Morgunblaðið - 12.10.1963, Blaðsíða 2
2
MORCUNBLAÐIÐ
Laugardagur 12. okt. 1963
V'
Eldur í timburhúsi
að Bergstaðastræti 1
Fljótlega tókst að slökkva.— en skemmdir
miklar
Slökkviliðið að starfi að Berg-staðastræti 1 í gærmorgun.
Hækkandi heimsmarkaðs-
verð á* mjöli og lýsi
ENN er nokkurt magn óselt af
síldarlýsis- og síldarmjölsfram-
leiðslu sumarsins, að því er Sig-
urður Jónsson, framkvæmda-
Nokkurt magn óselt af sumarframleiðsunni
stjóri SR, tjáði Morgunblaðinu í
gær. Verð á mjöli og lýsi hefur
farið heldur hækkandi siðustu
vikurnar á heimsmarkaðnum.
Um 8 þúsund tonn af síldar-
lýsi eru enn óseld hjá Síldarverk-
smiðjum ríkisins, af um 15 þús-
und tonna framleiðslu, sagði Sig-
urður, en ástæðan er ekki sú að
eftirspurn hafi ekki verið fyrir
hendi, heldur hefur verið beðið
með að selja, þar sem heims-
markaðsverð' hefur farið hækk-
andi undanfarið.
Allt fiskimjöl hefur verið selt
og mest allt síldarmjölið, en þó
eru eftir nokkur þúsund tonn hjá
SR. Eftirspurnin hefur farið
vaxandi og þar af leiðandi héfur
verðið farið fremur hækkandi,
en það var lágt fram eftir sumri.
Kvað Sigurður Jónssoh ekki vera
nein vandræði með sölu á mjöl-
inu.
Ástæðan fyrír vaxandi eftir-
spurn á mjöli og lýsi er minnk-
andi framleiðsla í heiminum. —
Hefur framleiðsla Perúmanna
heldur dregizt saman, hvallýsis-
Ekið á konu
á Hringbraut
og barn a Laufdsvegi
LAUST eftir kl. þrjú var ekið á
konu á mótum Hringbrautar og
Laufásvegar, með þeim ‘afleið-
ingum að hún slasaðist nokkuð
og var flutí í slysavarðstofuna.
Konan, Soffía Thordarson,
Laufásvegí 60, var á leið yfir
Hringbrautina, er slysið varð Var
hún komin yfir eyjuna vestan
gatnamótanna, og ætlaði suður
yfir akreinina, er hún varð fyrir
leigubíl. Tókst bílstjóranum ekki
að hemla, og slfell konan framan
á bílinn og félþ í götuna. Soffía
var flutt í slysavarðstofuna. og
mun ekki hafa verið alvarlega
slösuð.
Um kl. 12 á hádegi varð 4
ára drengur, Aðalsteinn Júlíus
Magnússon, Laufásvegi 65, fyrir
bíl móts við Laufásveg 60.
Skodabil var ekið austur Laufás-
veginn og segir hilstjórinn að
hann hafi ekki vitað fyrri til en
drengurinn kom hlaupandi frá
gangstéttinni hægra megin göt-
unnar, og hljóp á bílinn miðjan.
Féll hann við það í götuna. Aðal-
steinn var fluttur í slysavarð-
stofuna, og reyndist skrámaður
í andliti, en að öðru leyti ómeídd
ur að heita.
• KARIALAINEN MYND-
AR EKKI STJÓRN
Helsingfors 11. okt. (NTB).
Ahiti Karialainen, fyrrv.
forsætisráðherra Finnlands,
var fyrir skömmu falið að
reyna stjórnarmyndun, en nú
hefur hann skýrt Kekkonen
forseta frá því, að tilraunin
hafi ekki borið árangur. Gert
er ráð fyrir að forsetinn muni
nú skipa embættismanna-
stjórn.
NA15 hnúfar / SVSOhnútar H Sn/Hcmt • OS/ — 7 Shirir E Þrumur W/ÍÍS, KuUuM V Hihtki H Hmi 1 L'LmaÚ
„ ,o n UWr ^ ma 1 jwo - *<, U.moX
framleiðslan hefur orðið minni
í ár, svo og síldarlýsisframleiðsl-
an. — v
Síldarverksmiðjur ríkisins
selja sjálfar sína framleiðslu, en
framleiðsla annarra aðila er seld
af einstaklingum.
ELDUR kom upp í eldhúsi á efri
hæð gamals timburhúss að Berg-
staðastræti 1 um kl. 7.30 í gær-
morgun. Fljótlega tókst að
slökkva eldinn, en miklar
skemmdir urðu á hæðinni og
innbúi.
Slökkviliðinu var gert aðvart
um brunann um kl. 7.30 í gær-
morgun af manni í næsta húsi,
sem hafði orðið var við reykinn.
Eldurinn kom upp í. eldhúsinu
og breiddist í vegg, sem raf-
magnseldavél stóð við, svo og í
loftið yfir eldhúsinu. Tókst
slökkviliðinu að slökkva eldinn
innan tíðar, en þá höfðu orðið
miklar skemmdir á efri hæð húss
ins og innbúi, en þarna bjó norsk
ur maður, Ulf Mork, ásamt ís-
lenzkri konu sinni, Huldu Mork,
og tveim börnum þeirra, 6 ára
og 4 ára.
Ulf Mork, sem vinnur á Kefla-
víkurflugvelli, hafði farið þang-
að fyrr um morguninn. Kona
hans var á leið út með börnin.
Þórunn og
Ashkenazy
eignast dóttur
* Einkaskeyti til M!bl. frá
AP. — 11. október.
í MORGUN ól Þórunn Jó-
hannsdóttir annað barn sitt
í siúkrahúsi í London og er
það stúlka. Móður og dóttur
líður vel. Eins og kunnugt
er eiga Ashkenazy-hjónin fyr
ir 20 mánaða son, sem heitir
Vladimir eins og faðir hans.
Sólfari kom
með 3000
girðingarstaura
AKRANESI, 11. okt. — Sólfari
AK 170, bátur Þórðar Óskars-
sonar, skipstjóra, kom hingað í
heimahöfn kl. 1 í nótt. Bótur
inn er 190 brúttótonna stálskip,
smíðaður 1 Rosendal í NoregL
Kom Sólfari hlaðinn 3000 girð
ingastaurúm fyrir Skógrækt
ríkisins. Eigandinn sigldi bátn-
um heim óg verður sjálfur með
hann á veiðum.
Á h*eimleið hreppti Sólfari
vont veður við Færeyjar og
reyndist skipið hið bezta í sjó
að leggja. — Oddur.
þegar slökkviliðið kom á stað-
inn. '
Á neðri hæðinni er Hanzka-
gerð Guðrúnar Eiríksdóttur. —•
Breiddi slökkviliðið vatnsheld
segl yfir vörur og vélar í hanzka-
gerðinni til að forða skemmdum,
enda munu þær hafa orðið litlar.
Húsið er eign Geirs Konráðs-
sonar og var það vátryggt, svo
og innbú Mork-hjónanna.
Mogens
Wöldike
ritar um
dr. Pál
Einkaskeyti til Mbl. frá
Kaupmannahöfn ll.-okt.
t DAG ritar tónskáldið og
dómorganistinn Mogens Völd-
ike um dr. Pál ísólfsson í
Kristeligt Dagblad í tlefni 70
ára afmælis hans. Segir Völd-
ike m. a.: Danskir kirkjutón-
listarmenn hylla hinn mikla
islenzka meistara — dóm-
organistann, orgelsnillinginn,
hljómsveitarstjórann, tónskáld
ið og heiðursdoktorinn. Hann
er þekktur fyrir framúrskar-
andi orgelieik oig formfagrar
tónsmíðar, ekki aðeins á Norð
urlöndum,. heldur af öllum
tónlistarmönnum Evrópu. —
Starfsbræður, sem hafa haft
samband við hann um árabil,
hafa hitt fyrir mjög hrífandi
persónuleika og þeir okkar,
sem hafa orðið þeirrar ánægju
aðnjótandi að kynnast honum
nánar, þekkja bæði skemmti-
legan, andrikan, sérlega vand-
• aðan og alúðlegan mann.“
l Rytgaard.
I
Nokkur hluti fulltrúanna á kaupgjaldsráðstefnun ni
Kaup verði verðtryggt
á einhvern hátt
Fjölmenn
lýðsíélaga
ráðstefna frjálsra verka-
um kaupgjaldsmál hófst
Reykjavík í gær
f gær var kyrrt veður og
léttskýjað um mestan hluta
landsins og hiti 4—6 stig fyr-
ir sunnan, en 1—3 stig fyrir
norðan. í Skotlandi og Suður-
Noregi var hinsvegar hvass-
viðri og rigning.
Fellibylurinn Flóra heldur
áfram til norðausturs. Á kort
timanum var hann um 1300
km suðui; af suðvestur-odda
Nýfundnalands, eða 900 km
fyrir suðvestan yztu mörk
kortsins. *
FUNDUR sá um kaupgjaldsmál
er Sjómannafélag Reykjavíkur,
VR, Iðja, félag verksmiðjufólks
og Félag isl. rafvirkja boðuðu
til með fulltrúum verkalýðsfélag
anna í Reykjavík og nágrenni
var settur kl. 5 siðdegis í gær.
Jón Sigurðsson, formaður Sjó-
mannafélags Reykjavíkur, setti
fundinn og stjórnaði honum.
Fundarritari var kjörinn Magn-
ús Sveinsson, framkvæmdastjóri
VR.
Óskar Hallgrímsson, form.
Félags. ísl. rafvirkja, hafði fram
sögu um ástand og horfur í
kaupgjaldsmálum. Rakti hann
þróun þessara mála um 20 ára
skeið og þó sérstaklega þróun
kaupgjalds og verðlags s.l. 2
árin.
Lagði hann sérstaka áherzlu
á, að stöðva yrði þá óheillaþró-
un að verðhækkanir gleyptu allar
kauphækkanir á skömmum
tíma. Einnig benti hann á, að
óeðlilegt væri að tengja
kaup bænda við meðaltekjur ann
ara stétta og breyta þyrfti til
með ákvörðun verðlagsgrundvall
ar landbúnaðarafurða.
Framsögumaður lagði einnig
mikla áherzlu á, að launþegar
fengju kjarabætur nú þegar jafn
framt því sem tryggt yrði að
verðhækkanir tækju ekki allar
launahækkanirnar til sín, þ.e.
að kaup yrði verðtryggt á eia-
hvern hátt.
Auk framsögumanns tóku
margir fulltrúar til máls og voru
allir á einu máli um að ekki
yrði komizt hjá því að hækka
kaup og tryggja kaupmátt launa.
svo og að breyta verðlagsgrund-
velli landbúnaðarafurða.
í fundarlok var kosin 6 manna
nefnd til að yfirfara uppkast
að ályktun sem lögð var fram á
fundinum og leggja hana fyrir
framhaldsfund, sem hefst kluklc
an 2 Síðdegis í dag.
25 verkalýðsfélögum í Reykja
vík og nágrenni var boðið að
senda fulltrúa á fundinn. Á fund-
inum mættu fulltrúar 20 verka-
lýðsfélaga með samtals 13 þus-
und meðlimi, þar af mættu úr
Reykjavík fulltrúar 17 félaga sem
telja innan vébanda sinna %
hluta allra þeirra launþega i
Reykjavík, sem eru í félögum
innan Alþýðusambands íslands.
Fullvíst er, að fulltrúar fleiri
félaga mæti á fundinum í dag.