Morgunblaðið - 25.07.1963, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 25.07.1963, Blaðsíða 6
6 1UORCVNBL4ÐIÐ Fimmtudagtrr 25. júíí 1963 75 ára í dag Steindðr Einarsson bifreiðaeigcmdi STEINDÓR Einarsson, hinn landskunni samgöngumálafröm- uður, stofnandi og forstjóri „Bif- reiðastöðvar Steindórs“, verður 75 ára í dag. Þó að honum muni vera blaðaskrif um sjálfan hann lítt að skapi, ætla ég að geta hans með fáeinum orðum í til- efni af þessu merkisafmæli í því ti-austi, að hann virði mér það á betra veg. Steindór er fæddur í Ráðagerði í Reykjavík 25. júlí 1888 og er því borinn og barnfæddur Reyk- víkingur. Hins vegar höfðu for- eldrar hans flutzt hingað til bæj- arins. Móðir hans, Guðrún Stein- dórsdóttir, var sonardóttir Matt- híasar kaupmanns í Hafnarfirði Jónssonar prests í Arnarbæli Matthíassonar, en það er alkunn vestfirzk ætt, er lengra dregur fram. Synir síra Jóns í Arnar- bæli kölluðu sig Mathiesen og varð það að ættarnafni, eins og kunnugt er. Faðir Steindórs, Einar í Ráðagerði, var Árnesing- ur í ættir fram. Hann var sonur Bjöms bónda á Litla-Hálsi í Grafningi Oddssonar bónda á Þúfu í Ölfusi Björnssonar. En kona Odds á Þúfu var hinn nafn- frægi kvenskörungur J órunn ljósmóðir á Þúfu Magnúsdóttir Imeppstjóra í Þorlákshöfn Bein- teinssonar lögréttumanns á Breiðabólsstað í Ölfusi. Er þetta ein grein af Bergsætt, eins og fróðum mönniun er kunnugt. í báðum ættum Steindórs er margt um frábært atorku- og dugnaðar- fólk, og mætti nefna ófá dæmi þess, ef tími væri til. Steindór ólst upp hjá foreldr- um sínum hér í bæ við fremur þröngan kost, eins og þá átti sér tíðast stað meðal alþýðu manna. Stéttaskipting var þá talsverð hér í bæ sem víðar, og urðu fá- tækir, en tápmiklir og efnilegir unglingar þess oft og tíðum varir með ýmsum hætti, sem snart þá óþægilega og gerði þeim ljóst, að enginn er annars bróðir í leik, eins og máltækið segir. Má vera, að Steindór hafi stundum mátt kenna þess í æsku. En hann var ekki af þeim efniviði, er léti beygjast eða brotnaði, þótt nokk- uð blési á móti. Mun hann snemma hafa tekið þá ákvörðun að verða öðrum óháður, og kjark- inn og dugnaðinn skorti hann áreiðanlega ekki. Það hefi ég fyrst heyrt UM störf Steindórs, að á unglingsár- unum vann harm um nokkurt skeið hjá Leikfélagi Reykjavík- ur við ýmis störf og snúninga, og mun það hafa verið nálægt alda- mótunum eða á fyrstu árum fé- lagsins. Síðar meir, er honum óx fiskur um hrygg skapaði hann sér atvinnu við að flytja fólk og farangur milli skipa og lands hér á höfninni, — það var áður en Reykjavíkurhöfn var byggð, — og gat sér þá þegar orð fyrir dugnað og nagsýni í vinnubrögð- um. Árið 1913 urðu merk tímamót í samgöngusögu landsins. Tveir Vestur-fslendingar tóku sér fyrir hendur að kynna fyrir lands- mönnum ný samgöngutæki, bíl- ana, sem áttu brátt eftir að verða höfuðfarartæki íslendinga. Og Steindor Einarsson var fljótur að sjá,hvað klukkan sló. Hann sá hilla undir nýja framtíð í sam- göngumálum landsmanna, bif- reiðar þjóta sveita og héraða á milli, svo langt sem vegir náðu, með fólk og farangur á margfalt skemmri tíma en áður hafði þekkzt. Og hér fann hinn hagsýni athafnamaður verkefni við sitt hæfi. Þegar á næsta ári, 1914, stofnaði hann hér í Reykjavík fyrstu bifreiðastöð landsins með 3 bílum. Það var upphafið að hinni þjóðkunnu „Bifreiðastöð Gamla Steindórs-stöðin viff Hafnarstræti. Steindór stendur í dyrunui Steindórs" og jafnframt upphafið að hinu eiginlega ævistarfi stofn- andans í þágu íslenzkra sam- göngumála. Fyrirtækið óx síðan hröðum skrefum í höndum hans, svo að í lok kreppuáranna skömmu fyrir síðari heimsstyrj- öldina er talið, að hann hafi átt 70 bíla, stærri og smærri, til fólks flutninga auk hins mikla bifreiða verkstæðis, sem heyrði til fyrir- tækinu. Frá því um 1930 mun stöðin að jafnaði hafa haft um 35—40 fólksbíla tiltæka í innan- bæjarakstur eða í fámennar leigu ferðir, auk hinna stóru áætlunar- bíla, sem hafa nú orðið sæti fyrir allt að 50 manns. Þess eru engin dæmi hér á landi, að svo margar bifreiðar hafi verið í eigu eins manns, og annars staðar munu þess fá dæmi, jafnvel með stór- þjóðum. Samtímis þjónustu við sam- borgara sína hér í bæ lagði Stein- dór þegar frá upphafi áherzlu á að koma upp föstum áætlunar- ferðum til ýmissa staða fjær og nær. í mörg ár hafði hann áætl- unarferðir milli Akureyrar og Reykjavíkur, til Víkur í Mýrdal, milli Hafnarfjarðar og Reykja- víkur. Allt frá 1924 hefir hann haft fastar áætlunarferðir á leið- inni Reykjavík — Hveragerði — Selfoss — Eyrarbakki — Stokks- eyri og hefir verið sérleyfishafi á þeirri leið síðan 1935; einnig hefir hann í mörg ár verið sér- leyfishafi á leiðinni Reykjavík — Keflavík — Sandgerði. Þetta eru hvorttveggja mjög fjölfarnar leið ir, og þarf vissulega í mörg horn að líta til þess að fullnægja slíkri þjónustu við almenning með þeim hætti, að enginn þurfi að kvarta. Hvernig má það verða, að ein- staklingur, sem byrjar með tvær hendur tómar, getur byggt upp svo stórt og traust fyrirtæki sem Steindór hefir gert, leiða það gegnum alla byrjunarörðugleika og kreppur, láta það standast harða samkeppni og verða fast og öruggt í sessi, jafnt fjárhags- lega sem í hugum þjóðarinnar. Ekki treysti ég mér til að kenna neinum að leika það eftir, en þó veit ég um sumt, sem til þess þarf. Það þarf bjartsýni, trú á verkefnið, það þarf hagsýni, sem sjaldan má skeika, það þarf stjórnsemi, sem aldrei má bregð- ast, og það þarf síðast, en ekki sízt persónulega vinnu og aftur vinnu. En enginn þessara góðu kosta nægir þó einn út af fyrir sig. Þeir verða að fara allir sam- an, vera samvirkir, ef ævintýrið á að gerast og fara vel. Þeir, sem eitthvað þekkja til Steindórs og starfa hans, þekkja um léið þessi einkenni hans. Allir vita, að hann hefir rekið fyrirtæki sitt með hagsýni og stjórnsemi, og þeir munu margir, sem muna eftir honum „niðri á stöð“, þar sem hann stóð oft snöggklæddur, mitt í önn dagsins og sagði fyrir, jafn- vel mörgum í senn, skýrt og skor inort, svo að aldrei var um að villast. Hann kunni að segja já og nei, og hann gerði sér engan dagamun, þegar starfið var ann- ars vegar. Af bílstjórum sinum krafðist hann reglusemi og stund- vísi, og þeir, sem felldu sig við aga, telja hann einum rómi hinn bezta húsbónda. Að vinna undir stjórn hans var á við góðan skóla, enda hafa margir unnið hjá hon- um árum saman. Vel hefir Steindór fylgzt með nýjungum í starfsgrein sinni, end urnýjað bílakost sinn eftir kröf- um tímans og ekkert til þess spar að. Upp úr 1930 kom hann sér upp stóru bifreiðaverkstæði vest- ur undir Selsvör og hefir rekið það síðan, enda hefir hann jafn- an lagt áherzlu á, að allt sem bílaútgerð hans heyrði til, væri í góðu lagi. Hann varð og fyrstur til þess hérlendis að setja tal- stöðvar í bíla, sem eru hið mesta hagræði. Framhald á bls. 19 VELVALANDI hefir fengið eft irfarandi bréf þar sem bent er á þörfina fyrir Skálholt, sem kristilegt menningarsetur. Við getum ekki neitað því að okk ur finnst bréfið óþarflega harð ort. Það hefði getað náð tilgangi sínum án þess að fjandmn væri jafn kyrfilega málaður á vegg- inn. Eg dreg í efa að margir af framtaksmönnum olckar vilji fallast á aðþieir séu að drukkna i brennivíni. Auk þe'ss finnst mér ósmekklegt af bréfritara að nefna víntegundir eins og gene ver og brennivín í sömu andrá og flottheit og prjál. Hvaða flott ræfill heldur maðurinn að drekki jafn ó-eðala drykki. Nei, Hallur sæll, okkur grunar að þú sjáir ekki skóginn fyrir trján um, heldur dæmir *lia þjóðina eftir þeim. En hér fær Hallur orðið; • PRJÁL OG BRENNIVÍN „Vígsla Skálhoitskirkju var mikill merkisatburður, og þó þessi kirkjuvígsla sxapi að sjálfsögðu ekki nein tímamót í andlegu lífi þjóðarinnar þá má samt vænta mikils af Skálholti. Ef þar rís upp kristilegur iýð skóli og ef þar verður miðstöð kristilegs æskulýðsstarfs, þá verður Skálholt eins og vin í eyðimörk í landi, þar sem þjóð in er að glata sjálfri sér í kapp hlaupi um peninga, „fiottheit" og prjál, og drukkna í „gene- ver“ og brennivíni. Ekki var það þó ætlunin með þessum lín um að ræða hlutverk Skálholts eða framtíð. En ég vil biðja Velvakanda að koma þvi á fram færi við biskup og aðra ráða- menn kirkjunnar, að þeir sjái svo til að messað verði í Skál holti á sunnudögum í sumar og framvegis. Ef slíkt er of inikið fyrir sóknarprestinn, sem vel má vera, munu prestar úr Reykjavík og aðrir nágranna- prestar vafalaust fúsir til að skiptast á um það. Margt fólk í Reykjavík og annarstaðar á Suðurlandi mun gjarnan vilja koma þó ekki væri nema einu sinni á ævinni í Skálhoit og eí Ir1 r'r VJ r* Í uZJL'Á ■* ;jrr,í S*fd' ;er!í X i j «. i* vé /wA^ messað væri þar á sunnudögum, munu vafalaust verða skipulagð ar þangað hentugar ferðir. Og að koma til Skálholts og hlýða þar messu, yrði öllum til ánægju og sálubótar, — og myndi líka auka skilning fólks á því merkilega starfi, sem þar hefir verið unnið og unnið verff ur á næstunni. Hallur Steinsson". • TAPAÐI UMSLAGI í AUSTURSTRÆTI. Ungur sendill kom til Vel. vakanda í gær og sagði sínar far ir ekki sléttar. Han hafði i einnj af sendiferðum sinum orðið fyr ir því óhappi að tapa umslagi, sem í var víxill vel merktur og 1100 kr. í peningum. Átti hann að fara með þetta i einn af bönk unum. Sendillinn het'ir fengið kollega sína i iið með sér að leita umslagsins, en það hefir ekki borið árangur. Umslagið er ómerkt. Sendillinn biður þann sem kann að hafa fundið um- slagið hans, að skila því á Morgunblaðið.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.