Morgunblaðið - 23.05.1963, Side 7
Fimmtudagur 23. maí 1963
MORnvnnr. 4»ið
23
Sýning
Bat Yosef
BAT Yosef sýnir þessa dagana
í Listamannaskálanum. Hún hef-
ur haldið hér tvaer sýningar áð-
ur, en ekki eins umfangsmikl-
ar og þessa sýningu hennar nú.
Þetta er nokkurs konar yfirlits-
sýning á átta ára vinnu frúar-
innar, samt sem áður er meiri
hluti verkanna á sýningunni frá
seinústu árum.
Það er nokkuð erfitt að átta
sig á verkum Bat Yosef á þess-
ari sýningu, fyrst og fremst
vegna þess, hve miklu er hrúg-
að á veggina í skálanum og hve
lítið svigrúm hvert einstakt verk
hefur til að njóta sín. Heildar-
sviþur sýningarinnar biður við
þetta mikið tjón: Hefði lista-
konan valið betur og vandað til
sýningarinnar í heild, hefði hún
sjálf unnið við það. Hér er um
hvimleitt fyrirbrigði að ræða,
sem ætti ekki að eiga sér stað
á alvarlegum listsýningum.
Ég verð að játa það, að þessi
sýning hefur ekki hrifið mig á
neinn hátt. Litameðferð Bat Yos
ef er yfirleitt ekki sterk rg ork-
ar ekki sannfærandi á mig. Það
eru að vísu finnanlegir nokkuð
skapheitir sprettir í sumum
þessara verka, en heildin virðist
ekki nógu samofin til að skapa
eftirminnileg geðhrif. Um meiri
háttar umbrot eða breytingar í
list Bat Yosef er ekki að ræða I
á þessum átta árum, er sýuing-
in nær yfir, nema ef vera skyldi
að hún vinnur heldur liprara og
á frjálslegri hátt en áður í sum-
um yngstu verkunu.n. Litir og
form eru ekki sérlega frábrugð-
in því, er hún sýndi hér fyrst
1957, þó eru þarna nokkur verk,
sem 'háfa miklu ljósari og létt-
ari tóna en þá var. Þegar ég
hugsa til sýningar Bat Yosef í
Bogasalnum 1960, finnst mér sú
sýning hljóti að hafa verið betri
í heild en sú, er hún heldur nú
í Listamannaskálanum. Enn sem
fyrr á Expressionismi og Surreal
ismi nokkur ítök í Bat Yosef, en
hún heldur samt báðum þessum
ismum í hæfilegri fjarlægð, ef
svo mætti að orði kveða. Mál-
verkin No. 31 og 21, 29 og 51,
finnst mér vera þau verk, sem
bezt standa sig á þessari sýn-
ingu. Þar sér maður, að Bat
Yosef getur ýmislegt, sem kem-
ur manni í gott skap, og hefði
sannarlega verið gaman að sjá
sýningu frá hennar hendi, sem
væri meira í þeim dúr.
f sumum vatnslitamyndum
Bat Yosef sér maður meiri
viðkvæmni en þegar hún vinnur
í olíulitum, en klippmyndirnar
finnst mér ekki ná sömu áhrif-
um og þær. Eins og ég hef þeg-
ar sagt, þá get ég ekki með
góðri samvizku sagt, að þessi
sýning sé merkileg eða hafi hrif-
ið mig. Satt að segja varð ég fyr-
ir miklum vonbrigðum að þessu
sinni.
Bat Yosef getur ekki kvartað
yfir heimsókn sinni og viðtök-
um. Mikið hefur selzt á sýningu
hennar og Ríkisútvarpið brá
vana sínum og hafði við hana
viðtal, atburður, sem ég man
ekki eftir, að hafi skeð með
innlendan listamann í tilefni
einkasýningar. En við erum gest
risið fólk fslendingar, og enn
ekki spilltir af alls konar lista-
stefnum eins og Frakkarniry
samkvæmt yfirlýsingu listakon-
unar sjálfrar.
Valtýr Pétursson.
VILHJALMUR ARNASON hrl.
TÓMAS ARNASON hdl.
LÖGFRÆÐISKRIFSTOFA
lönaðsrbaidtahásim. Símar Z463S og 16307
Bifvélavirkjar
eða menn vanir bifvélavirkjun óskast.
Bílaverkstæðið
STIMPILL
Grensásvegi 18.
Poplínkápur
Útprjónaðir japanskir peysujakkar —
Sólbuxur (,,shorts“).
VCttMl VMIM
LAUGAVEG 13
Auglýsing
Borgarverkfræðingur óskar eftir að kaupa 4—5000
rúmmetra af ofaníburði í götur. Efnið skal vera
hæfilega blandað grjóti, sandi og leir, og skilast
í op mulningsvélar í Ártúnshöfða. Afhending skal
fara fram á vinnutíma og lýkur á 15—20 vinnu-
dögum, í byrjun júnímánaðar n.k. Til mála getur
komið minna magn, til reynslu, frá mismunandi
stöðum. Tilboðum sé skilað fyrir kl. 11 þann 31. þ.m.
á skrifstofu vora Vonarstræti 8.
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar.
Dodge Weapon ‘52
Ti sölu er Dogde Weapon ’52. Bíllinn er í ágætis
standi með góðu 10 manna húsi sem þarfnast klæðn-
ingar. Á bifreiðinni er spil. Tilboð sendist blaðinu
fyrir mánaðamót merkt: „Weapon — 5810“.
Matrá&skonu
vantar að póst og símstöðinni Brú Hrútarfirði,
sem allra fyrst. — Nánari uppl. að Brú.
Skrifsfofustúlka
Opinbert fyrirtæki vantar skrfistofustúlku nú þegar
eða sem allra fyrst. Hvorttveggja kemur til greina:
heilsdags- og hálfdags vinna. Gott kaup.
Umsóknir sendist Morgunblaðinu fyrir 28. þ. m.
merktar: „Skrifstofuvinna — 5818“.
VDNDUÐ II n
FALLEG H
ODYR U M
óicfUrpórJónsson & co
Jiáfiia&tiirti 4
ALLT Á SAMA STAÐ
WILLYS
TIL ALLRA STARFA
LÉTTIJR - STERKLR
LIPUR - SPARNEYTIIMIM
VAL ÞEIRRA
VAIMDLÁTIJ
VELJIÐ UM 6 manna eða 9 manna WILLYS-JEPPA.
VELJIÐ ÞANN LIT SEM YÐUR FELLUR BEZT VIÐ.
HURRICANE TOPPVENTLAVÉLIN ER 75 HESTÖFL.
Sérstaklega sterk og endingargóð — og sparneytin.
VIÐGERÓARKOSTNAÐUR ER LÁGUR því auðvelt er
að komast að öllum viðgerðum. Varahlutir ódýrir.
VEGNA LÉTTLEIKA OG LIPURÐAR WILLYS jeppans
kemst hann þær torfærur og ófærð sem önnur samslags
faratæki komast ekki.
FRAMDRIFSLOKUR SPARA benzín 15—25%. Auk minna
slits á um 100 slitflötum.
MISMUNADRIFSLÁSINN eykur aksturhæfni Willys
jeppans um ófærur.
VELJIÐ UM TRAUST OG STERKT EGILS STÁLHÚS
sem er klætt að innan og ryðvarið.
EÐA VELJIÐ WILLYS JEPPA MEÐ AMERÍSKU HÚSI
léttu og traustu.
BEZTIJ KALPIN
ERIJ í WILLYS
PANTIÐ YÐAR
WILLYS TÍMANLEGA
WILLYS hvar sem er.
WILLYS hvert sem er.
WILLYS hvenær sem er.
VARAHLUTIR ÁVALLT FYRIRLIGGJAIMDI HAGKVÆMT VERÐ
YFIR 20 ÁRA
REYNZLA
HF. EGILL VILHJÁLMSSOIM
LAUGAVEG 118 SÍMI 22240