Morgunblaðið - 26.09.1963, Page 3

Morgunblaðið - 26.09.1963, Page 3
Fimmtnclfieur 26. sept. 1963 MQRGUNBLAÐIÐ 3 TVEIR brezkir sjóliðar liggja nú í Landakotsspítala. Þeir veiktust báðir sl. laugardag um borð í skipum sínum, sem lágu á Seyðisfjarðarhöfn. — Flugvél frá Landhelgisgæzl- unni flutti ménnina til Reykja víkur. Á Landakoti voru þeir báðir skornir upp, annar við kviðsliti, en úr hinum var tek- inn botnlanginn. Blaðamaður Morgunblaðsins brá sér í heimsókn til. sjúkl- inganna, þar sem þeir lágu í rúmum sínum og horfðu á regnið og slydduélin lemja rúðurnar — heldur ókræsilegt útsýni í ókunnu landi. Malcolm Giles, yfirmannakokkur Edmond Smith, kokkur Kokkar með innanskömm í fremra rúminu liggur Malcolm Giles af birgðaskip- inu Reclaim. — Hvernig hefur þú það? — Ekki sem verst, botnlang inn er farinn og stúlkurnar hérna á spítalanum gera allt, sem í þeirra valdi stendur, til þess að létta okkur þrautirn- ar. Það versta er, að skipin skuli vera farin. Við erum hálfgerðir strandaglópar og verðum víst að fara fljúgandi heim. Hvenær heldurðu að við losnum héðan? — Það er víst betra* að spyrja læknana að því. Ertu giftur? — Nei, en hjónabandið er skammt undan. Ég var að skrifa kærustunni. Sjáðu, hérna er mynd af henni, tek- in á Trafalgar Square í Lond- on. Þar er allt fullt af dúf- um. Ég vildi vera kominn til London. — Áttu þar heima? — Nei, ég á heima í Bristol. — Hvaða starf hefur þú um borð í Reclaim? — Ég er kokkur yfirmann- anna. Á Reclaim eru 100 ó- breyttir liðsmenn og 11 yfir- menn. Eru tveir kokkar fyrir hvorn hóp. Foringjarnir halda sig mjög vel í mat, það þýðir ekkert að bjóða þeim nema það bezta. — Eruð þið kjöldregnir, ef ykkur mistekst? — Mér mistekst aldrei. f rúminu við gluggann ligg- ur Edmund Smith, sem skor- inn var upp við kviðsliti. Hann er skipverji á tundur- spillinum Wiston. — Ert þú að lagast í kviðn- um? ■— Ég er að skríða saman, en það er mjög sárt að þurfa að fara fram úr rúminu. — Hvað gerir þú á Wiston? — Ég er líka kokkur. Á Wiston eru bara 40 menn. Við kokkum tveir. — Hvernig er heilsa skips- félaga ykkar, úr því að þið þolið ekki sjálfir ykkar eigin mat? Þeir fullyrða nú báðir, að enginn hafi fengið neina inn- anskömm, eins lengi og þeir Vaxandi starfsemi Fél- agsmálastofnunarinnar NÁMSFLOKKAR Félagsmála- etofnunarinnar í fundarstörfum og mælsku, verkalýðsmálum og hagfræði munu hefjast 20. októ- ber nk. en námsflokkurinn um fjölskylduna og hjónabandið upp úr næstu áramótum, að sögn Hannesar Jónssonar, félagsfræð- ings, sem átti í gær viðtal við blaðamenn til þess að skýra frá starfsemi stofnunarinnar í vetur. Innritun í fundarstörf og mælsku, verkalýðsmál og hag- fræði er hafin og eru þátttöku- skírteini seld í bókabúð KRON í Bankastræti. Hannes skýrði svo frá, að þátt- taka í námsflokkunum hefði ver- ið langtum meiri en gert var ráð fyrir í upphafi. T.d. hefðu 105 nemendur verið í námsflokkun- um fyrsta starfsárið en 369 sl. skólaár. Langmest aðsókn hefur verið að námsflokkunum um fundarstörf og mælsku og fjöl- skylduna og hjónabandið. í fyrra var í fyrsta skipti starf- ræktur framhaldsnámsflokkur í félagsstörfum og mælsku. Gafst sú starfsemi mjög vel. Allir nem- endurnir, sem ástunduðu mælsku æfingar af kostgæfni, náðu mjög 1 Z' NA 15 hnútar 1 y SV SOhnútar H Sn/Hama • úii 7 Shirir S Þrumur W.Z KuUaM HitaaW r'* Uj i ^^ góðum árangri, og í lok nám- skeiðsins stofnuðu þeir málfunda félagið Muninn. Er því ætlað að verða þriðja stigið í mælsku- þjálfun Félagsmálastofnunarinn- ar. Félagið er þó sjálfstætt og óháð stofnuninni en rekið af fyrri nemendum hennar og eitt af inngönguskilyrðunum er, að menn hafi sótt mælskunámskeið Félagsmálastofnunarinnar. For- maður félagsins er Torfi Ólafs- son, bankafulltrúi. Auk námsflokkastarfseminnar rekur Félagsmálastofnunin fræðslu- og leiðbeiningarstarf- semi fyrir einstök félög. Felst hún einkum í því, að flutt eru á þeirra vegum einstök fræðsluer- indi, reknir fyrir þau sérstakir námsflokkar og leiðbeiningar veittar um félagsleg skipulags- mál. Hafa mörg félög þegar hag- nýtt sér þessa þjónustu. , Jafnframt fræðslu- og leið- beiningarstarfseminni rekur Fé- lagsmálastofnunin útgáfustarf- semi og annast frumrannsóknir á hafi fengizt við matseld. — Þú ert Skoti, Smith, segir blaðamaðurinn. — Nej, ég er Lundúnabúi. — Víst ertu Skoti. — Ég er Skoti að uppruna, og Edinborg er heimahöfn skipanna. Það heyrist kann- , ske á mæli mínu. — Ert þú kvæntur? — Já harðgiftur og á tvö börn. — Hafið þið komið til ís- lands áður? — Nei, en við kunnum á- gætlega við okkur. Sérstak- lega skemmtum við okkur vel á Akureyri. En eitt getum við ekki skilið, af hverju í ósköp- unum drekkið þið ekki á mið- vikudögum? Nú vefst blaðamanni tunga um tönn og tekur hann það til bragðs að kveðja í skyndi og óska þeim félögum góðs bata. sviði félagsmála. Um þessar mundir er að koma út önnur bók in í bókasafni stofnunarinnar. Nefnist hún Fjölskyldan og hjónabandið. En rannsóknarverk efnið, sem unnið er að, er um sögu og starfssvið íslenzku laun- þegasamtakanna. Sagði Hannes Jónsson, að rannsókn þessi hefði gengið hægar en ráð var fyrir gert, þar sem mörg félögin hefðu sýnt fálæti við að svara og end- ursenda spurningaskrá stofnun- arinnar, en fé ekki enn fengist frá Vísindasjóði til þess að bera kostnað af að senda mann eftir svörunum. Sagðist Hannes vona, að úr þessu mundi rætast og fé- lögin senda spurningaskrárnar útfylltar, einkum þó ef forystu- menn félaganna gerðu sér Ijóst, hversu mikilvæg þessi rannsókn gæti orðið fyrir félögin sjálf. Fræðslustarfsemi Félagsmála- stofnunarinnar verður nú sem fyrr til húsa í Gagnfræðaskólan- um við Vonarstræti. Kennt verð- ur á sunnudagseftirmiðdögum. UM hádegi í gær var djúp lægðarmiðja (970 millibar) skammt austur af Langanesi og olH NV eða N átt um allt land. Á Vestfjörðum var N- hríð en frostlaust á láglendi. Norðan lands var 2—5 stiga hiti og rigning, en þurrt og bjart veður suðaustan lands. Mikil úrkoma var aðfaranótt miðvikudagsins á Norður- landi, 27 mm á Horni, 20 á Siglunesi, en ekki nema 2 á Akureyri. Fróðletj hók um tjöl- skyldu- off hjú- skaparmál t DAG kemur í bókaverzlanir ný og fróðleg bók á vegum Fé- lagsmálasto-fnunarinnar, og nefn- ist hún „Fjölskyldan og hjóna- bandið“. Ritstjóri bókarinnar er Hannes Jónsson félagsfræðingur, en auk hans rita í bókina Pétur H. J. Jakobsson, forstöðumaður fæðingadeildar Landsspítalans, Siigurjón Björnsson, sálfræðing- ur, dr. Þórður Eyjólfsson, hæsta- réttardómari, og Þórir Kr. Þórð- arson, prófessor. í formála bókarinnar segir að meginefni hennar hafi fyrst ver ið kynnt í tíu erindum í náms flokki Félagsmálastofnunarinnar nr. 6 í marzmánuði í ár. Er hér „að vissu leyti um brautryðjenda starf að ræða, þar sem fram að þessu hefur enga skipulega fræðslu verið að fá hér á landi um fjölskyldu- og hjúskaparmál efni, og þetta mun vera fyrsta Framh. á bls. 23 STáKSTEINAR Kommúnistar tapa Eftirtektarverðasta breytingin í norsku sveitarstjórnarkosning- unum er sú að kommúnistar tapa um helmingi fylgis síns. Aðrir flokkar ýmist vinna lítillega á eða tapa nokkuð. Kommúnistar hafa verið fylgislitlir í Noregi, svo að ekki var af miklu að taka, en samt tókst þeim að tapa nú svo miklu atkvæðamagni, að segja má að kommúnistar séu þurrkaðir út í Noregi. Okkur íslendingum hefur tekizt ver en frændum okkar Norðmönnum að þurrka út þau óþrif, sem kommúnisminn er. Hér hafa kommúnistar vaðið uppi og jafnvel verið taldir sam starfhæfir í ríkisstjórn. Fleiri og fleiri átta sig þó á því, að hinn svonefndi kommúnista- flokkur er ekki stjórnmálaflokk ur í venjulegum skilningi heldnr fjarstýrð klíka, sem ætíð tekur hagsmuni erlends ógnar- valds fram yfir hagsmuni þjóðar- innar. Þess vegna hallar líka undan fæti hjá kommúnistum hér á landi og nauðsynlegt er að hraða algjörum ósigri þeirra. Varað við slysum Eftirfarandi ritstjúmargrein • birtist í Alþýðublaðinu í gær: „Hér er hugmynd fyrir þá sem berjast gegn um.ferðaslysum til að draga úr manntjóni, heilsu- tjóni og eignatjóni. Hvernig væri að taka 2-3 bíla sem eru illa famir eftir árekstur eða umferðarslys og setja á stalla við fjölfarna vegi og götur ökumönnum til áminn- ingar? Ekki væri þetta til að fegra bæinri, en fátt mundi reynast eins kröftug áminning til öku- manna og slík sjón. Þetta hefur verið reynt í öðmm löndum, væri ekki tilvinn andi að gera slíka tilraun hér?“ Deilurnar magnast Deilurnar innan kommúnista- flokksins, og milli hinna flokks- bundnu kommúnista og banda- manna þeirra, rragnast nú. Þannig segir „Þjóðviljinn“ í fyrradag, að óskiljanleg sé ósk Frjálsþýðinga um sameiningu við flokksbundna kommúnista og bætir við: „Minnir þetta einna helzt & talsmáta Jústs þess, sem bjó á Fæti undir Fótafæti: „Eg skal skera af þér hausinn — elsku vinur.“ , . Síðan bætir blaðið við: „Annars er erfitt að sjá hvaða hagsbót ætti að felast í þvílíkri sameiningu heilbrigðra manna og bersyndugra. Aðalhluthafar Frjálsrar þjóðar hafa verið að sanna það allar götur sínar síðan 1953, hvernig flokkur, sem að eigin sögn hafði alla verðleika til að bera, heldur áfram að tapa fylgi. Kosningatölur frá því i sumar virðast bera það með sér að þá hefði fylgi hans verið orðið þó nokkrum hundruðum minna en ekki neitt og munu fáir eftir leika. En það er alkunn stærðfræði- leg regla að ekki fæst stærri út- koira með því að leggja saman jákvæða stærð og neikvæða, heldur nefnist slík reikningsað- ferð frádráttur." Auðljóst er að með þessum orðum er verið að sneiða að þeim mönnum í kommúnista- flokknum, sem ólmir vildu sam- vinnu við Þjóðvarnaflokkinn í síðustu kosningum og þeim borið á brýn, að þeir hafi orðið þess valdandi, að kommúnista- flokkurinn tapaði fylgi, því að samvinnan við Þjóðvörn hefðl ekki orðið til fylgisauka, heldur gagnstætt.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.