Morgunblaðið - 07.07.1963, Side 23

Morgunblaðið - 07.07.1963, Side 23
Sunnudagur 7. júlí 1963 — Ræður Framhald af bla. 3. 4300 krónum, sem jafnast á við söltun á hundrað tunnum. í>á fá þær fríar ferðir og núna á laugardag og sunnu- dag sendum við tvær flugvél- ar norður með fjörutíu stúlk- ur, og eru þá aðeins örfáar enn eftir í bænum. Það mætti kannski geta þess, að aldrei hefur til þess komið að gera upp tryggingu. Við byrjuðum að salta á Raufarhöfn, þar sem flestar stúlkurnar eru á laugar dag, söltunin komin upp í 3500 tunnur og nokkrar bún- ar að salta yfir hundrað tunn- ur. — Og sumarið er fljótt að líða á Raufarhöfn? — Já, og þó sérstaklega þegar vel veiðist. Ég snýst í ýmsu, hef unnið á skrifstof- unni að staðaldri, tekið við stjórninni að nokkru leyti þegar maðurinn er fjarverandi og unnið við söltun þegar mikið hefur legið við. En í sumar er ég ráðin gjaldkeri. — Verðið sennilega vinsæl- asti kvenmaður á N-Austur- landi þegar þér borgið út. — Ég skal ekkert um það segja. í rauninni er gert upp við fólkið, þegar vertíðinni lýkur, en það er hægt að taka út fyrirfram til að stand- straum af matarkostnaði og fyrirz smáútgjöldum eins og gengur. Piltarnir, sem unnu á skrifstofunni á und- anförnum árum höfðu sér- stakt lag á að telja stúlkurn- ar á að spara, og ég vona, að mér takist hið sama. — Hvernig eyðir fólkið frí- stundunum? — Á ýmsan veg, maður lif- andi. Böllin eru vinsælust og landlegunum er víst óþartfi að lýsa. Við höfum oft sakn- að þess í Óskarsstöð, að hafa ekki samkomusal, því að stund um hafa harmonikuleikarar verið á bátunum, sem landa hjá okkur, og þá hefur dans- inn dunað í öllum herbergj- um, á skrifstofunni og á göng- unum. Einhvern tíma á surnr- inu förum við í ferðalag með starfsfólkinu ýmist í Ásbyrgi eða suður á firði. í landleg- unum er hafður vaktmaður í svefnskálunum og engum veittur aðgangur eftir mið- nætti. Þetta hefur leitt til þess að ýmsir kunningjar á bátunum hafa beðið okkur um passa að skálunum, svo að þeir gætu litið inn til vin- kvennanna. Einu sinni fékk ég einn slíkan gest að stöð- inni, vel hífaðan, sem bank- aði upp á og verkstjórinn fór til dyra. Sá, sem úti var, fyllt- ist gremju og hrópaði stund- arhátt: „O, hver andskotinn — hefur hún nú varðhund líka“. Þannig gengur þetta á síldinni — alltaf eitthvað á seyði og andrúmsloftið þrung ið ólýsanlegri spennu. — Trúið þið ekki mikið á drauma og ýmis fyrirbæri, sem lifið og hrærist í óviss- unni? — Jú, það fer ekki hjá því. Ég veit að skipstjórarnir mega ekki vera án einhverjar vissr ar húfu eða vasaklúts, og góð nöfn í draumi eru mann- inum fyrirboði góðs sumars. Mig dreymdi fyrir nokkrum árum, þegar sem verst gekk að veiða síldina og sáralítið búið að salta, að ég væri að kaupa kjöt suður í Keflavík fékk þrjú stór kjötstykki og mikið af áleggi. Næstu þrír dagar voru beztu síldveiði- dagar sumarsins og áleggið voru nokkrir sæmilega góðir dagar, er fylgdu næst á eftir. Samningur um stofnun Malaysíu undirritaður Kuala Lumpur, 6. júlí (AP). TUNKU Abdul Rahman, forsaet- isráðherra Malaya, kom til Lon- don í dag. Erindi hans þangað er að undirrita samning um stofnun ríkjasambandsins Malay- siu. Talið er að samningurinn verði undirritaður á mánudag, en 31. ágúst n.k. verður ríkjasamband- ið formlega stofnað, ef allt geng- ur að óskum. Aðild að Malaysíu eiga Malaya, Singapore, nýlendur Breta á Borneó (Sarawak og N-Borneó) og soldánsríkið Brunei, sem nýtur verndar Breta. Fulltrúi Malaya hefur dvalizt í London að undanförnu til við- ræðna við brezku stjórnina um stofnun ríkjasambandsins, en brezku nýlendurnar á Borné fá sjálfstæði um leið og Malaysía verður stofnuð. — Reykjavlkurbréf Framih. af bls. 13. Þá er það heldur ekki nóg að segja að „verkamenn“, þ.e. komm únistar, í öðrum löndum, eigi sjálfir að ráða málum sínum, jafnframt því sem á því er hamr- að, að þeir séu fyrst og fremst kommúnistar, síðan þegnar síns eigin þjóðfélags. Hvað sem öll- um orðum og yfirlýsingum líð- ur, þá höfum við íslendingar það enn fyrir augum, að hér er haldið uppi stjórnmálaflokki, þar sem ýmsir menn, góðir og gegnir að upplagi, hafa gerzt og enn eru skaðræðismenn gegn sinni eigin þjóð, með því að þeir í verki hafa fylgt og fylgja enn því boð- orði Krúsjeffs að vera fyrst og fremst kommúnistar og því næst fslendingar. IIE n,D ARSÍI.DA R A FI.INN í fyrrinótt var um 31 þús. mál og tunnur. Afla þennan fengu 60 skip. Síldin veiddist 50—60 sjómíl- ur ANA af Raufarhöfn og á Hér- aðsflóa, Seyðisfjarðar-, Norð- fjarðar- og Reyðarfjarðardýpi. Flestir bátarnir tilkynntu, að þeir færu með síldina til Seyðis- fjarðar. Athugið! að borið saman við útbreiðslv er langtum ódýrara að auglvsa í Morgunblaðinu, en öðrum blöðum. 5ííg. tfv ....... Lúðrasveit Reykjavikur Seikur á Austur- velli kl. 3.30 LÚÐRASVEIT Reykjavíkur leik- ur í dag á Austurvelli og hefst leikur sveitarinnar klukkan 3.30. Stjómandi er dr. Páll ísólfsson. Leikin verða lög sem voru í tizku fyrir um 30 árum. — Stórstúkubing Framih. af bls. 2 Stórgæzlumaður unglingastarfs Sigurðux Gunnarsson, fyrrv. skólastj., Reykjavík. Stórgæzlumaður löggjafar- starfs: Sveinn Helgason, stór- kaupm, Reykjavík. Stórfræðslustjóri: Magnús J. Kristinsson,- rafvélavirkjameist ari, Akureyri. Stórkapellán: Þóra Jónsdóttir, frú, Siglufirði. Stórfregnritari: Njáll Þórarins- son, stórkaupm., Reykjavík. Fyrrverandi stórtemplar er séra Kristinn Stefánsson, áfengis- varnarráðunautur, Reykjavík. Heiðurafulltrúi: Jóhann Ög- mundur Oddsson, Reykjavík. (Fréttatilkynning frá Stór- stúku íslands I.O.G.T.) SKRIFSTOFA SKEMMTIKRAFTA Pétur Pétursson Valdimir Azkenasy Tilkynnt verður í hádegisútvarpi í dag um næstu tónleika og sölu aðgöngumiða. VEKZUUNIN niimmllmm, að Skólavörðustíg 4, hefur um þessar mundir sýningu á vegg teppum eftir Asgerði Búadótt urur. Áður hefur Dimmalimm haft sýningu á teppum eftir Barböru Ámason og jám- kúnst eftlr Jóhann Gunnar Árnason. Sýningin stendur í vikutíma og eru veggteppin til sölu. Dimmalimm hefur einnig á boðstólum leirmuni eftir Heidi Guðmundsson, málverkaeftir- prentanir, listmuni og heimil- isiðnað hvers konar. Myndin: Tvö af teppum Ás- gerðar og leirmanir eftir Heidi Frú Helga Egilsson handleik- ur könnu eftir Heidi. Ljósm. Sv. Þ. Móðir okkar og tengdamóðir RÓSA EGGERTSDÓTTIR Vesturgötu 17, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju þrinðjudaginn 9. júlí kl. 15. Þeim sem vildu minnast hinnar látnu er bent á Krabba meinsfélag íslands. Anna Bjarnadóttirr bergur Bjarnason, Guðrún Bergsdóttir, Frank Stefánsson, Þorleifur Guðmundsson. Öllum þeim, sem sendu okkur samúðarkveðjur við andlát og útför KRISTÍNAR JÓHANNESDÓTTUR Holtsgötu 39, sendum við okkar beztu þakkir. Halla Þórhallsdóttir, Kári Halldórsson, Hörður Þórhallsson, ÚHa Sigurðardóttir, Markús Þórhallsson, Hjördís Sigurjónsd., ásamt börnum. Hjartkær drengurinn okkar JÓN GUÐMUNDSSON andaðist á Landakotsspítala 5. júlí. Sigurbjörg Sigurbjörnsdóttir, Guðmundur Jónsson.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.