Morgunblaðið - 24.04.1963, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 24.04.1963, Blaðsíða 23
Miðvikudagur 24. apríl 1963 MORCVNBLAÐIÐ 23 Ólíklegt að nokkurt land eigi einlægari vin - segir biskup íslands MORGUNBLAÐIÐ sueri sér í gær til herra Sigurbjörns Einarssonar biskups út af skeyti sem blaðinu barst vegna söfnunar til Skálholts- staðar. Jafnframt skrifar norski prest urinn Harald Hope í Ytre Arna kveðju frá Noregi vegna hins hörmulega flugslyss, er varð við Ósló á páskadag. Herra biskupinum fórust orð á þessa leið: „Harald Hope prestur í Ytre Arna nálægt Bergen, er mörg- um kunnur á íslandi, en fá- um er þó fullkunnugt hvílíkur vinur þjóðar vorrar hann er. Ég fékk í gær bréf frá honum þar sem hann m.a. minnist á slys- tfarirnar hér við land og flug- slysið í Ósló. „Denne syrgelige hending gav meg ei vákenant dá eg leid med dei syrgjande i hus og heim i Island“, skrifar hann. Fátt fer fram hjó hpnum, sem gerist hér, eða varðar ísland. Víðavangs- * hlaup IR. á morgun VÍÐAVANGSHLAUP ÍR, hið 48. í röðinni, fer fram á morg- un (fyrsta sumardag) og hefst kl. 14 við Hljómskálann. — Væntanlegir þátttakendur eru bcðnir að mæta við Hljómskál ann kl. 8 í kvöld til að kynna sér hlaupleiðina. Izhak Ben-Zvi. Forseti Israels látinn Jerúsalem, 23. aprl, — (NTB—AP); — Forseti ísraels, Izhak Ben j Zvi, lézt í morgun, 78 ára aí aldri. Banamein hans mui hafa verið lungnakrabbi. Ben-Zvi hafði verið forset lands síns frá því árið 1952 — , hann var endurkjörinn tvívei iis, til fimm ára í senn, síðast Ioktóber mánuði sl. Útför for setarns fer fram á morgun, o* vegna fráfalls hans hefur ves mið aflýst fullveldishátíðahölc ‘ unum 28.—29. apríl n.k. Kadizh Luz, forseti israelsik; þingsins, mun annast störf foi seta, þar til annar hefur verií kosinn, — sem væntanleg; verður að fjórum vikum liðn um. •Mér þykir ólíklegt að nokfcurt land eigi einlægari og ástheitari erlendan vin en vér Islendingar eigum þar sem hann er. I mörgu hefir hann sýnt þetta, smáu og stóru. Skálholtsskólinn nýi er það mál, sem hann ber mest fyrir brjósti nú. Hann hefir geng izt fyrir og að öllu leyti annast fjársöfnun þá í Noregi til þeirr- ar stofnunar sem um getur í frétt í Mbl. í da,g. Auk þess hefir hann verið í sambandi við vini málsins á hinum Norðurlöndun- um og í vetur tókst hann ferð á hendur til Danmerkur og Sví- þjóðar til þess að vinna því gagn og gengi. Viðkvæði hans er: „Frændþjóðirnar norrænu standa í svo mikilli þakkarskuld við íslendinga sakir þess hvern- ig þeir hafa verndað og ávaxtað menningarverðmætin á liðnum öldum, að þeim er skylt að við- urkenna það í verki, og þá ligg- ur það næsta að hlynna að þeim stað, sem lengstum var höfuð- ból mennta og menningar á ís- landi, Skálholti. Harald Hope mun að forfalla- Iausu koma hingað og verða við vígslu Skálholtskirkju í sumar. Hefir hann lengi dreymt um það að hornsteinn Skálholtsskóla verði þá jafnframt lagður. Hann er sérstæður maður, gáfumaður mikill og sterkur persónuleiki, og mjög svo ein- stæður drengur gagnvart ís- lendingum, viðkvæmur þátttak- endi í sorgum þeirra sem gleði. — Sex mílna Framhald af bls. 1. að hann geti orðið Bretum erf- iður viðureignar, því að í honum felist engin ákvæði, er geri ráð fyrir, að annarhvor samnings- aðilinn falli frá viðurkenningu á þriggja mílna fiskveiðitak- mörkum. Frönsku stjórninni mun þegar hafa verið tilkynnt hvað í vændum er, en ekki er vitað um afstöðu hennar. Annað samkomulag er Norðursjávar- samþykktin frá 1882, sem öll ríki, er lönd eiga að Norðursjó, eru aðilar að — utan Noregur. Þar er einnig gagnkvæm viður- kenning á þriggja mílna fisk- veiðilandhelgi, — en þó ákvæði, sem gerir hverju aðildarríki fyrir sig kleift að hverfa frá samkomulaginu með eins árs fyrirvara. — ★ — Sem fyrr segir, er talið, að samningaviðræðurnar milli stjórna Bretlands og Danmerk- ur tefji fyrir því, að brezka stjórnin opinberi fyrirætlun sina. Bretar hafa harmað afstöðu dönsku stjórnarinnar í málinu og áskilið sér rétt til þess að gera það, sem þeir telja na-uðsynlegt til varnar brezkiun fiskveiðum, þegar útfærslan við Færeyjar kemur til framkvæmda á næsta ári. Fishing News hefur eftir talsmanni sambands brezkra flutningaverkamanna P e t e r Henderson, að dönsku stjórninni muni reynast ókleift að fram- kvæma einhliða ákvörðun sína um útfærslu fiskveiði takmark- anna við Færeyjar. Þegar ákvörð unin komi til framkvæmda á næsta ári, verði Dönum um megn að halda uppi nægilega áhrifamikilli landhelgisgæzlu við Færeyjar. Þá segir Fishing News enn- fremur, að jafnvel þótt útfærsl- an við Færeyjar muni koma harðast niður á togurunum frá Aberdeen, sé ekki ástæða til þess að ætla, að útgerðinni þar verði greitt banahöggið. Að und- anförnu hafi staðið yfir ítarlegar tilraunir, sem miði að því að breyta veiðiháttum togaranna. Hefur verið athugað, hvernig breyta megi hæfni togaranna, sem ætlaðir hafa verið til veiða við Færeyjar, þannig að þeir geti veitt á meira dýpi. i \ \ i Heldur Hussein velli? Amman, Jórdaníu 23. apríl. — NTB/AP — Hussein, konungur Jórdan- íu, lét svo ummælt í dag, að þeir aöilar, sem hefðu stuðl- að að óeirðunum í landinu siðustu daga, hefðu þar með komið í veg fyrir hugsanlega samvinnu eða tengsl Jórdan- ín og bræðraþjóðanna innan hins nýja Arabiska sambands lýðveldis. Hussein átti fund með fréttamönnum í Amman, en nokkrum klukkustundum áð- ur höfðu stúdentar efnt til hópfunda á þrem stöðum í borginni, en lögregla dreift hópnum. Konungur sagði, að óeirð- irnar síðustu daga hefðu orð- ið af völdum þeirra afla í landinu, sem vildu notfæra sér einlægan fögnuð fólksins yfir einingu hinna arabisku bræðraþjóða, Sýrlands, íraks og Egyptalands, ríki og þjóð Jórdaníu til skaða. „Við fögn- um því öll, að bræður okkar ætla að vinna saman og skapa einingu á heilbrigðum og sönnum grundvelli", sagði Hussein. * Konungur sagði ennfremur, að hefði hann talið sjálfan sig standa í vegi fyrir fram- förum í Jórdaníu og vel- gengni og þróun þjóðarinnar, hefði hann farið úr landi. „En ég tel ekki að svo sé, og mun því hætta lífi mínu og berjast með þjóð minni, telji ég, að hún þarfnist mín“, sagði hann. Loft hefur verið lævi blandað í Arhman í dag, að sögn fréttaritara. Allmargir menn voru handteknir, þar á meðal nokkrir fyrrverandi þingmanna. Hussein konungur staðfesti á blaðamannafund- inum, að nokkrir menn hefðu fallið í óeirðunum síðustu daga en gaf ekki upp tölur. Fyrr í dag voru þau boð látin út ganga eftir stjórnar- fund í Amman, að ísraels- stjórn hefði verið vöruð við því að blanda sér í innanrík- ismál Jórdaníu. Kveðst nýja stjórnin hafa rætt hvernig bregðast skuli við því, ef ísra elsmenn reyni að færa sér nú- verandi ástand innan Araba- ríkjanna í nyt til árása á þau, eitt eða fleiri. í AP-frétt frá Moskvu seg- ir eftir Tass-fréttastofunni, að engin dagblöð hafi komið út í Jórdaníu í dag, komið hafi verið á strangri rifekoðun, handtökur verið víðtækar og Hussein konungur urmul skriðdreka geti að líta á götum í borgunum Amman og J erúsalem. —oOo—- Svo sem fyrr hefur verið sagt, var ný stjórn mynduð í Jórdan á sunnudag og þing landsins leyst upp. Þá höfðu blóðugar óeirðir staðið yfir í tvo daga með þeim afleiðing um, að hervörður var settur við alla helztu staði og út- göngubann sett í borgunum. Óeirðirnar höfðu hafizt í borgunum Hebron, Nablus og Jenin, sem eru vestan megin árinnar Jórdan. Þar býr mik- ill fjöldi arabiskra flótta- manna frá Palestínu, sem aldrei hefur svarið konungi Jórdaníu hollustu, eins og Bediúínarnir að austanverðu. Herlið var fljótlega kvatt á vettvang í Jenin, þar sem ó- eirðirnar urðu alvarlegastar. Hafði fólkið yfir að ráða vél- byssum og skaut á lögregl- una, er hún reyndi að stilla til friðar. Næsti vettvangur varð Jerúsalem, og einnig þar höfðu menn uppi skotvopn, þar sem þeir gengu um gömlu borgina með myndir af Nass- er og spjöld með fjórum stjörnum, en þrjár þeirra áttu að tákna aðildarríki Arabiska samibandslýðveldisins og sú fjórða Jórdaníu. í Jerúsalem var fjöldi ferðamanna, sem komið hafði í tilefni páska- i hátíðarinnar. Segja sjónar- vottar úr þeirra hópi, að mannfjöldinn hafi stefnt til Nablus hliðsins í gamla borg- arhlutanum og ætlað að ryðj- ast í gegn, syngjandi lof sitt um Nasser. Þá hafi jórdanska lögreglan hleypt fyrst af skot um til að dreifa mannfjöld- anum, en það tókst ekki fyrr en beitt var jafnframt há- þrýsti-vatnsslöngum. 1 Amman voru það stúdent- ar, sem söfnuðust fyrst saman 1 til þess að fagna myndun Ara- biska sambandslýðveldisins og hylla Nasser. Þeim var dreift átakalaust og það var ekki fyrr en fólk / tók að safnast saman að nýju, * eftir að útgöngúbann hafði i verið sett, sem til átaka kom / við lögreglu ög herlið. Þá var ) dreift flugritum þar sem hvatt I var til uppreisnar gegn Huss- ( ein konungi og aðildar að Ara c biska sambandslýðveldinu. — / Allir vegir til og frá Amman J og Jerúsalem eru nú undir I strangri hergæzlu. i Fréttamenn fylgjast með við ( burðum í Jórdaníu af mikilli / eftirvæntingu. AUt frá því 1 viðræðumar hófust í Kairo ttn stöfnun Arabíska sam- bandslýðveldisins efflr bylt- ingairnar í írak og Sýrlandi hafa menn vænzt þess að til tíðinda drægi í Jórdaníu —• en þeir benda á, að Husseiri, konungur hefur oft áður komizt í hann krappr an, en jafnan tekizt að halda velli — til þessa. Sumardagsfagn- aður í Kópavogi SUMRI verður fagnað með há- tíðahöldum í Kópavogi fyrsta sumardag og hefjast með því, að skrúðgöngur bama leggja af stað frá báðum bamaskólunum kl. 12.30 undir stjóm skáta, en Lúðrasveit Kópavogs og Lúðra- sveit verkalýðsins leika fyrir göngunum, sem mætast við Fé- lagsheimilið, þar sem útiskemmt un hefst kl. 1. Verða þar ýmis skemmtiatriði. Hólmfríður Gunnarsdóttir, blaða maður, flytur ávarp, Þorsteinn Hannesson syngur og fleira verð ur til skemmtunar. Þá fer og fram drengjahlaup og víðavangs hlaup á vegum UMF Breiðabliks. Inniskemmtanir fyrir böm og fullorðna hefjast kl. 2,30 í Kópa- vogsbíói og verða þrjár skemmt anir. Merki dagsins verða seld í bænum. Sæmdir Fálka- orðunni FORSETI íslands hetfir í dag sæmt dr. Jóhannes Nordal, banka stjóra, riddarakrossi fálkaorðunn ar fyrir embættisstörf. (Frá orðuritara). Á MORGUN, sumardaginn fyrsta, verður verzlunum Iok- að, eins og á sunnudögum, allan daginn. — Eysteinn Framhald af bls. 1 fjármagn, séu þjóðhættulegir. Nú vill þannig til, að einn af flokksmönnum hans, Steingrím- ur Hermannsson, formaður Fé- lags ungira Framsóknarmanna, hefur einna bezt og rækilegast gert grein fyrir hagnýtingu er- lends fj'ármagns og túlkað þar heilbrigða og þjóðholla stefnu. Orð Eysteins Jónssonar í þessu efni hitta því ongan fremur fyr- ir en Steingrim, og er það hin- um síðarnefnda til hiróss. Þegar Efnahagsbandalags- miálið fyrst virtist ætla að verða aðkallandi hér á lamdi, lýstu ým- is sambök atvinnuveganna og fyrirtækja því yfir, að þau teldu rétt, að Íslendingar sæktu um aðild að Efnahagsbandalagi Evr- ópu, þvd að þá var talið nauð- synlegt að s*nda slíka umsókn til þess að kannað yrði með hvaða skilyrðum íslendingar gætu tengzt bandalaginu. Meðal þeirra, sem óskuðu þess, að íslendingar sæktu um aðild, var Samiband íslenzkra samvinnufélaga. Forstjóri þess er Erlendur Einarsson, flokksibróð- ir Eysteins. Auðvitað vildi hvorki hann né aðrir þeir, sem þess- ari stefnu fylgdu, flana að neinu. Þeir töldu sér skylt að reyna að gæta hags Íslendinga, og héldu á þeim tíma, að það væri ekki öðruvísi hægt en að leggja inn umsókn að forminu til. Árásir Eysteins Jónssonar 'hitta því meðal annars Erlend Einarsson, og má segja, að það sé honuim einnig til hróss, þv£ að sannleikurinn er sá að klíka sú, sem nú ræður lögum og lofum í Framsóknarflokknum, virðist vera haldin algerum kom- plexum og minnimáttarkennd í hvert skipti, sem rætt er um sam skipti íslendinga við aðrar þjóð- ir . Meðal orða þeirra í ræðu Ey- steins Jónssonar, sem lýsa ótta hans við sundrungina í Fram- sóknarflokknuan er þetta: „Lýðræði byggist á því, að menn kunni full skil á því að greiða (svo) einstök mál, þótt þýðingarmikil séu frá megin- stefnuim. Að memn skipi sér saman I stjórnmálaflokka um meginstefn ur og grundvallarhugsjónir. Geri flokkana stóra og sterka, en láti ekki ágreining um einstök mál eða um aðferðir sundra þýðingar miklum samtökum unz ekki ræðst við neitt og glundroði verður faöfuðeinkenni ástands- ins. Þá er skammt að endalokum lýðræðisins. Þá verður einræðið ofan á. Eða stjórnmálasamitök þeirra, sem peningavaldið bindur saman. Menn verða því að geta verið saman í flokki, þótt þá greini á um einstök mál og aðferðir af og til. Þetta verða menn að skilja til falítar. Verður þá allt að byggj ast jöfnum höndum innan flokk- anna, á málamiðlunum um ein- stök málefni og ákvörðunum lýðræðislegs meiri hluta innan flokkanna, þegar þarf að skera úr.“ (Orðfeeri, greinarmeilki og gireinarskil eru Tímans).

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.