Morgunblaðið - 27.04.1963, Blaðsíða 1
I 40 síður (I og II)
LANDSFUNDUR SJÁLFSTÆÐISFLOKKSINS
Frá setningn Lanðsfundarins.
Ljósm. Mbl.: Ól.K.M.
Þúsund
mannsvið
setningu
fundarins
FIMMTÁNDI Landsfundur
Sjálfstæðisflokksins var sett-
ur í Háskólabíói í fyrrakvöld.
Við fundarsetningu voru svo
margir, sem húsið rúmaði, eða
tæplega 1000 manns, þing-
fulltrúar og gestir. Fulltrúar
á Landsfundi eru um 700
samkvæmt skipulagsreglum.
Voru flestir þeirra þá þegar
mættir til fundar. Nokkrir
komu ekki fyrr en í gær.
Meðan fundarmenn gengu til
Bæta sinna í Háskólabíói lék
iLúðrasveit Reykjavíkur nokkur
Hög. Síðan setti formaður flokks-
Ins Bjarni Benediktsson dóms-
málaráðherra fundinn og nefndi
til fundarstjóra Gunnar Thor-
oddsen fjármálaráðherra, vara
formann flokksins. Fundarstjóri
íiefndi þá Einar Halldórsson,
bónda á Setbergi og Axel Tul-
inius sýslumann á Eskifirði til
fundarritara.
Þessu næst tók formaður
flokksins, Bjarni Benediktsson
til máls og að lokinni ræðu
hans Ólafur Thors forsætisráð-
herra. í fundarlok sungu fundar
snenn „ísland ögrum skorið“
Þessi setningarfundur var i
•lla staði hinn glæsilegasti og
Framhald á bls. 2
Fastmótuð stefna til vift'
velfarnaðar
reisnar og
Ræða Bjarna Benediktssonar,
formanns Sjálfstæðisflokksins
við setningu Landsfundarins
Aðaiverkefni síðasta lands-
fundar var að setja flokknum
nýjar skipulagsreglur, Síðan hef
ur mikið starf verið unnið til að
koma þessum reglum í fram-
kvæmd. Fjöldi nýrra flokksfé-
laga hefur verið stofnaður víðs
vegar um land og fulltrúa. og
kjördæmaráð kosin. Enginn efi
er á, að skipulag flokksins er nú
öruggara og nær til fleiri fylgis-
manna hans en nokkru sinni
fyrr. Framkvæmdastjóri flokks-
ins, Þorvaldur Garðar Kristjáns-
son, hefur unnið ósleitilega að
því að treysta á þennan veg
ramman um starf okkar. Vil ég
hér með þaklca honum dugnað
hans og árvekni. Að sjálfsögðu
hafa margir fleiri lagt hér hönd
að verki, enda er allt undir þvi
komið, að flokksmenn láti ekki
skipulagsreglurnar verða dauð-
an bókstaf, heldur hvatningu til
lifandi starfs og sívaxandi á-
huga.
Þá ræddi Bjami nokkuð fram-
kvæmd skipulagsreglnanna og
mælti siðan:
Frábær forusta
Ólafs Thors.
Nú er sjálf eldraunin eftir.
öll vonum við, að hið nýja skipu
lag reynist flokknum sá styrkur
í kosningunum, sem því er fyrir-
hugaður. Gott flokksskipulag er
mikilsvert en það eitt stoðar
ekki, ef málefni standa miður
en skyldi.
Ólafur Thors forsætisráðherra
mun nú á eftir gera grein fyrir
störfum ríkisstjórnarinnar. Skal
ég því ekki rekja þau en að
sjálfsögðu verður dómur manna
um flokkinn nú mjög háður því,
hvernig þeir telja, að ríkisstjórn-
inni hafi til tekizt. Þessi ríkis-
stjörn er að vísu samsteypustjórn
svo sem hér á landi hefur lengst
af tíðkast og flokkaskipan þjóð-
arinnar hefur leitt til. Sam-
starfsflokkarnir nú eru auðvitað
ekki sammála um allt. Sjálfstæð-
isflokkurinn er fyrst og fremst
málsvari einkaframtaks en AI-
þýðuflokkurinn ríkisforsjár. En
báðir hafa lært af reynslunni.
Framhald á bls. 13.
BJARNI
SETUR
BENEDIKTSSON
LANDSFUNDINN