Morgunblaðið - 09.05.1963, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 09.05.1963, Qupperneq 22
22 MORGUNBLAÐIÐ Fimmtudagur 9. maí 1963 England — Brazilía 1-1 LANDSLEIKURINN milli Eng- lands og Brazilíu, sem fram fór á Wembley-leikvanginum í Lond on í gær, endaði með jafntefli: 1-1. í hálfleik var staðan 1-0 fyr ir Brazilíu. $%%%%%%%%%%% Bridge %%%%%%%%%%%% NÝLEGA var efnt til skoðana- könnunar um hverjir væru beztu bridgespilararnir á íslandi. Náði könnum þessi til meðlima Bridge félags Reykjavíkur, Bridgefélags kvenna og Tafl- og Bridgeklúbbs ins. Úrslit urðu þessi: 1. Lárus Karlsson 2. Þorgeir Sigurðsson 3. Hjalti Elíasson 4. Þórir Sigurðsson 5. Gunnar Guðmundsson 6. Jóhann Jónsson Áður hefur verið getið hér í blaðinu, hverjir skipa sveit þá, sem keppa mun á Evrópumót- inu, sem fram fer í Baden-Baden í júlí n.k. Nú hefur verið ákveð- ið að Guðlaugur Guðmundsson verði fyrirliði og fararstjóri sveitarinnar. Heimsmeistarakeppnin fer fram í Hotel Billia, St. Vincent á Ítalíu dagana 15.—23. júní n.k. Sænsku meistarakeppninni er lokið og sigraði sveit frá Stokk- hólmi, sem er þannig skipuð: Anulf, Wohlin, Christensson, Zachrisson, Karlgren og Molin. Enska bridgesambandið hefur ákveðið að 6 sveitir skuli keppa um réttinn til á keppa á Evrópu- mótinu. Mun keppnin fara fram 3.—24. maí n.k. ítölsku meistarakeppninni er lokið og sigraði hin fræga sveit, sem kennd er við fyrirliðann, Perroux. Auk hans eru í sveit- inni: Avarelli, Belladonna, Chiaradia, D,Alelio, Forquet og Carozzo. Þessi sveit mun keppa fyrir Ítalíu á heimsmeistara- keppninni, sem fram fer í júní. Mikil bridgekeppni hefur verið ákveðin 5.—9. júní n.k. í Hotel Ville Bellevue í Júgóslavíu. Er hér um að ræða tvímennings og sveitakeppnir, sem eru öllum opnar. Er reieknað með mikilli þátttöku m. a. frá Austurríki, Þýzkalandi, Ítalíu og fleiri lönd- um. Brazilíumenn settu mark sitt á 18. mínútu og var það á mjög óvenjulegan hátt. Vinstri útherj inn, Jose Pepé, tók fríspark um 30 metra frá markinu og sendi knöttinn inn í markteiginn og hafði enski markvörðurinn næg- an tíma til að grípa knöttinn, en virtist misreikna fjarlægðina og knötturinn datt í vinstra horn marksins. Enska liðinu tókst ekki að jafna fyrr en 6 mínútur voru til leilksloka, og var þar hægri út herjinn, Bryan Douglas, að verki, eftir góða sendingu frá fyrirliða enska liðsins og hægri bakverði, Jimmy Armfield. Hinn frægi leikmaður, Pelé, var ekki með, þar eð hann lénli í bílslysi í Hamborg sl. mánu- dag, ásamt framverðinum, Zito, sem einnig slasaðist og gat held ur ekki leikið í gær. Áhorfendur voru 92.000 og þar á meðal um 80 íslendingar. Sinnep með molakaffinu Á MELAVELLINUM í Reykja- vík er rekin einhver óhentug- asta, en jafnframt ein nauðsyn- legasta veitingastofa höfuðborg- arinnar. Gegn köldum vallargestum þykir að vonum gott að geta haldið við líftórunum með heit- um molasopa eða jafnvel pylsu jmeð sinnepi. Augljóst er, að í kulda og stormi (eins og undan- farið) hefur þessi þjónusta átt sinn þátt í lífsviðhaldi hinna óhraustari íþróttaunnenda. Þetta er allt gott og blessað, en einn stór galli er á gjöf Njarð- ar. Veitingasala þessi er til húsa í skúr, sem rúmar um 20 manns með góðu móti. Aðeins einar dyr eru og þær þröngar. Menn geta ímyndað sér handaganginn, þeg- ar hundruð áhorfenda flykkj- ast samtímis að veitingasölunni í von um viðurgjörning. Að vísu eru þrír gluggar á hressingar- skála þessum, sem að jafnaði er afgreitt um. En í kulda og mold- roki er óforsvaranlegt að opna gluggana og öll þjónusta fer fram innan dyra. f leikhléi nær þessi frumstæði sjónleikur hámarki sínu. Börn og fullorðnir troðast, stympast og velta um „salarkynnin" en kaffi, Rvíkur mótið Staðan í Reykjavíkurmót- inu er nú þessi: Valur .. 4 3-1-0 7:3 7 st. 4 2-1-1 10:7 5 - 3 1-0-2 6:6 2 - 3 0-0-3 0:7 0 - Næstu leikir fara fram n.k. sunnudag kl. 2 og keppa þá Valur og Fram og n.k. mánu dagskvöld kl. 8 og mætast þá KR og Þróttur. pylsur og tilheyrandi sinnep eru í hershöndum og algjör tilviljun ef meginhluti veitinganna lend- ir á réttum stað. Þessi lýsing hér að framan er að vísu ófögur og jafnvel ótrú- leg, en ég veit, að hundruð vall- argesta kannast við hana af eig- in raun. Það er íþróttafélag Reykja- víkur, sem stendur fyrir veit- ingasölunni og er illskiljanlegt, að jafn virkt og myndarlega rek- in samtök láti þetta viðgangast. „Vallargestur með vnnepi“. Sænsifa liðið Hellas keppir í kvöld við íslandsmeistarana Fram. Verður án efa skemmtilegt að sjá hvemig Svíunum tekst á móti Fram, sem er sterkasta liðið okkar í dag. íslandsmótið 23. maí Þróttur KR ... Fram FRÉTZT HEFUR, að íslandsmót ið í knattspyrnu hefjist 23. maí n.k., (Uppstigningardagur) og fara þá fram 3 leikir í I. deild. Fram mætir Akureyri á Laugar- dalsvellinum. kl. 16 og KR kepp ir við Akurnesinga, einnig á Laugardalsvellinum, kl. 20,38. Valur sækir nýliðana í I. deild heim og keppir við Keflvíkinga í Keflavík kl. 16. Án efa verður keppnin mjög hörð, jöfn og spennandi, ef tekið er tillit til leikja þeirra, sem þeg Forsala aðgöngumiða FORSALA aðgöngumiða að leik Úrvalsins við Hellas nk. laugar dag á Keflavíkurflugvelli er haf in. Miðar eru seldir í bókaverzl unum Lárusar Blöndal í Vestur- veri og við Skólavörðustíg og í bókaverzlun Olivers Steins í Hafnarfirði. ^Úr leik Vais og KR í Reykjavíkurmótinu, þar sem Valur sigraði með þremur mörkum einu. Myndin sýnir, er Gunnar Guðmannsson skoraði eina mark KR, úr hornspyrnu. gegn ar bafa farið fram. Eins og áður I landsmótinu Ijúki 1, september. verður spiluð tvöföld umferð í Keppni í öðrum flokkum hefst I. deild og er fyrirhugað að ís- I í byrjun næsta mánaðar. Iðnverkamenn Viljum ráða lagtækan iðnverkamann, sem gæti tekið að sér bílakstur ásamt annarri vinnu. Nýja Blikksmiðjan Höfðatúni 6 ekki svarað í síma. Skrifstofuhúsnæði óskast 2—3 skrifstofuherbergi í miðbænum óskast til leigu nú þegar, eða síðar á þessu ári. Tilboð með upp- lýsingum sendist afgr. Mbl. fyrir 14. maí, merkt: „Skrifstofuhúsnæði — 6960“. Kaupfélagsstjórastaða við Kaupfélag Reykjavíkur og nágrennis er laus til umsóknar. Umsóknarfrestur er til 20. maí n.k. Um- sóknir sendist Ragnari Ólafssyni hrl. Laugavegi 18, Reykjavík. Stjórn Kaupfélags Reykjavíkur og nágrennis. — Bezf oð augtýsa i Morgunblaðinu —

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.