Morgunblaðið - 09.05.1963, Page 1

Morgunblaðið - 09.05.1963, Page 1
\ 24 síður . Framsúknarflokkurinn horfinn frá stefnu Islan í utanríkismálum Segjast vilja en við höfum .66 aðra „meginstefnu1 fyigt frá stríðslokum í GÆR staðfesti Tíminn, að Framsóknarflokkurinn væri horfinn frá stuðningi við þá utanríkismála- stefnu, sem íslendingar hafa markað og fylgt allt frá stofnun lýðveldisins. Fram til þessa hefur meiri- hluti Framsóknarflokksins stutt þessa stefnu. En Ijóst er nú, að þau öfl hafa þar undirtökin, sem vilja liverfa frá hinni ábyrgu utanríkisstefnu, sem við liöfum fylgt, og taka upp þveröfuga stefnu. Tíminn segir, að enn sem fyrr séu tvær megin stefnur í utanríkismálum íslands. Menn vita hver sú stefna er, sem við höfum fylgt. Það er sú stefna, sem tryggt hefur öryggi landisins og sjálfstæði. Það er stefna hófsemi og einurðar, sam- starfs við vestrænar lýðræðisþjóðir og vinsamlegra samskipta við öll ríki innan vébanda Sameinuðu þjóðanna og á sérhverjum vettvangi öðrum. Hin meginstefnan hefur þjóðir og taka upp hlutleysis- sem kunnugt er verið sú, að íslendingar ættu að slíta tengslin við aðrar lýðræðis- Friður ■ Alabama? Birmingham, Alabama, 8. maí. (AP-NTB) LEIÐTOGAR blökkumanna í Birmingham tilkynntu í dag að ekki yrði efnt til neinna mótmælaaðgerða næstu 24 klukkustundimar. Kváðust þeir hafa vonir um að samn- lngar um bætta aðstöðu blökkumanna væru á næstu grösum. Blökkumannaleiðtogarnir, beir séra Fred Shuttleworth og Mart- in Luther King, sögðust í dag hafa rætt við Robert Kennedy dómsmálaráðherra og setið á samningafundum. Töldu þeir líkur fyrir því að samningar næðust innan 24 tíma, en vildu ekki skýra málið nánar. eða einangrunarstefnu. Þetta hin „meginstefnan", og er málgagn Framsóknarflokks- ins lýsir stuðningi við hana í gær í mikilli forsíðuyfirlits- grein um utanríkismál. Þar er þess vandlega gætt að minnast ekki einu orði á At- lantshafsbandalagið eða sam- starf okkar við vestrænar þjóðir, enda fær það að sjálf- sögðu ekki samrýmzt stefnu, sem í meginefnum er í and- stöðu við núverandi utan- ríkismálastefnu. Utvarpsumræður um stjórnmál ALMENNUM stjórnmálaumræð- um verður útvarpað þriðjudags kvöldið 4. júní og miðvikudags- kvöldið 5. júní. Umræðunum verður hagað, sem venja er til. Ein umferð er fyrra kvöldið, en þrjár hið síðara. Kosið um tvær stefnur Þegar Tíminn hefur lýst and- stöðu við þá utanríkismála- stefnu, sem íslendingar hafa fylgt og samstöðu með and- stæðingum hennar, segir blaðið réttilega: „Það er um þessar tvær stefn- ur meginflokkanna í utanríkis- málum, sem þjóðin velur í kosn- ingunum 9. júní“. Það er vissulega hryggilegt að einn af lýðræðisflokkunum skuli hafa horfið frá þeirri stefnu í ut- anríkismálum, sem flokkarnir hafa borið gæfu til að standa sameiginlega að fram að þessu. Hinsvegar er ánægjulegt, að þessi yfirlýsing skuli koma fyr- ir kosningar, svo að þjóðin geti kosið milli hinnar ábyrgu utan- ríkismálastefnu, sem íslending- ar hafa fylgt og hinnar „nýju“ stefnu Framsóknarflokksins. Framsóknarmenn skýra hina „nýju“ stefnu sína raunar ekki nánar en svo, að hún sé í megin- atriðum í andstöðu við núver- andi utanríkismálastefnu, sem þeir nefna meðal annars „und- anhaldsstefnu" Þeir bæta því þó við, að „meginstefnurnar" séu einungis tvær, þeirra stefna og sú, sem íslendingar hafa fylgt. í þeirri yfirlýsingu getur ekki annað verið fólgið en það, að þeir vilji rjúfa samstöðu okkar með öðrum lýðræðisþjóðum. Ekki harmar Morgunblaðið að kosningarnar skuli öðrum þræði snúast um þetta. Meginþorri þjóðarinnar styður þá heil- brigðu utanríkisstefnu, sem við höfum fylgt, og þeir Framsókn- armenn munu margir, sem hugsa sig um tvisvar, áður en þeir undirstrika með atkvæði sínu, að Framsóknarflokkurinn eigi í framtíðinni að fylgja annarri stefnu. Um þetta mál er nánar rætt í ritstjórnargreinum í dag. INNANRÍKISMÁL í FRAMSÓKN 1 H I N N I löngu yfirlits- grein, sem birtist í Tíman- um í gærmorgun um nýja utanríkisstefnu Framsókn- arflokksins, er ekki minnzt einu einasta orði á vest- ræna samvinnu og afstöð- una til Atlantshafsbanda- lagsins. Hingað til hafa þó einmitt þessi atriði verið kjarninn í utanríkisstefnu íslenzkra stjórnmálaflokka. Verður ekki önnur álykt- un af þessu dregin en sú, að framsóknarmeWfi — vegna hins mikla ágrein- ings innan flokksins um þessi mál — líti ekki leng- ur á afstöðu flokksins til Atlantshafshandalagsins og dvalar varnarliðsins í land inu sem þátt utanríkis- stefnu hans, heldur sem innanríkismál í Framsókn- arflokknum! Fundir Sjúlistæðismanna ALMENNIR fundir Sjálfstæðismanna verða í NORÐURLANDSK J ÖRDÆMI VESTRA, sem hér segir: LAUGARBAKKA, Vestur-Húnavatnssýslu, sunnu- daginn 12. maí kl. 21. Ræðumenn verða Ingólfur Jóns- son, ráðherra, Einar Ingimundarson, alþingismaður, og Óskar Leví, hóndi. BLÖNDUÓSI, mánudaginn 13. maí kl. 21. Ræðu- menn verða Ingólfur Jónsson, ráðherra, og Gunnar Gíslason, alþingismaður. SAUÐÁRKRÓKI, þriðjudaginn 14. maí kl. 21. — Ræðumenn verða Ingólfur Jónsson, ráðherra, og Gunnar Gíslason, alþingismaður. SIGLUFIRÐI, miðvikudaginn 15. maí kl. 21. Ræðu- menn verða Ingólfur Jónsson, ráðherra, Gunnar Gíslason, alþingismaður, og Hermann Þórarinsson, hreppstjóri. Jóhann Ilafstein Framsóknarmenn hafa alltaf viljað lengri sverð í baráttunni SÍÐUSTU FRÉTTIR Á miðnætti í nótt skýrði brezka útvarpið frá því að tveir af leiðtogum blökku- manna í Birmingham, ann- ar þeirra Martin Luther King, hafi verið dæmdir í 180 daga fangelsi fyrir þátt töku í ólöglegum mótmæla göngum. Þegar fregnir hárust um handtökurnar lýstu aðrir leiðtogar blökkumanna því yfir að griðarboð þeirra stæðu ekki lengur, og yrðu að nýju teknar upp mótmæla- aðgerðir. ★ í ræðu þeirri, sem Jóhann Hafstein alþingismaður flutti á fundi Landsmálafélagsins Varðar í gærkvöldi, lagði hann áherzlu á, að með því að tryggja sigur núverandi stjórnarflokka við kosning- arnar í sumar hefði almenn- ingur vissu fyrir því, sem við tæki, framhald viðreisnar- stefnunnar. Glati þeir hins vegar þingmeirihluta sínum, eða missi þó ekki sé nema tvö þingsæti, veit enginn, hvað við tekur — annað en óviss- an. „Við Sjálfstæðismenn göngum til haráttunnar með skynsama, heilbrigða og heil- steypta stefnu að leiðarljósi“, sagði Jóhann Hafstein. „Við heitum á kjósendur að tryggja áfram örugga og trausta stjórn í landinu“. ★ Framsóknarflokkurinn hef- ur ævinlega rofið það stjórnar- samstarf, sem hann svo oft hef- ur átt við aðra flokka, og mín skoðun er sú, sagði Jóhann, að beinasta skýringin á því fyrir- brigði sé einmitt hin sífelldu foréttindasjónarmið framsóknar- manna. Sannleikurinn er sá, að engir menn í þjóðfélaginu hafa verið jafn harðsvíraðir sérrétt- indamenn og framsóknarmenn, er ævinlega hafa heimtað sér til handa sérréttindi fram yfir aðra, ef þess hefur verið nokkur kost- ur. Þeir hafa alltaf krafizt þess að hafa lengri sverð í baráttunni en hinir, eins og Ámi frá Múla orðaði það forðum. ★ Á árinu 1962 voru fluttar til landsins landbúnaðarvélar að verðmæti hingað komnar nær 40 millj. kr. í tíð vinstri stjórn- arinnar, árið 1957, var verðmæti innfluttra landbúnaðarvéla hina

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.