Morgunblaðið - 23.05.1963, Síða 2
2
MORCVISBL AÐIB
Fimmtudagur 23. maí 1963
n«Mi
VEÐUR hefur verið um-
hleypingasamt á Aust-
fjörðum, en s.l. föstudag
þegar fréttamaður blaðsins
og ljósmyndari áttu leið
um Staðarskarð frá Reyð-
arfirði til Fáskrúðsfjarðar,
skein sólin í heiði, og út-
Félagsheimilið Skrúður. (Ljósm. Sv. Þ.).
Félagsheimiliö Skrúður
á Búðum vígt
ávörp flutt. Hátíðin. fór vel
fram og að loknum ræðuhöld
um var dansað fram eftir
nóttu.
Blaðinu hafa borizt fréttir af
vígsluhátíðinni frá fréttarit-
hrópi. Þá tók til máls Gunnar
Jónsson formaður sameigin-
legrar nefndar félaganna, sem
að byggingunni stóðu, en þau
eru: Verkalýðs- og sjómanna-
félag Fáskrúðsfjarðar, Ung-
mennafélagið Leiknir, Slysa-
varnafélagið Hafdís, Kvenfé-
lagið Keðjan og Heimilisiðn-
aðarfélag Fáskrúðsfjarðar.
Veitti Gunnar húsinu viðtöku
fyrir hönd félaganna.
Siðan flutti Jakob Stefáns-
son oddviti Búðahrepps ávarp
og Guðlaugur Sigurðsson
flutti tvö hátðíaljóð, sem sam-
in voru í tilefni vígslunnar.
Höfundur ljóðanna vildu ekki
láta nafna sinna getið, en
þeir eru báðir búsettir á
Búðum.
Nokkrir gesta þeirra, sem
viðstaddir voru vígsluna tóku
síðan til máls og óskuðu heima
mönnum til hamingju með hið
veglega félagsheimili. Meðal
þeirra voru Axel Tulinius
sýslumaður Suður-Múlasýslu,
Þorsteinn Einarsson íþrótta-
Mæg atvinna í kauptúninu
og ýmsar framkvæmdir
a dotmm
sýni var hið fegursta. Leið-
in lá til Búða við Fáskrúðs
fjörð, en við höfðum fregn
að, að þar ætti að vígja fé-
lagsheimili daginn eftir.
Lögðum við því leið okkar
að félagsheimilinu, sem
reyndist vera hin glæsileg-
asta bygging. Verið var að
Axel Tuliníus sýslumaður
óskar Fáskrúðsfirðingum til
hamingju með nýja félags-
heimilið.
leggja síðustu hönd á inn-
réttingu samkomusalar-
ins og margir menn að
vinnu.
Við hittum að máli Jón
Erling Guðmundsson, sveitar-
stjóra, og léði hann okkur
ræðu, er hann flutti við vígsl-
una og fjallaði að mestu um
Frá vígslu félagsheimilisins.
gang byggingar félagsheimil-
isins og menn þá, er hönd
höfðu lagt á plóginn. Fer hér
á eftir úrdráttur úr ræðu
sveitarstjórans.
★ ★
Félagsheimilið var teiknað
á teiknistofu Gísla Halldórs-
sonar, en yfirumsjón með
byggingu þess hafði Einar
Sigurðsson, skipasmiður í
Odda, og menn úr bátasmiða
stöð hans önnuðust tréverk og
steypuvinnu. Garðar Guðna-
son, rafvirkjameistari á Búð-
um annaðist raflagningar, og
Áskell Norðdal, pípulagn-
ingameistari, sá um lagningu
miðstöðvar. Málningu húss-
ins að innan annaðist Guð-
mundur Auðbjörnsson, mál-
arameistari á Eskifirði. Húsið
var málað að utan á s.l. ári.
Vann skipshöfn Fáskrúðsfjarð
arbátsins Ljósafell verkið í
sjálfboðavinnu á einum degi.
Grunnflötur félagsheimilis-
ins er 468 fermetrar, en það
er 2760 rúmmetrar. Á neðstu
hæð þess, sem er ekki full-
gerð, verða skriístofur Búða-
hrepps, bókasafn, lesstofa,
sem jafnframt má nota fyrir
fundarhöld, föndurherbergi,
íbúð, kyndiklefi og geymslur.
Líkur benda til þess, að þessi
hæð verði fullgerð þegar í
sumar.
Á miðhæð félagsheimilisins
er 127 ferm, samkomusalur,
47 ferm. áfastur veitingasalur,
56 ferm. leiksvið, eldhús, búr,
forsalur, tvö búningsherbergi
fyrir leikara og fjögur snyrti-
herbergL Á efstu hæð hússins,
sem nær ekki yfir nema nokk-
um hluta grunnflatar, er rúm
fyrir kvikmyndavélar og fund
arsalur, sem enn er ófullgerð-
ur. Félagsheimilið kostar nú
um 3 milljónir og 400 þúsund
með innanstokksmunum. Bygg
ing þess hófst 1957, og síðan
hefur verið unnið við það
nokkurn tíma á hverju ári.
Fyrri árin var eingöngu unnið
á sumrin, en s.l. þrjú ár hefur
einnig verið unnið á veturna,
en aldrei heilt ár samfellt.
Samkomusalur félagsheimilis-
ins tekur um 250 menn í sæti.
Sveitarstjóri skýrði okkur frá
því, að ekkert hefði verið
leitað út fyrir kauptúnið um
lán til félagsheimilisbygging-
arinnar. Sparisjóður Fáskrúðs
fjarðar hefði lánað það sem til
þurftL
★ ★
Við vígslu félagsheimilis-
ins á Búðum, sem fram fór
s.l. laugardag eins og áður
segir, voru margar ræður og
Séð yfir Búðahöfn.
ara sínum á Búðum. Skýrir
hann frá því, að hátíðin hafi
hafizt kl. 8.30 á laugardags-
kvöldið með því að kirkjukór
Fáskrúðsfjarðar söng sálm.
Síðan flutti sóknarprestur Þor
leifur Kristmundsson ávarp og
lýsti nafni heimilisins, en það
heitir Skrúður. Er sóknar-
fulltrúi, Friðgeir Þorsteins-
son, oddviti Stöðvarhrepps,
Stefán Björnss. oddviti Fá-
skrúðsfjarðarhrepps, og Kristj
án Jónsson, hreppstjóri Stöðv-
arhrepps.
Áður en dansinn hófst, að
ræðum loknum, var gestum
boðið að skoða félagsheimilið.
(Myndirnar frá vígslunni tók Gunnar Weldholm).
Ijón Erlingur Guðmundsson sveitarstjóri (t.h.) afhendir Einari
Sigurðssyni fánastöng að gjöf sem þakklætLsvott fyrir störf
hans í þágu félagsheimilisbygg ingarinnar.
prestur hafði lokið máli sínu
flutti Jón Erlingur Guðmunds
son sveitarstjóri ræðu þá er
rakin er í stórum dráttum hér
að ofan. Síðan afhenti hann
Einari Sigurðssym fánastöng
að gjöf frá framkvæmdanefnd
byggingarinnar og félagasam
tökum þeim er að henni stóðu.
Er gjöfin þakklætisvottur
fyrir vel unnin störf í sam-
bandi við bygginguna. Er af-
hending hennar hafði farið,
fram hylltu vígslugestir Einar
Sigurðsson með ferföldu húrra
Viðstaddir vígsluna voru um
300 manns.
★ ★
Á meðan við stöldruðum við
á Búðum á föstudaginn, rædd
um við við sveitarstjórann og
Jóhann Antoníusson skóla-
stjóra, sem er ásamt tveim-
ur félögum sínum að koma
upp síldarsöltunarstöð í kaup-
túninu. Jón Erlingur sveitar-
stjóri sagði okkur, að tíðar-
far hefði verið gott i vetur,
en spillzt nokkuð með vor-
Frarríh. á bis. 15.