Morgunblaðið - 27.04.1963, Qupperneq 24
Jíekls
Svipmyndir frá Landsfundi
79 AF STÚÐIIMiMi
VEKUR LIMTAI
Stefán Jónsson (lengst t.v.) og Aðalsteinn Maack ræða við þrjár konur á Landsfundi.
llarsdarískur þingmaður kvarlar
UNDANFARNA tvo daga hafa
Mbl. borizt fréttaskeyti frá
Associated Press, þar sem
greint er frá ummælum banda-
ríska þingmannsins Frank J.
Becker, repúblikana frá New
York, vegna dóma um kvikmynd
ina „79 af stöðinni“, í blaðinu
„Variety“, en það er gefið út í
New York.
í blaðinu er að því vikið. að
myndin sé byrjendaverk, sem
einkennist af miklu leyti af viskí
drykkju og lauslæti.
Becker, þingmaður, hefur kraf
izt þess af bandarískum heryfir-
völdum, að grafizt verði fyrir
um það, hvemig á því standi, að
bandarískir hermenn, vamarliðs
menn á íslandi, hafi fengið leyfi
til þess að leika^í myndinni.
Telur þingmaðurinn, að með
þessu leyfi hafi verið stuðlað að
því, að almenningur í þeim lönd
um, þar sem myndin er sýnd,
fái rangar hugmyndir um varn-
arliðsmenn.
Frétt þessi, þ.e. ummæli Beck-
ers, hefur vakið talsverða at-
hygli vestan hafs,^inkum sú að-
ferð, sem hann hefur viðhaft, er
hann hefur vakið athygli á af-
stöðu sinni.
Hefur hann m.a. snúið sér til
varnarmálaráðherra Bandaríkj-
anna, Roberts McNamara, og til
hermálaráðuneytisins — í „Penta
gon“.
Ljóst er þó af fréttastofuskeyt
um, að Becker þingmaður, hefur
ekki séð sjálfa kvikmyndina, en
byggir á ummælum „Variety",
enda tekið fram, að hann hafi
borið fram mótmæli við varnar-
málaráðherrann, eftir að hann
sá greinina í umræddu blaði.
Lýsti Becker því m.a. yifir,
að „hver einasti maður hlyti að
verða skelfdur, þegar hann hefði
lesið þessa blaðagrein." Sagði
hann ennfremur, að yfirvöld
yrðu að taka málið viðeigandi
föstum tökum.
Þeir menn, sem hluit eiga að
að máli, við gerjjS kvikimiyndar-
Framh. á bls. 23.
lok nior^ meo
kolafarm til
Reykjavíkur
DANSKA skipið Erik Sif ták
niðri sl. þriðjudag á svokölluðu
Miðgrunni skammt frá Kaup-
mannahöfn, en það vax á leið með
805 lestir af kolum frá Stettin til
Reykjavíkur.
Mbl. leitaði upplýsinga um
þetta hjá Kol & Salt, sem er að
fá kolafarminn, og fékk þaar frétit
ir að þetta hljóti að hafa verið
smávægilegt strand og skipið
losnað fljótt, því það tafðist að-
eins um hálfan sólarhring og er
á leið til íslands.
Sá hrafnshreiður og
hrapaði í Akrafjalli
er félagi hans hafði sótt hjálp
niður á Akranes vap hann horf-
inn af staðnum og átti að fara
að hefja leit, er hann fannst. —
Fréttaritari blaðsins á Akranesi
segir svo frá þessu:
Kl. um 5.30 síðdegis í dag kom
drengur á 11. ári, Ólafur Karls-
son, sem heima á að Brekku-
braut 22, á harðahlaupum í bæ-
inn, alla leið ofan úr Akrafjalli.
Hann hafði sögu að segja og hún
kom í gusum út úr honum, því
hann hafði vart linað á sprett-
inum. Hann sagði að Guðmund-
ur Magnússon, til heimilis á Vall«
holti 7,_ hefði hrapað í fjallinu,
séð hrafnshreiður og ætlað að
teygja sig eftir eggjunum, en
hrapað niður af kletti.
Þeir jafnaldrarnir höfðu farið
saman upp i Akrafjall kl. 3 I
dag. Þegar Ólafur sá Guðmund
litla hrapa, hefur hann orðið
hræddur, ekki beðið boðanna og
hlaupið alla leið hingað.
Ingvi Sigurðsson, 18 ára, og
tveir drengir með honum, hlupu
upp í fjallið eins og byssu-
brenndir. Einnig fór sjúkrabíll
og lögregla. En Guðmundur
fannst ekki. Var kallað á fleira
fólk til að leita og fóru 4 mann-
aðir bílar á vettvang. En þá
fannst Guðmundur, sem hafði
gengið talsvert af leiðinni heim
og fann Ingvi Sigurðsson hann.
Hann var skrámaður í andlitl
og vinstri handleggurinn brot-
inn, en hann hafði í fyrstu misst
meðvitund við fallið.
Guðmundur var fluttur 1
sjúkrahúsið, þar sem gert var
að sárum hans. — Oddur,
Meðal annarra má þekkja á þessari mynð: Benedikt Guðmundsson, Staðarbakka, Pál Björgvins-
son, Efra-Hvoli, Jónas Pétursson, alþingismann, Jón Karlsson, forstjóra Neskaupstað, og Guð-
mund Auðbjörnsson, EskifirðL
í GÆR hrapaði 10 ára drengur
í Akrafjalli og handleggsbrotn-
aðL Missti hann meðvitund, en
Grjdthrun reif
vélarhúsið af híl
*
undir Olafsvíkurenni
Ólafsvík, 26. apríl: —
Sl. sunnudag var jeppabifreið á
leið frá Sandi til Ólafsvíkur og
fór undir Enni. Þegar hann var
kominn inn á Klif, eftir að komið
er upp úr fjörunni Ólafsvíkur-
megin, hrundi grjót úr Enninu.
Lenti einn allstór steinn á bíln-
um fyrir framan húsið og reif
af honum vélarhúsið og annaö
brettið og sneri bílnum alveg við
á veginum.
í bílnum var Jóhannes Jónsson
frá Ólafsvík, ásamt föður sínum,
en þá sakaði ekki. Hélt steinninn
áfram um 30 m. eftir að hann
lenti á bílnum og stanzaði þar í
túni. Bkki lentu fleiri steinar á
bílnum, en einhverjir komu fyrir
aftan hann og framan. Hafa
mennirnir sloppið naiumlega, því
ekki hefðu þeir þurft að vera
komnir nema nokkrum sm. lengra
til að fá hartn á húsið, þar sem
þeir sátu.
Oftar hefur komið íyrir að
grjót hafi lent á farartækjum
undir Enninu, t.d. slapp bíll með
börnum í naumlega í hitteðfyrra.
í sumar er ráðgert að byggja
veginn undir Enninu og búið að
bjóða verkið út. — H.G.
Vörusýning
í Brussel
36. ALÞJÓÐLEGA vörusýningin
í Brusssel verður haldin 30. apríl
til 12. maí 1963. Nær sýningar-
svæðið yfir 122 þús. ferm. svæði
og er 15. þús. fermílum stærra
en í fyrra. Einkum er það véla-
deildin, sem hefur fært út kví-
arnar. Einnig stækkar útvarps-
og sjónvarpsdeildin að mun,
sömuleiðis pökkunardeildin, kera
mik- gleor- og krystaldeildin,
sjúkratækjadeild, eldhústækja-
deild o. fL