Morgunblaðið - 06.07.1963, Blaðsíða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ
taugardagur 6. júlí 1963
Léleg
síldveiði
SÍLDVEIÐIN er heldur léleg um
þessar mundir. Frá kl. 7 á
fimmtudagsmorgun til jafnlengd
ar á föstudagsmorgun fengu skip
in 20.556 mál og tunnur, mest allt
í Reyðarfjarðardjúpi.
í gærkvöldi fréttis’t um „vað-
andi síld“ 24 mílur út af Kögr-
inu, en þar var enginn búinn að
kasta, nema Helgi Flóventsson,
sem hafði fengið 5—600 tunnur
í kastinu og var að kasta aftur.
Lítil sem engin síldveiði var í
gærdag. Veður var allgott.
Húsmæðraskóla
Reykjavíkur slitið
HÚSMÆÐRASKÓLA Reykja-
víkur var slitið 6. júní s.l.
Skólastjórin'n, frk. Katrín Helga-
dóttir, skýrði m. a. frá því í ræðu
við það tækifæri, að 185 nem-
endur hafi stundað nám við skól-
ann s.l. vetur, 40 í heimavist, 49
í dagskóla og 96 á kveldnámskeið
um. Meðal nemenda voru tvær
erlendar stúlkur, frá Noregi og
Bandaríkjunum.
Hæstu einkunn yfir skólann
hlaut Guðrún Haraldsdóttir,
Haga, Gnúpverjahreppi, ágætis-
einkunn 9,55. Voru henni veitt
verðlaun úr Verðlaunasjóði Hús-
mæðraskóla Reykjavíkur.
Verðlaun úr hinum ýmsu
minningarsjóðum, sem stofnaðir
hafa verið við skólann hlutu
þessar námsmeyjar:
Laufey Ingimundardóttir, Akra
nesi, fyrir beztan árangur í handa
vinnu.
Guðrún Herbertsdóttir frá Sig-
ríðarstöðum í Ljósavatnsskarði
og Þorgerður Arnórsdóttir, ísa-
firði, báðar fyrir beztan árangur
í hússtjórn.
Svanhildur Jónsdóttir, Sand-
gerði, fyrir háttprýði og skyldu-
rækni.
Fanney Leósdóttir, Akureyri
og Guðrún Finnsdóttir, Húsavík,
fyrir framúrskarandi ástundun.
Við skólauppsögn mættu m. a
20 ára, 10 ára og 5 ára nemendur
og fluttu skólanum árnaðaróskir
og færðu sjóðum skólans vegleg-
ar gjafir.
Sýning á handavinnu nemenda
var haldinní skólanum 2. og 3.
júní og var fjölsótt að vanda.
Skólinn er fullskipaður fyrir
næsta ár.
Vöruhappdrætti
SÍBS
f G Æ R var dregið í 7. flokki
Vöruhappdrættis SÍBS um 1240
vinninga að fjárhæð alls krónur
1.882.000.00.
Eftirfarandi númer hlutu
hæstu vinningana:
Kr. 500.000.00 nr. 2421.
10.000.00 kr. hlutu: 3196 8872
20163 20367 30984 47798 49284
5.000.00 kr. hlutu: 762 11104
18653 20655 22109 22337 30453
34692 37110 38506 40534 40802
43013 44300 49807 54169 55145
57964 58122 62086
Þátttakendur í póstmálaráðstefnunni (frá vinstri): William M. Sjögren, Noregi; Sveinn G.
Björnsson, ísl.; J. M.S. Andersen, Danmörku; Rafn Júlíusson, ísl.; Ture Nylund, Svíþjóð; Gunn-
laugur Briem, ísl.; Kjell Hávered, Svíþjóð; Torbjörn Seiden, Svíþjóð; Karl Johannesen, Nor-
egi; Páll V. Daníelsson, ísl.; Helge Jáder, Svíþjóð; Gunnar Pedersen, Danmörku; Einar Döving,
Noregi; Arne Krog, Danmörku; Erik Swartlin,?, Svíþjóð; Karl Axel Löfgren, Svíþjóð; Harras
Kolinen, Finnland; Tauno Puolanne, Finnland; Oiva Saloila, Finnl.; Matthías Guðmundsson,
ísl. og Bragi Kristjánsson, isl.
Páll Daníelsson, forstjóri hag-
deildar; Matthías Guðmundsson,
póstmeistari í Reykjavík; Rafn
Júlíusson, póstmálafulltrúi.
Ritarar ráðstefnunnar eru:
Kjell Hávered, fulltrúi; Sveinn
G. Björnsson, deildarstjóri;
Friðný Sigfúsdóttir, fulltrúi.
Á dagskrá ráðstefnunnar eru
alls 18 mál, sem snerta ýmist
póstsambandið milli Norður-
landa, samvinnu Norðurlandanna
innan alþjóðapóstsambandsins,
auk ýmissa annarra mála, sem
ofarleg eru á baugi á alþjóða-
vettvangi póstmálanna.
Norræn póstmála
ráðstefna í Reykjavik
DAGANA 4.—7. júlí stendur yfir
n o r r æ n póstmálaráðstefna í
Reykjavík. Mæta þar alls 19 full-
trúar frá öllum Norðurlöndun-
um, þar af 5 frá íslandi. Þátttak-
endur í póstmálaráðstefnunni
eru:
Frá Danmörku: Gunnar Ped-
ersen, póst- . og símamálastjóri;
Arne Krog, forstjóri; J.M.S. And
ersen, skrifstofustjóri.
Frá Finnlandi: Oiva Saloila,
póst- og símamálastjóri; Harras
Kolinen, forstjóri; Tauno Puol-
anne, forstjóri.
Frá Noregi: Karl Johannessen,
póstmálastjóri; William M. Sjö-
gren, forstjóri; Einar Döving,
skrif stof ustj óri.
Frá Svíþjóð: Erik Swartling,
póstmálastjóri; Helge Jader, að-
alforstjóri; Karl Axel Löfgren,
Gagnfræðaskóía
Sauðárkróks slitið
GAGNFRÆÐASKÓLA Sauðár-
króks var slitið 4. júní. í skólan-
um voru alls 91 nemandi í þrem
deildum, sem vgr að nokkru
skipt í verknáms- og bóknáms-
deildir. Hæstu einkunn skólans
hlaut Hildur Bjarnadóttir á
unglingaprófi, 9,48, en-alls luku
37 nemendur unglingaprófi. —
Miðskólaprófi luku 17 nemendur,
þar af 9 landsprófi. Hæstu eink-
unn á miðskólaprófi hlaut Sigríð-
ur Guttormsdóttir 8,59, en hæstu
einkunn á landsprófi: Kristján
Bjartmarsson, 8,23.
Húsnæðisskorfcur háir starfsemi
skólans, enda er hann allmikið
sóttur af nemendum utan Sauð-
árkróks, aðallega úr Skagafirði,
en um fjórði hluti nemenda var
þaðan á liðnum vetri. Kennarar
voru 3!6, auk 5 stundakennara.
Skólastjóri er Friðrik Margeirs-
son. — Jón.
Ný kynningarbók um
ísland
NÝ kynningarbók um ísland
er nýlega komin út í útgáfu
Wilhelm Andermann Verlag í
Múnchen. Þetta er smekkleg bók
prýdd 30 fallegum litmyndum
frá íslandi, en formáli, saga
iands og þjóðar í samþjöppuðu
formi,'er eftir Björn Th. Björns-
son.
Þessi bók er í flokki, er nefn-
ist „Panorama-búcher“ hjá út-
gáfufyrirtækinu og er hin 59.
í röðinni, þ.e.a.s. ísland er 59.
landið, sem gerð eru skil á
þennan hátt.
Af bókinni ísland eru fjórar
útgáfirr, ein með dönskum og
enskum texta, önnur með ensk-
um eingöngu, þriðja með þýzk-
um og fjórða með frönskum
texta. Kostar bókin 125 krónur.
Flestar myndirnar tók þýzkur
ljósmyndari, Kurt Drost, en Þor-
steinn Jósefsson á þarna einn-
ig nokkrar myndir.
forstjóri; Torbjörn Seiden, skrif-
stofustjóri; Ture. Nylund, fv.
skrifstofustjóri.
Frá íslandi: G. Briem, póst- og
símamálastjóri; Bragi Kristjáns-
son, forstjóri rekstursdeildar;
Fréttabréi úr N.-ísuijorðarsýslu
ÞÚFUM, N..-ÍS., 21. júní. — Góð
veðrátta og gróðratíð hefir ver-
ið hér síðan síðustu mánaðamót.
Lítur sæmilega vel út með gróð-
ur og grassprettu, þó sláttur
byrji ekki fyrr en um næstu
mánaðamót og framan af júlí,
því oftast er hér ekki byrjað
fyrr, þó góð veðrátta sé.
Kal í túnum er nú ekkert.
Fjárhöld eru góð og sauðburður
gekk yfirleitt ágætlega. Lamba-
höld eru ágæt, enda gekk fénað-
ur vel fram.
Tvær refaskyttur hafa tekið
að sér grenjavinnslu hér í Inn-
djúpinu og vinna að þessu um
þessar mundir. í Snæfjallahreppi
Háskólafyrirlest-
ur um slagæða-
stíflur
SIR George Pickering, prófe&^r
í lyflæknisfræðum við Oxford-
háskóla, flytur fyrirlestur í boði
læfcnadeildar Háskóila íslands
nfc. laugardag 29. júní kl. 14.30
í I. kennslusfcofu.
Fyrirlesfturinn nefnist: „Art-
berial thrombosis and emibolism“
(segamyndun og silagæðastáflur).
Prófesor Pickering er heims-
kunnur fyrir rannsóknir sínar á
slagæðasjúkdómum og háþrýst-
ingi. Hann hefur og látið mennt-
un lækna mjög til sín taka og
eru ritgerðir hans um það efni
alkunnar.
Öllum er heimill aðgangur að
fyrirlestrinum.
Skagamenn veiða
humar og ýsu
Akranesi, 5. júlí.
Humarbátarnir fjórir talsins,
sem inn komu í dag, lönduðu alls
15.5 tonnum af humar. Svanur
var aflahæstur með tæp 5 tonn,
þá Ásbjörn AK með 4.6, Ásbjörn
ÍS með 3 og Sæfari með tæp 3
tonn.
Tvær trillur reru héðan í fyrra
dag og sigldu í 3 tíma út í norð-
vestur. Sæljón fiskaði 1200 kg og
Bensi 1000 kg. Aflinn var stór og
spikfeit ýsa. — Oddur.
unnu þær greni í svokölluðu
Hrauni. Þar voru bæði dýrin
unnin og 10 yrðlingar. Er fágætt
að svo margir yrðlingar séu í
sama greni. Verða skytturnar
við þessar veiðar meðan greni
finnast.
Fyrir nokkru er byrjað á vega
gerð og verður unnið áfram í
Ögurvegi í sumar.
Ranghermt var í útvarpsfrétt
að heyleysi hefði verið við ísa-
fjarðardjúp. Aðeins 1—2 bænd-
ur þurftu að fá heyfóður að. Yfir
leitt var gott ástand um fóður-
birgðir hér við Djúpið.
Leiguskip á Djúpið
Mikið áfall var að hið góða
skip, Fagranes, sem annast hef-
ur samgöngur hér með miklum
ágætum um 20 ára skeið skyldi
skemmast svo mikið af eldi að
það verður dæmt ónýtt. Leigu-
bátur hefur verið fenginn frá
Þingeyri, en bót er að því að
félagið á í smíðum rúml. 100
rúmlesta skip í Noregi, sem á að
verða tilbúið og afhent félaginu
í haust. Verður Þingeyrarbátur-
inn leigður til ferðanna fyrst um
sinn og helzt þar til nýja skip-
ið kemur. Nú er ferðamanna-
straumurinn að byrja og bíla-
flutningar um Djúpið, og er því
nauðsyn að hafa góðan farkost
á Djúpinu, til að annast þá
flutninga. — PP
Kveðjuorð
í L J ÓÐ ABRÉFI til vestur-ís-
lenzka skáldsins, Guttorms J.
Guttormssonar, kvað Örn, skáld
Arnarson, á þessa leið:
„Þú siglir úr Vesturvegi
og vitjar þíns ættarlands
með forvitni ferðalangsins
og feginleik útlagans,
því ísland var ætíð
þitt draumaland
frá æsku í huga þér brennt.
Nú rís það úr draumahafs djúpi.
Og draumar og vaka er tvennt.
Þótt draumar okkar hafi verið
skírir og ætíð vakið undrun, er
það okkur Vestur-fslendingum
mjög Ijóst, eftir nokkra vikna
•dvöl hér á landi, að draumar
og vaka eru ekki hið sama. Nú
höfum við litið náttúrufegurð ís-
lands og séð í starfi allra, þær
óskiljanlegu framfarir sem eiga
sér stað hér í Reykjavík og víð-
ar, og hefur hvorutveggja vakið
undrun mikla, en það, sem meir
en nokkuð annað hefur gripið
okkur er fólkið — hin íslenzka
þjóð.
Nú vitum við að hinar ágætu
íslendingar, sem hafa komið til
okkar í Vesturheimi, eru ekki
undantekningar, heldur erind’-
rekar, sem spegla þjóðina eins
og hún er.
Nú hafa draumar og vaka sam-
einast og það er myndin, sem
við tökum til baka í hjörtum
okkar og hún er ógleymanleg.
Valdimar LíndaL
Leiðin norður Sprengisand
Brúin á Köldukvisl merkt með
krossi.
Brú gerð ú Köldukvisl
i sumar
í SUMAR er áformað að
byggja brú yfir Köldukvísl, og
skv. upplýsingum sem Mbl. fékk
í gær hjá vegamálastjóra verður
líklega byrjað á brúarsmíðinni
í þessum mánuði.
Gerðar hafa verið áætlanir um
veg norður Sprengisand, en
helzti farartálminn á þeirri leið
er Kaldakvísl. Nokkru sunnar
verður að fara yfir Tungnaá,
en síðan Hófsvaðið fannst má
fara þar yfir á stærri bílum.
Brúin á Köldukvísl verður
byggð á gljúfur, sem er 12-15 m.
á breidd, og verður járnbitabrú.
Má segja að þetta sé fyrsti á-
fanginn til að hægt sé að opna
leið milli Suðurlands og Norður-
lands um Sprengisand. En brú-
in er einkum byggð nú, með til-
íiti til rannsókna vatnamælinga
raforkumálaskrifstofunnar, auk
þess sem hún verður til hag-
ræðis fyrir ferðafólk.
Á meðfylgjandi teikningu má
sjá leiðina norður Sprengisand
og er brúin á Köldukvísl merkt
þar inn með krossi. Leiðin ligg-
ur upp Landið, fram hjá Galta-
læk yfir Tungnaá, hjá Þóris-
vatni og norður Sprengisand og
niður í Bárðardalinn eða þá hugs
anlegt að fara niður i Eyja-
fjörðinn.