Morgunblaðið - 25.07.1963, Síða 20

Morgunblaðið - 25.07.1963, Síða 20
FERÐAÞJ <5 N USTA 0(5 FARMIÐASALA ÁN ENDURGJALOS ím BLÆVATN 165. tbl. — Fimmtudagur 25. júlí 1963 Féll 4 metra AKUREYRI 24. júlí. Það slys varð hér í gær að SigurðiJ' Ingvarsson, verkamaður um fer- tugt, féll um 4 metra niður á steingólf og hlaut hælbrot og e.t.v. fleiri meiðsl. Verið var að rífa stóra vöruskemmu (bragga) og taka niður svonefndan „hlaupakött“ eða færanlegan lyftara, úr þaki skemmunnar. Sigurður stóð á þverbandi uppi undir mæni er lyftarinn féll skyndilega niður, slóst í Sigurð, og tók hann með sér í fallinu. Sigurður var þegar fluttur í sjúkrahús. — Sv. P, Rýr aflabrögð á Vestf jörðum ÍSAFIRÐI, 24. júlí. — Smábáta- útgerðin á Vestfjörðum byrjaði almennt í júní en aflabrögð voru ákaflega rýr í öllum verstöðvum. Á nokkrum stöðum var þó sæmi- legur afli fyrri hluta mánaðarins en síðari hlutann dró gæftaleysi mjög úr veiðiskap. 113 bátar stundmðu veiðar í fjórðungnum í júní, 29 með línu 72 með hand- færi og Í2 með dragnót og varð heildarafli þeirra 1267 lestir. — H. T. Færeyjaflugifagnað — Færeyingar fá nýtt varðskip Einkaskeyti til Mbd.. — Kaupmannahöfn, 24. júlí: — Áætlunarflug Flugfélags íslands, um Færeyjar til Kaupmanna- hafnar hefur verið umræðuefni dagblaða hér. Er alls staðar tek íð í þann streng, að hér sé um góð tíðindi að ræða. >á er frá því greint í dag. að nýtt danskt eftirlitsskip sé nú á leið til Færeyja. Heitir það „Vædderen“. Skipið er sagt sér staklega byggt til eftirlitsferða við eyjarnar. Færeyingar hafa lengi óskað eftir því að fá varðskip til þess að fylgjast með ferðum erlendra fiskiskipa við eyjarnar. Mun skipið hefja eftirlitsferðir innan skamms. — Rytgaard. í GÆRMORGUN kom til Reykjavíkur stærsta skemmti ferðaskip, sem hingað hefur komið. Það er þýzkt og heitir Bremen. 600 manna áhöfn er á skipinu, og það hefur rúm fyrir 1150 farþega Að þessu sinni voru með því 650 farþeg ar á skemmtiferðalagi til Ir- lands, Skotlands, íslands og Noregs. — Nánar verður sagt frá skipinu í Mbl. á morgun. (Ljósm Mbl. Ól. K. M) ' 1 Kuldakastið um allt land nema í Skaftafelfssýslum Horfur á batnandi veðri MORGUNBLAÐH) hringdi í gaer I ið og innti þá frétta af veðurfar til sjö manna víðsvegar um land | inu, enda tala menn nú ekki um gefin fyrir hesta og ferðalög á þeim og stundaði um skeið hrossakaup og seldi hér í Reykjavík og um Suðurnes. Mun hún af því hafa fengið viðurnefnin. Hún var ötull ferðamaður og átti lengi rauð- an hest, er hún heygði í túni Rauðsgils í Borgarfirði er hann var 27 vetra. Vildi hún Hefur legið úti í stórhríð á Kaldadal Er sakvtað 66 ára á 22ja vetra hesti á Arnarvatnsheiði í GÆR skýrði Slysavarna- félag íslands frá því að fullorðinnar konu væri saknað, er farið hefði sl. laugardag frá Kalmans- tungu í Hvítársíðu og ætl- aði að halda upp á Arnar- vatnsheiði og yfir Stóra- Sand til Hveravalla. í gær hringdi blaðið til Kristófers í Karimanstungu og spurðist fregna af ferðum konunnar. Hér er um að ræða Sigríði Jónu Jónsdóttur, sem kunn er meðal hestamanna undir nafninu Hrossa-Sigga og fleiri uppnefnum. Sigríður hefir löngum verið láta prest syngja yfir hestin- um, en hann mæltist undan. Jarðsöng hún því þennan vin sinn sjálf. Um hann hefði ekki síður verið ástæða til að kveða: „Hann er heygður Húsafells í túni“ svo sem Grímur kvað um Sörla Skúla forðum, þar sem „ennþá sjást í hellum hófaförin,“ en sá rauði Sigríðar flutti hana ekki minna en 29 sinnum yfir Kaldadal. Sigríður hefir lent í mörgu á ferðalögum sínum, og tjáði vinkona hennar blaðinu í gær að hún hefði m.a. orðið fræg fyrir að eiga nótt með tveim- ur ferðafélögum á Kaldadal seni hefðu verið nokkuð við skál, en stórhríð skall á þau þar á dalnum. Hefði Sigríður þá staðið uppi og barið þá ferðafélaga sína með svipu, til þess „þeir sofnuðu ekki helvítis karlarnir", eins og hún komst að orði síðar. Sigríður situr 1 þessu ferða- lagi Ljóma sinn, sem er bróð- ir þess rauða er heygður var að Rauðsgili. Ljómi er nú 22ja vetra gamall en sjálf er Sig- ríður 66 ára og er henni tekin að daprast sjón og Ljómi dett- inn. Við spurðum Kristófer í Karlmanstungu um búnað Sigríðar til fararinnar svo og hve lengi hún hygðist vera til Hveravalla. Hún var sæmilega bún að mat til fjögurra daga fgrðar, sem hún gerði ráð fyrir að taka myndi til Hveravalla, í mesta lagi. Hún var vel fötuð, en hafði hins vegar engan svefnpoka. Gerði hún ráð fyrir að gista skálann í Álftakróki fyrst er hún settist að. Við spurðum Kristófer hvort hún myndi hafa með sér átta- Framhald á bls. 19 annað öllu meira en kuldakas'ið. Einnig ræddi Mbl. snökkvast við Jón Eyþórsson, veðurfræðing. Honum fórust svo orð: Undanfarinn hálfan mánuð hef ir verið þráleit norðanátt hér á landi og þó einkum mætt á norð anverðu landinu með úrkomu og kalsaveðri. Annað slagið hefir snjóað í fjöll, Oig síðast í gær- morgun var snjókoma og eins stigs hiti á Hveravöllum. Sunnanlands hefir veður verið bjartara og oftast nær þurrt, þó að nokkrar fjallaskúrir hafi stungið sér niður hér og hvar. Hlýjast og bezt hefir veður jafn aðarlega verið í Skaftafellssýsl- um. Nú telur Veðurstofan, að norð anáttin sé að ganga niður Oig ger ir ráð fyrir batnandi veðri um allt land. ★ Helgi Arason á Fagurfióls- mýri sagði, að í öræfum hefði að undanförnu verið ^óð tíð og ekki kalt. Síðustu tvo dagana hefði meira að segja verið ljómandi blíða og sólskin. í fyrri viku brá reyndar til óþurrka nokkra daga Framhald á bls. 2 Kviloiaði í bifreið í GÆR kviknaði í bifreið á Háa- leitisbraut. Hafði eldur komið upp í vél bifreiðarinnar. Innan skamms tókst að slökkva eld- inn. Laust fyrir kl. 6 síðdegis varð maður milli skips og bryggju við m.s. Mánafoss og laskaðist á fæti. Var hann fluttur í Slysa- varðstofuna.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.