Morgunblaðið - 26.09.1963, Síða 15

Morgunblaðið - 26.09.1963, Síða 15
Fimmtudagur 26. sept. 1963 15 MORGUNBLAÐIÐ r Pálína Biörgólfsdóttir F. 1896 — D. 1962 MINNING Fellur til foldar án fyrirvara, eitt mannlíf af öðru, ungir sem gamlir. Einn, nú kveðjum úr okkar hópi, konu kyrrláta og kostum búna. Héðan hvarf úr heimi þessum í vetrarbyrjun, þá vindar blésu, sumar að baki, svanninn prúði. Inndæl móðir einnar dóttur. Greind hún var með gerðarþokka. Yfirlitsbjört af innri göfgi. Á andansbrautum oft hún dvaldi. Með þjóðmálum þó vel fylgdist Ekkiauður né allsnægtir styrk veittu í störfum dagsins, heldur vilji vits og kosta trú að vera og traust á drottni. Opin augu ætíð hafði um rétt og rangt í rysjóttum heimi. Lið veitti um lausn mála að betri veröld og bættum kjörum. Hög var hönd og hennar neytti ótrautt af elju og snilli. Barg með því barni og kjörum, þá mann missti mjög kæran. Ætíð Pálína umvafði einkadóttur ást og hlýju. Lagði henni ljúft í mundu leiðarhnoða að lífsins vegum. Barnabörnum blíðu sýndi. Hug þeirra átti og hjartanstrúnað. Þau fræddi og fræjum sáði ungum sálum til auðnu og þroska. ömmu grætur ungur hópur, mikið saknar mildi hennar. Ljós hér hvarf, er lýsir ei framar. Sorg ríkir yfir sæti auðu. Dóttir kveður dýra móður, angri níst og innra blæðir. Þakkar henni með þungum trega ást alla og undurhlýju. Aðrir þeir, sem eitthvað þekktu úrvalskonu óvenjulega, harma hana héðan gengna, hægláta, þekka og hugartrausta. Eigi vill Pálína, að við syrgjum brottför hennar í betri heima. Þar bíða vinir og vel fagna. Sól fögur rís úr sæ að nýju. Eiríkur Pálsson frá Ölduhrygg. Níræður: Jón Arinbjarnarson 15. SEPT. s.l. átti níræðisaf- mæli elzti bóndi í Miðfirði, Vest- ur-Húnavatnssýslu, Jón Arn- bjarnarson á Stóra Ósi. Jón er fæddur á Stóra Ósi og hefir átt þar heimili alla ævi. Hann er sonur Arnbjarnar hreppstjóra Bjarnasonar og Sólrúnar Árna- dóttur, er bæði voru hið mesta atgerfisfólk, enda stóðu að báð- um merkar og traustar ættir. Jón var næst elztur sjö systkina er til aldurs komust. Hin voru. Helga húsfrú á Syðri Reykjum Hólmfríður ljómóðir, Sigurlaug, Eggert, Friðrik hreppstjóri og Theodór ráðunautur B.í. Áttu þau systkinin alla ævi heimili á Stóra Ósi að undanteknum þeim Helgu og Theodóri, þó mun Friðrik um tíma hafa átt heimili að Melstað. Bjuggu þau Jón, Eggert, Hólmfríður og Sigurlaug jafnan saman ógift, en Friðrik bjó alltaf í tvíbýli við þau. Öll voru þau atgerfisfólk og ekki síður mannkosta og drengskapar fólk, sem lengi mun minnzt af sveitungum' og öðrum er til þekktu og. ekki voru fáir, því heimilið stóð í þjóðbraut og var opið, jafnt háum sem lágum, og alra nauðsyn var leyst, ef kost- ur var. Meðan hin eldri ferða- tækni var ráðandi munu hafa verið teljandi þær nætur og dag- ar sem gestlaust var á Stóra Ósi. Mátti því segja að þar „stæði skáli of þjóðbraut þvera“. Þó nokkuð hafi umferðin breytzt á seinni árum er ennþá gest- kvæmt á Ósi. Er það og sann- mæli er kveðið var: „Gestrisnin á garði þeim götur út á náði“. Jón hefir eins og áður er getið alla ævi átt heimili á Ósi. Vann hann að búi foreldra sinni og að föður sínum látum gerðist hann bústjóri hjá móður sinni. Eftir lát hennar bjuggu þau systkin fjögur saman á Stóra Ósi eins og fyrr er sagt, þar til fyrir fáum árum að Jón stóð einn uppi þeirra ágætu systkina, síðustu ári* mun hann hafa not- ið mikils styrks bróðursona sinna við bústörfin. Var sam- heldni og heimilistryggð þeirra Stóra Óss systkina með slíkum ágætum að til fyrirmyndar var. Ekki var legið á liði sínu að bæta jörðina að húsakosti og ræktun, mun nú Stóri Ós vera ein hin túnstærsta jörð í Vestur- Húnavatnssýslu. Enginn þarf að ganga þess dulinn að oft hefir þar verið unnið hörðum hönd- um og stundum þurft að leggja nótt við dag í önnum búsins. Ekki var hlutur Jóns síztur við framkvæmdir og störf í þágu búsins. Mun hann ekki oft hafa gengið óþreyttur til hvíld- ar að dagsverki loknu. Ég veit að Jón, vinur minn, er ekki hrifinn af því að far- ið verði að skrifa um hann langa lofgerðarrollu og mun ég því ekki skrifa um hann langt mál, enda vona ég að til þess verði mér færari menn. Jón á Ósi er öllum, sem kynni hafa haft af honum, minnis stæður persónuleiki og fáa hef ég þekkt eins heilsteypta og trausta sem hann, svo var um þau systkini öll. Ekki er Jón gefinn. fyrir að bera sínar tilfinningar á torg og er oft hrjúfur hið ytra, en inni- fyrir býr hinn trausti og raun góði drengskaparmaður, sem allra þörf vill leysa. Ég get ekki stillt mig um að taka hér upp vísu úr eftirmælum um Eggert bróður Jóns ,því hún lýsir hon- um ekki síður en Eggerti: „Yfirborðið oft var hrjúft, auðvelt þó að greina innifyrir eðli ljúft, eðalmennsku hreina“. (Svb. Ág. Benónýsson) í skoðunum sínum er Jón fastur fyrir, þó án allra öfga, mun fám hent að hrekja rök hans, ef til kappræðu kemur. 1 landsmálum hefir hann alltaf fylgt Sjálfstæðisflokknum að málum, enda hefur hann flest- um öðrum fremur verið sjálf- stæðismaður í þess orðs beztu merkingu. Hestamaður hefir Jón alltaf verið ágætur og jafnan átt góð- hesta er lyft hafa huga hana yfir annir hversdagsleikans og glatt hann marga góða stund. Fjárhirðir var Jón ágætur, enda sannur dýravinur. Nú tekur að nálgast ævikvöld þessa merka manns, en vinsæld- ir hans hafa ekki farið dvín- andi og munu fylgja honum leng ur en lífið endist. Vonandi verð- ur honum ævikvöldið farsælt. Hann ber ellina vel, en sjón-" depra er farin að gera honum erfitt um störf. Ég sendi þér kveðju og þakk- ir, Jón minn, ég þakka þér sæmdarríkt starf ög drengskap. Ekki sízt þakka ég þér áratuga órofa tryggð og vináttu. Þá kveðju veit ég að allir Mið- firðingar taka undir með mér og ótalmargir fleiri, sem kynni hafa haft af drengskap og hjálp- fýsi Jóns. Lifðu heill. Gamall vinur. Brákar- sundsbru EIN aðalumferðaleið í Borgar- nesi er um brún* yfir Brákar- sund. 1930 var hafnarmannvirkið gert fremst við Brákarey, til þess að komast þangað varð að brúa sundið — Brákarsund. — Þetta var á þeim tíma mikil og nytsöm framkvæmd, og nauð- synleg samgöngubót. Úti á Brák- arey, eins og það er kallað hér í daglegu tali, hefur verið byggt m.a. slátur- og frystihús, mikið bílaverkstæði, birgðarstöð fyrir benzín og olíur, naglaverksmiðja, afgreiðsluhús o.fl. svo þangað er Stöðug umferð. Samgönguleið hér aðsins er fram á hafnarbakk- ann, flutningur hingað og mjólk- in héðan til Reykjavíkur með Akraborg. Vafalaust mundi mörgum bregða í brún, ef stöðva þyrfti umferð um brúna lengri eða skemmri tíma, — eða setja upp- hækkaðan timburpall yfir götin á Brákarbrúnni, sem í þann veg- inn eru að myndast.. — Um all langt timabil hafa nagazt holur í steypulagið á brúnni, en haft er eftir ráðamönnum, að deila •é um hvort Borgarneshreppur eða ríkissjóður eigi að annast viðhaldið, og þar með hefur ekk- ert verið gert. Svipað ástand var á Langár- brúnni, sem er skammt frá Borgí arnesi, sem endaði með því að gat kom á hana sem orðið var hættulegt umferðinni, setti þá vegagerðin upphækkaðan timb- urpall yfir bilunina, þvert yfir fj Framh. á bls. 17 Kúlupennar frábær sænsk gæðavara ★ Stórt og vandað blekhylki. ★ Létt og jöfn skrift. ★ Blek-kúla, sem er nýjung á heimsmarkaðinum. ^ Blek, sem fölnar ekki. ^ Skrifar um leið og oddur- inn snertir pappírinn. epoca Myndin sýnir EPOCA- penna í réttri stærð. Sendum um allt land. Heildsala: Þórður Sveinsson & Co. h.f. ~iiitniiiftiMn»——mmm 52 síður af spennandi lestrarefni fyrir aðeins 20 krónur. LÍFIÐ ER LEIKUR, VIKAN situr lokahóf tveggja til sex ára barna í leikskólanum á Selfossi í sumar. BILUÐ FLUGVÉL, BRUNN- INN BÁTUR OG EINBÚINN A ARNGERÐAREYRI. Blaða maður VIKUNNAR skrifar grein úr Vestfjarðaför. VELKOMIN HEIM, ELSA. Skemmtileg og óvænt smásaga eftir Kim Hammer. RAUÐIR BÍLAR 1 GRÆNU RÍKI. Tólf ungir Bandaríkja- menn tóku sig til og fóru á þremur fólksbílum gegnum frumskóiginn Darien í Pana- ma, siðasta ósnortna hluta Mið-Aroeríku, sem áður hafði verið taiinn ósigrandi á bílum. DAUFDUMBA VITNIB. Sönn frásögn um daufdumban vanskapning, sem með lát- bragði sínu kom upp um erf- itt morðmál. UNDRIN TÓLF í SOVÉT. Frásögn af nýjustu tækniaf- rekum Sovétmanna. BOÐFLENNA i BRÚÐKAUPI Skemmtileg smásaga eftir Joseph Judge. Framhaldssögumar. TTL- HUGALÍF og HVAÐ KOM FYRIR BABY JANE Kvenna efni, húmor í miðri Vikn, krossgáta, stjörnuspá og margt fleira. VIKAM

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.