Morgunblaðið - 26.09.1963, Side 22
22
MORGUNBLADID
Fimmtndagur 26. sept. 1963
Vondomól íþróttnhreyfingorinnar
Valsmenn sigruðu Vest-
mannaeyinga með 2 gegn 0
En Vestmannaeyingar komu á
óvart með vaxandi liði sinu
VALSMENN sigruðu Vestmanna
eyinga í Bikarkeppni KSÍ í gær-
da; með 2 mörkum gegn engu.
Markatalan gefur alranga mynd
af leiknum, sem var mikill bar-
áttuleikur og leikur hinna glöt-
uðu tækifæra Vestmannaeyinga
við mark Vals. Vestmannaeying-
ar komu nokkuð á óvart með
snerpulegum leik og um leið og
lið þeirra fær meiri leikreynslu
verður J>að án efa skeinuhætt
flestum liðum.
MISHEPPNUÐ TÆKIFÆRI
Vestmannaeyingar f e n g u
snemma í leiknum tvö ágæt
færi og var Sigmar innherji að
verki í bæði skipin. í fyrra skipt-
ið tókst Valsvörninni að stöðva
knöttinn á marklínu eftir að
Sigmar hafði brotizt framhjá
Björgvin markverði Vals. í síð-
ara skiptið tókst Björgvin að
bjarga með hárréttu úthlaupi.
Vestmanneyingamir komu
Valsvörainni oft í klípu og
vantaði þá aðeins herzlumun
til að skora. Hraða höfðu þeir
nógan og snerpu, en vald
þeirra yfir knettinum í hröðu
upphlaupi er ekki nóg og rann
því margt upplagt tækifærið
út í sandinn.
FORYSTA VALS
Á 24 mínútu ná Valsmenn
forskoti. Bergsveinn Alfonsson
renndi knettinum í netið eftir að
vörn Eyjaskeggja hafði átt mjög
klaufalegan leik í sínum eigin
vítateig.
Bæði liðin áttu í hálfleiknum
góð tækifæri og það var Björg-
vin markvörður Vals sem mestan
heiður átti af því að Valur hélt
forystu í hálfleik.
Á 8. mín hálfleiks bætti Hans
Guðmundsson öðru marki Vals
við með fremur lausu en hnit-
miðuðu skoti af stuttu færi —
aftur fyrir mistök varnarmanna
ÍBV.
Örfáum mín. síðar áttu Vals-
menn sitt fallegasta upphlaup og
Bergsveinn skallaði í þverslá.
Valsmenn fengu því mörk sín
úr heldur lélegum upphlaupum
en þau góðu tókust ekki.
LIÐIN
Eyjarskeggjar sóttu meir í
leiknum en Valsmenn og oft brá
fyrir laglegum leik. Mesta at-
hygli vöktu úr liði Eyjamanna
Guðm. Þórarinsson (Týrsi) inn-
herjarnir Bjarni Baldursson og
Sigmar og Viktor Helgason mið-
vörður og markmennirnir báðir.
Attu þeir allir góðan leik en
gallinn er að þeir hafa ekki það
vörur
Kartöflumús — Kakómalt
Kaffi — Kakó
Reykjafoss, Hveragerði
Atvinna
Maður óskast til afgreiðslustarfa í véla-
verzlun vorri.
H É Ð I N N vélaverzlun
sími 24260.
U nglingsstúlku
vantar til sendiferða á skrifstofu okkar.
Sölusamband islenzkra
fiskframleiðenda
Aðalstræti 6, III. hæð.
Auglýsing
um hundahald í Reykjavík.
Samkvæmt lögum nr. 8, 1924 og reglugerð nr. 61
sama ár og 161. gr. heilbrigðissamþykktar er
hundahald'bannað í Reykjavík.
Er því hér með brýnt fyrir þeim, er kunna að
eiga hunda hér í borginni, að fjarlægja þá tafar-
laust þaðan, að viðlagðri ábyrgð.
Lögreglustjórinn í Reykjvík, 24. september 1963.
vald yfir knettinum sem nauð-
synlegt er, enda lítt leikreyndir.
Valsmenn áttu á köflum í vök
að verjast og kom það stundum
út í alltof grófum leik varnar-
innar. Bezti maður liðsins var
Björgvin í markinu og svo ungu
piltarnir Bergsveinn og Her-
ÍR-Kefla-
vík saman
'í
Nú eru aðeins 4 lið ósigruð
í Bikarkeppni KSÍ og hefurf
verið dregið um það hvaða
lið leiki saman í 5. umferð
sem verður á sunnudaginn
kemur.
Akurnesinðar mæta Vals-
mönnum og fer leikur þeirral
fram á Melavellinum kl. 2
síðdegis.
Sama dag kl. 5 mætast svo
bikarameistarar KR og nýlið
arnir í 1. deild Keflvíkingar.
Er ekki að efa að það verð-
ur hörkuleikur því bæði lið-
in eru baráttulið. Keflavíkur-
liðið „sló út“ Akureyrarlið-
ið á heimavelli þess s.I. sunnu
dag en KR-ingar áttu í erfið-
leikum gegn B-Iiði Akraness.
UM ÞETTA efni er því miður
hægt að skrifa þykka bók, en
einnig örfáar kjarnyrtar línur,
sem ef til vill verða lesnar og
metnar einhvers, frekar en lang
ar greinar, sem fyllt gætu heila
bók, sem enginn nætti vera að
að lesa.
Ég mun gera örstutta grein
fyrir því, sem ég hygg til bóta
fyrir íþróttamál:
1. Stóraukinn áróður á öll-
um sviðum fyrir íþróttum og
gildi íþrótta. Samkeppni við
freistingar æskufólks verður
íþróttahreyfingunni erfið, því
margt glepur og er gyllt af
þeim, sem lifa af skemmtana-
lífi, en þeir sem það stunda
skilja gildi auglýsinga og þess-
vegna m.a. eru skemmtistaðir
svo vel sóttir, það er beinlínis
auglýst eftir fólki til að koma,
— og það kemur. Það er vel
þess virði að reyna að breyta
straumnum með vel skipulögð-
um áróðri.
2. Störf framkvæmdastjóra
allra stærri íþróttafélaga skulu
verði fullt starf og vel launuð.
Héraðssambönd með mörg félög
skulu á sama hátt hafa a.m.k.
einn eða fleiri forystumenn í
fullu starfi, launuðu, fyrir við-
komandi félög og ferðast við-
komandi aðili á milli félaga og
skipuleggur starfsemi.
Ástæðan er einföld: Það er
geysimikið starf að stjórna stór
um íþróttafélögum og íþrótta-
samböndum og er ógerningur
svo eitthvert vit sé í nema við-
komandi geti algjörlega einbeitt
sér að starfinu.
3. Komið verði á þeirri reglu
í öllum íþróttafélögum og sam-
böndum að nefnd starfi að félags
legri endurskoðun og skili ávallt
áliti á aðalfundum félaga og
sambanda. Tilgangur þessara
nefnda, sem verða að vera sett-
ar af völdu fólki, er að hafa
vakandi auga með framgangi
félagsmóla og draga niðurstöður
saman í lok starfstímabils, og
um leið benda á það sem miður
og vel hefur farið á starfstíma-
bilinu, og gera tillögur til úr-
bóta ásamt tillögum um starfs-
tilhögun viðkomandi félags næst
komandi starfsárs. Nefndir þess-
ar gætu veitt stjórnum félaga
nauðsynlegt aðhald og verið sem
ráðgefandi aðili, sem ávallt
veitti aðstoð eftir þörfum.
Aðeins skipulögð starfsemi,
með mátulegu aðhaldi stjórna,
geta borið varanlegan árangur.
4. Reynt verði eftir mætti, að
hafa æfingastaði fyrir íþrótta-
fólk opið á kvöldin og um helg-
ar þegar mest er hætt á óreglu
samri útivist unglinga og sé það
auglýst á áberandi stöðum í blöð
um, götuauglýsingum og útvarpi.
Sérstaklega skal bent á sund-
laugar í þessu sambandi.
5. Forystumenn íþróttamála
ferðist um land allt, í hvert
einasta byggðarlag, og ræði við
borgara, forystumenn íþrótta-
mála og bæjarstjórnir á hverj-
um stað til eflingar íþróttalífs
og útbreiðslustarfsemi.
— Áhugamaður.
íþróttablaðið
koinið út
íþróttablaðið, septemberheft-
ið, er komið út. Á forsíðu þess
eru myndir frá íþróttahöllinni I
Laugardal og í heftið skrifa að
þessu sinni Einar Björnsson um
„Hljótið sigurlaunin“, Hallur
Símonarson um „Islandsmeistar-
ar í 18. sinn“, og landsleikinn
við Breta, Örn Eiðsson um
Anægjulegt meistaramót og
ágætan formannafund ÍSÍ. Grein
er um Jóhann Bernhard rit-
stjóra og um „Kópavog og íþrótt
ir“ auk smærri greina og fastra
þátta.
IVIinnmg
Asmundur Jónsson
frá Skúfsstöðum
EITT LÍF er slokknað. Ásmund-
ur Jónsson frá Skúfsstöðum treð
ur ekki lengur götur Reykja-
víkur. Jafnvel þótt maður hafi
átt við langvarandi vanheilsu
að stríða er dálítið erfitt að
fella sig við að hann sé ekki
lengur í lifenda tölu, ekki sízt
þegar sá hinn sami var manna
vísastur til að færa með sér birtu
og yl hvar sem hann fól.
Ég get ekki sagt að okkar
vinskapur hafi verið langur, enda
eru ekki nema rúm tvö ár frá
því að við sáumst fyrsta sinni,
en þeim mun einlægari var
okkar vinátta. Ég rek ekki lífs-
feril þinn, enda þekkti ég hann
ekki, en mér er ljóst að ég er
vini fátækari. Og mér finnst
birtuna vanta á skrifstofu mína
eftir að þú hættir að líta inn.
Það var ætíð gleðibragur yfir
ferðum þínum, jafnvel þótt þú
værir sárþjáður. Og þú hafðir
ætíð einhverju að miðla af vizku
brunni þínum. Þú varst manna
fróðastur og kunnir vel að segja
skemmtilega frá, svo að unun
var á hlýða.
En það sem kannske ein-
kenndi alla þína framkomu og
hugarfar hvað mest, var rétt-
lætiskenndin, sem þá lést aldrei
víkja fyrir sýndarmennsku. Þú
varst ekki einungis gott skáld.
Þú varst líka maður til að standa
fyrir þínu. Þú veikst ekki af
hólmi, hver sem í hlut átti, ef
þér fannst málum hallað frá
því sem rétt var og sanngjarnt.
Og þeir munu ófáir er þú rétt-
ir hjálparhönd er í nauðir rak,
þó að þú hefðir ekki af ver-
aldlegum auði að státa voru ráð
þín góð og hughreystandi. Og
þú taldir ekki eftir þér sporin
ef þú hélzt að þú gætir beint
erfiðu hlutskipti einstaklings til
betri vegar.
Þú vannst að hugðarefnum þín
um í kyrrþey og ekki kæmi mér
á óvart þó að eftir þig fyndust
mörg gullkorn, enn óskráð, er
eiga eftir að fegra íslenzkar bók-
menntir. Það var engin tilvilj-
un að þú matzt Einar Benedikts
son meir en önnur skáld íslenzk,
enda mun það ekki ofmælt, að
þú hafir verið sá maður er bezt
gazt túlkað verk þess mikla
skálds. Og mun það skarð seint
bætt er þín nýtur ekki lengur
við. Ég minnizt þess er ég kom
heim til þín eftir að þú hafðir
fengið 'áfall það er leiddi þig
til bana, að á borðinu hjá þér
lá bókin Hrannir eftir Einar
Benediktsson og þú sagðist hafa
verið að fara yfir nokkur kvæði
Einars. Já, þú varst til hinztu
stundar trúr fegurð og hreinleik
íslenzkra bókmennta. Þannig
mun þín minnst í dag er síðustu
skrefin eru gengin með þér
til moldar. Ég þakka þér vinur
fyrir margar ánægjustundir. Og
sér í lagi þakka' ég þér fyrir
þann fróðleik er þú veittir mér
um íslenzkar bókmenntir fyrr
og nú. Og þó að ekki skuli um
það dæmt hvort framför eða
afturför hafi orðið í íslenzkum
bókmenntum á seinni árum þá
mun Ásmundur Jónsson hafa
mikið til síns máls er hann hélt
því fram að menningu vorri sé
hætt ef kastað er höndunum ttf
orðsins listar.
Lifi minning þín.
Andrés Guðnason.
SYLVANIA
Ð'.n’On of
emnAi Tíupvtmtmmnomcs wftntT/om
STUNDIR