Morgunblaðið - 12.07.1963, Blaðsíða 8
8
iiORCUNBLAÐIB
Fðstudagur 12. jötí 1963
Það er
leikandi
létt að slá
með
NORLETT
NORLETT er mest selda sláttuvélin á
Norðurlöndum. Slær alveg upp að hús-
köntum. Stilling hve nærri skal slá. —
Kostar aðeins krónur 3.700,00.
^ARNI GE5TSSON
Vatnsstíg 3. — Sími 17930.
DAGLEGA
NÝJAR
VÖRUR
FYRIR
SKOÐUN
ALLT Á 5AMA 5TAÐ
ALLT A SAMA STAfí
FERODO
EIGUM AVALLT
MIKIÐ ÚRVAL AF
FERODO
VIFTUREIMUM
í FLESTAR GERÐIE
BIFREIÐA.
EINNIG:
FLRODO
BREMSUBORÐA
í FLESTA BÍLA.
Hjá okkur
fáið þér hlutina
í bílinn.
H.2. Egill Vilhjálmsson
Laugaveg 118 - Sími 2-22-40
Ný kirkja að Lundi
í Borgarfirði
SUNNUDAGINN 23. júní 1963
var vígð ný kirkja að Lundi í
Lundarreykjadal. Þar er forn
kirkjustaður og var áður prests-
setur en með prestakallasam-
steypunni 1907 var kallið sam-
einað Hestþingum (Hvanneyrar-
prestakalli).
Kirkjan að Lundi var orðin all
gömul, timburkirkja járnvarin,
reist síðla á síðustu öld. Var hún
mjög farin að hrörna. Árið 1955
hófu kvenfélagskonur í sókninni
máls á því, að hafizt væri handa
um viðgerð á kirkjunni og fegr-
un hennar. Félagið er ekki fjöl-
mennt, aðeins 15 konur voru í
því, þegar þetta gerðist. Sam-
þykktu þær að beita sér fyrir
fjáröflun til kirkjunnar. Sóknar-
nefndin tók í sama streng og varð
þegar samstaða í sókninni um
málið. Við athugun á gömlu
kirkjunni þótti sýnt að ekki
mundi svara kostnaði að gera við
hana og á safnaðarfundi 1960 var
eftir ýtarlegar umræður sam-
þykkt einróma að reisa nýja
kirkju. Handbært fé til fram-
kvæmda hafði söfnuðurinn ekki
svo að teljandi væri, því að hann
er fámennur, aðeins á annað
hundrað manns. En forgöngu
menn létu það ekki á sig fá, held
ur settu sér markið í fullri trú
á framgang góðs máls. Þá bauð
Þorvaldur Brynjólfsson frá
Hrafnabjörgum að taka að sér
umsjón með smíði kirkjunnar og
Jón Guðmudsson
Minning
lána alla vinnu sína fyrst um
sinn. Þetta drengilega tilboð var
þegið með þökkum. En nokkur
tími leið þar til búið vai* að út-
vega teikningar. Þegar þær komu
frá teiknistofu húsameistara rík-
isins 3. júlí 1961 var þegar í stað,
eða 7. júlí s.á., byrjað að grafa
fyrir grunni kirkjunnar og 22.
desember var lokið að steypa
veggi hennar. Síðan var verkinu
haldið áfram viðstöðulítið, unz
kirkjan var fullgerð á þessu vori
og vígð, eins og fyrr segir, sl.
sunnudag, 23. júní.
Kirkjan er 92 ferm. að flatar-
máli, steinsteypt með járnvörðu
timburþaki, veggir múrhúðaðir
að innan og einangraðir með
varmaplasti, súð með trétexi.
Hún rúmar 95 manns í sæti.
Teikning er gerð á skrifstofu
húsameistara ríkisins, járnateikn
ingar gerði Páll Flygenring.
Þorvaldur Brynjólfsson annað-
ist.smíði kirkjunnar að mestu,
gröift fyrir grunni og múrverk.
Hann hefur lánað mikið af bygg-
ingarefni og vinnulaun sín nær
öll. Hefur þessi fágæti dreng-
skapur ráðið úrslitum um það, að
kirkjan komst upp svo fljótt og
vel sem varð. Sóknarmenn hafa
einnig lagt fram mikla sjálfboða-
vinnu, bæði við steinsteypu og
Kirkjan að Lundi
eyri, hefur verið traustur hvata-
maður í þessu máli. Er önnur
kirkja í smíðum í prestakalli
hans, kirkjan að Bæ, og munu
Bæjarmenn hafa fullan hug á
að skila því veiki í höfn áður
langt líður.
Vígsla hinnar nýju kirkju að
Lundi hófst kl. 2 með skrúð-
göngu presta og nefndarmanna
safnaðarins úr gömlu kirkjunni
sem enn stendur. Aðstoðarmenu
við vígsluna voru prófasturinn,
sr. Sigurjón Guðjónsson, Saur-
bæ, sr. Einar Guðnason, Reyk-
holti, sr. Guðmundur Sveins-
son, Bifröst og Þorsteinn Krist-
leifsson, Gullberastöðum. Biskup
vígði, sóknarprestur, sr. Guð-
mundur Þorsteinsson, flutti stól-
ræðu, skírði eitt barn í mess-
unni og annaðist altarisþjónustu
F. 29. 5 1960. — D. 5. 7. 1963.
Vér stönduim hljóð nær fögru
blómin failla
fyrir ljá hins mikla sláttumanns
en til er einn sem þekkir alil't og
alla
þótt enginn skilji verk né
tilgang hanis.
Við áttum von um framtíð
barnsins bjarta
það breytitist skjóbt nær okkur
varði sízt
og tilfinning í hryggu móður-
hjarta
er háifu dýprj en nokikur orð fá
lýst.
Það skeður margt í hljóðu húmi
nætur
og höfug falla tár uim hrjúifa
kinn
þar sem bæði afi og aimima
grætur
yndiselga litla vininn sinn.
En það er einn sem þerrar heitu
tárin
og þegar hefur gefið annan son
sjálfur Guð mun græða dýpstu
sárin
og gefa ykkur nýja betri von.
Kristján Guðjónsson.
— ,v' "' —'■WMiMSÍ' á ■■ j —
Séð inn eftir kirkjunni
málningu utan. BrUgðust þeir vel
við jafnan þegar til þeirra var
leitað og komu venjulega fleiri
en brýnasta nauðsyn bar til, að
því er formaður byggingarnefnd-
ar, frú Sigríður Jónsdóttir sagði
á vígsludegi.
Frú Sigríður er einnig formað-
ur sóknarnefndar, en með henni
sóknarnefnd eru Jón Guð-
mundsson, Snartarstöðum og Pét
ur Guðmundsson, Skarði.
Frú Gréta Björnsson gerði
teikningu að tilhögun í kór og
bekkjum og hún og maður henn-
ar, Jón Björnsson, máluðu kirkj-
una innan. (
Eins og fyrr segir höfðu konur
í Lundarsókn frumkvæði í þessu
máli, en óhætt er að segja, að
frú Sigríður Jónsdóttir, hús-
freyja að Lundi, hafi átt mestan
þátt í því að hrinda því af stað
og koma því fram. Maður henn-
ar, Gísli Brynjólfsson, bóndi að
Lundi, bróðir Þorvaldar frá
Hrafnabjörgum, hefur og með
ráðum og dáð stutt málið. Lund-
arheimilið hefur verið miðstöð
framkvæmda og enginn átroðn-
ingur verið eftir talinn né fyrir-
höfn spöruð. Ötul forganga og
ósérplægni þessara hjóna og Þor-
valdar hefur verið metin og kom
það glöggt fram á vígsludegi.
En frú Sigríður sagði í lok ræðu
sinnar, þegar hún rakti sögu
kirkjubyggingarmálsins: „Það er
gaman að stuðla að verki, þar
sem allir vilja rétta hönd til
hjálpar, eins og við þessa kirkju-
byggingu".
Sóknarpresturinn, síra Guð-
mundur Þorsteinsson á Hvann-
ásamt biskupi. Gísli Brynjólfs-
son, Lundi, flutti bæn í kórdyr-
um, organleik og söngstjórn ann-
aðist Þorvaldur Brynjólifsson.
Meðhjálpari var Kristján Davíða
son, Oddstöðum. Fjölmenni var
við vígsluna og að henni lok-
inni var samsæti í félagsheim-
ilinu að Brautartungu. Kvenfé-
lag sveitarinnar hafði- veitingar
af mikilli rausn. Margar ræður
voru fluttar og sungið á milli
og stóð hófið fram á kvöld. Mátti
glöggt finna samhuga gleði sókn-
armanna yfir þeim sigri, sem nú
var unninn, þegar ný og mynd-
arleg kirkja var risin á hinuna
fornhelga kirkjustað. Einnig
voru viðstaddir nokkrir burt-
fluttir Lunddælingar og kveðjur
bárust frá öðrum, en ýmsir, sem
fluttir eru í önnur héruð og eiga
helgar minningar um Lundar-
kirkju, hafa með gjöfum og upp-
örfun stutt heimamenn í þessu
göfuga stórvirki.
(Frá skrifstofu biskups)
Cuðjón Eyjólfsson
löggiltur endurskoðandí
Hverfisgötu 82
Simi 19658.
Benedikt Blöndat
héraðsdomslögmað ur
Austurstræti u. — Sími 10233
JÓN E. AGUFTSSON ,
málarameistari. Otrateigi 6.
Allskonar málaravinna.
Sími 33346.