Morgunblaðið - 27.04.1963, Síða 13

Morgunblaðið - 27.04.1963, Síða 13
L Laugardagur 27. apríl 1963 MORCVISBLAÐIÐ 13 —Fastmótuð stefna Framhald af bls. 1. Sjálfstæðismenn skilja, að án margháttaðra ríkisafskipta og samhjálpar kann einstaklings- framtak að leiða til öngþveit- is. Alþýðuflokkurinn viðurkenn- ir, að án afreka einkaframtaks- ins verður ríkið máttvana og ó- fært til aðstoðar og forsjár. En nú sem fyrr, mundi auð- velt að finna deiluefni og magna þau, ef vilji væri fyrir hendL Sam vinna við aðra er háð því, að unnið sé í réttum anda. í þessari ríkisstjórn hefur verið keppt að því að forðast deilur og finna farsæla, sameiginlega lausn þeirra vandamála, sem að hafa steðjað. Að þessu hefur forysta okkar gamalreynda foringja Ólafs Thors mjög stuðlað. Raunar má segja, að í ýmsum fyrri ríkis- stjórnum hafi meira reynt á Ihans einstöku samningalipurð og miklu mannþekkingu. En því Ibetur hafa frábærir stjórnair- hæfileikar Ólafs notið sín nú og hann getað lagt sig allan fram um lausn hinna mörgu mál efna, ekki allra auðleystra, sem fram úr hefur þurft að ráða. I* Önnur vinnubrögð. Vissulega var lítið fagnaðar- efni að taka við þjóðarbúinu eins og á stóð við myndun við- reisnarstjórnarinnar. Vinstri stjórnin flúði sízt að ástæðu- lausu af hólmi. Vandamálin, sem mjög höfðu magnast fyrir henn- ar eigin sundrung og úrræða- leysi, voru geigvænleg. Bráða- birgðastjórn Alþýðuflokksins hafði tekizt að afstýra hruni, en viðreisnin var eftir og óreynt var hvort kraftar og samheldni ent- ust til hennar. Á fyrstu mánuð- unum mátti sökum gjaldeyris- ekorts litlu muna, að unnt væri að afla helztu nauðsynja til landsins. Lækkað verðlag sumr- ar útflutningsvöru og léleg afla- brögð í helztu verstöðvum voru sízt til uppörvunar. Allt hefur þetta farið betur en á horfðist og andstæðingarnir spáðu. Gamall þjóðþekktur at- hafnamaður, sem vel man og náið hefur fylgzt með öllum helztu atburðum, er hér á landi hafa gerzt frá því, að stjórnin var flutt inn í landið, sagði ný- lega, að núverandi stjórn væri hin bezta, sem hér hefði setið. Þetta er mikið lof úr munni manns, sem mælir af yfirsýn mikils aldurs og aldrei segir annað en það, sem honum býr f brjósti. Sagan ein fær úr því skorið, hvort þetta er sannmæli eða ekkL Hitt segi ég hiklaust af eigin raun, eftir að hafa starf- að í 5 ríkisstjórnum og náið kynnst störfum margra annarra, að það hefur verið árangursrík- ara að starfa í þessari en nokk- urri annarri, ekki vegna þess að viðfangsefnin væru auðveldari en áður, heldur af hinu, að vinnu brögðin eru öll önnur. Stjómin hefur sjálf verið samhent og stuðst við samhentan meirihluta á Alþingi, hvert málefni hefur verið metið eftir eðli sjálfs sín og reynt hefur verið að leysa vandamálin án þess að nota þau samstarfsaðilanum til óþurftar, en undanbragðalaust unnið að því að ná umsömdum markmið- um. Sundurlyndisfj andinn hrakinn úr Stjórnar- ráðinu. Jafnvel stjórnarandstæðingar býsnast yfir öllum þeim fjölda umbótamála, sem flutt hafa ver- ið af ríkisstjórninni. Ein af skýr- ingunum á því, að undirbúningi þeirra hefur verið hægt að koma í verk, er sú, að stjórninni hefur ®ð undanförnu gefizt tími til að sinna eiginlegum stjórnarstörf- um. Áður fyrr þurftu ríkisstjóm- ir um langt árabil stöðugt að ■itja yfir þjóðarbúinu til að forða því frá gjaldiþroti og var þó •tundum öllu likara að verið væri •ð ráðstafa reitum gjaldþrota ó- reiðumanns. Tími ráðhefranna tór i að ákveða uppbætur handa þessum eða hinum og finna ráð, til að skrapa saman peninga til að geta greitt það, sem óhjá- kvæmilegt var talið til að halda helztu atvinnuvegum þjóðarinn- ar gangandL Svo að ekki sé minnzt á áramótin, þegar vikur eða mánuðir fóru í að hlusta á kröfur hvaðanæva, kaupslaga innbyrðis um á hvað væri hægt að fallast, þvarga við kröfugerð- armenn og leita loks á náðir bankastjóra um hjálp til að halda öllu á floti enn um skeið. Með heilbrigðri efnahagsmála- stefnu hefur tekizt að eyða öll- um þessum ófögnuði, svo að nú er unnt að gefa sig að lausn margháttaðra framfaramála. Auðvitað viðurkennum við, að forsjónin hefur verið okkur hlið holl. Hækkandi verðlag og góður afli hin síðari misseri hafa gert okkur stjórnina auðveldari en ella. En hvorugt þetta dugði 1958. Þá var það sundurlyndisfjand- inn, sem nær hafði togað þjóðar- skútuna niður í sextugt djúp. Enginn skyldi ætla, að þessi fjandi væri enn að velli lagður, þó að hann eigi ekki lengur sitt höfuðból í sjálfu Stjórnarráðinu. Nú reynir á, hvort menn vilja láta hann á ný hefja innreið sína þangað. Viðreisnarstjórnin er fyrsta samsteypustjórnin, sem setið hefur heilt kjörtímabil án þess að til meiriháttar klofn- ings stunðingsflokka hennar komi. Ég efast ekki um, að Lands fundurinn æski þess, að stjórnar- samstarfinu verði haldið áfram á sama veg og þvílíkri ósk hefur þegar verið lýst af hálfu Alþýðu- flokksins. Þá er það undir á- kvörðun kjósenda komið, hvort hér helzt skaplegt stjórnarfar eða sundrung og glundroði eiga að ráða ríkjum. Framsókn sækist eftir stöðvunarvaldi. Vegna deildaskipunar Alþing- is mega stjórnarflokkarnir ekki fá færri en 32 þingmenn kosna til þess að hafa fullt vald yfir meðferð mála á þingi og geta komið fram nauðsynlegri lög- gjöf. Á sama veg þurfa stjórnar- ur með réttu magnað vantrúna andstæðingar að fá 32 menn til þess að tryggja völd sín. Allir, stjórnarandstæðingar jafnt og aðrir, viðurkenna, að fráleitt sé, að þeir fái meirihluta á Al- þingi, hvað þá þann aukna meiri hluta, sem þarf til þess að þeir geti komið fram sínum stefnu- málum, ef þau eru þá nokkur, er þeir geta komið sér saman um. Kommúnistar sækja raunar fast á Framsókn til samstarfs.1 En svör Framsóknar eru dræm. Fyrir utan orðaskvaldur er lítið út úr henni að fá annað en hún sækist eftir stöðvunarvaldi. Keppikefli hennar er, að stjórn- arflokkarnir fái ekki fleiri en 31 þingmenn kosna. En fari svo mundi skapast sjálfhelda, sem ekki er sýnt, hvernig unnt yrði að rjúfa. Menn greinir á um, hverri stefnu beri að fylgja. ±>ó að ósamkomulag sé illt er stefnu leysið samt ennþá verra. Ef eng- in ákvörðun er tekin og allt lát- ið reka á reiðanum. Ekkert hefur reynst lýðræðinu hættulegra eða fremur stuðlað að veiklun þess og hruni, þar sem verst hefur farið . Nýtt og betra land. En skiftir lýðræði og hollir stjórnarhættir svo miklu máli sem við stjórnmálamennirnir viljum vera láta? Ber vafetur okkar og umstang yfirleitt til- ætlaðan árangur? Eða eru það önnur öfl, sem úrslitum ráða? Víst verðum við að játa, að or- sakakeðjan er margslungin og oft verður ekki í fljótu bragði séð, hvað úrslitum ræður. örugt er þó, að umhverfi og manns- hugur hafa víxlverkandi áhrif. Lítum á landið, sem okkur hefur alið. Fram undir síðustu aldamót hafði fslandi stórum hnignað frá landnámstíð, ekki einungis vegna versnandi veður- fars um langan aldur, heldur einnig sökum þess, að landsmenn skorti afl og þekkingu til að nýta það. Eftir því, sem land- inu hnignaði, dofnaði yfir dug fólksins, þó að áfram væri seigl- ast. En þegar þjóðin öðlast frelsi á ný snerist seiglan í framtak og áræði. Nýtt landnám var haf- ið, landnám, sem kappsamlegar hefur verið að unnið á okkar dög um en nokkru sinni fyrr. Að vísu hefur byggðin víða færzt saman og strjálbýlið á í vök að verjast. En þéttbýlið er uppspretta þess afls, sem þarf til, að hið nýja landnám nái til allra landsins byggða. Ræktun, vegir, brýr, hafnir, flugvellir, nýtízku hús og farkostur á landi í lofti og á legi, notkun fossafls og jarðhita að ógleymdri friðun fiskimið- anna hafa gert ísland að öðru og betra landi, gert auðveldara að lifa hér, bætt lifckjörin flestu öðru fremur. Undirrót alls, sem á hefur unn- izt, er að fólkið hefur fengið frelsi til að njóta manndáðar sinnar. Þrek þjóðarinnar, áræði, vinnusemi »g vaxandi þekking hefur skipt sköpum fyrir ísland. Án frjálsræðis, framtaks og þekkingar er fsland lítt byggi- legt, jafnvel við batnandi veður- fár eins og verið hefur síðustu áratugi. En þjóðin er nú einnig miklu betur en nokkru sinni fyrr undir það búin að sigrast á óblíðu veðurfari. Mannshugur- inn hefur orðið ofan á, lætur ekki lengur hið mikilfenglega en erfiða land bera sig ofurliðL Aukið frelsi þjóðarinnar og að síðustu fullt sjálfstæði, hagkvæm samskipti og samvinna við aðrar þjóðir, framtak ótalmargra ein- staklinga og margháttuð samtök almennings, og síðast en ekki sízt tækniþróun og aukin þekk- ing í flestum greinum, allt á þetta hlut í þeim sigri sem unn- ist hefur. Frelsi og manndáð. Sigurinn er engum einum að þakka. En Sjálfetæðisflokkurinn hefur þar lagt sitt af mörkum. Við stofnun hans fyrir 34 árum var lýst yfir því, að aðalstefnu- mál flokksins væri þessi: „1) Að vinna að því og undir- búa það, að ísland taki að fullu öll sín mál í sínar eigin hend- ur og gæði landsins til afnota fyrir landsmenn eina, jafnskjótt og 25 ára samningstímabil sam- bandslaganna er á enda. 2) Að vinna í innanlandsmál- um að víðsýnni og þjóðlegri um bótastefnu á grundvelli einstak- lingsfrelsis og atvinnufrelsis, með hagsmuni allra stétta fyrir augum." Lýðveldi er nú fyrir löngu end urreist en að breyttum breytanda eru aðalstefnumálin enn hin sömu: Frelsi og manndáð. Auðvitað hefur okkur Sjálf- stæðismenn stundum borið af leið. Við erum ekki fullkomnir fremur en aðrir og oft hefur verið við ramman reip að draga. Við höfum aldrei einir náð meiri hluta. Eins og flokkaskipun hef- ur þróast eru litlar líkur til þess, að svo verði í náinni framtíð. Þjóðin sýnist hafa ótrú á því að fá nokkrum einum manni eða flokki yfirráð. Svo var þegar í okkar gamla þjóðveldi og sár reynsla af erlendu einveldi hef- ur með réttu magnað vantrúna á mikilli sameiningu valds í hverra höndum sem er. Á íslandi vilja menn jafninga en ekki of- jarla. Við Sjálfstæðismenn höfum al- drei sótt eftir völdum til að und- iroka aðra, heldur til að koma áhugamálum okkar fram. Þess vegna höfum við ætíð leitast við að fá sem almennastan samhug um þau mál, sem við höfum lagt megináherzlu á. Þar er fremst að minnast fyrra aðaUtefnumálsins, sem lýst var við stofnun flokks- ins. Við lögðum allt kapp á að sameina þjóðina um endurreisn lýðveldisins og tókst það að lok- um betur en á horfðist um sinn. Einungis örfáir ævintýramenn einangruðust þar í andstöðu und ir forystu núverandi forseta Al- þýðusambands íslands. Ástæðu- laust er nú að rekja þá sögu en holt er að minnast þess, að það var fyrst og fremst Framsóknar- flokkurinn, sem á sínum tíma stöðvaði það, að þingræðisstjórn, yrði mynduð til að ljúka lýð- veldisstofnuninni. Á því atferli verður ekki önnur skýring fund- in, en sú, að úr því að Framsókn bar ekki sjálf gæfu til að hafa forystuna, þá vildu forráðamenn hennar hindra, að nokkur annar flokkur hlyti þann heiður. Framsókn stöðvaði sam- starf um utanríkismál. Á sama veg og okkur Sjálf- stæðismönnum tókst að skapa samhug um lýðveldisstofnunina höfum við ætíð reynt að sameina alla lýðræðisflokkana um þjóð- holla utanríkisstefnu í fylgd með öðrum lýðræðisþjóðum. Þetta hefur gengið verr en skyldi, fyrst og fremst vegna óhollustu Framsóknarflokksins. Formaður hans reyndi með minnkandi fylgi í sínum eigin flokki, að stöðva gerð Keflavíkursamnings- ins 1946, aðild íslands að Mars- hall-samstarfinu 1948 og aðild íslands að Atlantshafsbandalag- inu 1949. Loks tókst með gerð varnarsamningsins við Bandarík in 1951 að koma á nokkum veg- inn heillegu samstarfi allra lýð- ræðisflokkanna um varnir lands- ins, og hélzt það, þar til Fram- sókn enn stöðvaði það í marz 1956. Við minnumst heitorðsins frá því í júní sama ár um, að varnarliðið skyldi hrakið úr landi, betra væri að vanta brauð en þola hér erlendan her. Efndir þess loforðs voru þó stöðvaðar, áður en árið væri liðið, til þess að afla fjár í óslökkvandi lána- hít vinstri stjórnarinnar. Þrátt fyrir þessa dapurlegu reynslu af stöðugleika Framsóknar í ut- anríkismálum, var þó enn reynt að hafa við hana samstarf um viðbrögð gegn þeim vanda, sem fyrirhuguð stækkun Efnahags- bandalagsins virtist mundu skapa íslandi. En ekki leið á löngu áður en Framsókn taldi kosningahagsmuni sína krefjast þess, að einnig það samstarf væri stöðvað og í þess stað reynt að búa til málefnaágreining 1 Framh. á bls. 14 ~

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.