Morgunblaðið - 26.09.1963, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 26.09.1963, Qupperneq 8
8 MORCUNBLADID FimmtudagUT 26. sept, 1963 Versto leitaveður í 100 ár Fé kannski \ fönn eða lækjum * * segir Agúst bóndi í Asum UM FIMMLEYTIÐ í gærdag var safn Gnúpverja komið framhjá Gaukshöfða á leið nið ur Hagaflatir, milli Hagafjalls og Þjórsár. í fararbroddi reið Bjarni Kolbeinsson, bóndi í Stóru-Mástungu, en hann er aldursforseti leitarmanna. Eft- ir honum fylgdi forystukindin frá Hæli, fast og dyggilega. við lögðum samt upp í tveim ur hópum. Annar átti að smala austan í svonefndum Hjöllum niður með Þjórsá. Hinn hópurinn fór vestar með trússahestana. Ekkert varð þó úr smalamennsku, því að bylj ir stóðu yfir allan daginn, með afspyrnuroki. Skyggni var oft ast aðeins 10 til 20 metrar. Ágúst Sveinsson, bóndi í Ás um, sem farið hefur í göngur Gnúpverja í marga áratugi sagði svo frá: — Ég er þess fullviss, að veðrið að undanförnu er hið versta, sem gert hefur um gangnatíma að minnsta kosti síðustu hundrað árin. Faðir minn, Sveinn Einarsson, sagði mér margt um göngur, en gat aldrei um svo slæmt tíðarfar. — Þeir, sem lengst fóru, lögðu af stað inn í Arnarfell fyrir 9 dögum og fengu strax á sig slyddur og éljagang. Hélzt vont veður allt þar til í fyrradag, en þá var það sæmi legt. Svo skall yfir moldar- bylur í fyrrinótt. Það var sann kölluð heppni, að það var svo snemma, að ekki var búið að skipta í leitir, því annars er óvíst, hvernig farið hefði fyr- ir okkur. Við höfðum gist 1 Gljúfurleit allir gangnamenn irnir, 26 talsins. Frá Gljúfur- leit eru strangar 2 dagleiðir niður að rétt. — Við ákváðum að bíða með að halda af stað, þar til eftir hádegi í von um betra veður. Veðurbatinn brást, en Bjarni Kolbeinsson, í Stóru-Mástungu. heilir á húfi í tjaldstað í Hólaskógi skammt ofan við Stöng. Þar sváfum við, en í morgun voru 10 menn sendir til að smala svæðið, sem taka átti fyrir í gær. Síðar í dag fóru flutningabílar til móts við þá og munu þeir flytja féð til réttarinnar. —■ Svo mikið hefur snjóað, að fé kann að hafa fennt. Einn ig hefur allmikið krap safn- ast í læki og gæti það orðið kindum að grandi. Fréttamenn Morgun- blaðsins brugðu sér aust- ur í Hreppa í gærdag og hittu að máli gangnamenn en þeir hafa átt við hið versta óveður að etja síð- ustu daga, einkum Gnúp- verjar, sem ekkert gátu smalað í fyrradag og urðu að senda menn og fjárflutn ingabíla aftur inn á afrétt í gær til þess að reyna að smala það svæði, er þá var skilið eftir. Safn Hrunamanna komið í girðingu hjá Hrunarétt laust fyrir sólsetur. — Ljósm. Mbl. Þ. H. Losnuðum vlð versta veðrið rætt við fjallkóng Hrunamanna ÞEGAR komið var að Hruna- rétt laust fyrir sólsetur í gær- kvöldi höfðu Hreppamenn ný- lokið við að reka féð inn í girðingu vestan við réttina fyrir nóttina. Gangnamenn Fjallakóngur Hrunamanna, Gestur Guðmundsson í Syðra-Seli. voru sem óðast að tínast t burtu og sumt féð var þegar lagzt þótt enn væri styggð á því. Fjallakóngur Hrunamanna er Gestur Guðmundsson í Syðra-Seli, og þangað var far- ið til fundar við hann. Hann hefur verið fjallkóngur í 11 ár, en hefur farið á fjall síð- an 1919, „oft fjórum sinnum sama árið“. __ Mér skilst að við höfum losnað einkennilega vel við versta veðrið, og sannast að segja hef ég áður fengið verra veður á fjalli. Við fórum í tveimur hópum á fimmtudag og föstudag, alls 41 maður, og á leiðinni inn eftir fengum lp>iíSinrlA rifcvnninrr þetta er skínandi mannskapur sem ég var með. — Þið Hrunamenn hafið stóra afrétt? — Hún er að minnsta kosti erfið, það þarf hvergi annars staðar að hafa sjö gangnakofa. Við þurfum að smala öll Kerlingarfjöll, og það er heil dagleið kringum þau. í góðu sumri er féð auk þess uppi um öll fjöllin. — Hvernig var svo veðrið í lokin? — Það var slæmt, en alls ekki afleitt. Við fengum skaf- renning, éljagang og byl og svoleiðis, en það var nú ekki mikið. Skyggnið var afar slæmt, en við gátum þó leitað í gær. Við fengum alltaf veðr- ið á eftir okkur, og það er mikill munur. — En hvernig gekk hjá ykkur í náttstað? — Það gekk heldur illa að sofa í fyrrinótt fyrir veður- gný í tjöldunum, og við urð- um alltaf að fara upp annað slagið til að treysta tjöldin svo þau fykju ekki ofan af okkur. — Og hvernig voru þá snjóalögin? — Það var rétt svo að hest- arnir gátu marið gegnum skaflana. Féð hefur runnið mikið nú í haust, því það hef- ur verið þungur snjór inni á fjöllum í nærri hálfan mánuð. Samt virðist féð vera vænna en verið héfur síðustu þrjú árin. Það var nóg gras á af- réttinni og féð hefur þrifizt vel í sumar. __ Og hvað heldurðu að þið hafið komið með margt af fjalli? — Ég mundi gizka á að það væri hátt á áttunda þús- und. Það eru ékki nærri allir hér í sveit sem reka á fjall, en svo er alltaf nærri þúsund fjár úr öðrum sveitum, sem kemur á okkar afrétt. Snjórinn, sem fallið hafði í fyrradag, var að mestu horf- inn af láglendi, en er ofar dró í hlíðarnar var jörð alhvít. Austanmegin Þjórsár virtist fönnin lífseigari. Sólskin bað aði snævi þaktar rætur Hekiu en efri hluti hennar var hul- inn skýjabólstrum. í Þjórsá var talsvert krap- og íshröngl. — Engan sakaði þó, hvorki mann né hest, og allir komust Fjárrekstur Gnúpverja undir Hagafjalli nokkru fynr neðan Haga.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.