Morgunblaðið - 14.05.1963, Side 16

Morgunblaðið - 14.05.1963, Side 16
107. tbl. — Þriðjudagur 14. maí 1963 SGÖGIH STERKog stílh'reTisí POt-A’Rsc— VIÐREISNIN" HEFUR GERT LAUNÞEGA VINNUÞRÆLA ## 1 •* N Vðt þa% nú skártj í mófruhdriindunurn / bdt-3 VXtlnu JÍ tetJ ðustur i Síbtríu Þa V&ri miiur <?<L minníta kosii ðd Yihni fyrir rnálsUbihn Spjöll á vegum á Austuriandi Blautir en óskemmdir vegir fyrir norðan AÐFARANÓTT sunnudags og fram á dag rigndi mikið á Aust- ur- og Norðurlandi og urðu spjöll á vegum austanlands og norð- austan, en vegirnir á Norður- landi eru óskemmdir, en blautir. Ástandið er sérlega slaemt á Héraði, því ekki ér hægt að koma tækjum eftir vegunum þar til að gera við, að því er Helgi Hallgrímsson hjá Vegagerðinni tjáði blaðinu. Vegirnir voru mjög blautir fyrir og þoldu illa þessa viðbótarrigningu. Klaki er í jörðu og vatnið sígur því hægt niður. Skriður á vegi Vegirnir niður á firðina urðu ekki eins illa úti. En aurskriða féll á veginn skammt frá Eski- fjarðarkauptúni og skemmdi hann. í gær var viðgerð hafin. Þá féll snjóskriða á Oddsskarðs veginn og lokaði honum. í gær- morgun var verið að skoða skriðu fallið og búizt við að hægt yrði að hefjast handa um að ryðja veginn síðdegis. Allir fjallvegir eystra eru opnir að undantekn- um vegunum um Fjarðarheiði og Oddsskarð. Norðanlands eru vegir blautir og linir, en engin spjöll urðu á þeim, að því er Snæbjörn Jónas- son verkfræðingur tjáði blaðinu. Eru þungatakmarkanir þær, sem settar voru í vegina þegar aur- bleytan var mest í vor, enn í gildi og verður þeim ekki aflétt fyrr en þornar, til að forða veg- unum frá skemmdum. En spáð er að brátt fari að þorna. Áhafnir frá Eim- ship fara utan f GÆR fóru 16 manns af áhöfn Guiilfoiss utan með flugvól frá Flugfélagi íslands. Þetta voru 10 hásetar og 6 úr þjónustuliði skipsins. Gullfoss á sem kunnugt er að leggja af stað heim 8. júní. í fyrri viku fór áhöfnin á Bakkafossi, nýja skipinu, £Lug- leiðis txl Kaupmannahafnar. Lagði Bakkafoss úr höfn s.l. laug ardag áleiðis til Finnlands, en þaðan kemur skipið heim ag fyrst að Austfjörðum. Endurtók mótmæli MBL. ræddi í gær við Henrik Sv, Björnsson, ambassador íslands í London, og innti hann eftir því, hvort hann hefði haft eitthvað nýtt fram að færa, er hann ræddi við utanríkisráðherra Breta, Lord Home, sl. föstudag. Ambassadorinn svaraði því til, að hann hefði aðeins ítrek að fyrri yfirlýsingar, er gefn- ar hefðu verið vegna Mil- woodmálsins. Hefði utanríkisráðlherrann veitt þeim móttöku, en að öðru leyti kvaðst ambassador inn ekki hafa frá neir.u því að skýra, er varpað gæti nýju ljósi á málið. Utanríkisráðuneytið hefuri tekið fram, að erindi ambassa dorsins hafi ekki verið ann- að, en taka enn í þann streng, er áður hefur verið tekið, svo sem frá hefur verið skýrt, í fréttum. Systkinin Kristgeir Sigurgeirsson og Katla (Ljósm.: Sv.Þ.) Þrír strákar kveiktu í fötum 8 ára drengs Brunagatið á buxum Kristgeirs ÁTTA ára drengur, Kristgeir Sigurgeirsson, og fjögurra ára systir hans, Katla, urðu fyrir árás þriggja drengja á aldrinum 13—14 ára um kl. 4 sl. laugardag. Hugðust þeir kveikja í fötum Kötlu litlu, en henni tókst að kornast undan því bróðir hennar réðst að drengjunumi Þeir lögðu Krist geir á jörðina og kveiktu í buxum hans. Drengirnir þrír komust undan eftir að hafa framið ódæðið. Morgunblaðið talaði í gær við Kristgeir litla og sagðist honum svo frá um atburðinn, að þau systkini hefðu verið að leika sér fyrir utan húsið þar sem þau eiga heima, Álfta mýri 28. Þá hefðu komið þar að þeim þrír strákar á aldrinum 13—14 ára, að því er hann heldur, og talað um að kveikja í systur hans og gert sig lík- lega til þess. Kristgeir segist hafa hlaup- ið að þeim til varnar systur sinni og ráðizt á einn þeirra og á meðan hefði V.atla systir hans notað tækifærið og forð- að sér burtu. Strákarnir hefðu þá tekið hann og skellt á jörðina og haldið honum þannig liggj- andi á bakinu. Þeir hefðu svo kveikt á eldspýtum og reynt að kveikja í buxna- skálminni, en það hefði ekki tekizt. Þá hefðu strákarnir tekið það ráð að kveikja á nokkr- um eldspýtum í einu og setja svo logandi í eldstpýtustokk- inn, sem þeir hefðu lagt á hægri buxnaskálmina rétt við hnéð. Svo hefði stokkurinn fuðr- að upp og blossinn kveikt í buxunum. Þá hefðu strák- arnir hlaupið burtu. Kristgeir sagðist hafa reynt að slökkva eldinn, strax og hann varð laus við strákana. Brann í gegn um buxurnar og einnig í gegn um nærbuxurn- ar og inn í skinn, sem roðnaði upp af hitanum. Það, sem forðaði Kristgeiri frá enn meiri bruna, var að gallabuxur hans höfðu verið bættar um hnén, svo og nær- buxurnar, þannig að eldurinn varð að fara í gegnum fer- falt efnið a.m.k. Kristgeir segir, að strákarn- ir hefðu kallað hvern annan nöfnunum Gunni, Bjössi og Botti. Einn þeirra hefði verið rauðhærður en hinir Ijóshærð ir. Þeir hefðu farið í áttina að Hlíðunum, tveir þeirra verið með reiðhjól og reitt þann þriðja. Kvaðst Kristgeir hafa heyrt þá vera að tala um að hann væri sá fimmti, sem þeir hefðu kveikt í. Loks sagði Kristgeir litli, að stúlka, 17—18 ára, hefði komið þarna að og hlaupið á eftir strákunum og náð tveim- ur þeirra, sem hún hefði sleg- ið utan undir fyrir tiltækið. Rannsóknarlögreglan hefur nú mál þetta til meðferðar og eru það eindregin tilmæli hennar, að allir þeir, sem gætu gefið upplýsingar um málið, gefi sig fram hið fyrsta, svo og allir foreldrar, sem eigi börn, sem hafi orðið fyrir slíkum árásum. x

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.