Morgunblaðið - 12.07.1963, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 12.07.1963, Blaðsíða 1
24 siður 50. árgangur 151. tbl. — Föstudagur 12. júlí 1963 Prentsmiðja Morgunblaðsins Friösamlega lausn skortir í Moskvu K'mversku fulltrúarnir mættu ekki til fundar i dag. — Chen-yi ræðst á Sovétrikin i ræðu í Peking i dag Moskva, 11. júlí. — AP-NTB EKKI varð af fundi sovézkra og kínverskra kennisetninga- meistara í Moskvu í dag. Þyk- ir nú svo illa horfa um sam- komulag, að fréttastofufregn ir frá Associated Press herma, að fundarmenn reyni nú að ljúka samræðum, án þess að til stórátaka komi. í dag fór eins og 'fyrr, er viðræður féllu niður, að kín- versku sendimennirnir mættu ekki til fundar, Frétta- menn biðu klukkustundum eaman eftir komu þeirra, árangurslaust. Það barst loks fréttamanni frönsku fréttastofunnar AFP til eyrna, að Kínverjarnir myndu ekki koma til fundar í dag. Þá fylgdi það þeirri frétt, að næsti fundur yrði haldinn á morgun, föstudag. Vestrænir fréttamenn fylgdust með gangi mála í allan dag. Síð- degis sáu þeir, að kínverska sendi nefndin ók til sendiráðs síns. Er talið, að þar hafi á ný komið í viðræðum þeirra við sovézku fundarmennina, að leita hafi orð- ið til Peking eftir frekari fyrir- mælum. Þá e. hermt, að Kín- verjarnir hafi beðið um viðræðu- frest. Það hefur þó ekki fengizt etaðfest af opinberri hálfu. Frá því að viðræður hófust á Leninhæð á föstudag, hafa þær staðið samtals í þrjá heila daga. Ekkert hefur verið látið uppi um það af opinberri hálfu, hvorki í Moskvu eða Peking, hver árangur ,ef nokkur, hafi náðst á fundunum. Hins vegar gerist sá orðrómur ae magnaðri í Moskvu, að ekk- ert miði í samkomulagsátt, og eé nú svo komið, að búast megi við því, að sameiginleg yfirlýs- ing um lok viðræðna muni ekki verða gefin út — ón þess að til hreins ófriðar dragi. Þá þykir það ekki góðs viti, að Chen-Yi, utanrikisráðherra Kína, lýsti því yfir í dag, að Sovétríkiin ynnu markvisst að Framhald á bls. 23 Fá ekki að IMoskvuvi Vestrænum fréttamönnum meinað að hlýða á þriveldafundinn, sem hefst i næsfu viku hlýða á ræður Aðspurður lýsti Harriman því yfir að viðræðurnar í Moskvu myndu ekki hafa á sér blæ af- vopnunarráðstefnunnar í Genf, sem þekkt er fyrir seinagang og orðagjálfur. London, Washington, Moskva 11. júní — AP — NTB VESTRÆNIR fréttamenn fá ekki leyfi til að vera við- staddir fund brezkra, banda- rískra og sovézkra fulltrúa, sem fram fer um afvopnun- armál í Moskvu eftir helgina. Er því borið við af opin- berri hálfu í Moskvu, að fund urinn verði haldinn fyrir lukt tma dyrum, og sé það eina á- stæðan fyrir neituninni. London, Washington, Moskva, 11. júlí — AP-NTB Averill Harriman, sérstakur sendimaður Kennedys, Banda- rikjaforseta, á fundinum, lýsti því yfir, er hann hélt frá Banda- ríkjunum, að árangurs mætti því aðeins vænta á fundinum, að Sovétríkin tækju raunhæfa af- stöðu til mála. Harriman sagði, að Bandaríkin vildu koma á banni við tilraun- um með kjarnorkuvopn, myndu þau vinna að því máli að heil- um hug. Nú reyndi á Sovétríkin, hvort þau vildu sýna orð sín í verki. Harriman er í fararbroddi 10 bandarískra sendimanna, er nú halda til Moskvu. Hann sagði við fréttamenn í dag, að Kenn- edy, forseti vildi láta það verða lýðum Ijóst, að það sé hans vilji að gera allt, sem í mann- iegu valdi stendur til að binda enda á tilraunir með kjarnorku- vopn. . „Takist það ekki,“ sagði Harriman, „þá verður að kenna Sovétríkjunum um árangurslausa ráðstefnu í Moskvu.“ 20,000 krabba Segir i skýrslu brezkra London 11. júlí — AP — NTB BREZKA læknafélagið ekoraði í dag á yfirvöld og ríkisstjórn að beita sér fyrir því, að tekin yrði upp skelegg barátta gegn vindlingareyk- ingum, Áskorunin var samþykkt á fundi brezkra laekna, en um 50.000 þeirra sátu fundinn. í yfirlýsingu fundarins var léfust úr lugna- í Breflandi 7962 á fundi 50,000 lækna sagt, að það væri skelfilegt, hve lungnakrabbi hefði færzt í vöxt. Rannsóknir hefðu sýnt, að um 26.000 manns hefðu látizt af völd um lungnakrabba á s.l. ári. Þar af myndu um 20.000 hafa sýkzt af vindlingareyk. Læknarnir vöktu sérstaka at- hygli á fé því, sem vindlinga- framleiðendur verðu árlega til auglýsinga á framleiðslu sinni. Er talið, að í Bretlandi nemi sú upphæð um 38.000.000 sterlings- punda (3.600.0000,000 ísl. kr.) á hverjum 12 mánuðum. Þá var bent á það á róðstefn- unni, að læknar hefðu reynt að setja fólki fordæmi með því að hætta reykingum, eða þá með því að leggja þær alveg niður. Læknarnir töldu mikinn vanda á herðum, er reyna skyldi að leiða almenningi, og þá sérstak- lega ungu fólki, fyrir sjónir, hve reykingar væru skaðlegar. Töldu þeir, að betur væri með aug- lýsingaféð farið, væri því eytt til þeirrar heilsubótar, er leiddu af minnkandv reykinunum, í stað meiri. Þessi mynd er tekin í fyrra- ! dag er átökin urðu í Lundún- , um er æstur lýður vildi mót- i ! mæla komu grísku konungs- hjónanna til Lundúna. 7000 lögreglumenn máttu hafa sig alla í frammi til að ráða við 1 æst fólkið. Frá Bandarikjunum hélt Harri- man til London, en þar ræðir hann við brezka stjórnmálamenn, áður en fundurinn í Moskvu hefst n.k. mánudag. Dregur til fíð- inda í Brussel Deila Flœmingja og Vallóha harðnar minnismerki óþekkta hermannsins sprengt í loft upp Brússel, 11. júlí - AP - NTB: Stórkostleg sprenging áfcíi sér stað í Brússel í dag. Var plast- sprengju varpað að minnismerki óþekkta hermannsins, árdegi. Var afi sprengjunnar svo mikið, að iá við skaða á þinghúsi og konungs- höll. Engin skýring hefur fengizt á atburði þessum, en talið er, að hér sé um að ræða enn einn Jið- inn í hermdaverkakeðju þeirri, sem tengd er bará.ttu Flæmingja og Vallóna. Barátta mikil hefur staðið milli þjóðarbrotanna, svo sem kunnugt er. Atburður þessi hefur vakið mikla athygli í Belgíu. Þykir ílest um borgurum mjög miður farið, enda hefur eldurinn á minnis- merki óþekkta hermannsins 'ekki slökknað frá því heimsstyrjöld- inni lauk. Við sjálft lá, er sprengingin varð, að slys yxði á ferðamönn- uim. Dyr á sýninganhúsi í nágrenn inu sem fjöldi ferðamanna sæk- ir, feyktust upp’ Lá við, að loft- þrýstingurinn svipti fólki um koll. Rúður brotnuðu í nálægum byggingum, en ekki fara sögur af slysum. Framtíö- aráætlun Brussel. 11. júlí — AP ÞAR kom í dag, að fulltrúar Efnahagsbandalags Evrópu, sem ræðzt hafa við í Brússel hafa komizt að samkomulagi um, á hvern hátt sé bezt að 7 viðhalda tengslum bandalags- ins við Bretland. Samkomulag náðist. Er þar tekið fram, að reglulegar við ræður við Breta um væntan- leg tengsl þeirra við EBE, skuli fara fram á þriggja mán aða fresti. Mun samkomulagið fyrst og fremst byggjast á kröfum Ger hard Schröder, utanríkisráð- herra V-Þjóðverja.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.