Morgunblaðið - 09.05.1963, Page 10

Morgunblaðið - 09.05.1963, Page 10
10 MORGVNBLAÐID Fimmtudagur 9. maí 1963 * _____________ A sögustaðsiMm Borg á ivsyrum er risiö myndarlegt prestshús BORG á Mýrum. Það nafn er í eyrum íslendinga miklu meira en nafn á prestssetri. Staðurinn er hluti af sögu þjóðarinnar og nafnið eitt fel- ur í sér svo ótal margt sem er íslendingum dýrmætt. Þangað kom einn helzti land- námsmaður íslands um 990, og þar ólst upp og bjó æfi- langt ein helzta sögupersóna íslendingasagna, Egill Skalla. grímsson, og síðan niðjar hans fram eftir öldum. Á Borg byrjaði Snorri Sturluson bú- skap sinn og talið sennilegt að þar hafi hann ritað Egils- sögu. Ekki er hér rúm til að rekja þessa kunnu sögu nán- ar. Sá ljómi sem nafnið Borg á Mýrum hefur yfir sér nær út fyrir landssteinana og ekki er ótítt að erlendir menn telji aðalmarkmið með ferð sinni til íslands að koma að sögu- staðnum Borg. Finnst þeim sem þar hafa búið að undan- förnu ekki laust við að stað- urinn sé stærri í vitund Norð- manna en heimafólks og að þeir hafi gert sér tíðara um hann. Kannski er það vegna þess að íslendingar hafa veigr að sér við að koma þar, held- ur viljað eiga staðinn í huga sér, vitað sem er að honum hefur lítill sómi verið sýndur. Nú hefur þó nýlega verið nokkuð úr bætt. Er prests- setrið var byggt upp eftir bruna árið 1959 var það látið njóta staðarins og byggt þar glæsilegt íbúðarhús, sem presturinn er nýfluttur í. Á það vel við, því Borg á ekki síður sína sögu sem kirkju- staður. Kirkja hefur verið á Borg frá því tveimur áfum eftir að kristni var lögtekin. Þar var Kjartan Ólafsson frá Hjarðarholti grafinn árið 1002. „Þorsteinn Egilsson hafði gera látit kirkju at Borg. Hann flutti lík Kjart- ans heim með sér, ok var Kjartan at Borg grafinn. Þá var kirkja nývígð ok í hvíta- váðum“, segir í Laxdælu. Hafa verið munnmæli um hvar leiði hans er í kirkjugarðin- ofaniborinni, heimreið að steinhúsi með mjög háu risi, ca 8 m. háu, og bílnum lagt á bílastæðinu bak við. Þá kem- ur í ljós að bílskúr með sama lagi og húsið er tengdur því með álmu, sem í er þvotta- hús og geymsla. Þegar inn er komið er húsið rúmgott, 126 ferm. að stærð, 3 stórar stof- ur og eldihús á hæðinni og 5 lítil svefnherbergi og bað í risi. Prestshjónin, sr. Leo Júlíus- son og frú Anna Sigurðardótt- ir fluttu í nýja húsið fyrir jól í vetur. — Þetta hús er mjög til sóma, segir sr. Leo. Það er mikið atriði að hér á Borg sé myndarlegur staður og við höfum fengið að njóta þess. Eftir að gamla prests- setrið brann, vildu ýmsir láta flytja prestshúsið niður í Borgarnes. Bjarni Benedikts- son, kirkjumálaráðherra, var því fylgjandi að reisa hér aftur. Sama sinnis var fólkið í sveitinni og ég var einnig á móti því að prestssetrið yrði flutt héðan. Alþingi veitti 300 þús. kr. á ári sem sérveitingu til hússins og húsa meistari ríkisins lagði mikla alúð við að fá hér fallegt hús. Yfirleitt sýndu allir, starfsmenn í ráðuneytinu og aðrir sem um málið fjölluðu, sérstaka vinsemd varðandi uppbygginguna. Byrjað var á bygginguni vorið 1961 og er nú verið að ljúka henni, var anddyrið málað fyrir fáum dögum. FAGURT HEIM AÐ LÍTA. Bænnn á Borg stendur fyrir minni Borgarvogs á sólríkum og hlýlegum stað undir fallegri klettaborg. Þaðan er útsýni fagurt. Borgarneskaup. tún blasir við á Digranesi handan vogarins og sunnan Borgarfjarðar tindótt Skarðs- heiðin og Hafnarfjallið, hlíð- bratt og skriðurunnið. Nú er talsvert annað að koma í hlað á Borg en verið hefur undan- farin ár. Ekið er eftir nýrri Á SAMA HÓLNUM SÍÐAN Á LANDNÁMS TÍÐ Presturinn segir mér að telja megi víst að nýja húsið standi á sama stað og hús Skallagríms forðum og yfir- leitt hafi bæjarhúsin ávallt staðið þarna á sama stað. Sé talið að bæjarhóllinn hafi þannig smáhlaðizt upp. Þegar grafið var fyrir nýja húsinu, hafi verið komið niður á 15 m. langan skála. Hann kveðst vel muna, að þegar heyhlaða var við bæinn, þá hafi verið öskulög í gólfinu sem greini- lega sáust ef stungið var nið- ur skóflu þar. En öskuhaug- urinn er fyrir norðaustan hús- ið. Sunnan við nýja húsið stend ur enn hluti af gamla hús- inu, en það mun eiga að rífa fljótlega. Þetta var önnur af tveimur viðbyggingum við gamla húsið, sem var flult að Borg árið 1903 frá Kóranesi og lét sf. Einar Friðgeirsson reisa það. í því húsi mun for- seti íslands, Ásgeir Ásgeirs- son, fæddur. Það hús brann á Borg í febrúarmánuði 1959. Prestshjónin með börn sín. T-dið frá vinstri: frú Anna Sigurðardóttir, Jónína, 7 ára, Sigurður Örn, 5 ára og sr. Leo Júlíusson Landið okkar í stofunni á Borg eru nú ein- göngu ný húsgögn, sem sýna að prestsfjölskyldan hefur orðiðað byrja alveg að nýju að byggja upp sitt heimili eft- ir brunann. Þar er þó gamall kínverskur vasi, handmálað- ur með þykku og upp- hleyptu bláu og rauðu mynstri. Hann fannst heill í rústunum og þó þyrfti að láta hann liggja í vítissóda til að hreinsa hann, létu litirnir sig ekki. — Já, við misstum allt sem við áttum og það var eigin- lega allt óvátryggt, segir sr. Leo. Þar fór t.d. stórt bóka- safn. Við urðum að byrja al- veg að nýju, fyrst að fá aftur fatnað og alla nauðsynlega smáhluti, sem maður tekur ekki eftir að séu nokkurs virði meðan þeir eru til, og síðan húsgögn og annað stærra. En það eru smámun- ir þegar enginn verður fyrir slysi. Maður á hvort sem er al- drei neitt, hefur það aðeins að láni stutta stund. — Hvar hafið þið búið þessi ár? — Við höfum verið á flæk- ingi, vorum nokkra mánuði í Reykjavík og síðast í Staf- holti. Við fluttum 7—8 sinn- um og erum fjarska fegin að vera nú komin í þetta góða hús. — Það er ekki búið hér, sé ég er, þar sem útihúsin eru horfin? — Nei, það er ekkert bú. Jörðin sjálf er lítil bújörð. En sjálfsagt verður athugað bet- ur hvað gera skal síðar meir. Útihúsin voru rifin, til að fá betra rými fyrir íbúðarhúsið, því það var þröngt hér á hóln um. Áður var til gömul, léleg hlaða og 14 kúa fjós frá því árið 1948. MINNISMERKI í EGILS- GARÐI. — Hefur fleira tekið breyt- ingum hér nýlega? — Ja, þegar ég kom hér árið 1946, stóð kirkjan fyrir framan húsið. En hún var færð í heilu lagi og var að því mikil staðarprýði. Eins var þarna langur grjótgarð- ur, sem var fjarlægður. Þegar brann, var kominn allsnotur garður fyrir framan húsið, Egilsgarður. f honum var falleg grasflöt og blóm og tré, stærstu hrislurnar sjást enn. Ég var búinn að rækta hann í áratug, en hann fór alveg í brunanum og eftir það, eink- um af ágangi skepna meðan enginn var hér á staðnum. Við byrjuðum svolítið aftur í vor að rækta garð. Eins hefur komið til tals að setja niður skógarplöntur hér uppi í Borg inni. Áður fyrr veitti alþingi styrk til garðsins, en hann er nú fallinn niður. Áform hafa verið um að Framhald a bls. 15. Prestssetrið á Borg. Myndin er tekin ofan úr Borginni, Hörpusilki er framleitt úr plastþeytu, sem gefur því óviðjafnanlega eiginleika. í Hörpusilki er að finna sameinaða alla kosti gúmmímálningarinnar, olíumálningarinnar og olíu plastmálningarinnar. Hörpusilki er framleitt í 20 standard litum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.