Morgunblaðið - 27.04.1963, Blaðsíða 13
L Laugardagur 27. apríl 1963
MORCVISBLAÐIÐ
13
—Fastmótuð stefna
Framhald af bls. 1.
Sjálfstæðismenn skilja, að án
margháttaðra ríkisafskipta og
samhjálpar kann einstaklings-
framtak að leiða til öngþveit-
is. Alþýðuflokkurinn viðurkenn-
ir, að án afreka einkaframtaks-
ins verður ríkið máttvana og ó-
fært til aðstoðar og forsjár.
En nú sem fyrr, mundi auð-
velt að finna deiluefni og magna
þau, ef vilji væri fyrir hendL Sam
vinna við aðra er háð því, að
unnið sé í réttum anda. í þessari
ríkisstjórn hefur verið keppt að
því að forðast deilur og finna
farsæla, sameiginlega lausn
þeirra vandamála, sem að hafa
steðjað. Að þessu hefur forysta
okkar gamalreynda foringja Ólafs
Thors mjög stuðlað. Raunar má
segja, að í ýmsum fyrri ríkis-
stjórnum hafi meira reynt á
Ihans einstöku samningalipurð og
miklu mannþekkingu. En því
Ibetur hafa frábærir stjórnair-
hæfileikar Ólafs notið sín nú
og hann getað lagt sig allan
fram um lausn hinna mörgu mál
efna, ekki allra auðleystra, sem
fram úr hefur þurft að ráða.
I*
Önnur vinnubrögð.
Vissulega var lítið fagnaðar-
efni að taka við þjóðarbúinu
eins og á stóð við myndun við-
reisnarstjórnarinnar. Vinstri
stjórnin flúði sízt að ástæðu-
lausu af hólmi. Vandamálin, sem
mjög höfðu magnast fyrir henn-
ar eigin sundrung og úrræða-
leysi, voru geigvænleg. Bráða-
birgðastjórn Alþýðuflokksins
hafði tekizt að afstýra hruni, en
viðreisnin var eftir og óreynt var
hvort kraftar og samheldni ent-
ust til hennar. Á fyrstu mánuð-
unum mátti sökum gjaldeyris-
ekorts litlu muna, að unnt væri
að afla helztu nauðsynja til
landsins. Lækkað verðlag sumr-
ar útflutningsvöru og léleg afla-
brögð í helztu verstöðvum voru
sízt til uppörvunar.
Allt hefur þetta farið betur
en á horfðist og andstæðingarnir
spáðu. Gamall þjóðþekktur at-
hafnamaður, sem vel man og
náið hefur fylgzt með öllum
helztu atburðum, er hér á landi
hafa gerzt frá því, að stjórnin
var flutt inn í landið, sagði ný-
lega, að núverandi stjórn væri
hin bezta, sem hér hefði setið.
Þetta er mikið lof úr munni
manns, sem mælir af yfirsýn
mikils aldurs og aldrei segir
annað en það, sem honum býr
f brjósti. Sagan ein fær úr því
skorið, hvort þetta er sannmæli
eða ekkL Hitt segi ég hiklaust
af eigin raun, eftir að hafa starf-
að í 5 ríkisstjórnum og náið
kynnst störfum margra annarra,
að það hefur verið árangursrík-
ara að starfa í þessari en nokk-
urri annarri, ekki vegna þess að
viðfangsefnin væru auðveldari
en áður, heldur af hinu, að vinnu
brögðin eru öll önnur. Stjómin
hefur sjálf verið samhent og
stuðst við samhentan meirihluta
á Alþingi, hvert málefni hefur
verið metið eftir eðli sjálfs sín
og reynt hefur verið að leysa
vandamálin án þess að nota þau
samstarfsaðilanum til óþurftar,
en undanbragðalaust unnið að
því að ná umsömdum markmið-
um.
Sundurlyndisfj andinn
hrakinn úr Stjórnar-
ráðinu.
Jafnvel stjórnarandstæðingar
býsnast yfir öllum þeim fjölda
umbótamála, sem flutt hafa ver-
ið af ríkisstjórninni. Ein af skýr-
ingunum á því, að undirbúningi
þeirra hefur verið hægt að koma
í verk, er sú, að stjórninni hefur
®ð undanförnu gefizt tími til að
sinna eiginlegum stjórnarstörf-
um. Áður fyrr þurftu ríkisstjóm-
ir um langt árabil stöðugt að
■itja yfir þjóðarbúinu til að forða
því frá gjaldiþroti og var þó
•tundum öllu likara að verið væri
•ð ráðstafa reitum gjaldþrota ó-
reiðumanns. Tími ráðhefranna
tór i að ákveða uppbætur handa
þessum eða hinum og finna ráð,
til að skrapa saman peninga til
að geta greitt það, sem óhjá-
kvæmilegt var talið til að halda
helztu atvinnuvegum þjóðarinn-
ar gangandL Svo að ekki sé
minnzt á áramótin, þegar vikur
eða mánuðir fóru í að hlusta á
kröfur hvaðanæva, kaupslaga
innbyrðis um á hvað væri hægt
að fallast, þvarga við kröfugerð-
armenn og leita loks á náðir
bankastjóra um hjálp til að
halda öllu á floti enn um skeið.
Með heilbrigðri efnahagsmála-
stefnu hefur tekizt að eyða öll-
um þessum ófögnuði, svo að nú
er unnt að gefa sig að lausn
margháttaðra framfaramála.
Auðvitað viðurkennum við, að
forsjónin hefur verið okkur hlið
holl. Hækkandi verðlag og góður
afli hin síðari misseri hafa gert
okkur stjórnina auðveldari en
ella. En hvorugt þetta dugði 1958.
Þá var það sundurlyndisfjand-
inn, sem nær hafði togað þjóðar-
skútuna niður í sextugt djúp.
Enginn skyldi ætla, að þessi
fjandi væri enn að velli lagður,
þó að hann eigi ekki lengur sitt
höfuðból í sjálfu Stjórnarráðinu.
Nú reynir á, hvort menn vilja
láta hann á ný hefja innreið sína
þangað. Viðreisnarstjórnin er
fyrsta samsteypustjórnin, sem
setið hefur heilt kjörtímabil án
þess að til meiriháttar klofn-
ings stunðingsflokka hennar
komi. Ég efast ekki um, að Lands
fundurinn æski þess, að stjórnar-
samstarfinu verði haldið áfram
á sama veg og þvílíkri ósk hefur
þegar verið lýst af hálfu Alþýðu-
flokksins. Þá er það undir á-
kvörðun kjósenda komið, hvort
hér helzt skaplegt stjórnarfar
eða sundrung og glundroði eiga
að ráða ríkjum.
Framsókn sækist eftir
stöðvunarvaldi.
Vegna deildaskipunar Alþing-
is mega stjórnarflokkarnir ekki
fá færri en 32 þingmenn kosna
til þess að hafa fullt vald yfir
meðferð mála á þingi og geta
komið fram nauðsynlegri lög-
gjöf. Á sama veg þurfa stjórnar-
ur með réttu magnað vantrúna
andstæðingar að fá 32 menn til
þess að tryggja völd sín. Allir,
stjórnarandstæðingar jafnt og
aðrir, viðurkenna, að fráleitt
sé, að þeir fái meirihluta á Al-
þingi, hvað þá þann aukna meiri
hluta, sem þarf til þess að þeir
geti komið fram sínum stefnu-
málum, ef þau eru þá nokkur,
er þeir geta komið sér saman
um.
Kommúnistar sækja raunar
fast á Framsókn til samstarfs.1
En svör Framsóknar eru dræm.
Fyrir utan orðaskvaldur er lítið
út úr henni að fá annað en hún
sækist eftir stöðvunarvaldi.
Keppikefli hennar er, að stjórn-
arflokkarnir fái ekki fleiri en 31
þingmenn kosna. En fari svo
mundi skapast sjálfhelda, sem
ekki er sýnt, hvernig unnt yrði
að rjúfa. Menn greinir á um,
hverri stefnu beri að fylgja. ±>ó
að ósamkomulag sé illt er stefnu
leysið samt ennþá verra. Ef eng-
in ákvörðun er tekin og allt lát-
ið reka á reiðanum. Ekkert hefur
reynst lýðræðinu hættulegra eða
fremur stuðlað að veiklun þess
og hruni, þar sem verst hefur
farið .
Nýtt og betra land.
En skiftir lýðræði og hollir
stjórnarhættir svo miklu máli
sem við stjórnmálamennirnir
viljum vera láta? Ber vafetur
okkar og umstang yfirleitt til-
ætlaðan árangur? Eða eru það
önnur öfl, sem úrslitum ráða?
Víst verðum við að játa, að or-
sakakeðjan er margslungin og
oft verður ekki í fljótu bragði
séð, hvað úrslitum ræður. örugt
er þó, að umhverfi og manns-
hugur hafa víxlverkandi áhrif.
Lítum á landið, sem okkur
hefur alið. Fram undir síðustu
aldamót hafði fslandi stórum
hnignað frá landnámstíð, ekki
einungis vegna versnandi veður-
fars um langan aldur, heldur
einnig sökum þess, að landsmenn
skorti afl og þekkingu til að
nýta það. Eftir því, sem land-
inu hnignaði, dofnaði yfir dug
fólksins, þó að áfram væri seigl-
ast. En þegar þjóðin öðlast frelsi
á ný snerist seiglan í framtak
og áræði. Nýtt landnám var haf-
ið, landnám, sem kappsamlegar
hefur verið að unnið á okkar dög
um en nokkru sinni fyrr. Að vísu
hefur byggðin víða færzt saman
og strjálbýlið á í vök að verjast.
En þéttbýlið er uppspretta þess
afls, sem þarf til, að hið nýja
landnám nái til allra landsins
byggða. Ræktun, vegir, brýr,
hafnir, flugvellir, nýtízku hús og
farkostur á landi í lofti og á
legi, notkun fossafls og jarðhita
að ógleymdri friðun fiskimið-
anna hafa gert ísland að öðru
og betra landi, gert auðveldara
að lifa hér, bætt lifckjörin flestu
öðru fremur.
Undirrót alls, sem á hefur unn-
izt, er að fólkið hefur fengið
frelsi til að njóta manndáðar
sinnar. Þrek þjóðarinnar, áræði,
vinnusemi »g vaxandi þekking
hefur skipt sköpum fyrir ísland.
Án frjálsræðis, framtaks og
þekkingar er fsland lítt byggi-
legt, jafnvel við batnandi veður-
fár eins og verið hefur síðustu
áratugi. En þjóðin er nú einnig
miklu betur en nokkru sinni fyrr
undir það búin að sigrast á
óblíðu veðurfari. Mannshugur-
inn hefur orðið ofan á, lætur
ekki lengur hið mikilfenglega en
erfiða land bera sig ofurliðL
Aukið frelsi þjóðarinnar og að
síðustu fullt sjálfstæði, hagkvæm
samskipti og samvinna við aðrar
þjóðir, framtak ótalmargra ein-
staklinga og margháttuð samtök
almennings, og síðast en ekki
sízt tækniþróun og aukin þekk-
ing í flestum greinum, allt á
þetta hlut í þeim sigri sem unn-
ist hefur.
Frelsi og manndáð.
Sigurinn er engum einum að
þakka. En Sjálfetæðisflokkurinn
hefur þar lagt sitt af mörkum.
Við stofnun hans fyrir 34 árum
var lýst yfir því, að aðalstefnu-
mál flokksins væri þessi:
„1) Að vinna að því og undir-
búa það, að ísland taki að fullu
öll sín mál í sínar eigin hend-
ur og gæði landsins til afnota
fyrir landsmenn eina, jafnskjótt
og 25 ára samningstímabil sam-
bandslaganna er á enda.
2) Að vinna í innanlandsmál-
um að víðsýnni og þjóðlegri um
bótastefnu á grundvelli einstak-
lingsfrelsis og atvinnufrelsis,
með hagsmuni allra stétta fyrir
augum."
Lýðveldi er nú fyrir löngu end
urreist en að breyttum breytanda
eru aðalstefnumálin enn hin
sömu: Frelsi og manndáð.
Auðvitað hefur okkur Sjálf-
stæðismenn stundum borið af
leið. Við erum ekki fullkomnir
fremur en aðrir og oft hefur
verið við ramman reip að draga.
Við höfum aldrei einir náð meiri
hluta. Eins og flokkaskipun hef-
ur þróast eru litlar líkur til þess,
að svo verði í náinni framtíð.
Þjóðin sýnist hafa ótrú á því
að fá nokkrum einum manni eða
flokki yfirráð. Svo var þegar
í okkar gamla þjóðveldi og sár
reynsla af erlendu einveldi hef-
ur með réttu magnað vantrúna
á mikilli sameiningu valds í
hverra höndum sem er. Á íslandi
vilja menn jafninga en ekki of-
jarla.
Við Sjálfstæðismenn höfum al-
drei sótt eftir völdum til að und-
iroka aðra, heldur til að koma
áhugamálum okkar fram. Þess
vegna höfum við ætíð leitast við
að fá sem almennastan samhug
um þau mál, sem við höfum lagt
megináherzlu á. Þar er fremst að
minnast fyrra aðaUtefnumálsins,
sem lýst var við stofnun flokks-
ins. Við lögðum allt kapp á að
sameina þjóðina um endurreisn
lýðveldisins og tókst það að lok-
um betur en á horfðist um sinn.
Einungis örfáir ævintýramenn
einangruðust þar í andstöðu und
ir forystu núverandi forseta Al-
þýðusambands íslands. Ástæðu-
laust er nú að rekja þá sögu en
holt er að minnast þess, að það
var fyrst og fremst Framsóknar-
flokkurinn, sem á sínum tíma
stöðvaði það, að þingræðisstjórn,
yrði mynduð til að ljúka lýð-
veldisstofnuninni. Á því atferli
verður ekki önnur skýring fund-
in, en sú, að úr því að Framsókn
bar ekki sjálf gæfu til að hafa
forystuna, þá vildu forráðamenn
hennar hindra, að nokkur annar
flokkur hlyti þann heiður.
Framsókn stöðvaði sam-
starf um utanríkismál.
Á sama veg og okkur Sjálf-
stæðismönnum tókst að skapa
samhug um lýðveldisstofnunina
höfum við ætíð reynt að sameina
alla lýðræðisflokkana um þjóð-
holla utanríkisstefnu í fylgd með
öðrum lýðræðisþjóðum. Þetta
hefur gengið verr en skyldi,
fyrst og fremst vegna óhollustu
Framsóknarflokksins. Formaður
hans reyndi með minnkandi
fylgi í sínum eigin flokki, að
stöðva gerð Keflavíkursamnings-
ins 1946, aðild íslands að Mars-
hall-samstarfinu 1948 og aðild
íslands að Atlantshafsbandalag-
inu 1949. Loks tókst með gerð
varnarsamningsins við Bandarík
in 1951 að koma á nokkum veg-
inn heillegu samstarfi allra lýð-
ræðisflokkanna um varnir lands-
ins, og hélzt það, þar til Fram-
sókn enn stöðvaði það í marz
1956. Við minnumst heitorðsins
frá því í júní sama ár um, að
varnarliðið skyldi hrakið úr
landi, betra væri að vanta brauð
en þola hér erlendan her. Efndir
þess loforðs voru þó stöðvaðar,
áður en árið væri liðið, til þess
að afla fjár í óslökkvandi lána-
hít vinstri stjórnarinnar. Þrátt
fyrir þessa dapurlegu reynslu
af stöðugleika Framsóknar í ut-
anríkismálum, var þó enn reynt
að hafa við hana samstarf um
viðbrögð gegn þeim vanda, sem
fyrirhuguð stækkun Efnahags-
bandalagsins virtist mundu
skapa íslandi. En ekki leið á
löngu áður en Framsókn taldi
kosningahagsmuni sína krefjast
þess, að einnig það samstarf
væri stöðvað og í þess stað reynt
að búa til málefnaágreining 1
Framh. á bls. 14 ~