Morgunblaðið - 23.05.1963, Page 10

Morgunblaðið - 23.05.1963, Page 10
20 M O R fí fí N R L 4 f) I Ð Fimmtudagur 23. maí 1963 Sendisveinn Viljum ráða pilt til sendisveinastarfa. Æskilegt að viðkomandi hafi reiðhjól með hjálparvél til umráða og gæti ráðið sig til starfa í minnst 1 ár. Nánari upplýsingar í skrifstofunni. SLÁTURFÉLAB SUÐURLANOS Kjötiðnaður Nokkrar duglegar konur og einnig nokkrir röskir karlmenn óskast til vinnu strax við ýmiss konar kjötiðnaðarstörf í verksmiðju okkar að Skúla- götu 20. Nánari upplýsingar í skrifstofunni. SLÁTURFÉLAG SUÐURLANDS Aðalfundur Bóksalafélags íslands verður haldinn í Þjóðleik- húskjallaranum föstudaginn 31. maí kl. 8 síðdegis. Rætt um 75 ára afmæli félagsins. Venjuleg aðalfundarstörf. STJÓRNIN. Glersalan Gler og ísetningar (Álfabrekkku við Suðurlandsbraut). 4, 5 og 6 mm. gler, undirburður fyrir tvöfalt gler og fleira. — Góð aðkeyrsla. — Sími 37074. Frá barnaskólum Reykjavíkur Börn, sem fædd eru á árinu 1956 og verða því skóla- skyld frá 1. september n.k., skulu koma í skólana til innritunar föstudaginn 24. maí, kl. 1—4 e.h. Ath.: 1.. Börn fædd 1956, sem búsett eru á svæði því, er takmarkast af Kringlumýrarbraut, Suðurlandsbraut, Grensásvegi og Miklu- braut, eiga að koma í Sjómannaskólann til innritunar. 2. Börn fædd 1956, sem búsett eru á svæðinu milli Sundlaugavegar og Laugalækjar, eiga að koma í Laugarnesskólann til innritunar. Fræðslustjórinn í Reykjavík. Hjólbarðaverkstœði Útvegum þessi fljótvirku tæki til hjólbarðaviðgerða bæði fyrir fólks og vöru- bílahjólbarða. Suðutími að eins fjórðungur á við gufu suðutæki. Allar nánari upplýsingar fúslega veittar. Sýnishorn fyrirliggjandi. BÍLANAUST Höfðatúni 2 — Sími 20185. — Minning Framih. af bls. 20 oft eigi síður en hitt, sem merk- ara er talið. Líf vort samanstend- ur af „smámunum". Maðurinn þekkist eigi eingöngu af því, hvemig hann beitir lífsfleyi sínu gagnvart holskeflunum, sem rísa, heldur einnig því, hvernig hann í ótal tilfellum snýst við hinu svokallaða „smáa“. Persónuleiki þessa vinar míns mun t.d. mjög vel þola það og einmitt skýrast betur, er ég segi, að hann var með afbrigðum mað ur hinna eldsnöggu skapbreyt- inga! Þó dáðist ég þó oft að því, hversu hann gat, þrátt fyrir sitt ærlega „stolt" talað hreinskilnis- lega og einlæglega, þegar logn var á komið og um var rætt. Og er ég tala um gustinn, þá minn- ist ég eigi síður hans óvenjulega miklu hjartahlýju, er svo margir nutu, góðfýsi hans og hjálpsemi, er með þurfti. Um það gætu margir borið: Ég eigi öðrum síð- ur. Snemma á tíma í kennslu- starfi mínu og skólastjórn tveggja skóla, sem ég vildi vinna að óhindraður, var hrund- ið á herðar mér miklu og illa séðu sveitarstjórnarstarfi, og það í slíku atvinnuleysishreiðri er kauptún vort var þá. Sr. Hálfdán kom og bauð mér sem eldri mað- ur og reyndur að hjálpa mér til að taka lykkjuna og koma á prjónana. Ég tel, hreint sagt, að honum hafi tekizt þar og reynd- ar furðu fljótt, að gera liðtæk- an foringja úr óvönum, óbreytt- um dáta. A.m.k. var ég látinn ó- hreyfður í starfi því meira en 20 ár. — Hvað eftir annað og einu sinni svo vikum skipti, tók hann að sér kennslu og stjórn í skól- um mínum, er ég forfallaðist. Og þegar kona mín lagðist alvarlega veik, (er síðar leiddi til dauða), sá sr. Hálfdón að hvorki myndi það sjúklingnum hent né smá- börnum mörgum að vera í sama húsi. Óumbeðið tók hann í sitt hús 4 smábörn mín og það 5., stálpaða systur þeirra til hjálpar þeim. Hélt hann og íáðskona hans þau með mikilli umhyggju- semi svo vikum skipti. Allt þetta reyndist svo gjöf, sem ekki sá til að gjalda. — En að ári liðnu kom svo hans eigið veikindaáfall (í nóv. 1933). Sr. Guðbrandur Björnsson hafði nú tekið pró- fastsstörfin. Eftir hans ósk og sr. Hálfdáns sjálfs, tók ég að mér frá nýári til vors fermingarund- irbúning barna í kirkjunni, er prófastur svo fermdi um vorið. Sóknarpresturinn vildi tafar- laust greiða mér starfslaun. Geta má nærri, að ég vildi ei. Um vorið síðar var ég staddur um hríð í Reykjavík. Áður en mig varði, hafði ég tek- ið á móti símaávísun með all- hárri peningaupphæð, sem reynd ist svo vera frá sr. Hálfdáni. — Höfðingjabragð — en bragð þó! Þó vildi ég að lokum minnast þess með miklu þakklæti, hví- líkur ágætur liðsmaður séra Hálfdán reyndist í einu mínu sérstaka áhugamáli — bindindis- málinu. Hann var ekki yfirlýstur né skráður meðlimur Reglunnar. Við komum okkur saman um það. En hvar sem málið kom fram í návist hans á opinberum vettvangi, var hann undireins hinn vígreifi bardagamaður. Betri talmaður gat málið ekki haft innanfélags. Og allra síðast vil ég minnast þess með bros á vör og hressum huga hvílík leiftrandi spaugs- yrði, snögg tilsvör og snjallyrði sr. Hálfdán gat sett fram. Gæti það verið langur listi út af fyrir sig. En hér skal staðar nema. Með niðurlagsorðum sr. Hálf- dáns sjálfs við biskupsvígsluna skal hér enda: „Þegar ég lít yfir liðna ævi mína, finn ég mér ljúft og skylt að flytja söfnuðum mínum öllum fyr og síðar og mörgum góðum vinum utan ástvina og fjölskyldu lífsins, innilegar þakkir fyrir samfylgd og samstarf. Og að lofa Guð fyrir margfalda blessun mér til handa“. Jón Þ. Björnsson frá Veðramóti, f.v. skólastj. Sauðárkróki. Veðskuldabréf með góðri tryggingu óskast til kaups. RANNVEIG ÞORSTEINSDÓTTIR, HRL. Laufásvegi 2 — Sími 19960. Piltur eða stúlka óskast til afgreiðslustarfa í kjötverzlun. Uppl. að Grensásvegi 26 eftir hádegi í dag. Skreið óskast ítölsk stórfyrirtæki óska eftir góðri skreið. Tilboð er greini væntanlegt verð, magn og gæði óskast send Morgunblaðinu nú þegar merkt: „Skreið — 5809“. Rörlagningarmaður Duglegur rörlagningarmaður óskast í 2—3 mánuði út á land í hita og vatnslagnir. Mikil eftirvinna. Tilboð sendist Mbl. f. h. á mánud. 27. þ. m merkt: „Uppgrip — 5821“ Húsnæði óskast Vegna brunans á Laugavegi 11, vantar oss nú þegar 150—200 fermetra verkstæðispláss, helzt sem næst miðbænum. — Vinsamlegast hringið í síma 20560. SKRIFSTOFUVELAR ^ Ottó A. Michelsen Klapparstíg 25—27 Tilkynning til viðskiptavina Vér viljum vekja athygli yðar á því, að þótt verk- stæði vort, að Laugavegi 11, hafi brunnið, verða litl- ar tafir á rekstri þess, og munum vér gera allt, sem vér getum til að valda yður sem minnstum óþæg- indum. Biðjum vér yður að sýna þolinmæði, á meðan vér erum að koma oss fyrir í nýjum húsakynnum, sem verður einhvern næstu daga. Verður auglýst síðar. — Sími vor er óbreyttur — 20 560. SKRIFSTOFUVELAR £ Ottó A. Michelsen Klapparstíg 25—27

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.