Morgunblaðið - 09.06.1963, Side 1
I
Síðdeg°sblað
60. árgangur
127. tbl — Sunnudagur 9. júní 1963
Prentsmiðja Morgunbtaðsins
dag tqla
atkvæðin
Fréttamenn Mbl. í heimsókn
á kjörstöðum
LOKAÞÁTTUR fyrir sigri Sjálfstæðisflokksins og vexti
viðreisnarinnar hófst í morgun kl. 9 er kjörfundir voru
settir víðsvegar um bæinn.
Þegar er kjörfundir hófust var margt ma w a mætt á
kjörstað. í frásögnum blaðamanna, sem heimsóttu kjör-
staðina í morgun, segir frá ýmsum merkum borgurum, er
fyrstir komu á kjörstað svo og fleira er fyrir þá bar í skyndi-
heimsókn sinni, ráðherrar kjósa, gamalkunnur hestamaður
lendir í hálfrar klukkustundar starfi sem kjörstjórnarmaður.
Frásögn blaðamanna er á þessa leið:
KJÖRFUNDUR hófst af miklum
krafti kl. 9 í Breiðagerðisskóla
og mynduðust þegar biðraðir
fyrir utan hinar 7 kjördeildir,
sem þar eru. Er fréttamaður
blaðsins kom á staðinn og spurði
eftir Hverfiskjörstjórn hitti hann
fyrir tvo kjörstjórnarmanna þá
Magnús Torfa Ólafsson f.v. rit-
stjóra Þjóðviljans og Þorvald
Lúðvíksson lögfræðing. Ætlaði
fréttamaðurinn að bera upp
spurningar við þá félaga, en fékk
ekki ráðrúm til, því þeir þrifu
undir handlegg hans og báðu
að setjast í undirkjörstjórn. Var
ekki um að ræða annað en hlýða
þessum tilmælum, þar sem um
borgaralega skyldu er að ræða.
Var fréttamaður þar með drifinn
inn í kjördeild nr. 3 og settur
þar í oddasæti. Kjósendúr biðu
í langri röð fyrir utan dyrnar.
Byrja þurfti á því að taka upp
kjörgögn, telja kj'örseðla og
búa sig undir kjörfund.
Tókst þetta giftusamlega með
góðri hjálp Þorvalds Lúðvíks-
sonar hverfiskjörstjórnarmanns.
Einn kjörstjórnarmanna var
mættur til leiks, en það var ung
stúlka, sem aldrei hafði kosið
áður og þaðan af síður setið í
kjörstjórn.
Eftir að kjörkassa hafði verið
læst og kjörstjórn hafði sett sig
í stellingarnar hófst kjör með
því að fyrstur kaus Hafliði And-
résson fulltrúi í Sjáifstæðishús-
ipu og síðan hver af öðrum linnu
laust fyrstu 20 mínúturnar. Þá
settist fréttamaður við lagfær-
ingu á öðru hefti kjörskrárinn
. ar sem tilheyrði þessari kjör
deild, en í hana vantaði hluta af
nöfnum þriggja kjósenda. Með-
an hann sat við verk kom inn
myndarlegur maður með gler-
augu og tilkynnti hverfisstjórn-
armaður að þar væri kominn
annar þeirra undirkjörstjórnar-
manna, er vantaði. Gekk' hann
nokkra stund um gólf eins og
hann vissi ekki hvað hann ætti
af sér að gera. Spurði fréttamað-
ur þá hvort hann væri kannske
oddviti kjörstjórnar í þessari
deild.
Hvað
getur
gerzt?
ÁFORM Eysteins Jónssonar
um að koma hér á svo víð-
tækum ríkisafskiptum að
telja verður hreinan sósíal-
isma, voru birt í Mbl. í morg
un.
Banna á'tti innflutning ó-
þarfa varnings, en ríkisvaldið
að taka að sér innkaup ein-
stakra vörutegunda, sem það
telur nauðsynlegt.
Skrá átti alla vinnufæra
menn í landinu og ríkisvaldið
átti í sambandi við skráning-
una að hef ja íhlutun um fram-
kvæmdir og stofnun fyrir-
tækja.
Gerðar yrðu ráðstafanir tll
þess að einstaklingar og stofn-
anir hegðuðu sér í samræmi
við stefnu og vilja stjórnvald-
anna.
Þessi stefna er ekki gleymd
nú. Hún bíður aðeins þing-
fylgis Framsóknarmanna og
kommúnista til þess að hægt
sé að mynda „róttæka um-
bótastjórn“ undir forsæti rík-
isafskiptaforsprakkans, Ey-
L steins Jónssonar.
Á stjórnartíma „vinstri"
stjórnarinnar fengu Reykvík-
ingar smjörþefinn af sósíalis-
manum. Gerð var áætlun um
að svipta borgarbúa umráðum
yfir eigin húsnæði. Skyldi
forsjá þeirra eigin húsnæðis
fengin Framsóknarmanni, sem 4
atvinnu hefur af nefndastörf- i
um og bitlingum. Honum til 1
aðstoðar átti að vera þekktur
kommúnisti. Skv. þessari á-
ætlun átti að úthluta húsnæði
Reykvikinga og setja á stofn
fasteignasölu ríkisins og ef
húseign var sJld, skyldi 80%
af verði umfram mat renna
til ríkisins.
Framh. á bls. 7.
— Já, ætli það ekki, sagði
maðurinn.
Vék fréttamaður þá þegar úr
oddvitasætinu, er hann hafði
haft fyrstu 20 mínútur kjörfund-
ar. Næstu 10 mínútur sat hann
enn í kjörstjórn eða þar til Þor-
valdur hverfisstjórnarmaður til-
kynnti honum að nú væri starfi
hahs lokið.
Sem þakklætisvott fyrir vel
unmn störf var fréttamanni boð
ið til kaffidrykkju með hverfis-
Framh. á bls. 7.
.