Morgunblaðið - 09.07.1963, Side 22
22
MORCU1SBLAÐIÐ
ÞrfSJudagur 9. fún Jt9ð3
Tilraunalandsiiöið brast
Ekkert mark skorað
og samleikur lítill
BRÓÐURHLUTINN af ísl. landsliðinu og Finnlandsmeistarar
í knattspyrnu á Laugardagsvellinum í ágætisveðri og ekkert mark
skorað. Þetta er ömurleg staðreynd og því má bæta við að opin
og góð tækifæri voru afarfá. Mark Finna komst eiginlega aldrei
í verulega hættu utan einu sinni að lá við sjálfsmarki og þó
Finnar sæktu meir og ættu snöggar hlaupatlögur að ísl. markinu
tókst þeim ekki að skora. Nokkrum sinnum varði Helgi vel, ým-
ist með því að grípa inn í á réttum tíma eða staðsetja sig vel.
hættulega. Kn er á leið hálfleik-
Lítill kraftur
ísl. liðið var kraftminna en
búizt var við. Margir leik-
manna voru langt frá sínu
bezta og mistókst herfilega öll
uppbygging og báru sig að
auki oft mjög klaufalega að.
Er ekki annað sýnna en gera
þurfi margar tilraunir enn ef
takast á að finna okkar bezta
landslið.
Fast Ieikið
Finnska liðið lék afskaplega
fast og margir leikmanna þar
hugsuðu oft meira um mótherj-
ann en knöttinn. Leikurinn var
því harður og á stundum meira í
ætt við slagsmál eða stympingar
en fallega knattspyrnu.
fsl. liðið tók upp sömu baráttu-
aðferð, þó þeir aldrei færu eins
]p ..
Beztu færin
Framan af sóttu Finnar meir
á, t.d. 4 hornspyrnur, eina mjög
inn jafnaðist þessi sókn upp.
Bezti kaflinn hjá ísl. liðinu
var fyrri hluti síðara hálfleiks,
þó aldrei næði liðið sér verulega
á strik. Er á leið slitnaði liðið
nokkuð í vörn og sókn, enda
gerðu þá Finnar margar snögg-
ar atlögur að markinu. Þá komst
Lahti innherji í bezta færið, en
þar var þröng og Helgi átti frem
ur auðvelt með að loka. Eitt
stangarskot áttu Finnar af 25—
30 m færi, boltinn snerti þverslá
og flaug yfir.
Beztu menn Finna voru vinstri
sóknararmurinn og Valtonen
miðvörður. Hjá ísl. liðinu var
Björn Helgason sem kom inn í
stað Hrannars og Sigþór útherji
þeir einu, er börðust og áttu svip-
aðan leik og áður.
Geir kastar sér hér fyrir fætur Tuuri miðherja í leiknum sem Finnar unnu 4—2 á laugardaginn.
Akranes vann Keíiavík 4-2
— og hefur nú forystu aftur
EFTIR leikinn á Akranesi á klaufamark hjá Keflvíkingum.
laugardaginn, blasir ekkert nema
önnur deild við Keflavík. Úrslit
leiksins voru sanngjörn, þar sem
Skagamenn höfðu algjöra yfir-
burði út allan fyrri hálfleik. Vörn
Keflvíkinga, án Sigurvins,
hrundi eins og spilaborg.
Leikur ÍBK og ÍA fór fram á
Akranesi sl. laugardag I glamp-
andi sól og hægri golu. Keflvík-
ingar unnu hlutkestið og kusu að
leika undan sól og vindi. En það
voru Skagamenn, sem þegar í
upphafi tóku leikinn í sínar hend
ur. Þórður Þórðarson lék miðh.
í stað Ríkharðar, og þegar á 5.
mínútu skapaði hann gott tæki-
færi fyrir Ingvar, sem skaut í
þverslá.
Forusta Skagamanna
Lib Keflavíkur virtist vera í
molum. Vörnin skipulagslaus og
framherjarnir svifaseinir og óná-
kvæmir. Skagamenn hins vegar
voru ákveðnir og ætíð fljótari á
knöttinn. Fyrsta markið kom á
14. mínútu. Hornspyrna frá
hægri, vel gefið fyrir markið og
Ingvar kom brunandi og skallaði
óverjandi í netið. Þetta var mjög
glæsilegt mark.
Skömmu síðar brendi Þórður
Þ. af góðu tækifæri. síðar bætti
hann úr, gaf lausan knött fyrir
markið, framhjá markverðinum,
í stöngina og i nn. Sannkallað
Keflvíkingar komust tvisvar
í markfæri. Karl skaut himin-
hátt yfir, fyrir opnu marki, og
bjargað var á línu, lausu skoti
Rúnars útherja. Fleiri voru tæki
færi Keflvíkinga ekki í hálfleikn
um.
Þriðja mark ÍA kom úr víta-
spyrnu fyrir hrindingu á bak
Þórðar Þ. Skúli skoraði örugg-
lega og hálfleikurinn endaði 3:0
fyrir Akranes. Verða það að telj-
ast sanngjörn úrslit, eftir gangi
leiksins.
Keflvíkingar skiptu um tvo
menn í hálfleiknum. Hólmbert
og Grétar fóru út, en inn komu
Jón Jóhannsson og Magnús
Torfason.
Síðari hálfleikur var tæplega
tveggja mínútna gamall, þegar
Ingvar hafði hlaupið af sér vörn
Keflvíkinga og skorað rólega
framhjá úthlaupandi markmanni.
4:0 og ennþá voru úrslitin sann-
gjörn.
Leiðinleg framkoma
’ Keflvíkingar tóku nú heldur
að sækja í sig veðrið og smásam-
an fóru þeir að ná tökum á
leiknum. Svar Skagamanna var
grófari leikur og óvenju leiðin-
leg framkoma. í hvert skipti, sem
dómarinn flautaði, mátti heyrá
mótmæli og háðsglósur til dómar
ans. Reyndari dómari hefði áreið
anlega verið búinn að senda
suma drengina heim fyrir leiks-
lok.
Á 13. mín. voru Keflvíkingar
STAÐAN
Staðan í 1. deild er nú þessi
eftir leik Akraness og Kefla
víkur.
Akranes
KR
Fram
Akureyxi
Valur
Keflavík
14-12 9
10-10 7
7-7 7
13-13 6
10- 8 5
9-15 2
nærri að skora, en Jón J. skaut
yfir af stuttu færi. Skömmu síð-
ar var Jón aftur í færi, en alltof
seinn að skjóta. Þannig gekk í
langan tíma. Keflvíkingar áttu
meira í leiknum en hin bitlausa
framlína þeirra gat ekki skorað.
Þrátt fyrir nokkur opin tæki-
færi fengu Keflvíkingar ekki sitt
Framh. á bls. 23
Næstu leikir eru á sunnu-
dagirín kemur milli Akureyr-
ar og Fram á Akureyri og
milli KR og Akraness í Laug-
ardal.
í 2. deild er staðan pessi:
A-riðilI:
Breiðablik 3 3 0 0 5- 2 6
Vestm.eyjar 1 1 0 0 0- 0 2
Reynir 4 1 0 3 13- 8 2
Dímon 2 0 0 2 3-11 0
B-riðill:
ísafjörður—Hafnarfj. 2—1
Þróttur — Siglufj. 5—2
Þróttur 4 2 1 1 10- 8 5
Siglufj. 4 2 11 12-12 5
Hafnarfj. 4 112 9-9 3
ísafjörður 4 112 9-9 3
Næstu leikir:
Hafnarfjörður — Siglufjörður
í Hafnarfirði 14. júlí.
Hafnarf jörður — ísaf jörður
í Hafnarfirði 18. júlí.
Finnsku meistararnir ger-
sigruðu veikt Rvíkurúrvaí
ÞAÐ var viljalítið, getulítið
Reykjavíkurúrval sem mætti
finnsku meisturunum Haka í blíð
skaparveðri á laugardag. Svo fór
líka að Finnar báru algert sig-
urorð af úrvalinu og unnu með
4-2. Sá sigur var vel verðskuld-
aður eftir frammistöðu Rvíkur-
liðsins þó dómarinn ætti einn-
ig nokkurn þátt í að skemma
leikinn með ónákvæmum dóm-
Sundrung og linja
Það var eins og úrvalslið-
ið fyndi aldrei neinn takt í
leik sinn. Það var strax í byrj-
un sundurlaust og sumir virt-
ust ekki færir um það leikinn
út í gegn að senda knött al-
mennilega frá sér. Og slak-
ast var liðið er á leið, í stað
þess að „finna sig“ og vaxa.
Það er alvarleg sundrung og
linja sem speglazt hefur í
ótalmörgum Reykjavikurúr-
_ valsliðum undanfarin ár þó
svo virðist að af nógu sé að
taka til að koma góðu liði
saman.
ir Mörkin
Hraði Baldvins Baldvinssonar
miðherja skapaði fyrsta markið
um miðjan hálfleik samfara
klaufsku finnska markvarðar-
ins. Baldvin komst framhjá hon-
um og sendi í netið óvarið.
Rétt fyrir hlé jafna Finnar. Það
var Markku Lahti innherji sem
skoraði með óverjandi skoti af
stuttu færi eftir að hann fékk
knöttinn óvænt.
Finnar náðu forystu eftir
nokkra mínútna leik í síðari hálf-
leik er Pitko v. útherji skoraði
úr erfiðri stöðu með tvo reyk-
víska varnarleikmenn sér við
hlið.
Eftir stundarfjórðung af síðari
hálfleik er staðan aftur jöfn.
Björn Helgason skaut að finnska
markinu og markv. virtist hafa
knöttinn örugglega, en hann
missti hann aftur fyrir sig og
í netið.
Finnar náðu svo forystu úr
vítaspyrnu stuttu síðar sem
dæmd var fyrir hindrun. Malm
skoraði örugglega. Síðar fengu
Finnar aðra vítaspyrnu dæmda
fyrir hendi, sem var algert óvilja
verk — en mistókst að skora.
Smiðshöggið á sigurinn setti
miðherjinn Tuuri með laglegum
undirbúningi og góðu skoti af
stuttu færi.
4r Liðin
Finnarnir voru mun betri I
öllum listum knattspyrnunnar og
verðskulduðu sigur. Pitko útherji
var beztur einnig áttu Tuuri og
innherjarnir góða kafla.
Um úrvalið er bezt að vera
fáorður. Allir liðsmenn brugðust
meira og minna og höfðu ekki
sjáanlegan vilja til leiksins.