Morgunblaðið - 23.05.1963, Blaðsíða 4
20
M O R r. T’ T* T 4 n 1 B
Fimmtudagur 23. maí 1963
Hfínnzt 100 án afmælis
Hálfdáns Guðjónssonar, vígslubiskups
ÞESSI dagur gefur tilefni til
þess að minnast þessa manns að
nokkru, þótt nú sé hann genginn
fyrir rúmlega fjórðungi aldar.
Hann er fæddur í Flatey á
Breiðafirði 23. maí 1863. Foreldr-
ar hans voru: Séra Guðjón Hálf-
dánarson (bróðir Helga lektors).
Faðir þeirra var hinn merki pró-
fastur Hálfdán Einarsson á Eyri,
og móðir þeirra var kona hans
Sigríður Stefánsdóttir Stephen-
sen, síðast prests að Reynivöll-
um. í latínuskólann kom Hálf-
dán 16 ára, 1879. Tók þaðan
stúdentspróf eftir 5 ár, því að
hann þurfti, sakir dauða föður
síns, að flýta námi, og tók því
tvo síðustu bekkina á einum
vetri, og varð stúdent um vorið
1884. Guðfræðikandidat eftir 2
ár, vorið 1886. Tók prestsvígslu
með aldursleyfi sama ár, haustið
1886. Vígðist til Goðdala í Skaga-
firði. Fluttist þangað einn þá
þegar og hóf prestskap. Má þetta
kallast glæsilegur og rösklega
genginn námsferill. Næsta vor
mun hafa flutzt til hans að Goð-
dölum móðir hans, amma hans
og a.m.k. tvær systur. — Rak
hann svo brátt búskap allmikinn
í Goðdölum samhliða preststarf-
inu. Svo fór fram allt til 1894.
Var honum þá veittur Breiðabóls
staður í Vesturhópi. Því kalli
þjónaði hann svo í 20 ár, eða til
árs 1914, er hann fékk veitingu
fyrir Reynistaðaklausturspresta-
kalli í Skagafirði að afstöðnum
allhörðum prestskosningum þar,
þó eigi harðsnúnum frá hans
hendi, því að hann kom aðeins,
talaði við fólkið, prédikaði og
reið síðarv vestur og heim, áður
en kosning fór fram. Þessu presta
kalli (Sauðárkróks- og Reyni-
staðarsókn) þjónaði hann svo frá
1914 og æ síðan, meðan kraftar
entust. Bjó hann í húsi því er áð-
ur var sr. Árna Björnssonar, er
þá var fyrir ári fluttur að Görð-
um á Álftanesi. Sr. Björn Stef-
ánsson var settur prestur það ár
á milli var.
Sr. Hálfdán hafði kvænzt árið
1897. Kona hans var Herdís Pét-
ursdóttir Pálmasonar frá Vala-
dal, síðar á Álfgeirsvöllum. Er
Valadalsætt ein af merkustu
manndómsættum í Skagafirði
síðustu aldar að líkamlegu og
andlegu atgervi og skáldmælt
vel. Enda var maddama Herdís
frábær ágætiskona, einnig að
gáfum og gjörvileik. Hafði hún
staðið trúlega með manni sínum
í lífsstarfi hans meðan heilsa og
kraftar leyfðu. En á það skorti
allmjög nokkur síðustu ár henn-
ar. Hún lézt á Sauðárkróki 25.
jan. 1928. — Um konu sína segir
sr. Hálfdán sjálfur í æviágripi
sínu við biskupsvígslu, síðar
sama ár: „Framúrskarandi trúar-
þrek konu minnar og stilling
studdu hana svo í þrautum og
raunum lífsins, að hún átti jafn-
an örugga og vonglaða Guðs-
barnalund til dauðans. Með því
létti hún einnig mér byrðar lífs-
ins og skilnað okkar við dauða
hennar, og skildi mér eftir ljúf-
ustu samfundavonir fyrir ævi-
kvöld mitt“.
Eftir lát maddömu Herdísar
hélt sr. Hálfdán áfram húshaldi
með aldurhniginni konu úr
Fram-Skagafirði (Sveinbjörgu
Sveinsd.), er verið hafði hjá þeim
og þau þekktu að ráðdeild og
dugnaði. Enda reyndist hún nú
vel er á reyndi. „Byrðar lífsins",
er sr. Hálfdán aðeins drepur á í
tilfærðum orðum hans, hafa
vissulega oft hvílt á þessum
merkishjónum sambúðartíma
þeirra rúm 30 ár, þótt sólrík
tímabil yrðu á milli. Hann hafði
átt við alvarlega vanheilsu að
stríða síðustu prestsskaparárin í
Goðdölum. Og maddama Herdís
hafði allmörg ár síðari hluta æv-
innar þurft að reyna þungbæra
vanheilsu. Sorg hafði einnig sótt
að þeim hvað eftir annað. Þrjú
börn sín misstu þau í æsku. Og
af þeim tveim, er til fullorðins-
ára komust, misstu þau annað á
tvítugsaldri, Sigriði, gáfaða
stúlku, efnilega og elskulega. Að-
eins yngsta barnið af fimm lifir,
ÖtgerHarmenn - Skipstjórar
Af gegnu tilefni vekjum vér athygli útgerðarmanna og
skipstjóra á því að vér höfum fimm þjónustu umboðs-
menn á íslandi, til að annast niðursetningar, viðgerðir og
viðhald á KRAFTBLOKKUM og aflkerfi þeirra. Allir
þjónustu umboðsmenn vorir hafa birgðir af varahlutum,
sem vér viðurkennum hæfa að gæðum til notkunar fyrir
KRAFTBLOKKIR? Tökum vér fram, að eins árs ábyxgð
vor fyrir verksmiðjugöllum fellur úr gildi ef aðrir en
viðurkenndir umboðsmenn vorir framkvæma viðgerðir
á kraftblokkunum eða aflkerfi þeirra.
Eftirfarandi fyrirtæki hafa þjónustu umboð á Islandi;
Vélsmiðjan Þrymur h.f., Borgartúni 25, Reykjavík
Sími 2 0140.
Vésmiðjan Magni h.f., Vestmannaeyjum.
Dráttarbrautin h.f., Neskaupstað.
Vélsmiðja Áma VaJmundarsonar, AkureyTÍ.
Vélsmiðjan Þór h.f., ísafirði.
Aðalumboðið á íslandi: I. Pálmason h.f.
Austurstræti 12
Reykjavík
Sími 2 4210.
Rapp Fabriker A.S. flslo
J/•/^ *
VÆ vanda
nn. \
rh 9eVr WdT
s.olar Op
>r
HJÓLBARÐINN
Laugavegi 178
— Sími 35260.
sonurinn Helgi. Hann var 16 ára
er móðir hans lézt. — Hann er
lyfsali á Húsavík, landþekktur
maður fyrir bókmenntir, stíl- og
skáldgáfu og margháttað list-
fengi. Þau hjón ólu upp fóstur-
dóttur, Sigríði Sigtryggsdóttur
(einnig fósturson, Stefán Sveins-
son). Hún dvaldi í fóstri þeirra
frá 8 ára aldri, er hún missti
móður sína og til fullorðins ára.
Hún var systurdóttir sr. Hálf-
dáns. Hún giftist svo bróðursyni
maddömu Herdísar, Pétri Hann-
essyni, landþekkt valmenni, —
eitt ennþá í Valadalsætt, •—
skáldmæltur vel. Þeirra börn
eru þrjú: Hannes skáld, Sigrún
Sigríður og Hanna. Öll bera þau
atgerviseinkenni ætta sinna á
ýmsan hátt.
Það eru áreiðanlega margir,
skyldir og óskyldir, sem bera
minningu þessara prestshjóna í
þakklátum hjörtum.
Elfur tímans streymir. Sama
árið, sem sr. Hálfdán missir konu
sína, tekur hann vígslu í Hóla-
dómkirkju af frænda sínum, dr.
Jóni biskupi Helgasyni, sem
vígslubiskup Hólastiftis 8. júlí
1928. Hélt hann þeirri vegsemd
til æviloka. Frá því tækifæri
mun mynd sú, er hér fylgir. En
eftir 54 ár ríður aldan yfir. Hinn
3. nóv .1933 veikist sr. Hálfdán
snögglega. Gætti strax mjög mik-
illar fötlunar, einkum á heila- og
taugakerfi. Læknir taldi hér um
heilablóðfall að ræða. Lá hann
næstu mánuði allmarga, rúm-
fastur. Komst þá á fætur og varð
reyndar allhress. En þótt hann
með kostgæfni og miklum vilja-
krafti sínum reyndi að eignast
orð og mæli smám saman, og tók
jafnvel að lesa og ofurlítið að
skrifa. Þó má segja að hann bæri
eki barr sitt framar, miðað við
það sem var. Prófasturinn nýi,
Guðbrandur Björnsson og sókn-
arnefndir önnuðust um að ná-
grannaprestar inntu af hendi
nauðsynleg prestsstörf. En hann
komst nú til nokkurrar heilsu
um hríð, og fylgdist andlega með.
Hann lézt í sjúkrahúsi Sauðár-
króks 7. marz 1937.
Séra Hálfdán var vel hæfur
starfsmaður til margvíslegra
starfa auk preststarfsins. Hann
var maður fjölfróður og víðles-
inn, stílfær og mælskur veL
Kenndi t.d. mörgum piltum und-
ir skóla. Voru honum því falin
ýmis störf í héraði, í sveitar-
stjórn og skólamálum, og hefur
notið trausts og viðurkenninga á
ýmsan hátt, er lítt verður hér
talið. Þó verður að geta þess að
hann sat á Alþingi 1909—1911,
var prófastur í Húnaþingi í 8 ár,
og í Skagafirði í 9 ár. Og 1. des.
1928 veittist honum heiðursmerki
Fálkaorðunnar, sama árið og
hann var vígður til biskups.
Sá, sem þetta ritar, sem verið
hefur samstarfsmaður sr. Hálf-
dáns í kirkjumálum, skólamál-
um og ýmsum fleiri, allt í frá því
hann kom prestur til Sauðár-
króks og þar til yfir lauk, eða
full 23 ár, vill að lokum leyfa
sér persónulega að tæpa á
nokkrum minningum frá því
tímabili með þakklæti og virð-
ingu. Eru nú að vísu liðin 25 ár
síðan ég stóð við kistu hans og
kvaddi hann hinztu kveðju. Við
nafn hans sem starfsmanns eru
bundnar margar helgar minning-
ar mínar og annara innan kirkju
vorrar og bæjar og reyndar inn-
an héraðsins alls, norður þar.
Verður það ekki rakið hér. Og
enn líða tímar. Enn koma menn
og hverfa. Enn er alltaf eitthvað
að ske, því að „Lífið yrkir stöð-
ugt og botnar aldrei braginn, og
breytir fyrr en varir um hátt og
ljóðaskil“, segir skáldið. Og þótt
vel sé geymd minning hins gáf-
aða alvörumanns, þá úir og grúir
fram, þegar hreyft er við, svo
margt skemmtilegt og mannlegt,
sem einnig kynnir manninn og
freistandi væri að minnast á.
Þótt sumt kynni að þykja smá-
vægilegt, þá er einmitt margt
slíkt fallið til að lýsa manninum
Framhald á bls. 26
Verzlunarstjóri
Duglegur verzlunarstjóri óskast í matvöru
verzlun. Hátt kaup. Tilboð sendist Mbl.
fyrir laugardag merkt:
,1. júní — 5817“.
SMEKKLEGIR OG VAND-
AÐIR STÁL-SKJALA-
SKÁPAR frá CONSTRUC-
TORS LTD. BIRMINGHAM
fyrirliggjandi.
Verð á 4 skúffu skáp
(foolscap) kr. 3.990.00.
Gísli Jnnsson & Co. hf.
Skúlagötu 26 — sími 11740.
■■■ SÍí’iÆí
. : WW w
■■, • f ■.;... jr 'Wm
' „ • * ! ■
Útgerðarmenn
Slipstjórar!
Gúmmífóðra og gerl
við kraftblakkarhjól.
Gúmmísteypa
florst. Kristjánssonar
Efstasundi 22. Sími 34677..,