Morgunblaðið - 14.05.1963, Page 4
20
MORCVNBLABIB
Þriðjudagur 14. maí 1963
Tilkynning frá Stýrimanna-
félagi íslands
Framhaldsaðalfundur verður haldinn í dag þriðju-
daginn 14. maí að Bárugötu 11, uppi, kl. 20,30.
DAGSKRÁ:
Reikningar félagsins fyrir árið 1962.
Stjórnarkjör — Önnur mál.
Fjölmennið. Stjórnin.
Mauðungaruppboð
það sem auglýst var í 11., 12. og 14. tbl. Lögbirtinga-
blaðsins 1963 á efri hœð húseignarinnar nr. 27
við Smáratún í Keflavík, eign Ara Sigurðssonar fer
fram að kröfu uppboðsbeiðenda á eigninni sjálfri
miðvikudaginn 22. maí 1963 kl. 3 e.h.
Bæjarfógetinn í Keflavík.
Afgreiðslumaður
óskast í varahlutaverzlun vora. Unglingur 16—18
ára kemur til greina. — Framtíðaratvinna. —
Upplýsingar á skrifstofunni í dag kl. 5—-7.
Gunnar Ásgeirsson hf.
Suðurlandsbraut 16.
Jörð á suðurlandi
til sölu
Jörðin er mjög vel hýst. Nýlegt íbúðarhús. Fjós og
hlaða úr steinsteypu. Ræktað tún ca. 30 ha. — Sími
og rafmagn. — Upplýsingar gefur:
ÁRNI GRÉTAR FINNSSON, hdl.
Strandgötu 25. — Hafnarfirði. — Sími 50771.
Sendiferðir - innheimta
Vantar pilt eða stúlku til sendiferða og innheimtu-
starfa. Eldri maður kemur einnig til greina. —
Upplýsingar á skrifstofu okkar.
Nathan & Olsen hf.
Sildveiðar — Skipstjórar
Aflasaell skipstjóri óskast á ca. 200 lesta nýtt skip,
sem verður tilbúið í haust. Sameign án framlags
kemur til greina eigi úrvalsmaður í hlut. Listhaf-
endur sendi nöfn sín til afgr. Mbl. fyrir 23. maí n.k.
merkt: „Þagmælsku heitið — 5925“.
NYKOMIQ
Karlmannaskór
Sandalar
i
karlmanna, telpna og drengja.
Ódýrir og góðir.
SKÓVERZLUN
* PÉT'URS A N DRÉSSQN Aj
Ragnar Jóhannesson
cand. mag. 50 ára
ÞAÐ er reyndar óþarfi að kynna
„rjóh“, því að þann knáa, sí-
glaða mann þekkir þjóðin af
verkum hans nú þegar, enda er
það svo, að þegar ég hugsa til
hans á þessum tímamótum,
kemst ég jafnskjótt í sólskins-
skap. Fyrir bragðið verð ég —
annarra vegna — að bregða upp
svipmynd af samferðamanni,
vini og dáðadreng.
Ragnar Jóhannesson er fædd-
ur í Búðardal í Dalasýslu. For-
eldrar hans voru Jóhannes Jóns-
son skósmiður, en hann var
raunar lengst verzlunarmaður
þar, og kona hans, Guðrún Hall-
dórsdóttir frá Arnardal við ísa-
fjarðardjúp. Stúdent varð Ragn-
ar frá Menntaskólanum á Akur-
eyri 1934, settist þegar í nor-
rænudeild háskólans og lauk
þaðan kandídatsprófi fimm ár-
um síðar.
Ragnar tók mikinn þátt í fé-
lagslífi háskólans, t. d. í Stúd-
entaráði og formaður þess um
skeið og í stjóm Stúdentafél.
Reykjavíkur. Og það hafa þeir
Fyrir-
liggjandi
Teak
3—514 íet, 2x4—6”
Yang
2x6”
Oregon pine
3t4x5 *4”
Brenni
2 og 2*4”
Abachi
1*4”
Mahogni
2”
Birki
2, 2*4 og 3”
Eikarspónn
1. flokks
Teakspónn
1. flokks
Harðpiastplötur.
Væntanlegt í næstu viku:
1, 1*4 og 2”
Pá!l Þorgeirsson
l44tgavegi 22. — Sími 16412.
menn sagt mér, sem voru með
honum í háskólanum, að hann
hafi verið með skemmtilegustu,
ef ekki manna skemmtilegast-
ur, af þeim, sem voru honum
þar samtíða. Þegar náminu var
lokið, tók Ragnar að sér ýmis
störf, en var eðlilega fyrst og
fremst eftirsóttur til ýmissa rit-
starfa, og má gjarnan minna á,
að hann starfaði fyrir Fálkann,
Alþýðublaðið og útvarpið á þess-
um tírna,, en síðan var hann hér
á Akranesi skólastjóri Gagn-
fræðaskólans í tólf ár eða frá
1947—59.
Þótt ég vildi gjarnan telja upp
sitt af hverju af því, sem Ragn-
ar hefir verið fenginn til að gera
um ævina, til að gleðja vini og
aðra, því að oft hefir verið til
hans leitað í þeim efnum, get
ég vitanlega ekki verið þekktur
fyrir að gera slíkar kröfur til
rúms Morgunblaðsins. Ragnar
hefir nefnilega verið liðtækur á
svo mörgum sviðum, og svo
margir leitað til hans, að ég
þekki engan, sem hefir verið eins
eftirsóttur að því leyti.
En ég kemst ekki hjá því að
geta um fáein af þeim trúnaðar-
störfum, sem honum voru falin
— meðan hann dvaldist á Akra-
nesi. Hann var t.d. formaður
Stúdentafélags Akraness 1947—
51, og aftur var hann formaður
Stúdentafélags Miðvesturlands
1953—55, og síðan á ný 1957—
58, en loks var hann formaður
Alþýðuflokksfélags Akraness
1959—60. Enn má geta þess, að
hann var formaður Rotaryklúbbs
Akraness 1952—53. Jafnframt
öllu þessu var hann beðinn að
hafa á hendi ritstjórn ýmissa
tímarita og blaða, sem voru gef-
in út hér og víðar og hann
bryddaði upp á ýmsum nýjung-
um af því tagi í bæjarfélaginu,
sem hér væri alltof langt upp
að telja. Barnabækur hefir
hann skrifað margar, leikrit
einnig, og ekki veit ég tölu á
þeim skemmtiþáttum eftir
hann, sem útvarpið hefir birt og
bæði ég 1. aðrir verið þakklátir
fyrir. Hann hefir einnig unnið
við þýðingar, t.d. My Fair Lady
og þótt margir „standi í
ströngu“ í því efni, verður
það ekki sagt um Ragnar, því að
allt leikur þetta í höndum hans
— og væri kannske réttara að
segja, að það leiki honum á
tungu.
Það liggur í augum uppi af
því, sem ég hefi verið að telja
hér upp, að „rjóh“ hefir komið
víða við og snortið marga
strengi, bæði viðkvæma og
sterka, og kem ég þá einmitt að
því, sem ég tel eiginlega aðal-
atriði þessara orða. Ragnar
kenndi börnum mínum á sínum
tíma og hann ávann sér ást
þeirra og virðingu. Eins hefir
hann orðið ógleymanlegur okk-
ur, sem höfum sent honum börn
okkar til uppfræðslu. Honum er
svo lagið að vekja og gleðja
barnssálina, blása lífsanda i
námsgreinarnar og opna nýja
heima, sem börn þurfa að kynn-
ast. Ég nefni aðeins eitt dæmi —
í meðförum hans tók mannkyns-
sagan á sig ævintýrablæ, svo að
nemendurnir gleymdu stund og
stað.
Kynni okkar Ragnars voru
mest á sviði Rotary-klúbbsins,
þar sem hann starfaði af lífi og
sál, svo sem í mörgum öðrum
félögum. Var hann burðarásinn
í skemmtanalífinu hjá okkur i
R. A. og nefni ég hér aðeins eitt
sýnishorn, svo að menn megi
sannfærast. Og það er táknrænt
að hann yrkir þarna undir lag-
inu „Vormenn íslands":
Látum ríg og fjandskap falla,
félagsskapar glæðum yl,
bætum fús hvern brest og galla,
bræðra vorra hugsun til.
Einvöld gæzka alls, sem lifir,
efli starfiö, hlúi þvi,
breiði heill og ástúð yfir
allra þjóða Rotary.
Stríð og úlfúð heiminn hryggja,
hefta þroskann, spzlla sið,
frelsisþrá og félagshyggja
fastar þarf- að spyrna við.
Léttir böli heiftar hafta,
1. jóðni ;tríð og vopnabrak.
Sýndu í verki kærleiks krafta,
karlmennskunnar Grettistak.
En ég þekki Ragnar fyrir
fleira en -líka „herhvöt", því að
ég hefi átt því láni að fagna að
vera ferðafélagi hans í langferð
suður um lönd. í ferðalögum
kynnist maður einna bezt, og þar
kynntist ég líka mannkostum
Ragnars bctur en áður. Ég vissi,
þegar haldið var ð heiman, að
hann var á^ætisdrengur, en ég
vissi ekki, hve mikið ljúfmenni
hann var, fyrri en í þessari ferð.
Tækifærisrc- Ragnars eru
alkunnar, bæði hér á Akranesi
og annars staðar, en aldrei mun
honum takast betur upp, en þeg-
ar ..„nn tal. fyrir minni
kvenna. Ég er viss um, að kona
hans, Ragna Jónsdóttir, eigi þar
sinn þátt, því að hún er kven-
kostur bezti og manni sínum
frábærlega samhent.
.ið sjálfsögðu gæti ég haldið
lengi áfram skrifum um Ragnar,
því að nn á slíkt skilið, en hér
ræður rúmið, h—.ær „lokin”
renna upp. Þess vegna verð ég
að láta staðar numið, og eru þeir
áreiðanh _ . fleiri . ég, sem
harma það. En Ragnar á —arga
fleiri, stóra heiðursdaga fram-
undan, og þeir gefa okkur og
vinum hans kærkomin tækifæri
til þess að þakka honum alla
skemmtun, tryggð og vináttu. Og
honum, konu og börnum óska ég
góðs gengis um langa fra-ntíð.
3. Þ.
THRIGE
FÓLKSLYFTUR
Einkaumboð fyrir
THOMAS B. THRIGE,
Odense
Tæknideild
sími 1-16-20.
LUDVIG
STORR
Útvegum hinar velþekktu
thrige-fólkslyftur
af öllum stærðum, með eða án
SÖFNUNARKERFIS.
Leitið tilboða og tæknilegra
upplýsinga.
Höfum sérfræðing £ lyftu-
tækni, sem veitir alla tækni-
lega aðstoð.