft-
brauit) milli Reykjavikur og
Keflavíkur. Vegurinn ásairnt mon
arail mundi ekki kosta nema iit-
inn hluta af þvi sem nýr flug-
völlur mundi kosta. Við monorail
mundi úr sögunni ísingarfiœtitan,
sem verið er að reyrxa að hræða
fólk með, en ferðin hins veg-
ar taka mun styttri tiíma en aftir
veginum við beztu skilyrðL
Land undir flugvöll fyri>
sjúkrafiuigvélar og smávédar má
finna svo til hvar sem er i niá-
grenni Reyikj avíkiuir, jafnvel nota
part af þeim gamla um stundar-
sakir.
Ég kem svo að siðustu að jnnl
atiriði í íslenzkum flugvllanmál-
uon, sem algjörlega hefur verið
vanrækt, en það er bygging ör-
uggs varaifluigvallar fyrir Kefla-
víkurflugvoll au®tan liands eða
norðan. Væri hann fyrir hendd
hefðum við nú þegar tugmiUjóna
•króna gjaldeyristekjur af lend-
ingum eriendra véla á Kefla-
víkurflugvellii. Þetta er ekki fyr-
ir hendi einfaldilega vegna þesa
að næstu varavellir Keflavíkiur-
flugvallar eru PreSt-wick i Skot-
landi og Gander á Newfound-
land. Viðkomu stórra miUilanda-
véla er ekki unt að áætla 4
Keflavik á meðan enginn vara-
völliur er hérlendis. Að vísu hef-
ur Pan Aimerican flugfélagið hér
áætlun á Keflavik, en fljúga hing
að oftaist með hálftómar eða tón>
ar vélar. Þarna hafa íslendiingair
.mi'sst óþægilega af strætisvagn-
ihuim.
Ég hef aðeins stiklað á þvl
stærsta, af þvií sem fram kom J
blaðaviðtali flugmáilastjóra,
Margt fleira mæitti nefna, en
verður að báða síðari tíima af
tilefni gefst.
Keflavíkurflugvelli, 14. felbr. 1963
Þóröur E. Uulídorsson,