Morgunblaðið - 23.05.1963, Page 14
30
MORC UISBL 4 Ð10
Fimmtudagur 23. maí 1963
.
íslands-
mótið
hefst
í dag
«
ÍSLANDSMÓTIÐ í knatt-
’ spyrnu hefst í dag og fara
fram 2 leikir en hinum þriðja
sem fyrirhugaður var, er frest
að um óákveðinn tíma.
Mótið hefst samtímis á
Laugardalsvelli og á Akranesi.
f Laugardal mætast Fram og
Akureyri. Leikur þessi var
ákveðinn fyrir norðan, en ekki
er hægt að hefja keppni þar
fyrst um sinn vegna slæmra
valla og varð því að skipta um
leiki þessara félaga þannig, að
sá fyrri yrði hér syðra.
Á Akranesi mætast Akurnes
ingar og KR. Báðir leikirnir
hefjast kl. 4 síðdegis.
Leik Keflvíkinga og Vals
sem vera átti í Keflavík hef-
ur orðið að fresta um óákveð-
inn tíma vegna þess hve völl-
urinn er slæmur.
Engu skal spáð um úrslit
leikjanna á morgun, en vor-
leikirnir hér syðra hafa sýnt
að allt getur skeð og ekkert
félag er öðru líklegra til sig-
urs. Þar ofan á bætist að Akur
eyringar hafa lítt sézt á velli
og eru sem óskrifað blað, en
ekki er ólíklegt að þeir blandi
sér í stríðið um meistaratitil-
inn ef dæma má eftir leik
þeirra í fyrra.
- Enska knattspyrnan -
KR-ingar vilja mæta úrvals
liði landsins í frjálsíhróttum
— og keppntn yrð/ með fyrirkomulagi
landskeppni
landskeppni við
FRJÁLSÍÞRÓTTADEILD KR
hefur ákveðið að halda hið ár-
lega E. O. P. mót 12. og 13. júní
n.k. og vegna þess að 30. maí eru
70 ár liðin frá fæðingardegi Er-
lendar heitins Péturssonar hyggst
deildin vanda vel til mótsins og
hefur fengið leyfi FRÍ til að
breyta fyrirkomulaginu þannig,
að keppnin verði milli tveggja
aðila KR-inga annarsvegar og
alls landsins hins vegar, þannig
að hvor aðili sendi tvo menn í
hverja grein og stig verði veitt
eins og í landskeppni. KR-ingar
telja að slík keppni geti orðið
lærdómsríkur undirbúningur fyr-
★ Valið
KR-ingar hafa farið þess á leit
við íþróttafréttamenn að þeir
Waern í keppnis-
banni
SÆNSKI hlaupagarpurinn Dan
Waern var sem kunnugt er
dæmdur frá keppni vegna þess
að hann hafði hagnazt fjárhags-
lega á hlaupakeppni. >að var al-
þjóðaíþróttasambandið sem fjall
aði u-m málið og átti sektin að
gilda í 2 ár.
Sænska íþróttasamlbandið tók
það u-pp fyrir skömm-u að leyfa
Waern keppni á mótum í Sví-
þjóð óg var hann kallaður „þjóð-
legur áhugamaður". Waern hafði
haft þetta leyfi í nokkra daga
er alþjóðasamtoandið skarst aft-
ur í leikinn og nú hefur aftur
verið sett keppnisbann á Waern.
í DAG fer fram á Wembley-leik-
vanginum í London úrslitaleikur-
inn í ensku bikarkeppninni. Mæt-
ast þá Leicester og Manchester
United. Úrslitaleikur þessi er sá
82. í röðinni í þessari vinsælu
keppni, sem hófst árið 1872, ekki
var keppt stríðsárin í heimsstyrj-
öldunum. Úrslitaleikirnir hafa
farið fram á Wembley-leikvang-
inum frá því árið 1923, en fram
að þeim tíma á ýmsum völlum
víðsvegar um England.
Félögin, sem mætast í dag eru
bæði gömul og rógróin í enskri
knattspyrnu. Leicester var stofn-
að 1884 en Manchester United
1885 og voru þau bæði með fyrstu
liðunum, sem tóku þátt í ensku
deildakeppninni. Manchester-lið
ið er þó þekktara lið enda hefur
það unnið fleiri sigra t. d. tvisvar
sigrað í ensku bikarkeppninni og
fimm sinnum í ensku deilda-
keppninni.
Að venju er mikið rætt um
hvort liðið muni sigra og eru
þeir í meirihluta sem gizka á að
Leicester sigri. Byggja þer ágizk-
un sína á frammistöðu liðanna í
deildakeppninni sem lauk um
síðustu helgi, en þar gekk Leicest
er vel en Manchester United frek
ar illa. Margir benda þó á að í
Manchester-liðinu séu betri leik-
menn eins og t. d. Law, Charlton
og Crerrand og megi reikna með
að það nægi þegar um úrslitaleik
er að ræða þar sem taugaspenna
er mikil. Hvað um það, leikurinn
verður án efa spennandi og er
alls ekki fráleitt að gizka á jafn-
tefli venjulegan leiktíma, því það
hefur ekki komið fyrir síðan
1947. Fari svo, þá verður leikur-
inn framlengdur um 30 mínútur,
en fáist enn ekki úrslit fer annar
leikur fram.
Að lokum skal þess getið að
áhorfendur að • leiknum í dag
geta flestir orðið 100 þúsund og
þýðir það að aðgangseyrir er um
70 þúsund pund. Aðgangseyrinn
skiptist þannig að 25% renna til
Enska knattspyrnusambandsins
25% í sérstakan sjóð, sem er
skipt milli allra þeirra liða, sem
taka þátt í bikarkeppninni og
50% skiptast milli þeirra félaga
sem leika úrslitaleikinn.
IMetamenn vanir
uppsetningu á botnvörpunetum geta fengið atvinnu.
Talið við Jón Sigurðsson verkstjóra á netaverk-
stæði voru sími 24490.
HAMPIÐJAN.
ir væntanlega
Dani í júlí.
veldu „úrvalisliðið" en íþrótta-
fréttamenn ekki gefið ákveðið
svar þar sem í ljós hefur komið
að ekki er útséð um að öll önnur
félög séu reiðubúin til slíkrar
keppni í því formi sem hún er
hugsuð. Á fundi með fréttamönn
um í gær gáfu forráðamenn KR
eftirfarandi upplýsingar um
keppnina eins og þéir hafa hugs-
að sér hana.
Á Jöfn keppni
Eins og öllum er kunnugt hafa
frjálsar íþróttir verið í nokkrum
öldudal síðustu árin, mótin hvert
öðru lík og venjulega vitað fyrir
fram hver muni sigra í flestum
greinum.
Það hefur sem sé vantað spenn-
ing og þá eftirvæntingu, sem
landskeppni hefur jafnan upp á
að bjóða.
Þess vegna datt deildinni í hug
að gera mótið nú að stigakeppni
þar sem 2 aðilar sendu 2 beztu
menn sína í hverja grein, á sama
hátt og í landskeppni.
Að vísu hefur þetta verið reynt
áður með keppni Reykjavíkur
gegn „Landinu", en þar sem slík
keppni hefði reynzt harla ójöfn
nú sem fyrr, kom helzt til greina
að KR reyndi nú að keppa við
allt landið, þ.e.a.s. 2 beztu KR-
ingar í hverri grein gegn 2 beztu
íþróttamönnum frá öllum öðrum
félögum í landinu.
í fljótu bragði kann sumum að
finnast sem hér sé teflt í nokkra
tvísýnu, en við nánari athugun
og lauslegan útreikning kemur í
ljós, að möguleikar beggja liða
eru svipaðir sé miðað við afrekin
frá s.l. ári.
Sjö nýir knatt-
spyrnuþjálfarar
Sjö nýir knattsp.þjálfarar .... 3
EFTIRFARANDI þjálfarar hafa
nýlega lokið prófum 2. stigs
knattspyrn-uþjálfara, sem fram
hefur farið á vegum tækninefnd-
ar K.S.Í.: Bengsteinn Pálsson,
Eggert Jóbannesson, Einar Hjart
arson, Elías Hergeirsson, Guðm.
Guðmundsson, Sölvi Óskarsson,
Þorvarður Björnsson.
Kennari var Karl Guðmunds-
son, en prófdómari Reynir
Karlsson.
Og hvorum megin sem sigurinn
lendir, ætti að vera óhætt að full
yrða, að þessi nýstárlega keppni
geti orðið jöfn og spennandi og
það er vitanlega fyrir mestu.
Verður nú grein nánar frá fyrir
komulagi mótsins:
1) Keppt verður í öllum lands
keppnisgreinum, nema einni (10
km. hlaupi) eða samtals í 19
greinum, þar af 9 fyrri daginn
og 10 síðari daginn.
2) Stig reiknast á sama hátt
og í landskeppni, þannig að fyrsti
maður fær 5 stig, 2. maður 3
stig, 3. maður 2 stig og 4. mað-
ur 1 stig, en í boðhlaupum verður
stigagjöfin 5 — 2.
3) Þar sem búast má við því að
allmargir íþróttamenn utan af
landi verði valdir í „úrvalsliðið“,
hefur Frjálsíþróttadeild KR
ákveðið, að kosta ferðir þeirra til
og frá Reykjavík.
4) Röð keppnisgreina hvorn
dag verður sem hér segir:
12. júní:
1. 400 m. grindahlaup, 2. Kúlu-
varp, 3. Hástökk, 4. 200 m. hlaup,
5 800 m. hlaup, 6. Spjótkast, 7.
Langstökk, 8. 5000 m. hlaup. 9.
4x100 m. boðhlaup.
13. júní:
1. 110 m. grindahlaup, 2.
Stangarstökk, 3. Kringlukast, 4.
100 m. hlaup, 5. 1500 m. hlaup,
6. Þristökk, 7. 400 m. hlaup, 8.
Sleggjukast, 9. 3 km. hindraunar
hlaup, 10. 4x400 m. boðhlaup.
Fyrri daginn verður auk þess
keppt í 100 m. hlaupi kvenna
utan stigakeppninnar, þannig að
keppnisgreinar verði jafn marg-
ar hvorn dag.
Valbjörn Þorláksson veður
sterkasta tromp KR í fyrir-
hugaðri keppni.
Hefur skipulagi mótisins nú
verið lýst í höfuðdráttum — og
væntir deildin þess að lokum, að
keppnin geti orðið jöfn og drengi
leg — og þannig samboðin minn-
ingu okkar látna formanns, Er-
lendar Ó. Péturssonar.
Bandaríkjamenn
tapa í körfubolfa
HEIMSMEISTARAKEPPNI í
körfuknattleik stendur nú yfir í
Curi Tiba í Brasilíu. Hafa málin
tekið nokkra aðra vendingu en
búizt var við. Júgóslavar hafa
komið mjög á óvart, unnu m. a.
Bandaríkjamenn. Bandaríkja-
menn sem fyrir fram voru álitn-
ir sigurstranglegastir sakir fyrri
frægðar hafa staðið sig heldur
illa og hafa nú misst næstum
alla von um sigur.
Brasilíumenn eru sem stendur
efstir með 4 sigra. í fyrrakvöld
unnu þeir Frakka með 77 gegn
63. Rússar koma næstir með 3
sigra, unnu í fyrrakvöld Puerto
Rico með 65 gegn 55. Það sama
kvöld vann Perú Japan með
85—85 og Argentína vann
Uruguay með 97—83.
Bandaríkjamenn hafa til þessa
1 sigur unnið en tapað 2 leikjum
og eru vonlausir sem heimsmeist
arar sem fyrr segir.
Willy Brandt vill Olym-
píuleikana 1968 í Berlín
TVÆR borgir hafa nú sótt
um að halda Sumar-Olympíu
leikana 1968 auk þeirra
fjögurra, sem áður höfðu
æskt þess. Borgirnar sem nú
bættust við eru Vestur-Berlín
og Vínarborg. Áður höfðu
Lyon, Mexico City, Detroit og
Buenos Aires æskt þess að fá
að standa fyrir leikunum.
Umsóknin frá Berlín vekur
mikla athygli, ekki sízt vegna
þess að það er Willy Brandt
sem æskir þess af hálfu Ber-
línarborgar að fá leikana, svo
fremi að borgaryfirvöldin í
Austur-Berlín samþykki slíkt.
Enn hefur ekkert heyrzt frá
Austur-Þjóðverjum um þessa
tillögu.
Otto Mayer, ráðamaður
mikill í Alþjóða Olympíu-
nefndinni, hefur lýst fögnuði
yfir umsókn Berlínar og seg-
ir að ef af leikunum geti orð-
ið, og þar með samvinnu A-
og Vestur-Berlínar, væri það
mikill sigur fyrir Olympíuhug
sjónina, sem þá aftur myndi
sýna mátt sinn til að sætta
Austur og Vestur.
Formaður Alþjóða Olympíu
nefndarinnar, Bandaríkjamað
urinn Brundage, var og hrif-
inn af tillögunni. Ef hægt er
að halda leikana þar, þrátt
fyrir múrinn, þá er það mikill
sigur fyrir íþróttirnar, sagði
hann.