Morgunblaðið - 28.05.1963, Page 2
2
MORClNBLAÐlb
Þriðjudagur 28. maí 1963
V SR: GÍSLI BRYNJÓLFSSÖN:
6tt ER LANDSTÚLPI
Lánsfé og vextir
„EKKI trúi ég öðru en þeir
lækki vextina", sagði Fram-
sóknarbóndinn, þegar rætt var
um -kosningaloforð stjórnar
andstæðinga.
Það er nú svo.
Nú eru þjóðfylkingar-
menn, framsókn og kommún-
istar, hættir að tala um „at-
vinnuleysi", „samdrátt fram-
leiðslunnar“, „Móðuharðindi
af mannavöldum". Þetta voru
þó þeirra aðal-slagorð fyrst
eftir stjórnarskiptin. Þetta
sögðu þeir þá, að mundu verða
óhjákvæmilegar afleiðingar
viðreisnarráðstafananna.
„Nú er hafinn annar óður“.
Það væri synd að segja, að
það væri söngur vorsins eða
vonanna, sein kveðinn er i
runni þeirra þjóðfylkingar-
manna.
Nú er sungið:
Frysting sparifjár
Vaxtaokur
Lánsfj árhömlur
Stórkapitalismi.
Þetta eru allt efni í greinar
út af fyrir sig.
En það er þetta með vext-
ina. Lítum dálítið nánar á það
mál. Það er fjöldi bænda, sem
nú stendur í dýrum, nauðsyn-
legum framkvæmdum eftir að
lánasjóðir landbúnaðarins
hafa verið reistir úr rúst-
um. Þeir sjá fram á það, að
vaxtabyrðin er mikil hjá þeim
sem mikið framkvæma. Þeir
verða að sýna bæði dugnað og
hagsýni, kapp og forsjá, til að
komast yfir örðugan hjalla. —
Það ætti þeim líka að takast,
ef tekið er sanngjarnt tillit til
vaxtagreiðslunnar við verð-
lagningu landbúnaðarafurð •
anna.
Eins og áður hefur komið
fram í þessum þáttum, hefur
vaxtaliðurinn í verðgrundvell
inum stórhækkað hin síðari
ár. Til skýringar skulu nefnd-
ar tvær tölur:
Vextir árið 1957 kr. 8188,00
— — 1962 — 24.792,00
Þannig hefur sá liður, sem
bóndanum er ætlaður til að
mæta vaxtaútgjöldum hækkað
um 16604,00 kr. eða rúmlega
þrefaldast síðan í tíð vinstri
stjómarinnar.
Nú er ekki með þessu sagt,
að vaxtaliðurinn sé áætlaður
nógu hár til þess að bóndinn
geti bæði staðið straum af
skuldum sínum og fái greidda
eðlilega vexti af eigin fé, sem
hann hefur í búreksturinn
lagt.--------En segjum svo,
að vextir af lánum landbúnað-
arins væm lækkaðir. Mundu
þá ekki strax koma fram kröf-
ur af hálfu neytendafulltrúa
um lækkun á verðlagi, sem
því svaraði? Ef ekki væri
hægt að standa á móti þeim
kröfum, mundu bændur hafa
lítinn hag af vaxtalækkun.
Fulltrúar bænda munu fram
vegis, eins og hingað til, vinna
að því að fá vaxtaliðinn í verð
lagsgrundvellinum viður-
kenndan eðlilega háan. Og á
sama hátt þarf að tryggja nú
í kosningunum 9. júní, að láns
fjármálum landbúnaðarins
verði stjórnað af framsýni og
raunsæi, eins og gert hefur
verið á þessum kjörtímabili.
G. Br.
Sólfaxi lenti á 83.
gráðu í N-Grænlandi
Norðar en nokkur önnur farþegaflugvél
Frá Brönlundsfirði flaug Sól-<
faxi til Station Nord og þaðan
til Reykjavíkur. Áhöfn í þessari
óvenjulegu ferð var auk flug-
stjórans, Þorsteins E. Jónssonar,
Haukur Hlíðberg, flugmaður;
Frosti Bjarnason, flugleiðsögu-
maður; Haraldur Stefánsson og
Steindór Jónsson, vélamenn.
Sauðburður
Sólfaxi, flugvél Flugfélags ís-
lands, flaug fyrir nokkrum dög-
um til Brönlundsfjarðar á Norð-
ur-Grænlandi með rannsóknar-
leiðangur, og lenti á sjávarís á
83. gráðu norðlægrar breiddar.
Er ekki vitað til að nokkur far-
þegaflugvél hafi áður lent norð-
ar. í fréttatilkynningu frá Flug-
félaginu um þessa óvenjulegd
flugferð segir:
Enginn flugvöllur er í Brön-
lundsfirði, sem er í Pearylandi,
nyrzta hluta Grænlands. Kunnug
ir töldu að hægt mundi að lenda
við Kap Moltke, á botni upp-
þornaðs stöðuvatns, en sá staður
er um 12 km frá aðalstöð rann-
sóknarleiðangurs, sem í sumar
mun starfa norður þar undir for-
ystu Eigil Knuth, greifa.
Til að undirbúa komu flugvél-
arinnar fóru þrír menn á hunda-
sleðum frá Station Nord, og upp
úr miðjum maí voru þeir komnir
á staðinn og búnir að koma fyrir
fjarskiptitækjum við aðalstöð
leiðangursins, Brönlundshús, sem
stendur við fjörðinn. Leiðangurs-
menn áttu að merkja flugbraut
við Kap Moltke og þar átti einn
þeirra að vera með blys og hunda
sleða er flugvélin lentL
Ennfremur athuguðu þeir
möguleika á því að Sólfaxi gæti
lent á ísnum fyrir framan aðal-
stöð leiðangursins. Sólfaxi flaug
svo frá Reykjavík til Station
Nord, þar sem bætt var við vör-
um sem áttu að flytjast til Brön-
lundsfjarðar.
Flogið var inn Independent-
fjörð og síðan inn í Brönlunds-
fjörð og yfir hinn fyrirhugaða
lendingarstað við Kap Moltke.
Því næst yfir aðalstöðina, og að-
stæður til lendingar á ísnum at-
hugaðar. Var ákveðið að lenda á
ísnum, sem þarna var spegil-
sléttur á stóru svæðL Sagðist
flugstjórinn, Þorsteinn E. Jóns-
son, ekki fyrr hafa lent á svo
sléttum „flugvelli“.
Sparaði leiðangrinum
viku flutninga
Flugvélin ók síðan eftir hjarn-
inu upp að Brönlundshúsi, þar
sem hún var afhlaðin, en auk
Eigil Knuth, greifa, og fjögurra
manna hans, flutti Sólfaxi næst-
um fimm lestir af vistum og út-
búnaði.
Ef lent hefði verið við Kap
Moltke, hefðu leiðangursmenn
orðið að flytja varninginn norð-
ur í Brönlundshús á hundasleð-
um, en þeir flutningar hefðu tek-
ið viku, að sögn Eigil Knudh,
greifa.
Grenivík, 18. maí.
LEIÐINDATIÐ hefur verið
hér að undanförnu og hríð öðru
hvoru. Grátt er á niður að sjó.
Kuldarnir hafa valdið bænd-
um miklum erfiðleikum, þar sem
þeir hafa orðið að hafa fé inni.
Sauðburður er hafin og fer fram
innanhúss. Af þessum ástæðum
er farið mjög að minka um hey
hjá bændum. Gæftir hafa verið
litlar og veiðarnar farið eftir því*
Heytíu BysíeíiWj heldutiu at<jotti£
verii líka íkammtai þtyar
f>ú ett oriínn ráíhena / (fú^-
c
Skyndihappdrætti S jálfstæðisflokksins
BÍLAR
MOGIJLEIKAR
ASTÆÐIJR
til þess að kaupa miða
• Dráttur fer fram eftir iáeina
daga.
Allir vilja eignast nýjan bíl.
> Til etlingar Sjálfstæðisflokknum.
'• • • • ••
• •••••
•••*•• •
I' Til þess að gera sigur hans í kosningunum sem
•••••*#• •
glæsilegastan.
<*•*•*•*•*•*
:•*•* • Efling Sjálfstæðisflokksins er efling þjóðarhags.
S/epp/ð ekki tœkifœrinu — kaupið miða strax í dag