Morgunblaðið - 07.07.1963, Side 12

Morgunblaðið - 07.07.1963, Side 12
12 MORGUNBLAÐIÐ Sunnudagur 7. júlí 1963 tJtgefandi: Hf. Arvakur, Reykjavík. Framkvæmdastjóri: Sigfús Jónsson. Ritstjórar: Sigurður Bjarnason frá Vigur Matthías Johannessen, Eyjólfur Konráð Jónsson. Auglýsingar: Arm Garðar Kristinsson. Útbreiðsiustjóri: Sverrir Þórðarson. Ritstjórn: Aðilstræti 6. Auglýsingar og afgreiðsla: Aðalstræti 6. Sími 22480. Askriftargjald kr. 65.00 á mánuði innanlands. í lausasölu kr. 4.00 eintakiö. RAUÐU FÚRSTARNIR DEILA ¥ eiðtogar kínverskra og rússneskra kommúnista halda um þessar mundir fund með sér í Moskvu. Tilgangur þeirra með þessu fundarhaldi er að reyna að ná samkomu- lagi um þau ágreiningsefni, sem undanfarið hafa valdið sí fellt versnandi sambúð milli kommúnistaflokka Sovétríkj- anna og Rauða Kína. Það efni, sem talið hefur verið djúptækast er, hvort freistað skuli að breiða hinn alþjóð- lega kommúnisma út með styrjöld og hernaðaraðgerð- um, eða hvort það skuli gert með friðsamlegum aðgerðum. Ein^ og kunnugt er hefur Nikita Krúsjeff lagt höfuð- áherzlu á það, að hann vildi leggja heiminn undir hið kommúníska skipulag með friðsamlegum hætti. Hann hefur talið friðsamlega sam- búð austurs og vesturs mögu- lega, enda þótt hann drægi enga dul á að höfuðtakmark hans sé heimsyfirráð komm- únismans. Mao tse tung og aðrir leið- togar kínverskra. kommúnista hafa hins vegar deilt harðlega á Krúsjeff og rússnesku kommúnistana fyrir þetta. Þeir hafa talið hina rússnesku stefnu hættulega endurskoð- unarstefnu, sem feli í sér stór- felld svik við kenningar Marx og Lenins. Kínversku komm- únistarnir hafa gengið svo langt, að þeir hafa lýst því yf- ir í blöðum sínum og tímarit- um, að Kínverjar séu eina þjóðin, sem geti lifað af kjarn orkustyrjöld. Þeir hafi efni á því að fórna 3—400 milljónum mannslífa á altari gereyðing- arstyrjaldar. -Kínverska þjóð- in geti lifað þetta af sakir stærðar lands hennar og fjöl- mennis þjóðarinnar, og hafizt síðar handa um uppbyggingu nýrrar kommúnískrar verald- ar á hinum rjúkandi rústum g jöreyðingarstyr j aldarinnar! Þessar skelfilegu bollalegg- ingar kínversku kommúnist- anna hafa að sjálfsögðu vakið ugg um allan heim. Sokðana bræður þeirra í Rússlandi hafa hvað eftir annað lýst því yfir, að þeir teldu kínversku kommúnistaleiðtogana á stór- hættulegri leið. Undir niðri sprettur ágrein- ingur Rússa og Kínverja nú áreiðanlega ekki aðeins af mismunandi afstöðu til að- ferða við útbreiðslu kommún- ismans. Leiðtogar rússneskra kommúnista gera sér Ijóst, að hin nýja heimsvaldastefna Kínverja hlýtur fyrst og fremst að beinast gegn Sovét- ríkjunum, einfaldlega vegna þess að það eru Rússar, sem ráða yfir miklum landssvæð- um, sem áður voru kínverskt land. Kínverjar, sem eru nú nær 700 millj. manna og f jölg- ar um tugi milljóna á ári, þurfa nú á þessu landi að halda. Ekkert er þess vegna líklegra en til beinna hags- munaárekstra komi fyrr en síðar milli Sovétríkjanna og Rauða Kína. Margir telja að þetta kunni að valda því, að Rússar muni á næstunni halla sér í vax- andi mæli að samvinnu við vestrænar lýðræðisþjóðir, og þá fyrst og fremst Bandarík- in. Kínverjar eru að vísu í dag hernaðarlega veikir. En þeir munu á næstu árum koma sér upp kjarnorkuvopn- um og verða sjálfstætt kjarn- orkuveldi. En þrátt fyrir allt þetta er ekki ólíklegt að leiðtogar kín- verskra og rússneskra komm únista leggi allmikla áherzlu á að ná samkomulagi á funti- inum, sem nú stendur yfir í Moskvu, að minnsta kosti á yfirborðinu. B ERJAST GEGN KJARABÓTUM HINNA LÆGST LAUNAÐU TVTauðsynin á því, að kjör ’ hinna lægst launuðu séu bætt, hefur lengi verið ljós þeim mönnum, sem um kjara- mál fjalla af ábyrgðartilfinn- ingu og skilningi. Fyrir nokkrum mánuðum bauð rík- isstjórnin Alþýðusambandi fs lands til samstarfs um aðgerð ir, sem sérstaklega mættu verða til þess að bæta kjör hinna lægst launuðu, en því tilboði var hafnað á þeirri for sendu, að þetta mál væri ekki í verkahring ASÍ. Þrátt fyrir þessar slæmu undirtektir af hálfu forystumanna ASÍ í fyrra náðist nú samkomulag um 5% launahækkun, sem ná skyldi til hinna lægst laun- uðu, en ekki verða almenn kauphækkun, er jafnharðan færi út í verðlagið. Með þessu móti átti að bæta nokkuð kjör þeirra, sem minnst bera úr býtum. Undanfarna daga hafa mál- gögn stjórnarandstöðunnar, „Tíminn“ og „Þjóðviljinn" þrástagazt á því, að ekki se nema sanngjarnt, að 5% kaup hækkunin, sem ætluð var til þess að rétta hlut hinna lægst launuðu sérstaklega, verði nú Sovéskir niósnarar í New York I S.L. viku hófust í Bandaríkj- unum yfirheyrslur í njósna- máli, sem talið er það alvar- legasta, sem komið hefur upp í landinu undanfarin fimm ár. Tvenn hjón hafa verið hand- tekin, sökuð um njósnir, önn- ur rússnesk, en ekki hefur verið skýrt frá þjóðemi hinna. Rússnesku hjónin, Ivan Dmi trievitsj Egorov og Aleksandra kona hans, voru handtekin í íbúð sinni í New York og sátu þau að snæðingi, er lögreglu- menn komu til íbúðarinnar. Þau neituðu að fara með lög- reglumönnunum og urðu þeir að beita valdi til þess að koma þeim til lögreglustöðvarinnar. Þegar yfirheyrslur hófust, neituðú hjónin ásökununum harðlega, og er handtaka þeira spurðist til Sovétríkj- ana sendu Rússar þegar í stað mótmælaor-ðsendingu. Sögðu þeir ekkert hæft í ásökunum á hendur hjóununum og mót- mæltu handtöku þeira, á þeiri forsendu, áð Egorov væri starfsmaður Sameinuðu þjóð- Egerov hjónin (fremst á myndinni) á leið til yfir- heyrslu. anna og nyti þar af leiðandi sömu fríðinda og diplómatar. Þ.e.á.s., ólöglegt væri að hand- taka hann. Dómsmálaráðherra Bandaríkjanna, Robert Kenne dy, sagði hins vegar, að starfs- menn Sameinuðu þjóðanna nytu ekki sömu rétinda og diplómatar, en ákvæðin um þetta í stofnskrá samtakanna orka tvímælis. Hin hjónin, sem handtekin voru, kölluðu sig Robert Baltch og Joy Ann Garber. ,Robert Balteh“. Nöfn þessi höfðu þau tekið upp, að því virðist af tilvilj- un, en í New York ríki býr prestur að nafni Robert Baltch og útborg New York húsmóð- ir, sem heitir Joy Ann Garber. Engin ástæða þykir til þess að gruna þeta fólk um þátttöku í njósnastarfseminni. Hjónin handteknu ganga nú undir nöfnunum Jane og John Doe. Þegar lögreglan lét til skar- ar skríða gegn njósurunum, hafði hún fregnað, að Doe hjónin væru að fara úr landi og ætluðu til Rússlands. Þegar þau voru handtekin, neituðu þau sökunum, sem þau voru borin og hr. Doe, varð að flytja til lögreglustöðvarinnar í böndum. Rússar hafa ekkert ....................... .. . látið til sín heyra í sambandi við töku Doe hjónanna. Bandaríska lögreglan telur, að hin handteknu hafi starfað fyrir Rússa í Bandaríkjunum frá 1957 og helzta verkefni þeirra hafi verið að afla upp- lýsinga um bandarískar eld- flaugastöðvar. Óstaðfestar fregnir herma, að þau hafi haft samband við starfsmenn bandarísku ríkisstjórnarinnar, sem hafi veitt þeim ýmsar leynilegar upplýsingar. Lögregluna hefur grunað Egerov hjónin um njósnastarf- semi nokkuð lengi, en það var ekki fyrr en í júní s.l., sem hún stóð Egerov að verki. Veitti hún honum þá eftirför út fyrir NewYork, en erindi hans út fyrir borgina var að ná í kassa, sem innihélt hlust- unartæki af sömu gerð og áður hafa fundizt í fórum sovézkra njósnara. Egerov fór með tæk- ið á annan felustað nokkrum dögum síðar og þangað sótti maðurinn, sem nú er nefndur hr. Doe tækið og fór með það til Washington. Egerov hefur starfað í aðal- stöðvum Saméinuðu þjóðanna I New York frá 1960. Hann er 41 árs, lögfræðingur í Lenin- grad. einnig látin ná til annarra, ekki sízt iðnaðarmanna. Iðn- aðarmenn bera sjálfsagt mis- jafnlega mikið úr býtum, en það er ekkert launungarmál, að sumir hópar iðnáðarmanna eru meðal hinna tekjuhærri í þjóðfélaginu. Verður því ekki séð, að hægt sé að setja þá menn á bekk með tekjulægsta verkafólki, iðnverkafólki og verzlunarfólki. Það liggur í augum uppi, að verði 5% kauphækkunin fyrr á þessu ári, látin ganga til allra stétta, þá verður ekki með henni náð því takmarki, sem að var stefnt, þ.e. að bæta hlut hinna lægst launuðu. Sá hugur í þeirra garð, sem kem- ur fram í kröfum stjórnar- andstöðuflokkanna nú, kem- ur Morgunblaðinu ekki á óvart. En þetta er vissulega lærdómsríkt dæmi fyrir verkamenn og annað lág- Alanbrooke lá- varður látinn London, 18. júní NTB—AP. ALANBROOKE lávarður, fyrr- um yfirmaður brezka herforingja ráðsins lézt í gær að heimili sínu í Hampshire í Suður-Englandi. Lávarðurinn var á 80. aldursári. Að því er kona lávarðarins tjáði fréttamönnum í gær, hafði hann um nokkurt skeið átt við hjartaveilu að stríða. Alanbrooke lávarður var á heimsstyrjaldarárunum síðari einn af nánustu samstarfsmönn- um Sir Winston Churchill og átti ekki svo lítinn þátt í skipan þess hernaðarlega grundvallar, er sig- ur Bandamanna byggðist á. launafólk um raunverulega afstöðu þessara flokka til þeirra, sem þeir þó a.m.k. allt af öðru hverju þykjast sér- | staklega bera fyrir brjóstL Síðustu árin lifði hann rólegu lífi og var lítt í sviðsljósi, Árið 1959 varð þó mikill úlfaþytur víða um heim vegna útkomu bók- ar eftir sagnfræðinginn Sir Arthur Bryant, en hún var byggð á dagbókum lávarðarins frá styrjaldarárunum. Þar kom fram allmikil gagnrýni á starf Eisen- howers sem hershöfðingja og var m. a. haft eftir dagbók Alan- brookes lávarðar frá nóvember 1944, að Eisenhower hefði þá tíð- um eytt tíma sínum á golfvöllum við Rheims og vanrækt þátt sinn í stjórn landhereinis. STÓRBRUNI Rio de Janeiro, I. jú í (AP) ELDUR kom upp í dag í 21 hæða verzlunarhúsi í Rio, og fórust a.m.k. sjö manns, sem reyndu að varpa sér út um glugga efri hæðanna. Þúsund ir áhorfenda sá fóikið falla til jarðar. Óttazt er að margir hafi brunnið innL

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.