Morgunblaðið - 14.03.1963, Page 17
Fimmtudagur 14. marz 1963
MORCVHBLAÐItí
17
— Flugvallarmálið
Framhald- aí bls. 13
í kostnað við endurbaetur á hon-
um, heldur beri að byggja nýjan
flugvöll á Álftanesi, sem yrði
varanlegt mannvirki, er gæti
þjónað öllu okkar flugi um ó-
komna tíma. Hin íslenzka nefnd
gat þess að kostnaður við endur-
bætur á Reykjavíkurflugvelli,
þ.e. m.a. með stefnubreytingu á
flugbraut 14—32, stefnubreytingu
og lengingu á flugbraut 20—02,
ásamt fleiri nauðsynlegum end-
urbótum, myndi sennilega fara
fram úr kostnaði við byggingu
flugvallar á Álftanesi. Ég sé ekki
ástæðu til þess að véfengja álit
hinnar íslenzku sérfræðinganefnd
ar undir forustu eins okkar beztu
verkfræðinga. Hið bandaríska
fyrirtæki var sammála í öllum
megin atriðum þ.e. áður heppi-
legasta svæðið fyrir framtíðar-
flugvöll Reykjavíkur og nágrenn
is sé einmitt Álftanes. f mjög ná
kvæmri skýrslu um málið er það
sérstaklega tekið fram, að svæð-
ið sé frá náttúrunnar hendi hindr
analaust, og því ákjósanlegasti
staðurinn- Þar er og skýrt tekið
fram, að ekki komi til greina
fyrir okkur að nota Keflavík
fyrir aðalflugvöll. Eðlilegra yrði
um töluverðan kostnað að ræða,
varðandi kaup á jörðum undir
hinn nýja flugvöll á Álftanesi, en
er land það, sem Reykjavíkur-
flugvöllur bindur, ekki einhvers
virði? Ekki þætti mér undarlegt
þótt það land, sem Reykjavík
fengi til sinna umráða, reyndist
meira virði en það sem kaupa
þyrfti á Álftanesi. Mér hefir virzt
yfirvöld þessarar borgar m#ta
það land, sem Reykjavíkurflug-
völlur stendur á, til verulegs fjár
og séu á engan veg ánægð með
þá óvissu, sem ríkir í þessum
málum. Hér er byggð stöðugt að
kreppa meir og meir að flugvell-
inum, og má þar t.d. nefna bæj-
arsjúkrahúsið, hið fyrirhugaða
ráðhús, í beinni línu fyrir enda
aðalflugbrautarinnar, Hallgríms-
kirkja o.fl. Vaxandi næturum-
ferð flugvéla kemur til með að
valda truflunum í öllum sjúkra-
húsum hér í borginni fyrir utan
allt annað.
Ég er sammála Jóhannesi
Markússyni í því, er hann segir
um sjálfan Reykjavíkurflugvöll,
hann er of lítill fyrir okkar ný-
keyptu Cloudmasterflugvélar.
Möguleikar til stækkunar vallar-
ins er raunverulega ekki fyrir
hendi, svo að gagni komi, nema
með ærnum kostnaði, sbr. álit
sérfræðinganefndarinnar, og yrði
sá kosturinn valinn, álít ég að
þá væri raunverulega verið að
tjalda til einnar nætur, þar sem
vallarsvæðið er þegar aðkreppt
og með ört vaxandi flugumferð
stærri og þyngri flugvéla, má
gera ráð fyrir að íbúar borgar-
innar sætti sig ekki við þá lausn
til lengdar.
Við þetta bætist svo það, að
afar erfitt er að koma hér fyrir
aðflugsljósum, sem ég tel veiga-
mikið öryggisatriði í næturflugi.
Ég er heldur ekki viss um að
fegrunarfélagið myndi sam-
þykkja stauraraðir eftir endi-
langri tjörninni, svo eitthvað sé
nefnt.
Þá kem ég að þeirri hugmynd
Jóhannesar Markússonar, að
nægilegt myndi að hafa eina
flugbraut norðanlands sem vara-
flugvöll fyrir Keflavík- Hversu
oft skeður það ekki að flugvellir
norðanlands eru lokaðir vegna
norðanáttar, sem svo oft fylgir
úrkoma og lélegt skyggni? Þegar
þannig viðrar, er mjög oft bjart-
viðri hér sunnanlands. í þessum
tilfellum yrði þá varaflugvöllur-
inn að vera í Skotlandi, ef Álfta-
nesflugvöllur yrði ekki byggður.
Hversu mikið þetta myndi tak-
marka hleðslu flugvéla sem væru
að koma til landsins, getur Jó-
hannes reiknað út sjálfur, en ég
álít þetta ekki lítið atriði, þótt
ekki sé nema á kostnaðinn litið.
Þá getur Jóhannes þess, í grein
sinni, að þoturnar, sem hann spá-
ir að við munum fljótlega taka
í okkar þjónustu, þoli lítinn hlið-
arvind í lendingu, þetta er rétt,
en má ég þá benda á það, að þeg
ar vestan- eða suðvestan-veðrin
geisa hér suðvestanlands, og
Keflavíkurflugvöllur þá stund-
um lokaðúr, þá eru lendingar-
skilyrði norðanlands oft afar
erfið, einmitt vegna hliðarvinds
og ókyrrðar. Flugbrautir norðan
lands eru yfirleitt staðsettar frá
norðri til suðurs af þeirri ein-
földu ástæðu, að þær eru byggðar
í fjörðum og jiölum, sem einmitt
liggja í þessar áttir. Þar við bæt-
ist, að lágmarksskýjahæð fyrir
aðflug eftir mælum, er yfirleitt
há, vegna nærliggjandi fjalla.
Það væri því hæpið að treysta
lendingu norðanlands í útsynn-
ings veðri, sem oft fylgja él og
stundum langvarandi snjókoma
hér sunanlands. Oft er það þann-
ig að flugvellirnir í Reykjavík
og Keflavík eru opnir og lokaðir
til skiptis í útsynningsveðrunum,
og þótt ekki sé um langvarandi
snjókomu að ræða, þá er hver
mínúta dýrmæt einkanlega þegar
um þoturnar er að ræða, en þær
hafa tiltölulega lítið flugþol þótt
þær geti flogið langar vegalengd
ir vegna hraðans. Það liggur í
augum uppi, að tveir flugvellir
hér sunnanlands eru nauðsynleg-
ir fyrir millilandaflugið, bæði af
öryggisástæðum og sökum þess,
hve kostnaður yrði gífurlega
mikill samfara því áð hafa vara-
fiugvöllinn i öðru landi, í hundr-
uð mílna fjarlægð, þegar flug-
vellirnir norðanlands eru lokaðir
vegna veðurs eða vinds.
Ég hygg að meginþorri flug-
manna séu mér sammála í því að
Keflavíkurflugvöllur sé með öllu
útilokaður sem aðalflugvöllur
fyrir okkur íslendinga. Talið er
um Monorail o.s.frv., en hversu
mikið myndi það fyrirtætki kosta
og myndi það sett upp við hlið-
ina á hinum steypta vegi í náinni
framtíð- Ég álít að það verði ekki
gert. Ofan á allt, sem hér að fram
an er um getið, myndi verulegur
kostnaður vera því samfara að
flytja allt okkar flug til Kefla-
víkur, þar þyrfti að byggja skýli,
verkstæði o.fl. o.fl., því ekki geri
ég ráð fyrir að algert samkrull
við herinn þætti heppilegt eða
æskilegt.
Keflavíkurflugvöllur er góður
varaflugvöllur fyrir allt okkar
flug, eins og við höfum notað
hann um árabil, en ekki meir.
Helicopter og VTOL (vertical
takeoff and landing) hugleiðing
nafna míns er ekki tímabær,
enda hefir þfóunin stöðugt færzt
í þá átt að lengja flugbrautir
fremur en að stytta þær.
Helicopter-draumórar eru -gam
all kunningi, en ég er ekki sam-
mála Jóhannesi, að þar sé að
íinna lausn okkar vanda í landi
veðra og vinda. Ef til vill koma
þeir tímar að slík tæki verða tek
in í notkun hér að einhverju
leyti, en þau leysa ekki vandann
í dag og gera það ekki á næstu
árum.
Þar sem við erum sammála í
því að Reykjavíkurflugvöllur er
ekki til frambúðar og ekki rétt
að leggja í kostnað við endurbæt
ur á honum, svo ekki sé minnzt
á öryggishlið málsins og vaxandi
truflunar, sem hann veldur borg
urum nágrfennisins, þá er ekki í
önnur hús að venda með þessi
mál en að hefjast strax handa um
byggingu flugvallar á Álftanesi.
Kostnaður við að steypa eða mal
bika flugbrautir er að vísu mik-
ill, en ég er þeirrar skoðunar að
við gætum hæglega notast við
sand eða malarbrautir á Álfta-
nesi til að byrja með, og vil ég 1
þvi sambandi minna á, að flug-
brautirnar á Akureyri og á ísa-
firði eru sandur og möl, eggslétt-
ar og harðar. Brautir Reykja-
víkurflugvallar eru mestan hluta
ársins þaktar sandi og möl, og
þar að auki ósléttar og of stuttar.
Aðalatriðið er að fá nægilega
langar flugbrautir með hindrana
lausu að- og brottflugi, ILS, að-
flugsljósum o s.frv.
Ég ætlast ekki til þess að hundr
uð milljóna módelflugvöllur
verði byggður í einni svipan á
Álftanesi. Höfuðatriðið er að _
marka einhverja stefnu í þessum
málum, vita hvað á að gera í
framtíðinni, festa landið, sem
langflestir eru sammála um að
sé það eina, sem völ er á, fara að
vinna að framtíðarskipulagningu
þessara mála og leggjast þar allir
á eitt. Það væri ógæfa að vakna
dag einn við þann vonda draum,
að þetta svæði er ekki lengur
fyrir hendi, verandi þess meðvit-
andi, að Reykjavikurflugvöllur
er ekki og verður ekki framtíðar
flugvöllur fyrir Reykjavík og ná-
grenni. Það er bjargföst skoðun
mín á þessum málum, að við eig-
um að fara að ráðum þeirra sér-
fróðu manna, sem til þessara at-
hugana hafa verið kvaddir og eru
sammála um að nýr flugvöllur á
Álftanesi sé skynsamlegasta
lausnin, ef við ætlum ekki að
stöðva eðlilega framþróun ís-
lenzkra flugmála um alla ókomna
tíma. Flugið er orðið það snar
þáttur í samgöngumálum þjóðar-
innar, að það væru hrópleg af-
glöp að búa nú svo að þeim mál-
um, að óbætanlegt yrði, þegar
fram líða stundir. Við eigum enn
þá völ á mjög ákjósanlegu svæði
fyrir framtíðarflugvöll og meg-
um ekki sleppa því. Allt annað
er að mínum dómi kák og jafn-
vel stórt skref áftur í tímann.
Jóhannes R. Snorrason.
<gntinental
- hinir heimsþekktu þýzku hjólbarðar
ÓDÝRBR — STERKIR - ENDIIMGARGÓÐIR
Continental ávallt fyrirliggjandi í öllum stærðum.
önnumst allar hjólbarðaviðgerðir með fullkomn-
um tækjum. — Sendum um allt land.
520x10 —4 ply kr. 481,00 670x15 —6 — Hvít Extra . . — 1.590,00
148x380—4 — ... — 647,00 670x15 —6 — Extra — 1.280,00
165x400—4 — ... — 1.084,00 700x15 —6 — Titan Transp. — 1.899,00
185x400—4 __ . . . • . ... — 1.456,00 710x15 —6 — Extra — 1.420,00
480x12 —4 — 673,00 710x15 —4 — Extra Hvít .. — 1.750,00
520x12 —4 — • ••••• • ... — 740,00 710x15 —6 — Extra Hvít .. — 1.768,00
520x13 —4 . . . ... — 751,00 750x15 —6 — R — 2.065,00
560x13 —4 — Hvít . . . — 1.020,00 760x15 —6 — Extra Nylon — 2.293,00
560x13 —4 — R ... — 830,00 760x15 —6 — Hvít — 2.033,00
590x13 —4 — Hvít — 1.115,00 750x15 —6 — Extra — 1.772,00
590x13 —4 — R — 913,00 820x15 —6 — Hvít Record — 2.758,00
640x1.3 —4 R ... — 1.000,00 820x15 —6 — Record .... — 2.342,00
640x13 —6 — R ... — 1.150,00 550x16 —4 — R — 1.033,00
640x13 —4 — Hvít ... — 1.160,00 500x16 —4 — R — 885,00
670x13 —4 — R ... — 1.032,00 600x16 —6 — R 96 Transp. — 1.328,00
700x13 —4 — Hvít ... — 1.216,00 600x16 —6 — Extra — 1.258,00
700x13 —4 — R ... — 1.014,00 600x16 —6 — R 100 Extra — 1.311,00
725x13 —4 — Rec. Nylon . . — 1.333,00 650x16 —6 — Extra — 1.430,00
725x13 —4 — Rec. Nylon Hvít — 1.627,00 650x16 —6 . R 96 E. Transp. — 1.622,00
520x14 —4 — Hvít .... . . . • — 954,00 650x16 —6 — Titan Transp. — 1.768,00
520x14 —4 — R .... — 850,00 700x16 —6 — Titan TransP. — 1.942,00
560x14 —4 — R . . . . — 867,00 700x16 —6 — R 100 Extra — 1.871,00
590x14 —4 — R .... — 927,00 750x16 —6 — Extra — 1.960,00
640x14 —4 — R .... — 1.056,00 450/475x17-4 — R _ 825,00
700x14 —4 — Rec. slöngulaus — 1.523,00 500/525x17-4 — R ••••••...• 900,00
700x14 —4 — Rec. Hvít .... — 1.860,00 700x17 —6 — R _ 2.170,00
750x14 —6 — Nylon ...» — 1.397,00 750x17 —6 — R 2.985,00
800x14 —6 — Nylon Record — 1.642,00 900x16 —8 — R 100 E.H.D. 5.175,00
425x15 —4 — R — 620,00 650x20 —8 — Extra Transp. — 2.426,00
500x15 —4 — R .... — 911,00 700x20—10 — R 96 E.H.D. . . 3.280,00
550x15 —4 — R — 980,00 750x20—10 — R 96 E.H.D. .. 4.188,00
560x15 —4 — Hvít .... .... — 1.093,00 750x20—12 — R 96 E.H.D. . . 4.637,00
560x15 —4 — R — 915,00 825x20—12 — R 96 E.H.D. . . 4.875,00
590x15 —4 — Hvít .... — 1.225,00 825x20—14 — Titan Nylon 6.090,00
590x15 —4 — R — 973,00 900x20—14 — Titan Nylon 6.580,00
600x15 —4 — Slöngulaus .... — 1.106,00 1000x20-14 — Titan - 8.012,00
640x15 —4 — R t.. — 1.069,00 1100x20-14 — Titan E.H.D. - 9.023,00
640x15 —6 — Extra .... — 1.228,00 1100x20-16 — Titan Super . 9.962,00
670x15 —4 — R — 1.124,00 1200x20-16 — Titan E.H.D. — 12.110,00
GLMIUÍVINNLSIOFAN Ifl.F.
Skipholti 35 — Reykjavík — Sími 18955