Morgunblaðið - 27.04.1963, Side 6

Morgunblaðið - 27.04.1963, Side 6
6 MORCVNBLA9IB 1 fcaugardagur 27. aprfl 1963 Frelsislnigsjónin fylkti íslendingum saman um Sjálfstæðisflokkimi Samstarf stéttanna gerði hann að hinu sameinandi afli i íslenzkum stjórnmálum Úr framsöguræðu Sigurðar Bjamasonar frd Vigur fyrir stjórnmdlayfirlýsingu LANDSFUNDUR Sjálfstæðis- flokksins hélt áfram kl. 19 í gær- morgun. Fundarstjóri á þessum fundi var kjörinn Baldur Eiríks- son, forseti bæjarstjórnar Siglu- fjarðar, en fundarritarar þeir Friðjón Sigurðsson á Hólmavík og Gunnar Sigurðsson í Selja- tungu. Síðan hafði Sigurður Bjarna- son, ritstjóri, framsögu um stjórnmálayfirlýsingu flokksins, sem vísað var til stjórnmála- nefndar, er einnig var kosin á þessum fundi. Sigurður Bjarnason sagði í upphafi ræðu sinnar, að þegar einstaklingur í lýðræðisþjóðfé- lagi gengi að kjörborði eða skip- aði sér í stjórnmálaflokk hlyti hann fyrst og fremst að spyrja um, hver væru úrræði hinna ýmsu pólitísku flokka gagnvart vandamálum þjóðfélags hans og jafnframt um hitt, hvernig reynslan væri af starfi þeirra og þjóðmálabaráttu. Hann minntist síðan á, að þégar Sjálfstæðisflokkurinn var stofnaður árið 1929 hefði kjarni stefnu hans verið tvíþættur: Að vinna að því og undirbúa að ísland tæki að fullu öll mál i sínar eigin hendur og gæði landsins til afnota fyrir lands- menn eina. í öðru lagi að vinna í innan- landsmálum að víðsýnni og þjóð- legri umbótastefnu á grundvelli einstaklingsfrelsis og athafna- frelsis með hagsmuni allra stétta fyrir augum. í þessari stuttorðu en skýru yfirlýsingu fælist kjarni þeirrar stefnu, sem Sjálfstæðisflokkur- inn hefði lagt til grundvallar bar áttu sinni frá upphafi. En póli- tísk afstaða flokksins til ein- stakra mála og atburða á sviði þjóðmálanna hefði jafnframt verið mörkuð með stjórnmála- yfirlýsingum landsfunda flokks- ins, sem fara með úrslitavald í málum hans. Líítaug og aflvaki Ræðumaður kvað það enga tilviljun, að báðir liðir hinnar fyrstu stefnuskrár Sjálfstæðis- flokksins mörkuðu fyrst og fremst afstöðu hans til frelsis- ins. Þjóðfrelsi og einstaklings- frelsi var hið háleita markmið, sem flokkurinn var stofnaður til þess að vinna að. Þetta tvíþætta frelsi var sá hyrningarsteinn, sem Sjálfstæðisstefnan skyldi byggð á um allan aldur, sagði Sigurður Bjarnason. Frelsishug- sjónin í brjósti íslenzku þjóðar- innar var sú líftaug og aflvaki, sem skapaði hinn nýja Sjálf- stæðisflokk fyrir tæpum 34 ár- um og laðaði fólk úr öllum stétt- um og starfshópum til samstarfs og bjartsýnnar baráttu á fram- tíð lands og þjóðar innan vé- banda hans. Um síðara atriðið I hinni fyrstu stefnuskráryfirlýsingu Sjálfstæðisflokksins komst Jón Þorláksson, fyrsti formaður flokksins, m.a. að orði á þessa leið í blaðagrein, er hann ritaði skömmu eftir stofnun flokksins: „í innanlandsmálum bendir sjálfstæðisnafnið alveg á þunga- miðju þess ágreinings, sem skil- ur milli flokksins og sósíalist- anna. Flokkurinn vill vinna að víðsýnni og þjóðlegri umbóta- stefnu á grundvelli einstaklings- frelsis og atvinnufrelsis, með hagsmuni allra stétta fyrir aug- um. En í þessu felst einmitt að flokkurinn vill virða og efla sjálfstæði einstaklinganna innan þjóðfélagsins, bæði manna, stofn ana og félaga. Á framtaki ein- staklinganna og frelsi þeirra til þess að beita kröftum sínum innan leyfilegra takmarka, sér og sínum til hagsbóta, byggir þessi stefna fyrst og fremst von- ðivurður Bjarnason irnar um áframhaldandi um- bætur á lífskjörum þjóðarinnar". Þroskavænlegt þjóðfélag 1 samræmi við þetta hefur barátta Sjálfstæðisflokksins á liðnum tíma, sagði Sigurður Bjarnason, beinzt að því að efla sjálfstæði einstaklinganna í hinu íslenzka þjóðfélagi. Það hefur verið grundvallarskoðun flokks- ins, að til þess að byggja hér upp þróttmikið og farsælt nú- tíma þjóðfélag, yrði framtak einstaklingsins og félagasamtaka hans að njóta sín sem bezt. Að- eins sterkir einstakiingar gætu skapað sterkt og þroskavænlegt þjóðfélag. En Sjálfstæðisflokkurinn hef- ur jafnan gert sér það ljóst, hélt 'ræðumaður áfram, að margvís- legra ráðstafanna er þörf til þess að tryggja aðstöðu þeirra, sem minnimáttar eru eða hafa orðið fyrir ýmiss konar áföllum í lífsbaráttunni. Þess vegna hef- ur hann haft forystu um eða átt þátt í setningu víðtækrar löggjaf ar um almannatryggingar og lýð hjálp. Flokkur allrar þjóSarinnar Sigurður Bjarnason benti því næst á það, að eitt af því, sem skapað hefur Sjálfstæðisflokkn- um algjöra sérstöðu meðal ís- lenzkra stjórnmálaflokka er það, að hann hefur allt frá upp- hafi verið flokkur allrar þjóðar- innar og miðað starf sitt og bar- áttu við hagsmuni allra stétta. Af þessu hefur það leitt, að hann hefur átt fylgi í öllum byggðarlögum landsins. Samstarf stéttanna innan Sjálf stæðisflokksins hefur gert hann að því sameinandi afli sem hann er í stjórnmálum og þjóðlífi ís- lendinga. Sú staðreynd er nú flestum hugsandi mönnum ljós, að án atbeina Sjálfstæðisflokks- ins er ekki hægt að stjórna þessu landi í samræmi við alþjóðar • fslenzka og blaðamenn Þetta bréf barst Velvakanda fyrir nokkru: „Blaðamönnum, sem skrifa 1 dagblöðin, er stundum legið á hálsi fyrir að vanda ekki mál- far sitt, og vafalaust má þar að mörgu finna, ef vel er að gáð og strangar kröfur gerðar. Þó ber að gæta, að málið er ekki rígbundið í fastar skorður, heldur er það lifandi heild, háð sínum þróunarlögmálum og breytingum. Sumir virðast halda, að málið sé dauður forngripur, og gera að sáluhjáiparatriði, að nemendur læri alls kyns reglur, sem ekki geti skapað annað en óbeit og hatur á íslenzku máli og bók- menntum. Væri í sjálfu sér lítið um það að segja, ef bókmennt- irnar væru jafn lágkúrulegar og þeir kennarar halda, sem nota Völuspá og Sólarljóð til að kenna setningarfræði, en sem betur fer eru þeir kennarar í miklum minnihluta. Málið er tæki til að láta í ljós hugsun sína og tilfinningar, en ekki þululærdómur og kenni- setningar. Það er háð breyttum atvinnuháttum og tíðaranda, ný orð koma upp og ný orðasam- bönd myndast. Það er óhjá- kvæmilegt, meðan mælt er á lifandi tungu. Ég held, að blaða- mönnum sé þessi þróun vel Ijós, og þeir reyni að halda sér opn- um fyrir nýjum áhrifum, jafn- framt sem þeir reyna að sporna við, að sú þróun verði of ör. Um afstöðu í því máli má enda- laust deila, en því geri ég þetta að umtalsefni, að í einu dagblað anna réðst blaðamaður að öðr- um blaðamanni við annað blað og bar honum á brýn, að hann kynni ekki íslenzku. í fyrsta lagi veit ég ekki, hvort sá mað- ur á úr svo háum söðli að detta, í öðru lagi ættu blaðamenn að eiga það mikla samstöðu að gera ekki slík feimnismál að blaðamat. (Hefði ekki verið við kunnanlegra fyrir viðkomandi blaðamann að hringja heldur 1 kollega sinn og tala um þetta einslega við hann — eða að- standendur hans?) í þriðja lagi ættu blaðamenn að forðast eftir megni að gera geðvonzku sína að uppistöðu í skrifum sínum. Það kann aldrei góðri lukku að stýra. — Lesandi". • Því eru allir á móti setingarfræði? Velvakandi birtir þetta bréf og nennir ekki að gera við það ýtarlegar athugasemdir, þó að hér sé drepið á margt, sem ræða þyrfti á almannavettvangi. Rétt er það það, að þróun málsins heldur sjálfkrafa áfram án nokkurrar hjálpar, og tjóar ekki ,þótt meira eða minna sjálf skipaðir sérfræðingar hyggist breyta straumrásinni eða stöðva. Hitt langar Velvakanda til þess að leiðrétta, eða a.m.k. koma sínu sjónarmiði fram, það, r>> A /lÍSL*'*- Irl hagsmuni. Það kom greinilegast í ljós, þegar hin svokallaða vinstri stjórn fór með völd. Hún taldi það eitt höfuðmarkmið sitt að einangra Sjálfstæðisflokkinn og gera hann áhrifalausan með öllu. Niðurstaðan varð sú, að það var vinstri stjórnin, sem einangraðist frá þjóðinni og hrökklaðist frá völdum á miðju kjörtímabili, en Sjálfstæðis- flokkurinn var á ný kvaddur til stjórnarforystu við vaxandi traust og fylgi meðal þjóðarinn- ar. — Sú staðreynd, að Sjálfstæðis- flokkurinn er ekki stéttaflokkur heldur stjórnmálaflokkur al- þjóðar leggur honum að sjálf- sögðu þær skyldur á herðar að miða baráttu sína og starf við þarfir og hagsmuni þjóðarinnar allrar. Þetta hefur flokkurinn einnig gert. Hann hefur beitt sér fyrir fjölþættum umbótum á öllum sviðum þjóðlífsins í strjál- býli sem þéttbýli, f sveit og borg. Og forystumenn flokksins gera sér það ljóst, að því aðeins getur hann haldið áfram að ver* flokkur þjóðarinnar allr- ar, að hann sjái út yfir allt ís- land og beiti afli sínu m.a. til þess að styðja starf og baráttu fólksins í strjálbýlinu, sem vinn- ur þýðingarmikil framleiðslu- störf til sjávar og sveita. Sigurður Bjarnason benti þvl næst á, að á því tímabili sem liðið er síðan Sjálfstæðisflokk- urinn var stofnaður hafi stór- felldar breytingar orðið á póli- tískum hugmyndum og stefnu- skrám margra stjórnmálaflokka. Jafnaðarmenn í flestum lýð- ræðislöndum hefðu til dæmis horfið frá ýmsum veigamestu kenningum sósíalismans. Þannig væri til dæmis kenningin um þjóðnýtingu atvinnutækjanna á hröðu undanhaldi, og jafnvel kommúnistar hefðu neyðzt til að viðurkenna fánýti sumra þeirra kennisetninga sem lærifeður þeirra lögðu hvað mesta áherzlu Framhald á bls. 15. sem bréfritari segir um setning- afræðikennslu. Vera má, að til séu þeir nemendur, sem fá ævi- langan viðbjóð á Völuspá og Sólarljóðum, af því að þeir þurfa að greina þau í setningar- hluta í skóla, en ekki er Vel- vakandi í þeirra hópi. Þvert á móti fannst honum hann öðlast meiri og dýpri skilning á ís- lenzku, en hann hefði ella feng- ið, við það að þurfa að glima við þessi Ijóð út frá setningar- fræði. Víst veit Velvakandi vel, að þessi skoðun er ekki algeng, en skoðun hans er það engu að síður. Séu þeir nemendur til, að þeir láti setningarfræði fæla sig frá því að njóta jafn yndislegra kvæða, þá held ég, að þeir hefðu aldrei ratað á að le<sa þessi kvæði hvort eð væri. Það er orðin hálfgerð tízka að skammast út i þá kennara, sem upplýsa nemendur um setning- arfræði. Staðreyndin er þó sú, að ekkert mál getur lifað án þess, að ákveðnum reglum sé hlítt. Þótt einhverjum finnist slíkt nám leiðingjarnt, þá er þarflítið að hlusta á þras þeirra, því að þótt algebra sé leiðinleg, er ekki hægt að smíða flugvél- ar, skip og annað, sem heldur menningu okkar uppi, án henn- ar, og svipað má segja um lög- mál tungu okkar. AEG RAFMÓTORAR Sími Bræðumir 11467 Ormsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.