Morgunblaðið - 23.05.1963, Qupperneq 3

Morgunblaðið - 23.05.1963, Qupperneq 3
^ Fimmtudagur 23. maí 1963 m o n r. r v n r. 4 rt i ð 3 Hefur kennt móöur- málið í fimmtíu ár lauk ég við Kennaraskólann og fór aftur að Stórólfshvoli í eitt ár og síðan að Sólheim- um í Mýrdal og var þar í tvö ár. Þá vildi svo til, að skólasystir mín, Hjaltlína Guð jónsdóttir, sem var þá ráð- in kennari við Landakotsskól- ann, giftist séra Sigtryggi Guð laugssyni á Núpi, og tók ég við stöðu hennar. það var ár- ið 1918 og síðan hef ég kennt við þennan skóla og unað vel hag mínum. Þetta er æviferill minn í stórum dráttum, hann er ekki ýkja flókinn eins og sjá má.“ „Var ekki óaigengt í yðar ungdæmi, að stúlkur legðu fyrir sig kennslustörf?“ „Jú, ekki var það algengt. Ég er alin upp í Skál á Síðu og þar lærði ég að lesa og skrifa, en þurfti að fara í næstu sveit til að læra reikn- ing. Mér sóttist námið vel og þegar ég var um fermingu var ég beðin að taka að mér kennslu á næsta bæ, sem ég og gerði í nokkrar vikur. Ég fór svo í unglingaskóla hjá Skúla Skúlasyni, prófasti í Odda. Nokkru seinna fór ég í Kennaraskólann, eins og fyrr segir, settist í 2. bekk og lauk burtfararprófi þar árið 1915. — Ég var svo heppin, að íslenzkukennari okkar í Kennaraskólanum var Sigurð- ur Guðmundsson, síðar skóla- meistari á Akureyri, og lærði ég margt og mikið hjá hon- um. Hann er einhver bezti kennári, sem ég get hugsað paér og var honum sérlega um- hugað um að vekja áhuga okkar nemendanna á rituðu máli“. „Það hefur líklega margt breytzt á þessum 50 árum, sem þér hafið kennt?“ „Já, mjög margt. Þegar ég byrjaði að kenna við Landa- kotsskólann fór mest öll kennsla fram á dönsku. Starfs hættir allir hafa breytzt eftir því sem árin hafa liðið, mest var breytingin þegar nýju fræðslulögin tóku gildi og öll próf voru samræmd. Einnig hefur einu sinni verið breytt um stafsetningu í minni kenn- aratíð". „Þér hafið alla tíð fengizt við islenzkukennslu?" „Já, og íslands sögu.“ „Eruð þér þeirrar skoðunar að börnin í dag séu verr að sér í móðurmálinu en t.d. fyr- •ir fimmtíu árum?“ „Ég vil engan dóm á það leggja, en málsmekkur þeirra er annar nú en í þá daga. Ég hugsa að það stafi af því, að áður fyrr lásu börn ís- lendingasögurnar og lærðu þær utanbókar — ég kunni t.d. flestar þeirra utan að, þegar ég hóf skólagöngu — en nú lesa börnin meira af þýddum bókum, sem þ.ví mið- ur eru misjafnleg vel þýddar. Lestrarefnið hlýtur óhjá- kvæmilega að hafa áhrif á málsmekk þeirra. En ég er þeirrar skoðunar, í fyrradag var síðasti prófdag urinn í Landakotsskóla. Börn- in luku við verkefnin, kvöddu kennslukonurnar og héldu út í góða veðrið. Framundan var langt og bjart sumar. En það voru fleiri en börn- in, sem kvöddu Landakots- skólann þennan dag, þetta var líka síðasti starfsdagur Guð- rúnar Jónsdóttur, íslenzku- kennara, sem nú lætur af störfum eftir að hafa kennt í 50 ár. Guðrún var heldur treg til að hafa samtal við blaðamenn Morgunblaðsins og taldi það varla ómaksins vert. „Það hef- ur ekki margt á daga mína drifið", sagði hún, ;,ég hef kennt alla mína ævi elskuleg- um og góðum börnum. Elztu nemendur mínir eru nú komn ir á sjötugsaldur". „Hvar og hvenær hófuð þér kennslu?“ „Það var á Stórólfshvoli í Rangárvallasýlu, árið 1911 þar kenndi ég í þrjú ár. Eftir það að það sé sérgáfa að geta samið reglulega vel og ekki á allra faeri. Það er hægt að læra að tala móðurmálið vel, en ritleiknin fer ekki eftir því og er afár einstaklings- bundin.“ „Er nauðsynlegt að vera kaþólskur til að kenna við kaþólska skóla?“ „Nei, ég var ekki kaþólsk, þegar ég kom að skólanum — hafði að vísu eitthvað ver- ið að glugga í kaþólskum trú- arbrögðum á skólaárum mín- *um — en nú hef ég tekið kaþólska trú.“ „Haldið þér að þér saknið ekki skólans eftir öll þessi ár?“ „Jú örugglega, og ef til vill get ég tekið að mér smávegis tímakennslu næsta vetur. í sumar ætla ég upp á fjöll með Guðmundi Jónassyni eða ein- hverju ferðafélagi, það hef ég gert í mörg ár.“ „Og hafið þér farið víða um landið.“ „Já, ég hef komið í hverja sýslu og farið víða um öræf- in. Það er afskaplega yndis- legt og yngjandi að ferðast upp á reginfjöll. Ef til vill má geta þess, að ég hef einnig farið margar gönguferðir um landið. Sumarið 1926 fór ég fótgangandi frá Hornafirði austur og norður um land alla leið til Borgarness. Ferða- félagi minni í þeirri ferð var einn nemandi minn, Ingibjörg Guðmundsdóttir, kona Þor- valds Guðmundssonar hótel- stjóra. Hún var þá í 5 bekk Menntaskóla Reykjavíkur. Ég ferðaðist mikið um á hestum, þegar ég var ung, en nú fer ég í rútubílum; Það er þægi- legra fyrir manneskju sem kominn er á áttræðisaldur- inn.“ Hg Systir Clementia bað okk- ur geta þess í lok samtalsins, að á sunnudaginn yrði haldið smá samsæti til heiðurs Guð- rúu Jónsdóttur í Landakots- skóla. Þeir neméndur hennar, sem hefðu hug á að heilsa upp á frk. Guðrúnu þá, eru beðnir að hafa samband við skólann í síma 1-76-31 milli kl. 1—3 og 5—7. (3 SR GÍSLI BRYNJÓLFSSON: Btí ER LANDSTÖLPI i ■ ■ Samgöngurnai og drelibýliö EKKERT er eins brýn nauðsyn fyrir fólkið í dreifðum byggðum þessa strjálbýla lands eins og góðar samgöngur, — tíðar sam- göngur, öruggar árið um kring eins og hægt er í okkar mis- viðrasama landi. Á þessu sviði hefur ágætur árangur náðst. Þann árangur munu allir stjórn- málaflokkar vilja þakka sér og er þeim það ekki láandi. Hins vegar ber það ekki vott um traustan málstað þegar reynt er að fara með blekkingar eins og flokkar stjórnarandstöðunn- ar hafa gert í þessu máli. í blöðum stjórnarandstöðunn- ar hefur því hvað eftir annað verið slegið fram, að það hafi orðið samdráttur í vegagerðum og brúargerðum hin síðari ár, síðan viðreisnin hófst. Hann kemur berlega fram ef gerður er samanburður á fjár- veitingum til þessara mála und- anfarin ár annars vegar, en hins vegar tekið tillit til kostnaðar- ins. Sá samanburður lítur þann- ig út: Fjárveiting Nýir vegir ................. Viðhald .................... Nýjar brýr.................. Samtals Ef gert er ráð fyrir að hækk- un á kostnaði við framkvæmdir nemi um 45% þá sést að hækk- un á fjárveitingum er mun meiri og þar af leiðandi hefur meira verið gert. Þess ber líka að geta, að vegaféð nýtist nú betur en áður, þar sem unnið er á færri stöðum en fyrir meira fé ár hvert. Þannig var unnið á 218 stöðum árið 1958 en hins- vegar er gert ráð fyrir, að unn- ið verði á 123 stöðum á þessu ári. Með þessu notast lands- mönnum betur að vegafénu og fást þannig lengri vegir fyrir sömu upphæð og samgöngubót- unum miðar betur áfram. í samgöngumálum hafa verið miklar framfarir, stöðugt vax- andi framfarir undanfarandi ár. Allt tal um samdrátt og aftur- för á þessu sviði er því stað- lausir stafir, framkomið vegna gremju þeirra manna, sem mis- notuðu völdin og brugðust þeim trúnaði, sem þeir fengu hjá þjóð sinni á sínum tíma. Nú munu samgöngur okkar komnar í það horf, að um % hlutar landsfólks- ins fá póst sinn daglega. Og hann berst þeim það fljótt, að blöðin koma daginn eftir útkomudag- inn. Það er ekkert langt síðan, að talað var um það sem æski- legt takmark, að hvert heimili 1958 1963 Hækkun 24,9 millj. 42,3 millj. 70% 33 — 63 — 91% 16,3 — 26,2 — 61% 74,2 millj. 131,5 millj. 77% fengi póst vikulega. Svona hafa framfarirnar orðið örar. Nú er takmarkiá það, að póstur berist um allar byggðir landsins á degi hverjum. Og það mun takast ef vel er að unnið. — Nú eru í undirbúningi ný vegalög, sem munu marka stefnuna á þessu sviði. Stjórnarflokkarnir munu fylgja þeim fram eins og fleiri, umbótamálum, ef þeir halda þingstyrk sínum eftir kosning- arnar. Skynsamleg og framsýn löggjöf og heilbrigð fjármála- stefna verður undirstaðan und- ir framförum í samgöngumálum eins og á fleiri sviðum. Við alla þá, sem vinna að sönnum fram- förum og heilbrigðri uppbygg- ingu í samgöngumálum má segja það sama og Davíð kveður í kunnu ljóði, víða eru í byggðunum björg og keldur enn, sem bíða ykkar, starfsglöðu vegabótamenn. G. Br. Dæmdir fyrir Gyðingaof- sóknir á dögum Hitlers Koblenz, 21. maí — NTB LOKIÐ er í Koblenz stríðs- réttarhöldum, sem eru ein þau lengstu, sem um getur í V-Þýzkalandi. Hinn ákærði, Georg Heu- ser, fyrrverandi SS-foringi, var sekur fundinn um níu morð og eitt manndráp. Á- kæruvaldið hélt því hins veg- ar fram, að Heuser hefði sjálf- ur skotið a.m.k. 210 Gyðinga, á stríðsárunum. Auk Heusers voru tíu aðrir fyrrverandi nazistar fyrir réttinum í Kobienz. Ákæran gegn þeim fjallaði um morð 180.000 rússneskra og v-evr- ópskra Gyðinga á valdatíma Hitlers. Hafa réttarhöldin staðið frá því í október s.l. Aðstoðarmaður Heusers, Franz Stark, var einnig sek- ur fundinn um morð og hryðjuverk, og var hann dæmdur í hegningarvinnu til æviloka. Stark er 62 ára. Aðrir, sem nú voru fyrir rétt inum, 9 talsins, voru dæmd- ir í allt frá fjögurra til tiu ára hegningarvinnu. Því var lýst yfir, að gögn, sem sovézk yfirvöld hefðu lagt til, vegna réttarhaldanna, hefðu reynzt mjög þýðingar- mikil. Heuser starfaði hjá lögreglu yfirvöldunum í Rheinland, er hulunni var svipt af blóðferli hans 1959.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.