Morgunblaðið - 06.03.1963, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 06.03.1963, Blaðsíða 15
Miðvikudagur 6. marz 1963 MORCVNBLAÐ1Ð 15 VIÐTAL þaS sem hér fer á eftir er eftir féttaritara Morgunblaðsins á Akur- eyri, Sverri Pálsson cand. mag. Sverrir hefur nýlega tekið við starfi frétta- manns blaðsins á Akur- eyri og býður Morgunblað ið hann velkomin til starfa. Ungir fiskræktendur. Ljósm.: Eövarð Sigurgeirsson. „Við viljum beina orku æskufólk- sins í þroskavænlegan farveg” gert áður fyrir unga fólkið hér í bæ.“ „Já, mikil ósköp. Hér hefur margt merkilegt verið gert; bæði hefur æskuXólkið verið á- hugasamt sjálft um ýmis þörf verkefni sér og öðrum til hags og heilla og verið vel sjálf- bjarga í þeim efnum, og svo hafa margir úr hópi fullorð- inna tekið að sér forystu í fé- lagsmálum þess. A það má til dæmis benda, að Akureyri er bæði vagga Góðtemplara- reglunnar og ungmennafélag- anna í landinu. — Reglan hef ur unnið merkilegt starf fyrir börn og unglinga í bænum á undanförnum árum, bæði inn- an barnastúkanna og á öðrum sviðum. Um margra ára skeið héit Reglan uppi leikstofu, skemmtiklúbbum og margs konar föndurnámskeiðum í æskulýðsheimili sínu, VarS- borg. Nú hefir fyrirkomulagi starfseminnar þar verið breytt og unglingar geta innritazt í ýmsa klúibba, sem hver hefir ákveðið verkefni að vinna að. Eru nú starfandi frímerkja klúbbar og flugmjódelklúbb- ur, og bráðlega mun taka tii starfa Ijósmyndaklúbbur í sam ráði vfð Æskulýðsráð. Nýlega hefur Borgarbíó, sem er eign templara, gengizt fyrir sér- stokum kvikmyndasýning- um fyrir skólafólk, og eru sumar myndirnar fengnar frá Sp'alBað við Hermann Sígtryggsson æskulýðs og íþróttafulltrúa á Akureyri UTAN I grösugri brekku, sem rís upp og vestur af fjölsóttu íþróttasvæði Akureyringa, blasa við augum áhorfendapall ar, sem láta lítið yfir sér fljótt- á litið. Nú eru trébekkirnir, sem oft eru að sumarlagi þétt setnir skapheitum knattspyrnu unnendum, þaktir svellstorknu ©g þunnu snjólagi. Hrópin og brýningarnar frá sumrinu hafa löngu hljóðnað, en einmana og vænglúinn hrafn hefir val ið. sér áningarstað á einum bekknum á leið sinni frá fjöru til fjalls og krunkar nú spekimgsJega við sjálfan sig. En pallar þessir eru annað og meira en þeir virðast vera úr fjarlægð. Undir þeim er nefnilega stórt og vandað hús, sprengt og grafið inn í brekkuna. Þess húss verður þó ekki vart, fyrr en að er kom- ið. í þessum bergkastala, sem vígður var á aldarafmæli Akureyrarkaupstaðar síðastlið ið sumar, er hreiður og höfuð vígi íþróttastarfsins í bænum, Þar er einnig skrifstofa hins nýkjörna æskulýðs- og íþrótta fulltrúa Akureyrar, Hermanns Sigtryggssonar íþróttakénn- ara. ELnn góðan veðurdag bregð ég undir mig- betri löppinni og geng á fund Hermanns í því skyni að afla frétta af starfi hans. Ég opna útidyrnar með hálfum huga, veit ekki glaggt, hvað við tekur þarna undir yfinborði jarðar, Jú, mikið rétt, nógur er ylurinn. Tveir stigar blasa við, liggur annar niður, hinn upp, ívið þrengri. Mér lízt ekki á þann fyrr- nefnda, en feta mig eftir hin- um upp á inhanhúss-loftsvalir, unz étg kem að opnum dyrum. Mér léttir. Hermann er fund inn, situr snöggklæddur og skriifar bxóf, umkringdur bik- urum, veggskjöldum, borð- fánum, félagsveifum, upp- dráttum, bókum og skjölum. „Nei, sæll og blessaður, gakktu í bæinn, „segir húsráð andi, sprettur upp úr sæti sínu og hristir iiönd mina. — „Ég verð alltaf að láta standa opið fram á ganginn vegna hitans, þó að það sé föst morgunleik- fimisæfing hjá mér að opna gluggann þarna,“ segir Her- mann með glaðlegu brosi og bendir á vesturvegginn. Ég keyri höfuðið á bak aftur og virði fyrir mér gluggann á veggnum, efst uppi undir hinu skáhalla lofti, og skilst þegar, að þann glugga muni ekki aðrir upp láta en knáir menn og harðfylgnir, þar sem til þess þarf að renna upp tveggja mannhæða vegg, lóðréttan. „Ætlunin var nú að árna • þér heilla í hinu nýja starfi þínu og spyrja af því sönn tíð indi. Ég þykist vita, að þú hafir ærið að starfa.“ „Já, satt er það, ekki þarf ég að kvíða iðjuleysinu. Hér væru næg verkefni handa þrem eða fjórum mönnum, ef fjárráð væru meiri. En svo er fyrir að þakka, að margir hafa brennandi áhuga á æskulýðs- málum og leggja fram mikla vinnu og tíma án endurgjalds til velferðarmála æskufólks í bænum, og er ánægjulegt að vinna með því fólkL“ „Segðu mér, hver voru til- drög að því, að embætti þitt var stofnað?" „Upphaf þess máls má rekja til bréfs, er Barnavernd arnefnd skrifaði bæjarstjórn Akureyrar í nóvember 1961 xneð tilmælum um, að hún gengist fyrir stofnun æsku- lýðsráðs, er hefði á hendi yfir umsjón með æskulýðsstarf- semi í bænum, skipulegði hana og samræmdi. Bæjarstjórn kaus skömmu síðar nefnd tii að gera tillögur um skipulag og verksvið æskulýðsráðs. í þessari undirbúningsnefnd áttu sæti 5 kennarar auk sr. Péturs Sigurgeirssonar, sem var formaður hennar. Nefnd- in hélt marga fundi oig samdi drög að reglugerð fyrir æsku- lýðsráðið, sem bæjarstjórn samþykkti á fundi sínum 16. október 1962. Jafnframt kaus bæjarstjórn 3 menn í ráðið, - þá Einar Helgason, Guðmund f>orsteinsson og Harald Sig- urðsson. Fjórir menn voru til- nefndir af ýmsum félagasam- tökum, þeir Eiríkur Sigurðs- son af framkvæmdaráði IOGT Björn Baldursson af íþrótta- bandalagi Akureyrar, sr. Pét- ur Sigurgeirsson af Æskulýðs félagi Akureyrarkirkju og Tryggvi Þorsteinsson af skáta félögum. Sr. Pétur var kos- inn formaður ráðsins. í sam- vinnu við íþróttaráð, sem er fastanefnd kosin af bæjar- stjórn, var ákveðið að ráða æskulýðs- og íþróttafulltrúa, er sæi um daglegan rekstur og framkvæmdastjórn á veg- um beggja ráðanna. Við þessu starfi tók ég nú um ái'amót- in.“ „Nú hefur sitthvað verið Frá mvndlistarnámskeiðinu. Hermann Sigtryggsson. Æskulýðsráði Reykjavíkur. Enn má nefna, að Bókasafn templara hefur hafið útlán barnabóka og opnað lesstofu." „Ekki hefur kirkjan látið sitt eftir liggja?" ‘Sannarlega ekki. Æskulýðs félag Akureyrarkirkju var stofnað 19. október 1947 og hefur starfað síðan af miklum krafti. Teilja má sr. Pétur Sigurgeirsson „föður“ þess fé- lagsskapar, en hann og aðrir sclknarprestar hér, þeir sr. Kristján Róbertsson og sr. Birgir Snæbjörnsson, hafa jafnan vakað yfir félaginu og verið því öflugir leiðtogar. Fundir hafa alltaf verið fjöl- sóttir og félagslíf fjörgugt. T.d. hefur lengi starfað innan þess róðrarklúbbur, sem orðið hefur sigursæll á íslandsmót- um. Auk þess félags vinna svo deiLdir úr KFUM og KFUK Framhald á bls. 16.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.