Morgunblaðið - 06.03.1963, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 06.03.1963, Qupperneq 16
16 MORCVNBLAÐIB Miðvikudagur 6. marz 1963 — Akureyri Framh. af bls. 15 hér Pbæ að kristilegu ung- mennastarfi.“ „Hvað um íþróttalífið?" „Síðan um aldamót hefur verið mikill og almennur í- þróttaáhugi á Akureyri og æskumenn og konur stundað margvíslegar íþróttagreinar, enda hafa Akureyringar oft náð langt í ýmsum greinum, einkum vetraríþróttum. Nú eru ekki færri en 6 íþrótta- félög starfandi í bænum og hafa hvert um sig á stefnu- skrá sinni eina eða fleiri grein ar íþrótta. Sameinginlega mynda þau iþróttabandalag Akureyrar. — Bæjarfélagið hefur verið örlátt á fé til íþróttamannvirkja, miðað við það, sem víða annars staðar gerist, og sýnt með því skiln- ing á gildi líkamsræktar fyrir vaxandi kynslóð. Við eigum nú ágætan grasvöll fyrir knatt spyrnu ásamt stökk- og hlaupa brautum og litlum æfinga- velli, sem notaður er undir skautasvell að vetrinum, og það kunna ungir og gamlir sannarlega vel að meta. Iþróttahús með tveimur fim- leikasölum var reist árið 1942 og ágæt sundlaug, reypdar bæði útilaug og litil innilaug ásamt gufubaðstofu, er við hlið þess. Svo má nefna skíða hótelið í Hlíðarfjalli, sem nú er bráðum fullbúið, að ó- gleymdu þessu húsi, sem við erum nú í.“ „Bkki má gleyma skátun- um.“ „Nei, enda hef ég ekki gleymt þeim, það ættu þeir sízt af öllu skilið. Skátaregl- an hefur starfað hér lengst af síðan 1917 og verið mjög virk. — Enn mætti nefna ýmislegt fleira í þessu sam- bandi auk alls þess, sem skól- arnir gera fyrir unga fólkið í bænum utan dagkrár." „En svo að við víkjum nú aftur að Æskulýðsráði, hvert er hlutverk þess?“ „Aðalverkefnið er að vinna að eflingu félagslifs meðal æskulýðs á Akureyri og hafa um það samvinnu við þá að- ilja, sem um þau mál fjalla. Ég vil sérstaklega taka það fram til þess að koma í veg fyrir hugsanlegan misskiln- ing„ að við viljum ekki grípa inn á þau svið æskulýðsstarfs, *em fýrir eru í bænum, eða stunda neins konar samkeppni við einstök félög .heldur sam ræma störf þeirra og styðja að þeim af fremsta megni. Hins vegar höfum við brotið upp á ýmsu nýju og munum væntanlega gera það í rikari mæli framvegis til þess að fylla í ýmis skörð tómstunda- starfsins og koma til móts við óskir sem flestra um fjöl- breytileg viðfangsefni. — Auk þess er það í verkahring Æsku lýðsráðs að hafa umsjón með rekstri tómstunda- og félags- heimila og semja starfsreglur fyrir þau, gera tillögur um fjárveitingar úr bæjarsjóði til æskulýðsmála og leitast við að ná til þess æskufólks, sem vegna áhugaleysis eða af öðr- um ástæðum tekur ekki þátt í heilbrigðum viðfangsefnum í tómstundum sínum, og beina orku þess í þroskavænlegan farveg.“ „Hvað hefur svo verið gert fram til þessa?“ „Eitt fyrsta verk Æskulýðs ráðs var að efna til skoðana- könnunar meðal unglinga, bæði í Gagnfræðaskólum og á ýmsum vinnustöðum, til þess að fá vitneskju um óskir þeirra um skemmtanir og tóm stundaverkefni og eins hitt, hve mikinn tíma unglingar hafa afgangs frá námi og vinnu. Á niðurstöðum þessar- ar könnunar höfum við svo reist áætlanir okkar og fram- kvæmdir. — Annars má ekki minnast svo á undirbúnings- stöx-f ráðsins, að þess sé ekki getið með þakklæti, að Jón Pálsson, tómstundaráðunaut- ur Reykjavíkur, kom hingað norður eftir áramótin og var okkur til ráðuneytis um þessi efni. Leiðbeiningar hans urðu okkur ómetanlegar, enda er Jón gagnkunnugur starfi sem þessum í smáatriðum, holl- ráður og góðviljaður.“ „Og síðan hafa hendxxr stað- ið fram úr ermum.“ „Ójá, ég held mér sé óhætt að segja það. Við vorum svo heppnir að fá þetta ágæta hús til umráða í vetur, enda hefði það annars staðið ónot- að Hér eru haldin námskeið, og iiér halda ýmsir klúbbar fundi sína. — Og svo hef ég bækistöð hér.‘ „Námskeið, sagðirðu?1* „Nú þegar hafa 3 námskeið tekið til starfa, þar af tvö hér í húsinu. Á öðru segir Einar Helgason, kennari og knatt- spyrnukappi, ungu fólki til í teikningu og meðferð olíu- lita. Þátttakendur eru um 40, 10—15 saman í flokki. Á hinu kenna þeir Guðmundur og Tryggvi Þorsteinssynir hjálp í viðlögum, þ.á.m. blástursað- ferðina við lífgun úr dauða- dái. Það námskeið sækja um 70 manns í þremur flokkum. — Þriðja námskeiðið er svo haldið á tveim stöðum, í Bjargd, félagsheimili Sjáifs- bjargar, og Alþýðuhúsinu. Þar kennir frú Margrét Rögn valdsdóttir þjóðdansa og sam kvæmisdansa. Upphaflega var ætlunin, að ekki yrðú nema 15 1 flokki, en aðsóknin var svo mikil, að hafa verður ca. 25 í hverjum fremur en að vísa frá, því að flokkarnir geta af ýmsum ástæðum ekki orðið fleiri en 6. Þú sérð á þessu, að þessi viðleitni fellur í góðan jarðveg.“ „Eru fleiri námskeið á prjón unum?“ „Já, Já. Um næstu mánaða- mót eða í marzbyrjun tekur til starfa sjóvinnunámskeið, sem sérstök sjóvinnunefnd mun sjá um. Þeirri nefnd var komið á laggirnar fyrir atbeina Æsku- lýðsráðs, og skipa hana fulltrú ar frá sjómanna- og útgerðar- mannasamtökum í bænum, Fiskifélagi íslands og Gagn- fræðaskóla Akureyrar. Mikils- vert er, að menn með þekk- ingu á þörfum einstakra at- vinnugreina fyrir verkkunn áttu hafi hönd í bagga með námskeiðum sem þessum og annist framkvæmd þeiirra. í fyrra gekkst skólastjóri Gagnfræðaskólans, Jóhann Frí mann, fyrir sjóvinnunám- skeiði í samvinnu við Útgerð- arfélagið. Tókst það með ágæt um, og piltarnir þaðan hafa síðan verið eftirsóttir í skip- rúm. — Svo er í ráði að hefja námskeið í hjúkrun um miðj- an marz. Það verður ætlað stúlkum, og aðalleiðbeinandi verður Ingibjörg Magnúsdóttir yfirhjúkrunarkona. Kunnátta í hjúkrun sjúkra getur orðið ómetanleg á hverju heimiii, ef veikindi eða slys ber að höndum. — Svo má nefna námskeið í flugmódelsmíði og ljósmyndun í samvinnu við templara." „Svo eru það klúbbarnir.“ „Fyrirferðamestur er eflaust dansklúbburinn Sjöstjarnan, en kjarni hans eru 7 piltar, sem gangast fyrir dansleikjum á tveggja eða þriggja vikna fresti undir handleiðslu Guð- mundar Þorsteinssonar, kenn- ara. Dansleikir þessir eru fyrir 15—18 ára unglinga og eru vitanlega tóbaks- og vinlaus- ir. — Tveir fiskiræktarklúbb- ar starfa að smáfiskarækt og heita „Neon“ og „Uggi“. Með limirnir eru flestir um og inn an við fermingu, en búa yfir furðulegri þekkingu á tegunda heitum, jafnvel á latínu, og lifnaðar- og hollustuháttum skjólstæðinga sinna. Leiðbein- andi er Trausti Sveinsson, verzlunarstjóri. ■*— Og úr því að við fórum að tala um klúbbana, langar mig að minn ast á tvo enn, sem ráðgert er að stofna. Maður er nefndur- Dúi Eðvaldsson, hinn mesti hugvits- . og hagleiksmaður. Hann er nú að undirbúa stofn un þessara tveggja klúbba, vélhjólaklúbbs og siglinga- klúbbs. Akureyrarpollur get- ur verið Paradis sgilinga- manna, enda eru hér til nokkrir stórir og vandaðir seglbátar, auk húðkeipa og ýmissa smábáta. Grunnsævið inni á Leirunni «r ágætt fyrir byrjendur, en frjálsræði og nægt svigrúm úti á dýpinu fyrir þá vönu. Búið er að útvega uppdrætti að litlum eins manns seglbátum, sem auðvelt er að smiða og strák- arnir geta jafnvel smíðað sjálf ir með tilsögn. Vonir standa til, að við fáum afnot af gamla flugskýlinu við innri bryggjurnar fýrir þessa starf- semi, og þar er einstök að- staða, jafnvel rennibraut og spil til að setja báta á flot óg draga þá á land og inn í skýlið. Þar má koma upp verkstæði, búningsklefum og geymslum og halda námskeið að vetrinum. Þarna hefur róðr arklúbbur ÆFAK haft bæki- stöð að undanförnu.“ „Eruð þið ekkert smeykir um, að þið teygið unglingana um of út út af heimilunum með þessu márgbreytilega tómstunda. og félagsstarfi?“ „Bkki tel ég ástæðu til að óttast það, enda væri þá illa farið. Barátta okkar miðast einkum við það að hamla á móti áhrifum götunnar eða þess, sem oft er nefnt „sollur“ eða „óhollur félagsskapur". Vitanlega tel ég æsiklegt, að unglingar uni innan veggja heimilisins við holl viðfangs- efni, en við vitum, að þeir búa því ærð misjafna aðstöðu á heimilunum, víðast góða, en því miður ekki allstaðar, og langar oft til að fást við ýmis legt, sem ekki er auðvelt að vinna að á einkaheimilum. — En einmitt núna er Æskulýðs- ráð að undirbúa heimiliskvöld vökur og aðstoð og leiðbein- ingar við tilhögun þeirra. Ég er hérna hálfnaður við að skrifa Útvarpsráði bréf með tilmælum um að fá afnot af Skjaldarvlkurstöðinni eina kvöldstund í því skyni.“ „En eiga unglingar svo ríkulegar tómstundir, að þeir geti sinnt þessum aukastörf- um að marki án þess að nám eða atvinna gjaldi þess?“ „Það er náttúrulega afar misjafnt. Fæstir taka þátt í fleirum en einu eða tveimur tómstundaviðfangsefnum, og ætti fáum að vera það ofraun. Annars er þetta alveg frjálst, Við vitum líka báðir, að sum- ir hafa alltaf nægan tíma og koma miklu í verk, aðrir hafa aldrei tíma til neins, en af- kasta þó litlu, þetta fer eftir eðli manna. En skoðun mín er sú, að nauðsynlegt sé að veita unglingum tækifæri til að spreyta sig á hollum og þroska vænlegum viðfangsefnum, — í því felst líka menntun og uppeldi, — efla í dag félags- ‘kennd og ekki síður ábyrgðar kennd hins vaxandi manns, sem verður virkur þjóðfélags- borgari á morgun. Eg trúi því, að þetta starf bjargi mörgum frá ærslum og óknyttum, slæp ingjahætti og lífsleiða, — geri einhvei'ja að meiri hamingju- mönnum en þeir hefðu ella orðið.“ „Og þú hlakkar til fang- bragðanna við viðfangsefni f ramtíðarinnar ? “ „Því máttu trúa. Áhuginn á þessurn málum og íþróttunum er búinn að endast mér svo lengi ófölskvaður, að ham» fer varla að dvína á næst- unni, þegar ég hef fengið svona mörg verkefni að minu skapi við að fást.“ Ég stend upp og kveð þen« an vaska og snarlega bjart- sýnismann. Hann réttir mér hlýja hönd í kveðjuskyni, og hýrlegur glampi skín úr aug- um hans, er hann fylgir mér til dyra. fiv. P. (ítsala! (Jtsala! Mikil verðlækkun á margskonar vefnaðarvöru, nærfatnaði o. fl. o. fl. ÚTSALAN stendur aðeins 2 daga. Vesturgötu 21. Skrifstoa ustúlka Heiídverzlun óskar að ráða til sín stúlku til vélrit- unar og símavörzlu strax eða sem fyrst. — Um- sóknir sendist Mbl. fyrir 7. þ. m. merktar: — „Stundvís — 6261“.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.