Morgunblaðið - 26.09.1963, Side 24

Morgunblaðið - 26.09.1963, Side 24
FERDAÞJdNUSTA OG FARMI8ASALA ÁN aukagjalds 1Z 208. tbl. ■— Fimmtudagur 26. september 1963 laugavegi 26 simi 206 10 Brezkur háseti bíður bana ísafirði. 25. sept.: — Brezkur togarasjómaður beið bana í gærkvöldi er togarinn St. Giles frá Hull fékk sjó á sig um 30 miiur frá Horni. Hásetinn, Barry Newton að nafni, skall í þilfarið, þegar sjórinn reið yfir og beið hann þegar bana. Hafði hann hálsbrotnað og höfuðkúpu- brotnað. Hásetinn var tvitugur að aldri. í þessu sama ólagi handleggs- ÍHcukur Eiríks- son blaðomoð- brotnaði annar háseti og var hann fluttur í sjúkrahús ísafjarð ar, þegar togarinn kom hingað í morgun. Fjórir brezkir togarar að auki liggja nú hér inni; þrír með bil aðan radar. lotinn HAUKIJR Eiríksson blaðamaður við Morgunblaðið lézt í Borgar- sjúkrahúsinu í Reykjavík í g'ær- dag, 33 ára að aldri. Haukur starfaði hjá Morgunblaðinu frá 1956, fyrst sem prófarkalesari, síðan sem blaðamaður, síðustu árin var hann einn af starfs- mönnum Lesbókar Morgunblaðs- ins. Haukur Eiríksson var fæddur 30. ágúst 19 0 á Ási á Þelamörk, en fluttist með foreldrum sínum til Akureyrar 13 ára gamall. Hann gekk í Menntaskólann þar í bæ og lauk stúdentsprófi vorið 1950. Þá um haustið innritaðist hann í íslenzkudeiíd Háskóla ís- lands, en hvarf frá námi og flutt- ist á æskustöðvar sínar, þar sem hann gerðist starfsmaður hjá Útgerðarfélagi Akureyrar og síð- ar hjá Gefjun. Eins og fyrr get- ur, fluttist hann aftur til Reykja- víkur 1956 og átti þar heima til dauðadags. Haukur Eiríksson var góður starfsmaður og félagi. Hann var prýðilegur verkmaður og leysti af hendi öll sín störf í blaða- mennsku af öryggi og smekkvísi. Hann var glaðvær og hrókur alls fagnaðar í hópi vina sinna og félaga. Hann unni fögrum listum og var sérlega vel að sér í bók- menntum, en þó átti tónlistin drýgstan spöl í sál hans og’ huga, enda var hann söngmaður ágæt- ur og stundaði í einn tíma söng- nám við Tónlistarskólann. Haukur Eiríksson lætur eftir sig föður, eiginkonu og fjögur börn. Starfsfólk Morgunblaðsins sendir þeim öllum innilegustu samúðarkveðjur, um leið og það saknar vinar í stað. Siglufjarðar- skarð enn lokað SAMKVÆMT upplýsingum, er blaðið fékk hjá Vegamálaskrif- stofunni í gærkvöldi, var Siglu- fjarðarskarð enn lokað og Möðrudalsöræfi ófær. Oddsskarð átti að moka í gær. 100 ARA I DAG VALGERÐUR Stefánsdóttir, Reynimel 48 hér í borg, er hundrað ára í dag. Valgerður hefur verið rúmliggjandi sl. tvö ár og sjónina missti hún fyrir fimmtán árum. Engu að síður fylgist hún vel með öllu enda minnisgóð með afbrigð- um. Valgerður er fædd að Núps- túni í Hrunamannahreppi 26. september 1863 og bjó í þeirri sveit ásamt fyrra manni sín- um, Bjarna Jónssyni, er lézt árið 1896. Síðari maður Valgerðar er Frímann Tjörfason. Bjuggu þau um skeið á Bíldudal og ísafirði, en fluttu hingað til Reykjavíkur árið 1921 og hafa búið hér síðan, nú á heimili sonar síns og fóstur- dóttur. Þjóðverjarnir fjórir skammt frá Skaftþolti. Talið frá vinstri: Klaus Nendel, Detlef Reise, Jörn Scheer og Hartmut Usinger. Vörubíll í sjóinn í Óluisvík ÓLAFSVÍK 25. sept. — Á tíunda tímanum í morgun fór fimm tonna vörubílli með hlass á palli fróim af nýja hafnargarðinum, sem hér er verið að gera. Vöru- bíllinn var að bakka með grjót fram í garðinn, en þegar hann var rétt kominn fram á brúnina byrjaði að hrynja undan hon- um. Gerðist þetta svo snögglega, að ökumaðurinn og eigandi bílsins, Sverrir Sigtryggsson, gat með naumindurn forðað sér. Sá hann á eftir bíl sínum, þar sem hann steyptist í sjó fram. Er alldjúpt á þessum stað og ekkert sást á bifreiðina um fjöruna í dag. Ætlunin er að láta kafara fara niður og koma á bílinn böndum til að ná honum upp. — Frétta- ritari. Gangnamenn hittu 4 Þjdðverja á öræfum sem ekki höfðu hitt neinn í 6 vikur ÞEGAR ÞEIR gangnamenn Gnúp verja, sem lengst fara, komu að Bólstað við Sóleyjarhöfðavað á Þjórsá á Sprengisandsleið, síðast liðinn föstudag, urðu þar fyrir þeim fjórir þýzkir náms- menn, sem hafa verið á ferðinni á fjöllum í 8 vikur og ekki séð mann í 6 vikur. Þeir hafa m.a. dvalið við Tungnafells jökul, í Þjórsárveri og víðar og skoðað jurtir, fugla og hraun og unað sér hið bezta. Þeir voru svo heppnir að hitta gangnamenn rétt áður en óveður skall á. Mbl. hafði tai af þeim í gær í Skaft holti í Gnjúpverjahreppi, þar sem þeir voru í góðu yfirlæti og ætla að bíða til að sjá safnið koma niður af fjöllunum, áður en þeir halda til Reykjavíkur og heim. Þeim sagðist svo frá ferðinni: Við komum frá Þýzkalandi, tveir frá Hamborg, einn frá Kiel og eiiin frá Flensburg, til Reykja víkur og fórum þaðan til Akur- eyrar. Þaðan fluttum við dótið okkar á jeppa upp til fjalla, suð ur af Tungnafellsjökli, en sjálfir lögðum við af stað gangandi frá Mývatni, að Dettifossi óg upp með Jökulsá í Herðubreiðarlind ir, gengum á Herðubreið og í Öskju og þaðan að Vatnajökli hjá Kistufelli og síðan fórum við yfir að Tungnafellsjökli, þar sem við höfðum vistir okkar. Meðan við vorum þar gengum við á fjöll og skoðuðum jurtir, fugla og jarðfræðileg fyrirbæri. Þaðan hófst svo síðari hluti ferðarinnar. Við höfðum með okkur gúmmíbát og notuðum hann á Þjórsá, og litla á, sem í hana rennur og nefnist Fjórð- ungskvísl. Við gátum ekki sjálf- ir farið á bátnum, en við höfðum farangurinn okkar í honum og höfðum hann í böndum frá bakk anum. Þegar við komum nokkuð niður með Þjórsá gátum við þó stigið í bátinn og siglt þó nokk uð niður eftir ánni. En svo kom gat á bátinn. Við komumst auð veldlega á honum í land, en urð um eftir það að bera farangur okkar. Þannig héldum við áfram niður að Dalsá, þar sem við mætt Niðurskurður # þremur hreppum Dalasýslu -18 jbús. fjár slátrað í HAUST verður öllu fullorðnu fé og lömbum slátrað í þremur hreppum Dalasýslu, Haukadals hreppi, Hörðudalshreppi og Mið dalahreppi. Hefur mæðiveiki orðið vart á sl. árum á nokkrum bæjum og þar farið fram niður skurður en nú verður allt fé í þessum hreppum skorið niður og mun það vera um 18 þús. kind ur og lömb. Verða hrepparnir sauðlausir í eitt ár og munu bændur fá í bætur 3/4 hluta lambsverðs fyr- ir hverja á, sem talin hefur ver ið fram á skattaframtali. Fyrstu bótagreiðslur fara fram haustið 1964 og aðrar sams konar ári seinna. Árið 1950 var framkvæmdur allsherjar niðurskurður á þessu svæði vegna mæðiveikivarna. um gangnamönnum á hestum og þeir tóku farangurinn okkar á hestana og við héldum til byggða með þeim. Fyrstu þrjár vikurnar, sem við vorum á ferðinni var veðrið mjög gott, og mest af tímanum ágætt, að vísu dálítil rigning, en ekkert sérlega kalt. Við höfðum nægar matarbirgðir, vorum hlýlega klæddir og höfðum allt sem við þurftum. í fyrradag fengum við svo hræðilegt hríðarveður, en þá Framhald á bls. 23. Grænlenzkt silfurbrúðkaup á Hvanneyri Akranesi 25. sept. — í ríki' hinna hraustu sæfara norð- ur í höf, Snæbjarnar galta og Halldórs á Höfn, gerist sú skemmtilega tilviljun í gær, að grænlenzk hjón halda silf- urbrúðkaup. Og þetta gerð- ist á Hvanneyri í Andakíl, ; þar sem sæfarar til forna komu skipum sínum í höfn' og bjuggu þau út til harð- ræða'á höfum úti. Haldnar voru ræður og drukkin minni, söngvar ( sungnir á íslenzku og græn- lenzku. Var ekki laust við meðan á veizlunni stóð, að þeim, sem frjóast höfðu ímyndaraflið, þætti sem þeir lifðu upp söguna, fyndist sem hér væru borð upp sett í Görðum í Brattahlíð, þar sem Eiríkur rauði og Þór-' hildur veittu mönnum beina. „Og hvar er nú Guðríður spákona," hvislaði einn í eyra sessunauts síns. „Nógar eru völvur í Borg- arfjarðarhéraði og þarf víst ekki lengi að leita“, var svar- ið.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.