Morgunblaðið - 27.04.1963, Page 22
22
MORGVNBLAÐIO
Laugardagur 27. apríl 1963
Þanni; gekk það í leik KR og Vals. Allt bjargaðist fyrir Val
á siðustu stund og jafnvel á siðasta hæl. Gunnar Felixson
sækir að, en Björgvin fær krækt í knöttinn.
Lið Fram og Vals frá
1947 keppa á sunnudag
Og 1. deildarlið KR og Fram
ALLAR horfur eru á því, að
mönnum gefist kostur á að
sjá góða knattspyrnu á sunnu
daginn er old boys Fram og
Vals frá árinu 1947 — þegar
menn virkilegu kunnu knatt-
spyrnu — þreyta kappleik á
Melavellinum. Leikurinn er
liður í afmælisdagsskrá Fram,
sem á 55 ára afmæli um þess-
ar mundir. í>að væri kannski
fjarri lagi að tala um old
boys í orðsins fyllstu merk-
ingu, en margir þeirra knatt-
spyrnukappa, serri gerðu garð
•inn frægann árið 1947 og þar
Þróttur
meistara
vaar
Fram
Isl-
4-0
Bceð/ //ð komu á óvart: Þróttur fyrir
ájœti en Fram fy/ir linan leik
ÞAÐ DATT andlitið af mörgum
á fyrstu mínútum leiks íslands-
meistara Fram og 2. deildar liðs
Þróétar er þau mættust í 2. leik
Reykjavíkúrmótsins 1. sumardag.
Ef ókunnugir hefðu átt að segja
um hvort liðanna væri íslands-
meistarar hefðu .allir bent á
Þróttarliðið. Þróttarliðið bókstaf-
lega tók leikinn t sínar hendur
og Framarar — einkum vörnin —
vorú eins og ,rstatistar“ á leik-
sviði. '
? 1. |
• ’Mðrk Þróttar.
Burtséð frá byrjunairupp-
hlaúpi Frath og góðu færi Hall-
gríifis þá átti Þróttur leikinn
frarfi undir íok hálfieiksins. Fram
náðí örstuttri sókri með 2 færum,
sera' mistókust, -4 en þá lenti
knöttúrirtn; tvívegis í stöng Þrótt
armgrksins.
Strax á jt. míri. tók Þróttur
forystiu. Axel lék í, gegn á vinsbri
kanjti — þar var veik vörn Fram
allra veikust. Eftjr að knöttur-
inrn-þarst inn undir mark lyfti
Ólafur Björgvinsson hpnum fal-
iega yfir ^Jla varnarkös og í net
ið. I^aglega gert. v
Sama sagan endurtpk sig eftir
17. mín. Þá var leíkið í gegn á
vinátri kantí og gefið fyrir. Hauk
ur miðherji átti tokasendingu í
*naik "íslandsmeistaranna.
Tæpri mínútu. síðar máttu
Fraínarar ’enn sækia knöttinn í
net sitt. Þróttarar gerðu skyndi
upphlaup á miðju, léku gegnurn
statistavörn Fram og Jens Karls-
son skoraði (sjá mynd).
Á 21. mín. skoraði svo Axel
útherji. Hann lék í gegn á v. kanti
að marki. Geir markverði tókst
ekki að stöðva hann með út-
hlaupi, og Axel lék knettinum ró-
lega yfir marklínu eins og nauta
bani, sem fagnar sigri.
• Liðin.
Mörkin urðu ekki fleiri en
ótalmörg tækifæri áttu Þróttarar
eftir þetta, góð skot og sköpuðu
hættuleg færi.
Geir markvörður fékk nóg að
gera en talan hækkaði ekki. —
Framliðið var allan tímann í
varnarstöðu, náði aldrei sókn sem
skapaði hættu, sundurslitið lið
og svifaseinir leikmenn eins og
Framarar voru í þetta sinn,
megna slíkt ekki gegn liði eins
og Þróttar nú, sem lék hratt, af
ákveðni og gaf mótherjum aldrei
tækifæri til neins.
Þetta var svaatur dagur í sögu
Fram, því ætla má að þeir eigi
mun betra lið en þetta var. Þetta
var bjartur dagur hjá Þrótti, því
framfarir eru miklar frá því í
fyrra. Kenna má spor Gabors
þjálfara liðsias í leik þess, hlaupa
hraði og stefna að réttu marki.
Þróttur verður án efa skeinuhætt
lið í þessu móti — með sama
áframhaldi. — A. St.
Skíðamót
í Jósefsdal
SKÉÐADEILD Ármanns gekkst
fyrir innanfélagsmóti um síðustu
helgi í Bláfjöllum. Að vanda var
fjölmennt í skíðaskála Ármanns
í Jósefsdal um helgina, en þaðan
er skammt í nægan snjó og gott
skíðafæri í Bláfjöllum.
Úrslit urðu, sen» hér segir:
Karlaflokkur:
1. Bjarni Einarsson, 58,6 sek.
2. Þorgeir Ólafsson, 64,3 sek.
3. Halldór Sigfússon, 69,7 seik.
Kvennaflokkur:
1.—2. Guðrún Björnsdóttir, 69,3.
1.—2. Sesselja Guðmundsd., 69,3.
Unglingaflokkur:
1. Kjartan Mogensen, 66,4 sek.
2. Örn Ingvarsson, 74,5 sek.
Drengjaflokkur:
1. Georg Guðjónsson, 40,3 sek.
2. Páll Ragnarsson, 52,3 sek.
3. Örn Kærnested, 52,7 sek.
Keppt var um silfurbikara í
öllum flokkum.
Belgrad — Tottenham vann
O.F.K. Belgrad í fyrri leik lið
anna í undanúrslitum i keppn
inni um Evrópubikarinn. —
Leikurinn frá fram í Belgrad.
1 hálfleik var staðan 1:1.. —
Úrslit leiksins urðu 2:1.
Þriðja mark Þróttar kom á sömu minútu og 2. mark þelrra. LeiKio var nran upp uuujuua og
: Jens Karlsson (2. frá hægri) skoraði af stuttu færi. — Myndir Sv. Þorm.
um, hafa haldið sér í æfingu
og einn þeirra, Ríkharður
Jónsson, sem þá var liðsmað-
ur með Fram, keppir enn
þann dag í dag við góðan orð-
stír og á sæti í landsliðinu.
Valsmenn eiga líka sína
kappa og er ekki ólíklegt, að
Albert Guðmundsson leiki
með Val á sunnudaginn. Ann
ars gefst mönnum færi á að
sjá tvo knattspyrnuleiki —
hinn leikurinn verður alvöru
leikur milli meistaraflokks
Fram og KR og verður það
fyrsti leikur þessara aðila á
árinu. Bæði félögin hafa leik-
ið einn leik í Reykjavíkur-
mótinu, sem hafa tapazt og
má því reikna með einhverj-
um breytingum á liðunum á
sunnudaginn.
Annars má búast við,' að
old boys-leikurinn milli Fram
og Vals veki mesta athygli
og er vitað um aðeins örfá
forföll í liðunum frá 1947.
Með liði Fram leika eftirtald-
ir menn: Adam Jóhannsson,
markvörður, Karl Guðmunds-
son, Haukur Antonsson, Sæ-
mundur Gíslason, Haukur
Bjarnason, Valtýr Guðmunds-
son, Sigurður Jónsson, núver-
andi formaður Fram, Rík-
harður Jónsson, Magnús
Ágústsson, Hermann Guð-
mundsson og Gísli Benjamínj
son.
Frá liði Vals hefur ekki
verið gengið endanlega, en
vitað er að Hermann Her-
mannsson, Frímann Helga-
son, Sigurður Ólafsson, Ellert
Sölvason (Lolli), Halldór
Halldórsson og að öllum iík-
indum Albert Guðmundsson
verði með.
Fyrri leikurinn verður
milli Fram og KR og hefst
hann kl. 4, en strax á eftir
leika svo gömlu mennirnirl
Drengjahlaup
DRENGJAHLÁUP Ármanns fer
fram sunnudaginn 28. þ.m. kl. 2
e.h. Hlaupið hefst i Hljómsikála-
garðinum og lýkur þar. Leiðin
verður gengin í dag (laugardag)
kl. 6 e.h. frá Hljómskálanum. —.
Keppendur og starfsmenn eru
beðnir að mæta á Melavellinum
■kl. 1,15 e.h. á sunnudag.
Uppstillingin í Víðavangs-
hlaupinu, sveit KR. Það eru
ekki áreynslumerki í svip
þeirra Halldórs, Kristleifs og
Agnars. Sumir gætu haldið að
þeir væru að leggja af stað.
Þrir óþreyttir jafnir
í Víðavangshlaupi ÍR
Einstæð hlaupakeppni kunnra
hlaupara
VÍÐAVANGSHLAUP ÍR fór
fram fyrsta sumardag, hófst í
Hljómskálagarðinum og lauk þar.
Margt manna kom að venju að
horfa á hlauparana en hurfu frá
heldur vonsviknir því keppni
varð engin í lokin, þó þrír fyrstu
menn hlypu á sama tima.
KR-sveitin hljóp samsíða í
mark án átaka og keppni.
Hlaupaleiðin var svipuð og
vant er. Lengst af voru hlaup-
ararnir nokkuð þétt í hóp, en
undir lokin skáru Kristleifur
Guðbjörnsson og Agnar Leví sig
nokkuð úr. í 3. sæti fór Halldór
Jóhannesson KR. Er inn í Hljóm
skálagarðinn kom, hægðu þeir
Kristleifur og Agnar ferðina, unz
Halldór kom í hópinn og samsíða
hlupu þeir í mark, KR-ingarnir
þrír án sýnilegra átaka eins og
myndin sýnir. Þetta er nokkuð
gróft brot á eðli sannrar íþrótta-
keppni og lítilsvirðing við þá sem
ennþá koma til að sjá frjáls-
íþróttamenn í keppmi.
Úrslit hlaupsins urðu þessi:
1. Kristleifur Guðbjörnsson KR,
11.33.9.
2. Halldór Jóhannesson, KR,
11.33.9.
3. Agnar Leví, KR, 11.33.9.
4. Jón Gunnlaugsson, UMFBisk.
12.42.0.
5. Vilhjálmur Björnsson, UMSE,
12.47.6.
6. Kristján Guðmumdsson, ísaf,
13.55.0.
i