Morgunblaðið - 13.03.1963, Síða 5
Miðvikudagur 13. marz 1963
MORCVIVBLAÐIÐ
>
i
i
I
I
I
j
UM þessar mundir dvelst
hér á landi ung, frönsk stúlka,
Leroy að nafni. Hún er hing-
að kominn til að leiðbeina
ísl. konum um val snyrti-
vara og ferðast á vegum Or-
lanefyrirtækisins, tem er
franskt snyrtivörufyrirtaeki.
Þrátt fyrir mikið annríki
alla vikuna við leiðbeiningar-
starfsemi í snyrtivöruverzd-
unum gaf ungfrúi-n séx tíma
til að spjalla stundarkorn við
blaðamenn sl. föstudagskvöld.
„Þetta var strangur dagur,“
sagði hún, „ég skoðaði hiúð-
ina á 147 viðskiptavinum, sem
komu inn í Regnbogann í
dag.“
XJngfrú Leroy við tækið upp í verzluninni Xíbrá.
Rannsakar húðina undir smásjá
Hún leyfði okkur að skoða
tseki það, sem hún notar við
að rannsaka húðina. Gegnum
smásjá getur hún greint alls-
konar húðgalla, óhreinindi og
ósýnilegar hrukkur, en einnig
hefúr hún sérstakan sýru-
mæli, sem mælir sýrustig húð
arinnar. Að þessum rannsókn '
um loknum á hún auðvelt
með að leiðbeina um val
snyrtivara.
„Ég legg meira upp úr að
konur lækni húð sína en þær
hylji gallana með einhvers
konar faðra, þó það geti tæp-
lega kallazt góð sölumennska.
En það borgar sig þegar fram
í sækir. Ég hef sagt við marg-
ar kornungar stúlkur hér: —
Þvoið ykkur reglule_ga og
hreinsið húðina með góðu
næringarkremL Geymið „meik
ið“ þangað til þið eruð orðnar
hrukkóttar og þurfið á því að
halda. — í>ær hafa að sjólf-
sögðu orðið mjög undrandi á
þessu háttarlagi mínu. En
Orlane-fyirirtækið framleiðir
mikið að mjög góðum smyrsl.
um, sem bæði hreinsa, mýkja,
styrkja og þurrka húðina, allt
eftir því hvað við á. Til dæm-
is um það hve framleiðslan
er fjölbreytt get ég nefnt það,
að nýlega er komið á mark-
aðinn krem fyrir vanfærar
konur til varnar sliti á kviðn-
um. Ég veit ekki til þess að
fram að þessu hafi verið
skeytt um að reyna að koma
í veg fyrir þennan húðigalla.
„Eruð þér búnar að vera
lengi í þessu starfi?"
„Ég byrjaði hjá Orlane árið
1959 og hefi verið á stöðugu
ferðalagi síðan, víðsvegar í
Evrópu og í Bandaríkjunum-
Er efcki í París nema sex daga
á ári. Þetta er s kernmti-
legt starf en töluvert þreyt-
andi. á köflum, eins og gef-
ur að skilja. — En svo ég
segi ykkur svolítið frá Orlane
fyrirtæfcinu. Það var stofnað
árið 1948 af d’Ornano greifa,
en hann hafði þá um langan
tíma verið meðeigandi og
stjórnandi sumra hinna leið-
andi snyrtivörufyrirtækja
Frakklands. Hann rekur
einnig ilmvatnsverksmiðju og
eru ilmvötnin seld undir nafn
inu Ecusson. Mér er sagt að
innan skamms verði þau
einnig seld hér.“
„En segið ofckur eitt að
lokum, í hvaða landi kunnið
þér bezt við yður utan Frakk-
lands?
„Ég kann alls staðar vel við
mig, en uppáhaldsborg mín
er Kaupmannahöfn. Þar er
diásamlegt að vera. — Ég kann
einnig mjög vel við mig hér
í Reykjavík. í næstu viku
fer ég til Vestmannaeyja,
ísafjarðar, kannski til Akur-
eyrar og Borgarness og víðar.
Svo kem ég að öllum líkind-
um aftur í haust.“
Eimskipafélaz Reykjavíkur hjf.:
Katla er t Manchester. Askja er á
>eið til islands.
H.f. Jökiar: Drangjökull Itom f gær
tll Rvikur frá Hamborg. I.angjökull er
væntanlegur i dag til Munnansk.
Vatnajokull fer I dag fná Grimsby
éleiðis til Ostend.
SkipaútgerS riklslns. Hekla er 1
Kvik. Esja er á Austfjörðum á suð-
Brleið. Herjólfur fer frá Rvik ki. 21:00
f kvöld tU Vestmannaeyja. ÞyrUl
•er frá Rvik í dag til Akureyrar.
Skjaldbreið fer frá Rvík á morgun
til Breiðafjarðarhafna. Herðubreið er
t leið frá Austfjörðum til Rvikur.
Skipadeild S.Í.S.: Hvassafelí fór 11.
|>m. frá Grimsby áleiðis tU Rvíkur.
Arnarfell er i Middlesbrough. Jökul-
feU fór 11. þm. frá Gloucester áleiðis
til Rvíkur. Disarfell fór H. þ.m. frá
Grimsby áleiðis tU Rvíkur. Litlafell
iór 11. þm. frá Keflavík áleiðis tU
Frederikstad. Helgafell fer í dag frá
Antverpen áleiðis tii Reyðarfjarðar.
Hamrafeil fór 5. þm. frá Hafnarfirði
éleiðis tíl Batumi. Stapafell fer I
Aag frá Reykjavik U1 Norðurlands-
hafna.
Loftleiðir h.f.: Lelfur EirJksson er
væntanlegur frá NY kl. 06:00. Fer tU
Luxemborgar kl. 07:30. Kemur tU
baka frá Luxemborg kl. 24:00. Fer tU
N.Y. U. 01:30. Eiríkur rauði er vænt-
•nlegur frá N.Y ,kl. 08:00. Fer tU Oslo,
Kaupmannabafnar og Helsingfors kl.
•9:30.
Flugfélag íslands h.f. Millilandaflug:
’ ’ Millilandafiugvélin Gullfaxi fer til
Clasgow og Kaupmannahafnar kl.
08:10 í dag. Væntanleg aftur til Rvík-
ur kl. 15:15 á morgun. Innanlands-
flug: í dag er áætlað að fljúga til Ak-
lireyrar (2 ferðir), Húsavíkur, ísafjarð
•r og Vestmannaeyja. Á morgun er á-
ætlað að fljúga til Akureyrar 2 (ferð-
irl, Vestmannaeyja, Kópaskers, í*órs-
hafnar og Egilsstaða.
H.f. Eimskipafélag íslands: Brúar-
foss fer frá Rvík i dag tU Rotterdam
€>i; Hamborgar. Dettifoss er í N.Y.
FjaUfoss fór í gær frá Kaupmanna-
höfn tu Gautaborgar og Rvíkur.
Coðafoss fór frá Kaupmannahöfn í gær
tU N.Y. Guiifoss er í Kaupmannahöfn.
Lagarfoes er í Rvik. Mánafoss fór frá
Leith 10. þ.m. til Seyðisfjarðar og
Rvíkur. Reykjafoss fór í gær frá Ham
borg ti’l Antwerpen, Hulí og Rvikur.
Selfoss fór frá Hamborg 11. þ.m. til
Dublin og Rvíkur. Tröllafoss er í
Rvík. Tungufoss fór frá Gautaborg i
gær tU íslands.
Söfnin
Minjasafn Reykjavikurbæjar, SkUU
túm 2, opið dag ega frá kl. 2—4 •
nema mánudaga.
Ásgrímssafn, Bergstaðastræti 74. er
opið sunnudaga, þriðjudaga og fimmtu
daga kl. 1.30 til 4 e.h.
Bæjarbókasafn Reykjavíkur, sími
1-23-08 — Aðalsafnið Þingholtsstræti
29A: Utlánsdeild: 2-10 alla virka daga
nema laugardaga 2-7 og sunnudaga
5-7. — Lesstofan: 10-10 alla virka
daga 2-7. — Útibúið Hólmgarði 34:
Opið 5-7 alla virka daga nema laug-
ardaga og sunnudaga. — Útibúið Hofs
vallagötu 16: Opið 5.30-7.30 alla daga
daga nema laugardaga 10-7 og sunnu-
nema laugardaga og sunnudaga.
Asgnmssafn, Bergstaðastræti 74 er
opið priðjud., fimmtud. og sunnudaga
frá kl. ) .30—4 e.h.
Ameríska bókasafnið, Hagatorgi 1,
er opið mánudaga, miðvikudaga og
föstudaga, kl. 10—21. þriðjudaga og
fimmtudaga kl. 10—18. Strætísvagna-
ferðir: 24,1,16,17.
Útibú við Sólheima 27 opið kl. 16-19
alla virka daga nema laugardaga.
Þjóðminjasafnið er opið priðjudaga,
fimmtudaga, laugardaga og sunnu-
daga frá kl. 1.30 til 4 e.h.
Tæknibókasafn IMSÍ. Opið alla
virka daag frá 13-19 nema laugardaga
frá 13-15.
Listasafn Einars Jónssonar er lok-
að um óákveðinn tfma.
JListasafn íslands er opið þriðju-
daga, fimmtudaga, laugardaga og
sunnudaga frá kl. 1.30 til 4 e.h.
Föstumessur
Langholtskirkja: Föstumessa í kvöld
kl. 8.30. Séra Árelíus Níelsson.
Laugarneskirkja: Föstumessa í kvöld
kl. 8.30. Séra Garðar Svavarsson.
Fríkirkjan: Föstumessa í kvöld kl.
8.30. Séra Þorsteinn Björnsson.
Dómkirkjan: Föstum-essa í kvöld kl.
8.30. Séra Óskar J. Þorláksson.
Hallgrímskirkja: Föstumessa 1
kvöld kl. 8.30. Séra Jón Auðuns, dóm-
prófastur.
Neskirkja: Föstumessa í kvöld ki.
8.30. Séra Jón Thorarensen.
Ósvaldur Knudsen sýnir þessa dagana kvikmynd i Gamla Bíói.
Þar eru myndir úr ævi Halldórs Kiljan Laxness, af öræfastöðum,
Öskjumyndir o.fL
2—3 hérb. íbúð
í Reykjavík eða KópavOgi
óskast til leigu. Fyrirfram
greiðsla kemur til greina.
Uppl. í skna 50226.
Ráðskona
Stúlka með tvö börn ósk-
ar eftir ráðskonustöðu. Til
boð merkt „Sumar 6361“
sendist afgr. Mbl fyrir 16.
marz.
Til sölu
Nokkrir tækifæriskjólar.
Einnig nýr franskur jakka
kjóll. Stærðir 12—14. Uppl
í síma 20477 kl. 2-4 í dag
og á morgun.
Nýjar vörur daglega
Silkiborg
Dalbraut 1. simi 34151
Afgreiðslustúlka
Stúlka óskast til afgreiðslu
í snyrtivöruverzlun — hálf
an daginn. Tillb. sendist á
afgr. Mbl. fyrir 18. þ. m.
merkt „Afgreiðslustúlka —
6360“
Miðstöðvarbrennari
Notaður miðstöðvarbrenn-
ari óskast til kaups. Tilb.
sendist afgr. Mbl. fyrir 14.
þ.m. merkt: „Brennari —
6157“.
Sjómenn, útgerðarmenn
Kúluhankar og steina-
hankar fyrirliggjandi að
Skálholtsstíg 2a.
Bílstjóri
Viljum ráða bílstjóra, sem
gæti annast viðgerðir o.fl.
Vélsmiðja Njarðvíkur hf.
Simi 1750 Keflavík
Járniðnaðarmenn
okkur vantar nokkra járn
iðnaðarmenn og hjálpar-
menn í járniðnað. Mikil
vinna.
Vélsmiðja Njarðvíkur hf.
Sími 1750 Keflavík
ATHUGIÐ I
að borið saman við útbreiðslu
er langtum ódýrara að auglýsa
í Morgunblaðinu, en öðrum
blöðum.
Bátar til solu
2 nýlegir 8 lesta vélbátar til sölu, með eða án veiðar-
færa. Einnig opinn vélbátur, 2 Vá lest, í góðu lagL
Hagstæðir greiðsluskilmálar.
Valtýr Guðmundsson, EskifirðL
Heildsalar
Ungur maður, sem hefur starfað við sölumennsku
síðustu 5 árin, óskar eftir starfi sem fyrst. Tilboð
sendist afgr. Mbl. fyrir 17. þ. m. merkt:
„Reglusamur — 6161“.
Rafsuðumenn og vélvirkjar
óskast strax.
VÉLSMIÐJAN KYNDILL
sími 32778.
Sendisveinn
14 — 16 ára, óskast nú þegar.
Þárf að hafa skellinöðru.
Björn og Halldór h.f. Vélaverkstæði
N Síðumúla 9 — Símar 36030 og 32294.
Efnalaug
í góðum rekstri er til sölu á hagkvæmu verðL
Mikið af nauðsynlegum áhöldum og vélum fylgir.
Þeir sem hafa áhuga á þessu leggi nöfn *ín ina
á afgreiðslu Morgunbl. merkt: „Gott fyrirtæki —
6363“ fyrir 20. þ. m.
Atvinna
Okkur vanlar tvo vana smurstöðvar-
menn strax. — Gott kaup.
Smurstöðin á Klöpp
við SkúlagötiL.