Morgunblaðið - 17.05.1963, Qupperneq 10
1U
m o p c r v rt r 4 n i b
Fostudagtir 17. maí 1963
SKRIFSTOFUSTARF
Skrifstofustúlkur
Viljum ráða nokkrar ungar stúlkur til
skrifstofustarfa strax. Nokkur vélritunar-
kunnátta er nauðsynleg. Nánari upplýs-
ingar gefur Starfsmannahald SÍS, Sam-
bandshúsinu.
STARFSMANNAHALD
i/orur
Kartöflumús — Kakómalt
Kaffi — Kakó
Straumnes
Nesvegi 33.
IMý sending
Sumarkjólar
Skólavörðustíg 17 — Sími 12990.
Selfoss nágrenni
Námskeið í snyrtingu verður haldið á Selfossi 18.
til 19. maí. Kennt verður meðferð og notkun á
snyrtivörum, allar nánari upplýsingar og móttaka
pantana í Bókabúð K.Á. og verzluninni Austur-
vegi 65.
Bifreiðaleigan Hjól hf.
Leigjum eftirtaldar bifreiðar án ökumanns.
COMMER COB
STATION
SINGER VOUGE
HILLMAN
SUPER MINX
Eingöngu nýir bílar.
IIJÓL H.F. Hverfisgötu 82 — Sími 16370.
Ódýrasta fáanleg vegg- og loftklæðning er
HARDTEX
kostar nú eftir nýja verðlækkun aðeins kr. 20,83 pr.
ferm. — Sendum gegn póstkröfu hvert á land sem er.
MARS TRADING COMPANY H.F.
Klapparstíg 20. — Sími 17373.
Stúlka eða kona
óskast til afgreiðslu eða eldhúsvinnu.
Sími 16908.
AIXT MEÐ
Eðvald Bóasson
óðalsbóndi í IXIittedal
EIMSKIP
A næstunni ferma skip vor
til Islands, sem hér segir:
NEW YORK:
Dettifoss 14—19. maí.
Selfoss 3.—7. júní.
KAUPMANNAHÖFN:
Skip um 24- maí.
Gullfoss 6.—8. júní.
LEITH:
Tröllafoss um 23. maí.
Gullfoss 10. júní-
ROTTERDAM:
Dettifoss 6.—7. júní.
HAMBURG:
Tröllafoss 17.—21. maí-
Dettifoss 9.—12. júní.
ANTWERPEN:
.....foss um miðjan júní.
HULL:
Hegra 18- maí.
Tröllafoss 21.—25. maí.
GAUTABORG:
Skip um 27. maí.
VENTSPILS:
Lagarfoss um 30. maí-
GDYNIA:
Lagarfoss um 28. maá.
FINNLAND:
Bakkafoss (Hamina)
17. maí.
Lagarfoss (Turku) 2. júní-
Vér áskiljum oss rétt til að
breyta auglýsri áætlun, ef
nauðsyn krefur.
Góðfúslega athugið „ð
geyma auglýsinguna.
hf. eimskipafélag
ISLANDS
Eðvald Bóasson, óðalsbóndi á
Dhal-Nordre í Nittedal, Noregi,
er fæddur og uppalinn í Reyðar-
firði, sonur þeirra merkishjóna,
Sigurbjargar Halldórsdóttur og
Bóasar Bóassonar, er lengst af
bjuggu á Stuðlum í Reyðarfirði.
Eðvald Bóasson la^ik búnaðar-
námi frá Hvanneyrarskóla 1913
og sama ár fer hann til fram-
haldsnáms í Noregi.
Auk þess sem Eðvald lagði
sérstaka rækt við sauðfjárrækt-
arnám og skrifaði bók á norsku
um sauðfjárrækt, þá lauk hann
almennu búfræðikandidatsprófi
frá Búnaðarháskólanum að Ási
árið 1917.
Vegna stríðsorsaka og ófriðar
í heiminum, þá atvikaðist það
þannig, að hann komst ekki heim
til sins föðurlands að loknu námi
til starfa, sem hann hafði ætlað
sér, heldur réðst sem sauðfjár-
ræktarráðnunautur í Valresfylki
í Noregi nokkur ár.
Það var kornrækt og síðar
svína- og hænsnarækt, sem bónd
inn á Dhal lagði sig mest fram
við, og er nú svo komið, að bú
hanns er þekkt viðs vegar um
Norðurlönd fyrir góðan afurða-
stofn og myndarbrag í hvívetna,
er að þessum búnaðargreinum
lýtur. Hefur hann m.a. oft hlotið
verðlaun og aðrar opinberar við-
urkenningar fyrir bústofn, frá-
gang á afurðum, slátrun á alifugl
um og fleiru er viðvíkur nefnd-
um búskap. Það var fyrst árið
1938 að framleiðsla hans hlaut I.
verðlaun á almennri sýningu, en
síðan aftur t.d. árin 1959, 1961 og
1962.
Þrátt fyrir að það hafa orðið
forlög Eðvalds Bóassonar að
dvelja fjarri sínu föðurlandi, þá
hefur hann ætíð verið góður ís-
lendingur og leitast við að verða
lengri og skemmri tíma við störf
á hans myndarlega búi, sérstak*
lega áður en þeir hafa farið út i
erfiðara framhaldsnám í Noregi
og hefur hann á einn og annan
hátt stutt og stuðlað að námi
landa sinna meðan þeir hafa
dvalið meðal Norðmanna. Norsk-
ir bændur hafa einnig oft sinni*
heiðrað þennan íslenzka bónda
fyrir forustustörf og nýjungar;
þeir telja hann réttilega braut-
ryðjanda á ýmsum sviðum I
fyrrnefndum búgreinum.
Nú, þegar Dhal-Nordre er orðið
stórbýli bæði í ræktun, bygging-
um og almennum búnaðar-„kúl-
túr“, innan húss sem utan, þó er
það mild tilfinning og vist stolt,
sem grípur um sig meðal ferða-
langa frá Fróni- að sjá íslenzkan
fána blakta við hún I vorblíð-
unni, sem tákn þess, að hér hef-
ur góður drengur og iðjusöm
hönd lyft grettistaki, við oft erf-
iðar aðstæður, s.s. í síðasta ófrið,
sem lék þetta heimili hart, eins
og svo mörg önnur norsk á þeim
árum.
Nú, þegar Eðvald Bóasson er
70 ára, þá hefur hans yngsti son-
ur og nafni tekið við búforráð-
um á Dhal, enda þegar fengið
góða og dýrmæta reynslu í starfi
með föður sínum á uppvaxtarár-
unum. Aðrir tveir synir þeirra
Dhal-hjóna eru: Tryggvi, sem nú
er verzlunarskipaútgerðarmaður,
og Snorri, rafmagnsiðnfræðing-
ur. Allir eru þeir bræður orðnir
fjölskyldumenn og hefur afmæl-
isbarninu og konu hans hlotnazt
10 elskuleg barnabörn við þessi
merku tímamót, er hlakka til að
sjá „Sögueyjuna" og eru stolt af
landinu hans afa síns frá íslandL
Kona Eðvalds Bóassonar er frú
Signe, fædd Knudsen, ættuð öðr-
um þræði frá kaupmanna- og
bændafólki úr Þrándarlögum 1
Noregi.
landi og þjóð til sóma. Margir
ungir íslendingar hafa dvalið
Skipstjóri óskast
Skipstjóri óskast sem meðeignarmaður að 70—80
tonna bát, með blökk og sjálfleitandi mælir. Þyrfti
að vera vanur síldveiðum. Mjög hagstæð kjör.
Uppl. gefur Landssamband ísl. útvegsmanna.
Árið 1948 kom þessi norsk-ís-
lenzka fjölskylda í heimsókn til
íslands — heimilisfaðirinn eftir
35 ára útivist frá föðurlandi. „Ég
vissi að framfarir voru óskiljan-
lega miklar á íslandi," sagði Eð-
vald Bóasson þá með stoltum
hreim, „en að ég gæti glaðst yfir
svo stórfenglegum framförum,
sem raun ber vitni, því óraði mig
ekki fyrir.“
Ættingjar og vinir á íslandl
senda afmælisbarninu beztu ósk-
ir og þökk fyrir það sem liðið er.
Við vonumst eftir að komandi
fjölskyldur, ættaðar frá Eðvaldi
Bóassyni frá Stuðlum í Reyðar-
firði, eigi eftir að styrkja bræðra
lag þessara tveggja frændþjóða á
ókomnum árum. Sú tilviljun, að
afmælisdagur íslenzka bóndans i
Noregi ber upp á 17. maí, þjóð-
hátíðardag Norðmanna, verður
hér tákn þess manns er kominn
er útaf norrænum stofni en á sin
tvö föðurlönd. — ebm.