Morgunblaðið - 23.05.1963, Blaðsíða 15
Fimmtudagur 23. maí 1963
MORGXJ'NBLAÐIÐ
15
tlr bá'tasmíðastöð Einars Sigurðs sonar á Búðum. Þrír bátar eru
í smíðum eins og sjá má á myndinni.
endur á aldrinum 7—14 ára
hefðu stundað nám við barna-
og unglingaskóla staðarins í
vetur, og í sumar væri ráði
að starfrækja dagheimili í
skólahúsinu.
Á Búðum er síldarverk-
smiðja, sem brann fyrir tveim
ur árum, en hefur nú verið
endurbyggð og um leið stækk
uð. Frá þeim framkvæmdum
hefur verið skýrt í blaðinu.
Bátasmíðastöð Einars Sig-
urðssonar var stækkuð s.l.
haust, og batnaði þá aðstaða
til innivinnu. Er við litum
inn í bátamiðstöðina voru
þar þrír bátar í smíðum 15,
10 og 6—7 tonna. Þeir stærri
eru seldir og á annar að fara
til Þórshafnar, en hinn til
Seyðisfjarðar.
S. J.
— Fáskrúðsfjörður
Framh. af bls. 2
inu. Fimm stórir bátar væru
nú gerðir út frá Búðum og
allmargir opnir vélbátar, en
afli hefði verið tregur að und
anförnu. Tveir stærstu bát-
arnir hefðu verið fyrir sunn-
an í allan vetur á netavertið.
6 hús væru nú í smíðum á
Búðum, atvinna næg og hætt
við að skortur yrði á vinnu
afli í sumar.
Jóhann Antoníusson skýrði
okkur frá því, að síldarsöltun-
arstöð sú, sem þeir félagar
eru að reisa, yrði önnur af
tveimur slíkum á Búðum. Hin
söltunarstöðin væri rekin af
Hraðfrystihúsi staðarins og
stæði yfir stækkun á henni.
Hann sagði okkur, að 114 nem
Iðnskóla
Akureyrar
slitið
Akureyri, 20. maí-
IÐNSKÓLA Akureyrar var slitið
fyrir skönunu. Skólastjórinn,
Jón Sigurgeirsson, fiutti skóla-
slitaræðu og afhenti brautskráð-
um iðnnemum prófskírteini. í 4.
bekk var 31 nemandi, en í 3.
bekk 32 auk 10 nemenda í teikni-
greinum. 30 luku brottfararprófi,
28 úr 4. bekk og 2 úr 3- bekk.
Hæstu einkunn á lokaprófi hlaut
Franz Viðar Árnason, vélvirki,
8,59. — 1 1. og 2. bekk voru 64
nemendur, en námi í þeim
bekkjum Ijúka þeir á einum
vetri.
Flestir nemar voru í húsasmíði
(26), bifvélavirkjun (19) oig
skipasmíði (13), en alls voru í
skólanum nemar í 23 iðngrein-
um.
Námskeið í rafsuðu og log
suðu var haldið á vegum skólans
nú í vor með stuðningi nokkurra
vélaverkstæða í bænum. Sóttu
það 40 nemar í málmiðngreinum
Kennari var Steinar Guðmunds-
son frá Reykjavík, og lét hann
hið bezta af árangrinum. Þátt-
takendum voru afhent skírteini
að námskeiðinu loknu.
Ennfremur gekkst skólinn fyr-
ir námskeiði í ensku. Þátttak-
endur voru 26, en kennari Aðal-
steinn Jónsson, efnafræðingur.
Kostað verður kapps um, að
framihald verði á verklegum nám
skeiðum og í tungumólum.
Húsnæðisskortur stendur starfi
skólans mjög fyrir þrifum, en
kennsla fer nú fram á fjórum
stöðum í bænium.
Við skólann starfaði í vetur
1 fastakennari auk skólastjóra og
10 stundakennarar.
— Sv- P.
Aðalfundur Bunaðarsam-
bands Kjalarnesþings
— samþykkti þakkir til landbúnaðarráðherra
BÚNAÐARSAMBAND Kjalar-
nesþings hélt aðalfund sinn í Hlé
garði hinn 3. maí sl. Skýrsla for-
manns samtakanna bar með sér
batnandi hag og meiri fjöl-
breytni í vélakosti sambandsins.
Aðalfundurinn samþykkti þakk-
ir tii landbúnaðarráðherra, Ing-
ólfs Jónssonar, fyrir þátt hans í
uppbyggingu lánasjóða landbún-
nðarins.
Formaður sambandsins, Jó-
hann Jónasson, setti fundinn og
minntist látinna félaga og starfs-
tnanns, Magnúsar Einarssonar,
ráðunauts, er fórst í janúar við
skyldustörf.
Fundarstjórar voru þeir Krist-
inn Guðmundsson á Mosfelli og
Jón M. Guðmundsson á Reykj-
um, en ritarar þeir Magnús Blön-
dal og Gunnlaugur Ólafsson. —
Mættir voru fulltrúar af saun-
bandssvæðinu frá Kjós og til og
með Hafnarfirði, 29 að tölu.
Sunnan Hafnarfjarðar mætti
enginn, enda þótt Gullbringu-
eýsla sé á sambandssvæðinu.
Skýrsla formanns var ítarleg
og bar vott um batnandi hag og
meiri fjölbreyttni í vélakosti.
Pétur Halldórsson hefur verið
ráðinn sem búfjárræktunarráðu-
nautur í stað Magnúsar heitins
Einarssonar. Þá var framkvæmd
mikil áburðardreifing á sam-
bandssvæðinu og áframhaldi
verður á því. Kristófer Grims-
son, jarðræktarráðunautur, las
og skýrði reikningana en Pétur
Hjálmsson gaf skýrslu um kyn-
bótastöðina og skylda starfsemi
þar. Nautahald er nú lagt niður
en sæði keypt frá Laugardælum.
Jóhannes Eiriksson, ráðunautur
frá Búnaðarfélagi íslands, flutti
erindi.
Þakkir til landbúnaðarráðherra
Fjöldi mála kom fram og fjöll-
uðu þingnefndir um þau, t.d. um
innheimtu búnaðarmálasjóðs-
gjalds, breytt fyrirkomulag sýn-
inga, um forðagæzlu, gjald
vegna áburðardreifingar, sem
nemur 2,00 kr. á vetrarfóðraða
kind. Þá var fellt að taka þátt í
málsókn vegna 1% gjaldsins til
stofnlánadeildar landbúnaðarins,
en tilmæli bárust um það frá
Austfirðingum.
f því tilefni var samþykkt svo-
felld tillaga:
„Aðalfundur Búnaðarsam-
bands Kjalarnesþings, haldinn í
Hlégarði 3. maí 1963, þakkar
landbúnaðarráðherra þátt hans í
uppbyggingu lánasjóða landbún-
aðarins. Jafnframt harmar fund-
urinn afstöðu meiri hluta Bún-
aðarþings til þessa máls“.
Þá var að lokum samþykkt til-
laga um að fundurinn hvetti
félögin á sambandssvæðinu til
að halda lög Búnaðarfélags ís-
lands varðandi félagssvæðin.
Stjórnarkjör
Tveir menn áttu að ganga úr
stjórn og voru þeir endurkjörnir
og þá sömuleiðis í önnur emb-
ætti. Stjórnin er skipuð þessum
mönnum: Jóhann Jónasson, for-
maður; meðstjórnendur eru: Ein
ar Halldórsson, Ólafur Andrés-
son, Einar Ólafsson og Björn
Konráðsson. Varastjórn Sig-
steinn Pálsson, Tryggvi Stefáns-
son og Ól. Ág. Ólafsson. Endur-
skoðendur: Gunnlaugur Ólafsson
og Gunnar Árnason.
Að lokum sagði formaður nokk
uð nánar frá húsakaupum sam-
bandsins og samþykkt var til-
laga sem þakkaðar voru rausn-
arlegar veitingar frá Álafossi hí
á fimmtíu ára afmæli sambands
ins á sl. hausti. Lesin var fund-
argerð og fundi slitið um kl. 23,
— J.
MIIDCR KRISTiSSOH
GULLSMIÐUR. SlMl 16979.
Intemational Construction Equip
ment Exhibition CRYSTAL
PALACE, London, 25. 6. — 57.
1963.
/ ■ 0
r L0 WEN ELUR ER K . ; i *
Tilboð óskast án skuldbindinga. Bréfaskipti á dönsku, norsku,
sænsku, ensku, þýzku.
V. L0WENER
VESTERBROGADE 9B - K0BENHAVN V. - DANMARK
TELEGRAMADR.: STAALL0WEN ER - TELEX: 5585
Aðalfundur
Sölusambands ísl. fiskframleiðenda haldinn í Sjálf-
stæðishúsinu miðvikudaginn 12. júní, 1963 kl. 10 f.h.
DAGSKRÁ:
1. Formaður stjórnar setur fundinn.
2. Kosning fundarstjóra, ritara og kjörbréfanefndar.
3. Skýrsla stjórnarinnar fyrir árið 1962.
4. Reikningar Sölusambandsins fyrir árið 1962.
5. Lagabreytingar.
6. Önnur mál.
7. Kosning stjórnar og endurskoðenda.
IMý sending
Svissneskar
kvenblússur
GLUGGINN
Laugavegi 30.
Sendisveinn
með skellinöðru óskast í tvær vikur.
Hátt kaup. Umsóknir leggist inn á afgr.
Mbl. merkt: „5822“.
SkrifstofumaSur
Eitt af stærstu fyrirtækjum í Reykjavík óskar eftir
ungum, reglusömum skrifstofumanni. Verzlunar-
skóla eða hliðstæð menntun æskileg. Uppl. um
menntun og fyrri störf sendist Mbl. merkt: „Skrif-
stofustörf — 5819“ fyrir n.k. sunnud.