Morgunblaðið - 09.06.1963, Side 6
6
MORCVNBLAÐ1Ð
Sunnudagur 9. júní 1963
Gömul hjón koma í Austurbæ j„rskólann
Unga og gamla l.ynslóðin koma frá því að kjósa í Austur-
bæjarskólanum.
Síðustn
kosningutölur
í REYKJAVÍK höfðu 8982
kosið kl. 2 en á sama tíma
í fyrra í baejarstjórnar-
I kosningunum 8506, en í
vorkosningunum 1959 8514
og haustið 1959 7963.
Kl. 1.30 til kl. 2 höfðu
kosið á:
Séð yfir kosningaskrifstofu Sjálfstæffisflokksins í Skátaheimilinu laust eftir kl. 10 í gærmorgun
Mikið annríki var á staðnum frá því snemma u m morguninn.
• <-.v.................... -. • •■'••■• ■
Eiríkur Ormsson kemur á kj örstaö i Miðbæjarskólanum
Akureyri 1362
Isalirði 20«
Siglufirði 430
Hafnarfk-ði .... 713
Vestmannaeyjum 700
Sú litla selur merki barnaspit alasjóðs Hringsins á kjörstað
KarmeS-
systur á kjör-
stað
HAFNARFIRÐI, 9. júní — Hér
í bænum voru kjörstaðir ekki
opnaðir fyrr en klukkan tíu —
en annars alltaf áður kl. 9
— og má segja að kjörsókn
hafi verið góð. Mættir^ voru þing
mennirnir Matthías Á. Mathie-
sen og Emil Jónsson, svo og ýms-
ir ráðandi menn hér, eins og
Eggert ísaksson bæjarfulltrúi,
sem ka-us fyrstur allra í barna-
skólanum,skólanum, Karl Auð-
unsson, bifreiðastjóri, Páll Dan-
íelsson bæjarfulltrúi, Stefán Sig-
urðsson, kaupmaður Þórður Þórð
arson bæjarfulltrúi ög fleiri.
Mikið af eldra fól'ki kaus fyrir
hádegi, og hafir vafalau/st hugsað
sér að nota tímann áður en „ös-
in“ byrjaði .Karmelsystur í
klaustrinu ætluðu að mæta á.kjör
stað rúmlega ellefu, en þær hafa
flestar íslenzkan ríkisborgara-
rétt„ og mæta altlaf á kjörstað
fyrstar allra.
Fréttamaður blaðsins hitti sem
snöggvast að máli Matthías Á.
Mathiesen, þingmann og spurði
hann um gang mála rétt eftir
að kjörstaðurinn var opnaður.
Hann sagði mikla óánægju
ríkja með að ekki skyldi byrjað
að telja í Reykjaneskjördæmi
strax að kosningu lokinni, og
unnið væri nú að því að fá því
breytt. Og rétt áður en þetta blað
fór í prentun hringdi- hann og
tilkynnti að þessu hefði verið
kippt í Iag. Byrjað yrði að telja
í kjördæminu um leið og kosn-
ingu lyki og tölur kynntar jafn-
harðan í útvarpinu. Matthias var
injög bjartsýnn um sigur D-list-
ans og kvað það mjög áberandi
nú í þessum kosningum hversu
unga fólkið í Sjálfstæðisflokkn-
um legði sig fram í að gera sig-
ur flokksins sem mestan.
Kjörstjórnina í Hafnarfirði
skipa Eiríkur Pálsson, Sveinn
Þórðarson og Ólafur Þ. Kristj-
ánsson.
í síðustu alþingiskosningum
urðu úrslit í Reykjaneskjördæmi
sem hér segir:
A 2911 (1) B 1760 (1) D 4338 (2)
G 1703 (1) Þjóðv. 295.
Á hádegi í dag höfðu 383 kos-
ið og er það vel í meðallagi, að
því er blaðinu var tjáð. Á kjör-
skrá í Hafnarfirði eru 3903.