Morgunblaðið - 28.06.1963, Blaðsíða 17
Föstudagur 28. júní 1963
M O R C V >V B í. A Ð 1 Ð
17
Egill Vilhjálmsson kaup-
maður sjötugur
„Lastaðu ei laxinn, er leitar r
móti straumi sterklega og I
stiklar fossa“.
Bjarni Thorarensen.
í auglýsingatíma útvarpsins
heyrist oft: „Allt á sama stað“
Egill Vilhjálmsson h.f. Þessi
auglýsing mun fyrst hafa verið
notuð 1930 og ávallt síðan, enda
að flestra dómi einhver sú snjall-
asta, sem fram hefur komið á
sínu sviði og myndu margir vilj-
að þessa Lilju kveðið hafa, þótt
stutt sé. Þessi auglýsing hefir
m.a. orðið til þéss, að hvert
mannsbarn í landinu, sem komið
er til vits og ára, þekkir nafnið
Egill Vilhjálmsson. Auglýsingin
er að vísu nokkuð yfirlætisleg,
en fyrirtækið Egill Vilhjálmsson
h.f. hefir ekki látið hana verða
sér til skammar í sambandi við
fjölbreytni þeirra vara, sem það
verzlar með þ.e. varahluti í bif-
reiðar. En fyrirtækið Egill Vil-
hjálmsSon h.f. hefir ekki orðið
til af sjálfu sér. Það á sinn smið
og meistara, Egil Vilhjálmsson,
sem í dag á 70 ára afmæli.
Egill er fæddur í Hafnarfirði
28. júni 1893. Voru foreidrar hans
Anna Magnea Egilsdóttir, Gunn
laugssonar pósts frá Arabæ
Reykjavík og Vilhjálmur G.
Gunnarsson, Gunnarssonar frá
Hafnarfirði. Voru systkini Egils
8. Fjögurra ára fluttu foreldrar
Egils vestur á Bíldudal ásamt
börnum sínum og ólst Egill þar
upp. Stundaði hann þar sjósókn
og fór ungur að fást við vél-
stjórn og lauk prófi í þeirri grein
1914.
Egill flutti 1912 aftur til Hafn-
arfjarðar og 1915 gerðist hann
bílstjóri á leigubifreið til mann-
flutninga og jafnframt ökukenn-
ari. Er ökuskirteini hans nr.
3. Árið 1917 fór hann svo til
Ameríku til þess að nema bíla-
viðgerðir og er eflaust fyrsti ís-
lendingurinn, sem nám hefir
stundað í þeirri grein.
Skömmu eftir að hann
kom frá Ameriku flutti
hann til Reykjavíkur og kvænt-
ist hinni merku konu sinni, frú
Helgu Sigurðardóttur, sem þegar
á frumbýlisárunum bjó manni
sínum hlýlegt og vistlegt heim-
li, því að um hana mátti segja
eins og Grímur segir í kvæði
sínu um Sigriði Erlingsdóttur
frá Sóla:
„Og með kvenmanns högum
§t huga
jpl hún lét allt til nokkurs duga“.
F ' Börn þeirra Egils og frú Helgu
eru: Sigurður, frkvstj., kvæntur
Kristínu Henriksdóttur, Ingunn
gift Matthíasi Guðmundssyni,
verzlunarstjóra og Egill, fulltrúi
kvæntur Erlu Guðjónsdóttur.
Egill var 1920 skipaður próf-
dómari við próf bifreiðarstjóra
og gegndi hann því starfi til
1928, er hann hóf eigin atvinnu-
rekstur í stærri stíl.
Egill Vilhjáimsson hefir mark-
að djúp spor 1 íslenzku atvinnu-
og viðskiptalífi og verið meðal
aðalhvatamanna að stofnun
merkra fyrirtækja. Má þar m.a.
nefna Strætisvagna Reykjavík-
ur, sem hann veitti forstöðu frá
1938-1943, að fyrirtækið var
selt bænum, Bifreiðastöð Reykja
víkur, Hval h.f., Sigurplast h.f.
og Egilskjör h.f. auk stórfyrir-
tækisins Egils Vilhjálmsson h.f.,
sem rekið er í átta deildum. Var
það fyrirtæki stofnað 1. nóv-
ember 1929 og hefir stöðugt vax-
ið og þróast undir öruggri forsjá
stofnandans, Egils Vilhjálmsson-
ar. Egill hefir líka átt sín drauma
fyrirtæki, svo sem rafmagnsbif-
reiðar og skautahöll. Draumur-
inn um að koma þessum fyrir-
tækjum á fót hefir að vísu ekki
rætzt, en draumurinn og vonin
eru ávallt fegurri en veruleikinn
og þess vegna er gott, að vonin
verði ekki ávallt að veruleika
«g draumurinn rætist ekki, því
að þá er það fegursta glatað og
töfrarnir horfnir.
Ekki er mér kunnugt um, að
Egill hafi gefið sig mikið að fé
lagsmálum almennt. Innan starfs
sviðs síns er hann hins vegar
forystumaður. Var m.a. einn
aðal hvatamaður að stofn-
un Sambands bílaverkstæða
á íslandi og fyrsti for-
maður þeirra samtaka. Einnig hef
ir hann um langt skeið átt sæti
í stjórn Vinnuveitendasambands
íslands.
Á yngri árum glímdi Egill all
mikið og var þar í fremstu röð.
Þá gekk hann til rjúpna á vetr-
um og var beinskeyttur. Lax-
veiði hefir hann stundað hvert
sumar og þykja löxum önglar
hans girnilegri til fróðleiks en
flestra annarra. Ég held þó, að
veiðimannseðlið sé ekki aðal-
hvatinn að því, hversu mikið
Egill hefir stundað veiðar, held-
ur þörfin á að vera einn með
sjálfum sér úti í hinni yndislegu
íslenzku náttúru. Því Egill er
ekki einn af þeim, sem sér án
þess að sjá og heyrir án þess
heyra. Hann gefur hverri hýrri
fjólu gaum, sem grær á leið
hans. Hann er sjáandi og heyr
andi umhverfið og raddir þess.
Egill hefir ætíð haft hina
mestu ánægju af leiklist og sýnt
þar áhuga sinn í verki með því
að styðja Leikfélag Reykjavikur
leynt og ljóst. Hefir L.R. gert
hann að heiðursfélaga. Egill hef-
ir víða lagt lóð sitt á vogarskál-
ina og ávallt svo um hefir mun-
að. Á fyrstu árum S.Í.B.S. gaf
hann þeim samtökum t.d. stór-
gjöf og til Háskóla íslands hefir
hann gefið stærstu gjöf, sem ein-
staklingur hefir gefið. A sú gjöf
að vera til styrktar efnilegum
nemanda í viðskiptafræði.
Bindindismál hefir Egill stutt
af einstakri drenglund og verið
þar öðrum til fyrirmyndar.
Styrktar- og menningarsjóð
fyrir starfsmenn sína stofnaði
Egill 1945 og hefir hann orðið til
mikils góðs eins og til var ætlast.
Hjörleifur Baldvinsson
prentari — fclinning
Er Egill hjúasæll, enda lætur
hann sér annt um starfsfólk sitt
og hefir oft gert „góðan hest úr
göldum fi<ia“.
Fáir eiga slíkt dagsverk sem
Egill Vilhjálmsson, enda er hann
ekki morgunsvæfur. Hann rís
upp fyrir dag og fylgjst vand-
lega með smáu og stóru í fyr-
irtækjum sínum. Og þó hann sé
ríkur maður á mælikvarða ís-
lendinga, segir hann ekki eins
og skáldið: „Farið heilar fornar
dyggðir“, en dyggðir þær, sem
fara áttu að dómi skáldsins voru
iðni, nýtni og sparsemi Þessar
dyggðir myndi Egill Vilrjálms-
son ekki vilja láta hverfa frá
íslendingum. Egill hefir hafist
af sjálfum sér, en auðurinn hef-
ir ekki gert hann að angurgapa,
heldur verið honum tæki til að
láta gott leiða af sér. Hinum
fornum dyggðum vill hann ekki
kasta á brott sem slitinni flík,
sem ekki er lengur nothæf. Hann
er tryggur við þær eins og ann-
að, sem hann hefir fundið að er
einhvers virði, því að í fari hans
er ekkert hverfult heldur traust
sem bjarg.
Hið karlmannlega brattasækna
og staðfasta lífsviðhorf hans ieyf
ir honum ekki að líta smáum
augum á veganestið, sem hann
fór með úr húsum foreidranna
út á þjóðveg lífsins.
í dag vil ég nota tækifærið
og þakka Agli trausta vináttu
og árna honum og fjölskyldu
hans allra heilla. Hann hefir
sjálfur verið sinnar gæfu smið
ur. í skapgerð hans er „allt á
sama stað“, djörfung og dugur,
drengskapur og framsýni.
Barði Friðriksson
— Fuglarnir
Framh.
allt s<
af bls. 8.
m tilheyrir
T elpnaskór
Og
Sandalar
aýkomnir.
Skóverzlun
Péturs Andréssonar
Laugavegi 17. — Framnesv. 3.
staflega
mönnunum.
Niðurlag kvikmyndarinnar
er dapurlegt fyrir mannkind-
ina: Fuglarnir flæma mennina
burt og gerast herrar jarðar
innar. Þeir yfirgefa borgina,
það heyrist hávaði og i fjarska
vélasuð síðasta bílsins, sem fer
burt. — En hvert?
-- XXX ----
í þessari mynd kemur fram
ný kvikmyndastjarna, sem
þykir ótrúlega lík Grace
Kelly. Heitir sú Tippi Herden,
og á hún sjónvarpinu frama
sinn að þakka, því það var
einmitt á sjónvarpsskermin-
um, sem Hitchock kom auga á
hana.
Að síðustu skal þess getið,
að í kvikmyndinni koma fram
átta þúsund smáfuglar og
spörvar, auk fjölda máva,
kjúklinga og annam fugla-
tegunda.
Kaupum hreinar
léreftstuskur
Prenlsmiðja
Morgunblaðsins
Drengur góður, prúður, ötull
og samvizkusamur maður er fall-
inn. Maður á bezta aldri, vinsæll
og vandaður, — Hjörleifur Bald-
vinsson.
Hjörléifur var fæddur 7. marz
1918 að Eiði, Seltjarnarnesi. Hann
hóf prentaranám í Gúttenberg
1935 og lauk því 1940. Hann fór
til framhaldsnáms í iðn sinni og
lit- og listprentun í Ameriku
1945.
Hjörleifur Baldvinsson var m.a.
kennari við prentaraskóla Iðn-
skólans í Reykjavík allt frá því
að prentskólinn hóf göngu sína
árið 1958. Átti hann sinn drjúga
þátt í að koma skólanum af stað,
í samstarfi við stéttarbræður
sína og samstarfsmenn við Iðn-
skólann.
Stofnun prentskólans var á sín
um tíma merkt brautryðjenda-
starf að vissu leyti, aðallega
vegna þess að hér var um ný-
mæli að ræða, af því er varðar
reglubundið verklegt iðnám í iðn
skóla.
Hjörleifur vann mjög heils
hugar, ásamt félaga sínum Óla
Vestmanni Einarssyni, að uppsetn
ingu véla og tækja fyrir prent-
skólann og hafði upp frá þvi
kennslu á hendi í vélasal skól-
ans. Var samvinnulipurð áber
andi eiginleiki í fari Hjörleifs.
Það þótti og vel gert og sam-
vizkusamlega, sem Hjörleifur
vann, og kennsla fór honum
prýðilega úr hendi, enda vel lát-
inn af nemendum og öllu starfs
fólki.
Það þótti mér og mörgum
öðrum sérstaklega skemmtilegt í
fari Hjörleifs, sem kennara, hve
öll umgengni í vélasal var snyrti
leg, þrátt fyrir mjög mikil
þrengsli og slæma aðstöðu, bæði
til kennslu og þrifa. — Ef allir
prentsmiðjusalir gætu verið svo
þriflegir, hreinir og snyrtilegir,
þrátt fyrir prentsvertu og papp-
ísafganga, sem skólaprentsmiðja
Iðnskólans var undir stjórn Hjör-
leifs, væri vel farið. —
í daglegri umgengni og á vett-
vangi félagsmála var Hjörleifur
einnig hinn prúði, kurteisi og
elskulegi félagi. Hann starfaði
mikið að félagsmálum, og opin-
berum málum. M.a. var hann for
maður skólanefndar og barna
verndarnefndar í Garðahreppi
þar sem hann var búsettur, og
naut þar trausts og virðingar. —
Sem uglingur gerðist hann áhuga
samur um íþróttir, var um 18-20
ára skeið virkur íþróttamaður
í Ármanni. Hann átti m.a. þátt
í glæsilegri frammistöðu þess
félags í leikfimi og starfaði ’ í
leikfimisflokkum bæði undir
stjórn Vignis Andréssonar og
stjórn Jóns Þorsteinssonar. Einn-
ig var hann virkur í frjálsum
íþróttum á vegum Ármanns. —
Hjörleifur var virkur félagi í
I.O.O.F. reglunni í mörg ár og
átti þar marga vini og naut þar
virðingar.
Ég veit ég mæli fyrir munn
margra félaga hans og samstarfs-
manna í Iðnskólanum og félaga
hans í Oddfellow-reglunni, er ég
færi honum látnum einlæga þökk
Þökk fyrir ljúfar endurminning-
ar um fölskvalausan vin, sam-
starfsmann og félaga. — Jafn-
framt vottum vér ekkju hans,
börnum og ættingjum virðingu
og einlæga samúð í sorg og erf-
iðleikum. Óvenju dugnaðarlega
og drengilega tel ég framkomu
frú Sigríðar Valgeirsdóttur er
hún tók að sér störf manns síns
við próf í Iðnskólanum s.l. vor,
er hann lá á sjúkrabeði, til við-
bótar við eigin störf heima við
og áhyggjur af manni sínum
sjúkum.
Ekki vissi ég til að Hjörleifur .
léti nokkurn tíma hugfallast
fyrir erfiðleikum né veikindum,
heldur lét hann sem batinn væri
alltaf á næstu grösum. — Sérlega
hugljúfa tel ég framkomu hans
hafa verið allt það langa tíma-
bil, sem ég hafði kynni af hon-
um.
Blessuð veri minningin um
Hjörleif Baldvinsson. Megi frið-
ur ríkja með ekkju hans, ætt-
ingjum og vinum.
Þór Sandholt
Ódýrir
Karlmanna-
sandalar
Karlmannaskói
Trúlomnarhringar
afgreiddir samdægurs
HALLDÓR
Skólavörðustíg 2.
BIFREIÐAEIGENDUR í
Reykjavík — Kópavogi — Hafnarfirði.
Hef opnað bílamálun í Silfurtúni. — Komið og
látið okkur sprauta bifreiðina.
Vanir menn vinna verkin.
Bilamálun Hafsteins Jónssonar. Simi 51475
Heimasímar: 23967 Hafsteinn Jónsson.
33313 Halldór Hafsteins.